Morgunblaðið - 23.03.1962, Síða 15
Föstudagur 23. marz 1962
MORGVlSfíTAÐlÐ
15
GESTIR UTAN
ÚR GEIMNUM
VÍSINDIOOG TÆKNI
FINNSX líf úti í geimnum
milli hnattanna, þar sem
kuldinn og einmanaleikinn
ráða ríkjum? Með því að
rannsaka loftsteina, sem fall-
ið hafa til jarðarinnar, hafa
vísindamenn komizt að raun
um, að það sé ekki óhugs-
andi.
Fyrr á tímum þegarstjöm-
urnar voru guðir, sem stjóm
uðu lífi manna, litu menn á
loftsteina og stjömuhröp með
ótta og skelfingu og töldu
vera fyrirboða óhamingju.
Nú hefur þetta breytzt.
Nú er litið með eftirvænt-
ingu á ÖH stjörnuhröp. Ef til
vill bera loftsteinamir með
sér lokasannanimar fyrir lífi
úti í geimnum.
Líkumar em þó litlar. Þótt
daglega falli um 75 milljón-
ir loftsteina inn í gufuhvolf
jarðar, ná ekki nema e. t. v.
tveir eða þrír af öllum þess-
um aragrúa til yfirborðs
hnattarins. — Aðeins þeir,
sem em að stærð eins og
fótbolti eða stærri, komast
hjá þeim örlögum að étast
upp af hinum mikla núnings-
hita, sem skapast við ofsa-
hraða, er steinarnir þjóta í
gegnum gufuhvolfið. En fót-
boltinn er orðinn að baun,
þegar hann nær heim.
"Öti í geimnum em fjöll
á flan(|ri. Stundum lenda þau
inn á aðdráttarsvið jarðarinn
ar og missa við það sjálf-
stæði sitt. Með allt að því
200 þús. km. hraða á klst.
geisast þessir hnullungar í
gegn um lofthjúpinn og
splundrast á yfirborði jarð-
ar. Einu merkin sem sjást
eftir þá eru stórir gígar, oft
\J
margra kílómetra breiðir.
í Arizona er einn slíkur
og er hann 4000 fet á breidd
og 600 fet að dýpt. í Mið-
Ástralíu eru 13 stórir gígir af
þessum uppruna, en annars
falla svona „fjöll“ svo sjald-
an, að veðrunin hefur étið
upp flest spor þeirra.
Ljósmyndun úr lofti hefur
þó sýnt mönnum, að jörðin
Er líf þarna úti?
er miklu meira skrámuð en i
fljótu bragði virðist vera.
Veðruninni tekst ekki ávallt
að hylja algjörlega yfir merk-
in, vegna þess hve geysistórir
sumir gigarnir eru. Gígarnir á
tunglinu eru nærri ömgglega
af sama uppruna en ekki eld-
fjallamyndanir.
ir Loftsteinar falla misþétt
til jarðarinnar. Suma daga
ársins logar himininn af
stjörnuhröpum, en aðra daga
er himininn án allra skelfinga-
fyrirboða. Það þykir nú sann-
að, að flest stjörnulhröp eigi
sér stað, þegar jörðin á braut
sinni umhverfis sólu sker
brautir halastjama.
Þann 13. nóvember, árið
1833, átti sér stað allsherjar-
stjörnuhrap, sem frægt er orð
ið. Himinninn glóði í Norður
Ameríku 9vo að það var engu
líkara en að öllum öflum him
insins hefði verið sleppt laus
um. Margir héldu. að nú væri
heimsendir kominn og undir-
bjuggu sig samkvæmt því.
★ En ekki kom heimsendir
og hefir ekki komið enn. Lífið
hefur þróazt og gengið sinn
vanagang meðan tækninni og
vísundunum hefur fleygt
fram. Nú hefur maðurinn lagt
braut sína út í geiminn og
eyðir«nú milljónum milljóna
króna í fyrirtækið. Til hvers,
og hver er hinn raunverulegi
hagnaður ?
Það er engum blöðum um
það að fletta, að geimvísindin
Framh. á bls. 16.
ÞETTfl GERDIST
IFEBRUAR
' Greiðslujöfnuðurinn við útlönd
hagstæður s.l. ár í fyrsta sinn frá
^ stríðslokum (27).
