Morgunblaðið - 21.03.1962, Page 24

Morgunblaðið - 21.03.1962, Page 24
Fféttasímar Mbl — eftír lokun — ErJer.dar fréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 Vettvangur Sjá bls. 13 67. tbl. — Miðvikudagur 21. marz 1962 Engin hátíðahöld á Sumardaginn fyrsta Ber nú upp á Skirdag AÐ ÞESSU sinni fellur Sumar-1 un um hvað gert yrði undir þess- dagurinn fyrsti saman við Skír-, um kringumstæðum. Sagði hann dag, þann 19. april, og veldur að endanlega hefði það ekki ver- það því að fella verður niður all ar inniskemmtanir á Sumardag- inn fyrsta og líkindi til að öll útihátíðahöld verði einnig að falla niður. Blaðið ieitaði í gær frétta hjá Boga Sigurðssyni, félagsráðs- ið ákveðið. Þetta hefði einu sinni áður komið fyrir síðan farið var að halda Sumardaginn fyrsta hátíðlega með svipuðum hætti og nú, og hefði það valdið miklum erfiðleikum. Á skírdag eru öll I samkomuhús lokuð og ekki hægt manni Sumargjafar, um það að fá þau til barnaskemmtana og hvort félagið hefði tekið ákvörð- Koupú tvo bótu í stuð Ellíðu SIGLUFIRÐI, 20. marz. — Sam- þykkt hefur verið í bæjarstjóm Siglufjarðar að festa kaup á tveimur 100—110 tonna bátum, sem komi í stað togarans Elliða, er fórst fyrir skömmu. Ér þetta hugsað til að bæta atvinnutjón, er skapaðist af missi togarans. Hefur verið auglýst eftir til- boði í smíði á þessum bátum. Tilboði þarf að fylgja teikning og smíðalýsing og skal það mið- að við að bátnum fylgi allur venjulegur útbúnaður, svo sem radar, fisksjá, kraftblökk, tog- vinda og fleira slíkt. IMMMlAMtMMMllMhM mjög mikil líkindi séu til þess að útihátíða'höld verði einnig að falla niður á þessum kirkjulega hátíðisdegi. Aftur á móti sagði Bogi að ákveðið væri að gefa út Sólskin, eins og venjulega, en líklega yrði það selt síðasta vetrardag í stað fyrsta sumardags að þessu sinni. 130 lest- ir á einni viku SIGLUFIRÐI, 20. marz. — Björgúlfur frá Dalvík, sem er 250 lesta bátur, kom hér inn og landaði 70 lestum af fiski sem fer í hraðfrystihús SR. Einn skipverja tjáði mér, að áður í vikunni hefði bát- urinn lagt á land í Húsavík 33 lestir af fiski og á Ólafs- firði 27 lestir. Samtals eru þetta 130 lestir og er það mjög góður afli á einni viku í>eir bátar sem hafa verið með troll hér út af Siglufirði og Ólafsfirði hafa yfirleitt fengið góðan afla. Sem dæmi má nefna að báturinn Sigurð ur Bjarnason hefur tvisvár ’lagt á land 30 lestir eftir sól- arhringinn. Aftur á móti hefur bátum með net og línu gengið ver. I — Stefán. Róstur í Komm- únistaflokknum — „Flokkurinn hefur glatað tili.ru verkalýðsins66, segja kommúnistar sjálfir flokksforystunnar. Hörðust var gagnrýnin þó á hina nei- kvæðu stefnu flokksins í verkalýðsmálum, og tóku sumir ræðumanna á fundin- um svo sterkt til orða, að flokkurinn hefði nú gjör- samlega glatað trausti verka- Iýðsins, og gæti ekki annað en gjörbreytt og ákveðnari stefna í málefnum hans af- stýrt yfirvofandi fylgishruni flokksins. Virtust hinir sömu þeirrar skoðunar, að til þess að svo gæti orðið, væri þörf „hreinsunar" í forystuliði flokksins, og komu t. d. fram raddir á fundinum um hreins KAUPLAGSNEFND hefur reikn un hÍá málgagni flokksins, MIK L A R róstur hafa nú brotizt út innan Kommúnista flokksins eftir margra mán- aða aðdraganda. Sauð loksins upp úr á allfjölmennum félagsfundi, sem Sósíal- istafélag Reykjavíkur hélt í síðustu viku um verkalýðs- mál, þar sem nær allir þeir, sem til máls tóku, lýstu yfir megnri óánægju með stefnu- leysi og tvískinnungshátt Vísitalan óbreytt að vísitölu framfærslukostnaðar í byrjun marzmánaðar og reyn- ist hún vera 11,6 stig eða óbreytt frá vísitölunni í byrjun febrúar. Vísitala einstakra flokka er óbreytt frá í janúar, nema hvað matvörur hafa lítillega lækkað. Þjóðviljanum. Meðal þess, sem fleira kom athyglisvert fram á fundinum, má m. a. nefna þetta: ★ Aðalástæðan til 'afhroðs flokks 'S>- Beztu afladagar Rvíkurbátanna Síld fyrir vesfan Eyjar 1 GÆR og í fyrradag munu hafa verið beztu afladagar, sem kom ið hafa á vertíðinni hjá Reykja víkurbátum. Hafa bátarnir kom ið með frá 6 og upp í 30 lestir. í fyrradag voru hæstu bátar Kári Sölmundarson með 30 lest ir og Aldís með 28 lestir. f gær kvöldi, þegar