Morgunblaðið - 23.03.1962, Qupperneq 11
MOKCT’NBLAÐIÐ
11
Föstudagur 23. marz 1962
Guöjón Guöjónsson
fyrrverandi skóEastjéri, sjöfugur
Aftur húsfylli
á Öskju-
kvöldvökunni
M E N N láta misjafnlega mikið
yfir sér og >að er ekki ýkja-
óvenjulegt, að innviðir þeirra,
sem segja: „manni sérðu mig“,
séu ekki að sama skapi seigir og
styrkir sem vindskeiðar þeirra
eru fagurlega farfaðar og vind-
haninn á bæjardyraburstinni
snúningshraður og hávær. Og
þess minnist ég, að sveitungi Guð
jóns Guðjónssonar og mikill vin-
ur okkar beggja, sagði við mig,
jþegar ég tjáði honum, að ég væri
að fara á fund Guðjóns í fyrsta
skipti, að ég skyldi vara mig á
því að láta mér ekki sjást yfir
það, sem bezt væri og verðmæt-
íist í höfði hans og hjarta. Hann
væri ekki vanur að flíka þvi
hversdagslega.
„Er hann þá eitthvert mein-
horn?“ spurði ég.
Hann saug pípu sána, vinur
okkar og mælti:
„Enginn mundi það siður, en
hann hefur af miklu að taka“.
Guðjón er fædidur á Akranesi
23. marz 1892. Faðir hans, Guð-
jón Jónsson var frá Skíðaholti á
Mýrum, en ættir hans voru úr
Borgarfirði. Voru forfeður hans
miklir bændur þar, unz móðu-
harðindin drápu menn í dróma.
Móðir Guðjóns var Húnvetning-
ur. Hún hét Ingibjörg og var
Jónsdóttir, bónda í Grafarkoti í
Línakradal. Hún var heitkona
Guðjóns Jónssonar, og höfðu þau
fyrir skömmiu sett bú saman, þeg
»r hann fórst i fiskiróðri í nóv-
embermánuði árið 1891.
Svo sem kunnugt er var engin
tryggingalöggjöf í þann táð hér á
íslandi. En engar fregnir eru af
Iþví, hversu Ingibjörg bjargaðist
xneð sveininn, sem hún fæddi
um það bil fjórum mánuðum eft-
ir lát bónda síns. En þegar snjóa
leysti af Holtavörðuheiði, fór
hún norður í Miðfjörð — og þar
voru þau síðan mæðginin, unz
hún giftist Guðmundi Guðmunds
eyni, en hann var stjúpsonur
stórbóndans í Núpdalstungu. —
Samvistir þeirra Ingibjargar og
Guðmundar urðu skammar.
Hann lézt, og að nýju stóð hún
ein uppi og nú með son og dótt-
ur. Þegar Guðjón var tíu ára,
varð hún ráðskona hjá Ólafi
ibónda Ólafssyni á Skarfshóli, en
jþað var í þann tíð 'mýrlent ör-
reytiskot, en nú — fyrir tilkomu
nýtízku tækja — ein túnstærsta
jörð í Miðfirði. Ólafur var og
enginn stórbóndi, en hann var
xnaður nýtinn, hagsýnn til verka
©g með afbrigðum lagvirkur. —
Stjúpsonurinn var og handlag-
inn og verkhygginn, og honum
vannst sérlega vel, og haft er eft-
ir Ólafi:
burðar og frjórrar séríslenzkrar
þróunar.
Alls ekki eru skiptar skoðanir
um það, að Guðjón Guðjónsson
hefur verið frábær kennari og
með afbrigðum farsæll skóla-
stjóri. Hann er auk þess manna
fjölfróðastur og afar smekkleg-
ur á mál og bókmenntir, fylgist
vandlega með því sem gerist hér
á landi og í umheiminum — og
kann furðu Ijós skil á samhengi
orsaka og afleiðinga. Hann er og
sérstæður heimilisfaðir og nota-
legur kunningi og vinur, hýr og
hlýr, gamansamur og þó Óhlut-
deilinn. En enn er mikið ósagt
um Guðjón og mun alltaf verða.