A Li Þ I N G I
Aljþingi kom saman 1. febrúar eftir
hlé það, sem gert var á þingstörfum
yfir hátíðarnar (2).
Frumvörp ríkisstjómarinnar um
erfðalög, skipti á dánarbúum og fé-
lagsbúum, róttindi og skyldur hjóna
og ættaróðal og erfðaábúð samþykkt
eem lög frá Alþingi (7).
Lagt fram á Alþingi stjórnarfrum-
varp um tekjuskatt og eignaskatt. Á
það að skapa atvinnurekstrinum í
landinu heilbrigð starfsskilyrði (8).
Samþykkt var að reglulegt Alþingi
1962 komi saman 10. okt. n.k. (10).
Frumvarp ríkisstjómarinnar um
fjáraukalög 1960 samþykkt á Alþingi.
(15).
Frumvarp um Iðnaðarmálastofnun
íslands samþykkt á Alþingi (17).
Frumvarp frá ríkisstjórninni um
Bveitastjórnarkosningar samþykkt sem
lög frá Alþingi (23).
Ríkisstjórnin leggur fram frumvarp,
lem felur í sér stóraukna aðstoð við
húsbyggjendur (24).
ÍIGERDIN
Óvenju lágt söluverð íslenzkra tog
era erlendis (4).
Verð á fersksíld veiddri við Suður-
cg Vesturland ákveðið (7).
Síldarverksmiðjur ríkisins kaupa
píldarbræðsluna á Seyðisfirði (7).
Aili togara á heimamiðum lélegur
(7).
t Narfi fer á veiðar við Grænland (8).
J Fiskiþing haldið í Reykjavík (9).
' Vopnfirðingar draga smáfisk upp
Vim ís úr Lónunum (9).
Janúarvertíðin einkenndist af ó-
gæftum (10).
50 þús. tonnum af fiski landað í
Keflavík 1901 (10).
Starfsfræðsludagur sjávarútvegsins
haldinn í sjómannaskólanum (11).
Straumar trufla sildveiðar austan
Vestmannaeyja (14).
Islenzkir togarar greiddu 3,8 millj.
hr. i umsetningargjöld í Þýzkalandi
I fyrstu 26 söluferðum sínum þangað
á þessu ári (16).
Aukafundur haldinn i Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna (16).
Miklar birgðir af grásleppuhrogr.um
á íslandl hafa lækkað heimsmarkaðs
verðið (22).
Góður afli en gæftir stirðar á
Bíldudal (27).
Gæftale si hefur einkennt vertíð-
ina sunnan og suðvestan lands (27).
Fiskiþing afgreiddi fjölda mála. —
Davíð Ólafsson endurkjörinn fiski-
málastjóri (27).
Loðnan gefur góða veiði í Vest-
mannaeyjum (27).
Líflegt í Vestmannaeyjum. Unnið
til miðnættis í öllum frystihúsum (28).
Fyr9ti togaripn landar í Reykjavík
á árinu (28).
VEÐUR O G FÆRÐ
Færð þyngist sunnanlands vegna
snjóa. Hellisheiði ófær. Keflavíkur-
flugvöllur lokaðist (1).
Akraborg kemst ekki til Borgar-
ness og Langjökull ekki að bryggju
á Akranesi vegna brims og storms (3).
Ofsaveður á Norðfirði (6).
Hreindýr koma niður undir bæi í
Breiðdal (6).
.Tíð hefur verið umhleypingasöm,
svo að í nágrenni bæjarins hefur kom
ið fyrir að regn hafi lokað vegum
annan daginn en onjór hinn (10).
Slæm færð um allt land vegna
snjóa (14).
Jarðskjálftar á Öskjusvæðinu 30.
janúar (15).
Keflavíkurflugvöllur lokast vegna
kafalds (16).
Leikhúsgestir ofan úr Kjós lentu í
blindbyl (17).
Tíð umhleypingasöm og erfið. Ekki
sér til jarðar víðast á Suðurlandi. Bú
peningur að mestu á gjöf síðan i
nóvember (17).
Hellisheiði aðeins fær bílum af
stærstu gerð (17).
Færð mjög þung á vegum vegna
snjóa. Ekkert flogið. Bílar sex og
hálfan tíma yfir Hellisheiði (18).
