Morgunblaðið - 23.03.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.03.1962, Blaðsíða 1
24 síður X. 19. árgangur 69. tbl. — Föstudagur 23. marz 1962 Prentsmiðja Morgunblaðsins Mál Eichmanns fyrir hæstarétti Verjandinn vill kalla dr. Globke vitni sem Jerúsalem, 22. marz. (AP-NTB) t D A G var mál Adolfs Eich- maimj tekið fyrir hæstarétt í Jerúsalem. Verjandi hans. dr. Robert Servatius, hefur undir- búið málsóknina fyrir réttinum af mesta kappi síðustu mánuð- tna og kveðst munu leiða ný vitni í málinu. Óskaði hann í dag leyfis hæstaréttar til þess að mega kalla dr. Hans Globke, ráðuneytisstjóra vestur-þýzku stjórnarinnar, til þess að bera vitni í Jerúsalem. Dr. Servatius heldur því fram, að Globke, sem hafi verið full- trúi í innanríkisráðuneytinu á styrjaldarémnum, geti borið fyrir réttinum að Eichmann hafi verið nauðugur einn kostur að framfylgja þeim fyrirskipunum, eem honum voru gefnar. Dr. Servatius sagði fyrir rétt- inum, að Adolf Eichmann hefði óskað eftir því, að mál hans yrði tekið fyrir af vestur-þýzk- um dómstól, en utanrikisráðu- neyti Vestur-býzkalands hefði hafnað þeim tilmælum. LANDBUNAÐURINN í Rússlandi er í kalda koli og Krúsjeff á í miklum erfiðleikum með að finna „söku- dólginn“. Hann forð- ast eins og heitan eld- inn að viðurkenna hina raunverulegu á- stæðu, þ. e. að komm- únismi og landbúnað- ur geti ekki farið sam- an. Um þessi vanda- mál Krúsjeffs og rúss- neskra kommúnista er fjallað í merkri grein hins kunna Sovétsér- fræðings Edwards Crankshaw, sem birt- ist á 10. síðu blaðsins í dag. Dró verjandinn f efa lögmæti þeirrar afstöðu með tilliti til mannréttindasáttmála Samein- Framh. á bls. 23. Blóðugir bardagar í Algeirsborg i gær OAS-menn kalla guð til hjálpar ser Alsir, 22. mars. — (AP) — 0 SEINT í kvöld kom til blóðugra bardaga í Algeirs- borg milli sveita OAS-manna og franskrar herlögreglu. — Gerðu OAS-menn samræmd- ar árásir á þrjár stöðvar í miðhluta borgarinnar, sem eru hernaðarlega mikilvægir og beittu handsprengjum, sprengjuvörpum og vélbyss- um. — 0 Ein af árásum OAS- manna var gerð á aðseturs- stað landstjórans á hæð, þar sem sér yfir höfnina; yfir í göng ,sem liggja hjá háskóla borgarinnar, en þar var önn- ur árásin gerð — og enn- fremur yfir til skrifstofu- byggingar helztu embættis- manna frönsku stjórnarinn- ar, en þar var þriðja árásin gerð. • Ekkí var i gærkvöldi kunn- ugt um mannfall, en í borginni glumdu þá við sírenur lögreglu- 16 fórust í námaslysi Londion, 22. marz: — NTB — AP — Að minnsta kosti 16 námaverka menn biðu bana og 30 særðust meira eða minna í morgun, er sprenging vaxð í kolanámu í ná grenni Burnley í Lancasihire. Slysið varð í námagangi um það bil 200 m undir ytfirborði jarðar. Voru 162 verkannenn í náimunni er slysið varð en flest nm tólkst að komvaist upp strax eftir sprenginguna. og sjúkrabifreiða, seim fluttu særða í sjúkrahús. • í dag lamaði ailsherjarverk- fall allt atvinnulíf í Algeirsborg. Gaslaust var rafmagns- og vatnslaust í margar klukkustund ir og verzlanir víða lokaðar. • Evrópskir íbúar skutu úr gluggum og af svölum húsa sinna á franska lögreglumenn, þar sem þeir stóðu vörð. Og OAS-mönn- um tókst að sprengja öfluga plast sprengju í aðalbækistöð lögregl- unnar, þrátt fyrir sterkan her- vörð um bygginguna Við sprenginguna særðust þrír menn, enginn beið bana af, en yfirlögreglustjórinn Vitalis Cros slapp naumlega undan. Óvíst er hvernig OAS mönnum tókst að lauma sprengjunni inn í lögreglu stöðina því þar var alls staðar öflugur hervörður og