Mest um hann er það, að hann
sér alltaf og alls staðar öfl gróðr-
ar og göfgi; þetta, sem Stephan
G. Stephansson segir er ávallt
efst í huga hans, — að „sólskinið
verður þó til“.
Guðm. Gíslason Hagalín.
FERÐAFÉLAG íslands hefur
tvisvar í vetur haft kvöldivöku,
þar sem sýnd hefur verið kvik-
mynd Árna Stefánssonar af Öskju
gosinu Og dr. Sigurður Þórarins-
son flutt erindi um öskju og gos-
ið Og sýnt litmyndir Og kort
þaðan. Var seinni kvöldvakan sl.
fimmtudag, og var þá aftur hús-
fyllir í Sjólfstæðishúsinu og
margir urðu frá að hverfa. >að
er því okki að sjá annað en að
Ferðafélagið megi til með að
hafa þessa merku kvöldvöku enn
einu sinni. Æltti það að vera hægt
þar eð nú er fengin kopia af kvik
myndinni og því ekki um slit á
frumfilmunni að ræða, en það
stóð í veginum að hægt væri að
endurtaka fýrstu kvöldvökuna
strax. Erindi dr. Sigurðar í>ór-
arinssonar er, eins og að lík-
um lætur, ákaflega fróðlegt og
greinargott Og litmyndir og kvik
mynd af gosinu ákaflega áhrifa-
mikið.
Námskeið fyrir
enskukennara
ATHYGLI skal vakin á námskeið
um fyrir enskukennara, sem hald
in verða í Bretlandi á vegum THE
BRITISH COUNCIL á tímabUinu
7. júlí til 29. ágúst í sumar.
Vegna mikillar þátttöku í nám-
skeiðum þessum verða umsóknir
að hafa borizt fyrir 31. þ.m.
Nánari upplýsingar eru gefnár
á Fræðslumálaskrifstofunni.
„Piestur í klípu“ bumsýning
HAFNARFIRÐI. — Á morgun
frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarð
ar bráðskemmtilegan gamanleik,
„Prestar í klípu“ (See how they
run) eftir Fhilip King í þýðingu
Ævars R. Kvarans. Leikstjóri er
hinn vinsæli leikari Steindór
Hjörleifsson og er þetta annað
leikritið, sem hann setur á svið
fyrir Hafnfirðinga, hitt var
Hringekjan, er L.H. sýndi á síð-
asta leikári og svo aftur í haust,
og fékk mjög góða dóma.
„Prestar í klípu" er nú sýnt í
fyrsta skipti hér á landi, en hefir
verið mikið leikið á Englandi og
alls staðar hlotið miklar vinsœld
Leiktjöld eru máluð af Bjarna
Jónssyni listmálara. en Guðmund
ur Þorleifsson smíðaði.
Samkomur
Æskulýðsvika KFUM og K,
Laugarneskirkju.
Samkoma í kirkjunni í kvöld
kl. 8.30. Sigurður Gústafsson,
bankamaður, og Ólafur Ólafsson,
kristniboði, tala. Kórsöngur. —
Mikill almennur söngur. — Allir
velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Föstudag kl. 8.30: Hátáðarkvöld
Fjölbreytileg efnisskrá. Veitingar
Etappdrætti. Major Driveklepp
talar. Allir velkomnir.
„í>að má hann Guðjón eiga, að
l>egar hann sýnist fara hægt,
xniðar maður sólina á vinnu-
mönnunum hans séra Eyjólfs".