Brotizt yfir Öxnadalsheiði, sem ekki
hefur verið fær í rúman mánuð (21).
Böm fuku á leið í skóla í Mos-
fellssveit (21).
26. febrúar mældist mesti loftþrýst
ingur í Reykjavík, síðan mælingar
hófust hér, 1051,1 millibarar (27).
Óvenjulog stjömublik á lofti vegna
hins mikla háþrýstisvæðis (27).
Þorri var veðrasamur en skipti um
til hins betra í góubyrjun í Rangár-
þingi (28).
FRAMKVÆMDIR
Nýr læknisbústaður reistur á
Djúpavogi (1).
Unnið að útrýmingu braggaíbúða í
Reykjavík (1., 23).
Samvinnunefnd ríkis og Reykjavík
urbæjar um skipulagsmál mælir með
byggingu móttökustöðvar fyrir flug
félögin í Reykjavík (7).
Nýtt skátahús tekið í notkun á
Akranesi (7).
Loftleiðir festa kaup á Tjarnacafé
í Reykjavík og hefja þar rekstur (9).
Loftleiðir kaupa fimmtu Cloudmast
ervélina (11).
Borgarráð samþykkir byggingu nýrr
ar flugstöðvarbyggingar á Reykjavík
urflugvelli (11).
162 hús í smíðum í Hafnarfirði (15).
230 millj. kr. tryggðar til hitaveitu
framkvæmda í Reykjavík með láni
frá alþjóðabankanum (16).
Nýjum báti, Helga Flóventssyni,
hleypt af stokkunum í skipasmíða-
stöð í Noregi (17). ’
Fíladelfíusöfnuðurinn flytur í ný
húsakynni (20).
64 íbúðir byggðar á vegum Reykja-
víkurborgar (24).
Braggaíbúðum í Reykjavík hefur
fækkað um 360 frá 1955 ( 25).
Unnið er að því að fá nýjan Djúpbát
í stað Fagraness (27).
Bærinn kaupir og fjarlægir gömul
hús við Hverfisgötu (27).
Útvarpshlustunarskilyrði á Aust-
fjörðum stórbætt (27).
Útvarpið fær nýja sendistöð á
Vatnsenda (28).
Mikið vatnsból fundið í nágrenni
Rey k j aví kur (28).
BÓKMENNTIR
O G LISTIR
ísleifur Konráðsson rúml. sjötugur
maður, heldur fyrstu málverkasýningu
sína (3).
Leikfélag Reykjavíkur sýnir „Hvað
er sannleikur?" eftir Priestley. Leik-
stjóri Indriði Waage (4).
Bandaríska listasafnið „Museum of
Modern Art“ í New York kaupir mál
verk eftir islenzka málara (6).
Ungversk-danski píanóleikarinn
Georg Vasarhelyi leikur með Sinfóníu
hljómsveit íslands (6).
Merkar myndir brezka málarans
Collingwoods frá íslandi fundnar (7).
Út er komin ný messubók eftir sr.
Sigurð Pálsson á Selfossi, sú fyrsta
síðan 1779 (10).
Komnar eru á markaðirm fjórar nýj
ar málverkaeftirprentanir hjá Helga
felli (14).
Menntaskólanemar sýna gamanleik
inn „Enarus Montanus“ eftir Ludvig
Holberg. Leikstjóri Helgi Skúlason (14)
Bandarískur leikflokkur sýnir hér
gamanleikinn „Fædd í gær“ (16).
Lesbók Morgunblaðsins kemur út í
nýjum búningi (17).
Kvikmynd gerð eftir sögu Indriða
G. Þorsteinssonar .,79 af stöðinni**
verður tekin næsta sumar (17).
Filmía hefur sýningu á þremur Asíu
myndum (17).
tslenzk listasýning opnuð í Louisi-
ana-safninu á Sjálandi (18).
Menntaskólanemar sýna „Útilegu-
mennina** eftir Matthías Jochumsson
í upphaflegum búningi (18).
Þjóðleikhúsið sýnir „(iestagang**,
frumsmíð Sigurðar A. Magnússonar
(18).
Verk sjö íslenzkra tónskálda flutt
á hljómleikum Sinfóníuhljómsveitar-
innar (21).