Mbl. hafði sam- band við Grandaradio voru bát amir að koma inn. Var þá vitað að Víðir SU mundi hafa um 28 lestir, Pétur Sigurðsson um 24 ©g Helga 22. En ýmsir bátar voru ókomnir og ekki vitað um afla þeirra. -- XXX --- Mánudag voru uim 100 bátar á sjó frá Eyjum. Heildarafli þeirra var rúmar 500 lestir. Þriðjudag kom Guðmundur Þórðarson með 300 tunnur síldar, sem hann fékk fyrir vestan Eyjar. Hann fékk mjög stórt kast en sprengdi nót ina. — xxx — Fréttaritari blaðsins á Akra- nesi símaði aflafréttir þaðan: í gær lönduðu hér 16 bátar, 190 lestum alls. Lang aflahæstur var Höfrungur I með 33 lestir, ann ar Sæfari með 17 og þriðji Skag firðingur með 16,3. Bátarnir öfluðu misjafnlega, en fiskurinn var sæmilegur. Var hann ýmist hraðfrystur eða salt aður. — Oddur. Fréttaritarinn í Sandgerði sím aði: í gær komu 19 bátar til Sandgerðis með 142 lestir. Afla hæstir voru Guðmundur Þórð arson og Gylfi II með 13,2 lestir og Jón Gunnlaugsson með 10,2. Línubátar eru nú að byrja að skipta yfir á netin — POP. ins í kosningunum í verkalýðs- félögunum að undanförnu, sögðu flestir ræðumanna, er sú, að for- ysta flokksins í verkalýðsmálum er ekki í nógu miklum tengslum við verkamenn sjálfa. Stefna flokksins í verkalýðsmálum er mörkuð af skrifstofumönnum án nokkurs samráðs við þá, sem mál ið er skyldast, þ.e. verkamenn. Var það krafa flestra þeirra, sem til máls tóku, að hin svokölluðu „flokkslið" innan verkalýðsfé- laganna væru kölluð saman til umræðna um málefni þeirra, en á undanförnum árum mun hafa gætt mikillar tregðu hjá verka- lýðsforystu flokksins að kalla þessi lið saman, einkum þó í Dagsbrún, enda hlaut stjórn Dags brúnar mest ámæli allra á fund- inum. Er ástæðan til þessarar Nú með voriinu fjölgar krökkunum á götunum og þó betur sjáist til, þá er umferðin á götum Reykja víkur orðin það mikil, að bam á miðri akbraut er ávallt í hættu. Þessa rrtynd tók ÓI. K. Magn. upp eft- ir Hrannarstíg og sést á Landakotsspítalann. Rétt þar sem hann stendur er beygjan hjá gamla Stýri- mannaskólanum og fyrir hornið má eiga von á bíl hvenær sem er. Þeir litlu eru hinir vígalegustu, aim ar með spjót og skjöld eins og fornmaður. — Kannski ætlar hann að verja borgina okkar. tregðu til að kalla flolkksliðin saman aðallega talin sú, að skrif- stofulið í fl'O'kknum, sem hefur það að atvinnu að bera titilinn „verkalýðsforingj ar“ hefur verið í sífelldum ótta við gagnrýni óbreyttra flokksmanna og talið að völd og áhrif þeirra sjálfra mundu dvína, ef það yrði gert og flokksmenn í verkamannastétt fengju þannig vettvang til að Framih. á bls. 23. Búnaðarþing vill láta athuga aukaaðild að Efna hagshandalaginu Frá búnaðarþingi: Búnaðarþing telur að fyrir fámenna þjóð í víðáttumiklu landi með mikla ónotaða mögu- leika komi full aðild að Efna- hagsbandalagi Evrópu ekki til greina í náinni framtíð. Hins vegar lítur Búnaðarþing svo á, að íslendingar eigi að geta aukið viðskiptaleg og menningarleg samskipti við Vestur-Evrópu og vill í því sambandi leggja áherzlu á að það sé mjög vel athugað r Attundi togarinn í Reykjavíkurhöfn f GÆR kom Hallveig Fróðadóttir inn til Reykjavíkur og landaði afla sínum. Bættist hún í hóp þeirra togara, sem liggja hér inni vegna verkfallsins. Fyrir eru Jón Þorláksson, Geir. Freyr, Víking- ur, Neptúnus, Askur og Gylfi. hvort fslendingar geti ekkl tengst Efnahagsbandalaginu með auka aðild, þ. e. með sérstökum samningi í tolla- og viðskipta- málum. Til dæmis án þess að eiga á hættu að fluttar verði til landsins landbúnaðarafurðir, sem seldar yrðu á lægra verði en tök er á að framleiða innan- lands. Jafnframt sé samningum hagað þannig, að íslendingar hafi á hverjum tíma full umráð yfir auðlindum landsins og því hve miklu erlendu fjármagni og vinnuafli sé veitt móttaka. Þá telur Búnaðarþing rétta stefnu í málinu að bíða átekta unz málin skýrast betur og sjá hvers konar samningum aðrar þjóðir ná í Efnahagsbandalaginu svo sem Norðmenn og Bretar. Loks telur Búnaðarþing brýna nauðsyn að ná sem víðtækustu samstarfi innanlands um með- ferð málsins og það eitt látið ráða, sem atvinnuvegum landsina efnahag og þjóðlífi, er fyrir beztu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.