Guðjón var heima fram að tvi-
tugsaldri, en hugði á skólagöngu
©g sparaði fé til náms. Hann tók
próf i Flensborg 1914 og kenn-
«rapróf tveim árum síðar. Kenn-
firi var hann í Vestmannaeyjum
1916—’17, en siðan skólastjóri á
Stokkseyri í tólf ár, og þar kynnt
ist hann konu sinni, Ragnheiði
Jónsdóttur, sem er mjög kunn
©g vinsæl sem rithöfundur. Þau
eiga tvö börn, Jón Ragnar, bú-
eettan { Boston, og Sigrúnu, sem
er gift Gesti Þorgrímssyni, kunn-
um kennara og fjölhæfum lista-
manni. Frá Stokkseyri fór Guð-
jón árið 1919, og í ellefu ár var
hann kennari í Reykjavík, en
eíðan skólastjóri í Hafnarfirði til
1954, stundum bæði við barna-
ekóla og iðnskóla, en frá 1954
hefur hann verið forstjóri kvik-
myndasafns ríkisins og hefur
hann skráð það og skipulagt. —
Guðjón hefur farið margar néms-
ferðir til útlanda — til Norður-
landa og Ameríku, og hann hef-
ur ekki farið til að þvælast í
jármbrautum og bilum þúsundir
kilómetra án þess að fá tekið svo
eftir neinu, að það mætti verða
honutn að gagni, þegar heim
kæmi, til skyneamlegs saman-
ir, enda leikurinn hinn spaugileg
asti. Leiikurinn gerist á stríðsár-
unum og fer fram á heimili sókn-
arprestsins.
Aðalhlutverk eru í höndum
Auðar Guðmundsdóttur og Ragn
ars Magnússonar, sem leika
prestsfrúna og kunningja henn-
ar. Aðrir leikendur eru Margrét
Magnúsdóttir eitt af sóknarbörn-
unum Svana Einarsdóttir vinnu-
kona, Steindór Hjörleifsson; sem
leikur sóknarprestinn séra Toop,
í veikindaforföllum annars, Sig-
urður Kristinsson er biskupinn
frá Lax, Valgeir Óli Gislason
nágrannaprestur, Sverrir Guð-
mundsson ókunnur maður og
Gunnlaugur Magnússon sem er
liðþjálfi.
Rækjuveiðar
í Ingólfsfirði
GJÖGRI, Árneshreppi, 19. marz:
Miklar stillur hafa verið hér s.l.
viku, og haldist blíðan áfram er
kormin beit fyrir kindur. Mb Guð
rún á Eyri hefur verið á rækju-
veiðum síðustu daga og fengið
eitt og háift tonn. Mb Flugalda á
Djúpavík flutti í gær 4 tonn af
rækjum fyrir Eyrarbræður til
Hóimavikur. Engir aðkomuibát-
ar hafa verið á rækjuveiðum á
Ingólfsfirði að undanförnu, svo
að mib Guðrún virðiist hafa einka
leyfi á að veiða í firðdnum. —
Rækjan hefur aldrei verið eins
stór og síðustu daga. — Regina.
Fermingagjafir
Höfum ódýra og góða borðlampa,
mjög hentuga til fermingagjafa.
SPEGLABÚÐIN, Laugavegi 15.
£✓"5 (4 hraðar)
Mjög vandaðir á nndir-
stöðu eða í tösikn. —
Verð frá kr. 1598,00.
Glæsilegt og fjölbreytt úr-
val af gíturum. Verð frá kr.
395,00.
Gítarpokar (vatnsþéttir)
Gítarneglur
Gítarstrengir
FRAMUS-gitarar pic-up frá
kr. 1322,00
Hljómplatan
með Rex Harrison o. fl.
komin.
— Póstsenduin —
Hljóðfæraverzlun
Sigriðar Helgadóttur
Vesturveri. — Sími 11316.
Blómamerkin
og
fryrsta dags umslög
fást hjá okkur,
opið í allan dag.
frímerkjastofan
Vesturgötu 14.
Svefnsófar
Nýir vandaðir svamp-svefn-
sófar á aðeins kr. 2500,-.
Fáir óseldir. Tízkuáklæði.
Sófaverkstæðið, Grettisg. 69.
Opið kl. 2—9 í dag.
HVÍLDARSTÓLL með
lausum svamppúða.
Bezta á markaðinum.
EINS MANNS
SVEFNSÓFI
ÚT DREGINN
Stærð frá 140 cm til
190 cm. Góð geymsla
fyrir sængurfot.
Framleitt úr 1. fl. efni
TVEGGJA MANNA
SVEFNSÓFl
Nýjung Nósakk Og
Lystadúnn.
SVEFNBEKKUR
með rúmfatageymslu.
Grettisgötu 46.
Sími 22584.