Leikfélag Kópavogs sýnir bama-
leikritið Rauðhettu eftir Robert
Bíirkner (22).
Guðmundur Guðjónsson söngvari
fer með hlutverk Alfredo í La Tra-
viata í óperunni í Árósum (23).
Kirkjukórar 1 Vestur-Skaftafells-
prófastsdæmi halda söngskemmtun
(24).
MENN OG MÁLEFNI
Sigurgeir Sigurjónsson, hrl., kjör-
inn í Mannréttindanefnd Evrópu (3).
Friðrik Ólafsson tekur þátt í svæð
ismóti í Stokkhólmi (4).
Nýr sendiherra Kanada á íslandi,
Louis Couillard (15).
S.H. óskar eftir þvi við sölustjór-
ana, sem sagt var upp hjá Coldwater,
að þeir ráði sig ekki annars staðar
(18).
Guðmundur Ágústsson hrðskák-
meistari Reykjavíkur (21).
Norðmaðurinn Helge Ingstad býður
íslendingi þátttöku í uppgreftri á bú
stöðum norrænna manna á Nýfundna
landi (21).
Hermann Jónasson lætur af for-
mennsku Framsóknarflokksins (24).
Eysteinn Jónsson kjörinn í hans stað
(27).
Óttarr Möller ráðinn framkvæmda-
stjóri Eimskipafélags íslands (24).
Loftleiðir bjóða leiðangri Ingstads
ókeypis flutning (27).
Ingi R. Jóhannsson, skákmeistari,
teflir á Akureyri (28).
SLYSFARIR
O G SKAÐAR
Jóhanna Þórðardóttir (nær sjötug)
á Arngerðareyri í ísafjarðardjúpi M
mjaðmarbrotin í 50 tíma ein á bæ,
matarlaus og í kulda (1).
Met í árekstrafjölda, 220 árekstrar
og 23 slys í Reykjavík 1 janúar (2).
Sjúkraflugvél fann villtan mann á
Axarfjarðarheiði, Árna Gunnlaugsson
frá Skógum í Reykjahverfi (2, 3).
13 ára piltur í Dölum féll af baki og
handleggsbrothaði (2).
Vélbáturinn Vilborg (20 lestir) slitn
aði frá legufærum í Sandgerði og rak
á land (4).
Bát rak á land, trilla brotnaði og
járn fauk af húsum á Norðfirði (6).
Ungur bandarískur varnarliðsmað-
ur féll í sjóinn við Stokksnes og
drukknaði (6).
Verzlun Kaupfélags Stykkishólms
að Vegamótum í Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi brann (8).
Brezki togarinn Northern Queen GY
124 strandaði skammt frá Bolungavík
(8).
Vélbáturinn Auðbjörg strandar
skammt frá Grindavík. Mannbjörg
varð (8).
Ingódfur Þorvaldsson, Lundargötu
9, Akureyri höfuðkúpubrotnaði er
hann féll niður stigagat (9).
Óttast var um vélbátinn Hafdísi frá
Hólmavík, en hann komst heill á húfi
inn á Bjarnarfjörð (9).
208 árekstrar urðu á götum Reykja
víkur í janúar (10).
Götulögreglan í Reykjavík skráði
1688 árekstra á s.l. ári (10).
Togarinn Elliði frá Siglufirði ferst
undan Vestfjörðum. Togarinn Júpiter
bjargar 26 mönnum af áhöfninni, en
tveir skipverjar, sem fóru í gúmmí
björgunarbát létust (11., 13. og 14).
Vélbáturinn Skarðsvík frá Hellis-
sandi ferst. Mannbjörg (13).
Húsið að Stórholti 11 í Glerárþorpi
skemmist nokkuð í eldi (14).
Brezki togarinn Hawfinch strandar
út af Grandanum við Reykjavík, en
næst á flot aftur (14).
Fugladauði í netjum 1 Mývatni á-
ætlaður 1000 fuglar á 2 mánuðum (15).
Eldur kom upp í vélbátnum Sæ-
hrímni í Keflavík.
Oddmjór kvenhæl! fór í gegnum
rist ungrar sLúlku á dansleik í Skaga-
fjarðardölum (16).
Rafmagnstruflanir vegna saltroks i
Þykkvabæ (17).