leitað á hverjum manni, sem fór þangað inn. Endurteknar árásir voru gerð- ar á íbúðir Serkja og er talið líklegt, að fjöldi þeirra hafi látið lífið. Einn Serki var slkotinn inn- an veggja lögreglustöðvar í Bab-el-Oued þar sem hann hafði leitað skjóls undan skothríð OAS manna. Bvrópskir lögreglumenn, sem stóðu vörð við bygginguna höfðust okkert að til aðstoðar manninum, né gerðu þeir noifckra tilraun til þess að veita illræðis- mönnunum eftirför. OAS dreifðu enn flugritum í dag og voru evrópskir menn þar hvattir til þess að ráðast á lög- reglumenn eftir miðnætti í nótt, ef þeir ekki snérust á sveif með OAS-mönnum. Sikyldiu íbúar varpa sprengjum úr húsum sín- um á varðmenn næstu daga eink- um eftir að dimrna tæki á kvödd- in. ★ Þá fyrirsíkipaði OAS verkföll í ýmsum atvinnugreinum og varð Myndin hér að ofan er frá komu uppreisnarforingjans Mohammeds Ben Bella til< Rabat í Marokkio — en hann er hér eð heilsa þeim Ben. Khedda, forsætisráðherra út- 1 lagastjórnarinnar og Hassam 11. konungi Marokko. í dag hélt serknieska útlaga- stjórnin fund í Rabat og voru þar viðstaddir allir tólf ráð- herrar hennar í fyrsta sinn síð an stjórnin var mynduð fyrirl fjórum árum. Ben Bella, sem er varaforsætisráðherra stjórn' arinnar og fjórir aðrir ráð- herrar hafa verið saman i frönskum fangelsum í sex ár. Þetta var einnig fyrsti fundur stjórnarinnar eftir að sam komulagið í Evian var undir- ritað. Algeirsborg gas-, rafmagns, — og .vatnslaus í margar klst. í dag. Strætisvagnar hættu ferðum um nokkurn tíma. Einn af forystumönnum verka- lýðsfélaganna, Christopíhal Borja var handteikinn síðdegis í dag og hótuðu OAS menn þá enn víð- tækari verktföllum. Lét lögreglan undan hótuninni og leysti Borja úr haldi. í Oran særðust a. m. k. 22 Serfcir, þat af margar konur og börn, þegar evrÓE>skir íbúar borg arinnar vörpuðu sprengjum af húsþöfcum niður á fólkið á göt- Framh. á bls. 23 Krafizt 50 þús. kr. bóta fyrir spjöll arnar í varpi „VID erum löghlýðnir menn hér og viljum ekki styggja þessa erni eða skjóta þá, en við .unum þessu ekki lengi svona“, sagði Jón bóndi Dani elsson á Hvallátrum í Breiða- firði í símtali við Mbl. í gær, en Jón er í þann vegimn að fara í skaðabótamái við ríkis- sjóð vegna usla, sem örn nokk ur gerði í æðarvarpi hjá hon- um vorið 1957. Verður málið höfðað um mánaðamótin. — Þá átti Mbl. einnig símtal við Þorstein Karlsson, bónda að Búðardal í Skarðshreppi, en í dómsmálaráðunieytinu liggur nú gjafsóknarbréf frá bænd- um þar, sem telja að örninn styggi frá þeim allan sel, og liggi selveiðar niðri af þeim sökum. Skal hér fyrst rakið mál Jóns í Hvallátrum. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér hjá lögfræðingi Jóns, Jó- hannesi Lárussyni, var upp- haf máls þessa að vorið 1957 settist örn að í æðarvarpi i Hvallátum. Hringdi Jón þá í Ara sýslumann Kristinsson á Patrefcsfirði og bað leyfis að akjóta vágestinn. Sýslumaður hringdi þegar til menntamála- ráðuneytisins og kom þessari beiðni Jóns á framfæri. Var stranglega bannað að skjóta örninn, og lofað að bæta tjón- ið, sem hann hefði valdið. Þegar krefja átti um þessar bætur óskaði menntamálaráðu neytið eftir umsögn fuglafrið- unarnefndar og skilaði nefnd- in álitsgerð og mælti gegn því að tjónið yrði bætt sökum þess að þetta gæti skapað fordæmi að allskyns skaðabótakröfum á hendur ríkissjóði. Örn þessi var í varpinu í þrjár vikur og hafði sig síðan á brott. Gekk Jón þá um varp ið ásamt vitnum og var þar Frh. á bls. 3 *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.