Morgunblaðið - 23.03.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.03.1962, Blaðsíða 20
20 Fðstudagur 23. marz 1962 MORGTJTS BL AÐIÐ GEORGE ALBERT CLAY: OINA Saga samvizkulausrar konu ____________ 16 ----------- aftur niður í sætið. Þessi klunna- lega hreyfing hans kom henni svo á óvart, að áður en hún vissi af, voru þykku varirnar á hon- um komnar á hennar varir. Þær voru þykkar og mjúkar, líkastar konuvörum. Hún reyndi að brjót- ast um, en árangurslaust, svo að hann gat farið sér hægt í blíðu- atlotunum. Þá sleppti hann tak- inu, rétt eins og hann ætlaði að fara að segja eitthvað við hana, en Gina reif sig lausa og heyrði um leið reiðióp unglingsins í aft- ursætinu, þegar hann barði hnef- unum í bakið á húsbónda sínum. Hún hljóp snöktandi eftir göng unum og til herbergis síns Þetta snökt var af einni saman reiði, en ekki af hræðslu, og nú stöðv- aði hún það að mestu leyti. Hún fann enniþá varir Blas á sínum vörum, blautar, og hún strauk varimar með hendinni. Síðan fór hún inn í baðherbergið og þvoði munninn vandlega og svo andlit- ið. En henni fannst hú vera ó- hrein eftir sem áður. Hún var óróleg þegar hún var komin í rúmið og hugur hennar sízt kyrrlátari en óveðrið sem var að draga upp til fjallanna, en henni var heitt og leið illa. í gremju sinni fleygði hún af sér náttkjólnum. Vindurinn, sem var stöðugt að hvessa, hafði fundið lausan gluggahlera einhversstað- ar og feykti honum nú fram og aftur eins og krakki bolta. Hún fór fram úr til þess að leita sér að vindlingi, og hló nú kuldalega að sjálfri sér fyrir eftirvænting- una, þegar Vicente bauð henni í samkvæmið Heimskingi hafði hún verið! En nú vissi hún, að hann langaði aðeins til að ganga alveg fram af henni og gera hana reiða. Allt í einu datt henni í hug sundpollurinn. Hún gat sökkt sér í vatnið, látið það hreinsa hana og umlykja. Hún flýtti sér i slopp og stakk vindlingnum og kveikj- aranum í vasann á honum og flýtti sér svo út úr herberginu. Það var erfitt að opna garð- hurðina móti vindinum, og þegar hún var komin út, missti hún takið á henni, svo að hún skellt- ist harkalega aftur og rúðurnar glömruðu, eins og í mótmæla- skyni. Hún stanzaði snöggvast og tók að hugsa um, hvort hún hefði nú vakið alla í húsinu, en hún heyrði ekkert annað en hvininn í vindinum og skellina í hlerun- um, sem hafði losnað. Vindurinn togaði í sloppinn hennar, þegar hún gekk út í garðinn og hún lofaði sloppnum að f júka lausum, því að hvað gat það gert til í niðamyrkri? Fjúk- andi lauf stungu hana í andlitið og henni þótti það ekki nema gott, það var eins og ofurlítil út- rás fyrir skapsmuni hennar, sem hún hafði orðið að stilla. Hana langaði mest til að standa í miðj- um garðinum með sloppirm fjúk- andi fr(á sér og láta laufinu rigna á berann líkama sinn og öskra upp af öllum kröftum. Hún fann harða laufið undir fótum sér og svo rak hún tána í kókoshnot, sem hafði dottið af tré við pollinn og svo fann hún kuldann af steinþrepunum undir fótunum og samstundis hafði hún fleygt frá sér sloppnum og kalt vatnið luktist yfir höfði hennar. Laufin sem flutu ofan á poll- inum lentu á andlitinu á henni og flæktust í hárið, þegar hún synti, en henni var sama, því að nú fann hún sig hreina aftur og S kjfi&ULA bn\lA r\ i i* sfccLluö/uf Sigufþóf Jór\ssor\ * co I l(*pr\&uf&lv'cL*bi U. samkvæmi Vicentes umliðið og næstum gleymt. Hún synti lengi en stóð síðan í grunnu vatni í endanum á poll- inum. Hún jós vatninu með lóf- unum yfir höfuð sér, hún dró andann djúpt og lagði andlitið á vatnsflötinn og hélt því þannig eins lengi og hún þoldi, beygði sig í hnjánum og hossaði sér þannig upp og niður nokkrum sinnum. Síðan steig hún upp úr vatninu og lagði sig á togleður- sængina, sem var á bakkanum. Þarna var hún í góðu skjóli fyrir storminum. Halló! Það var Mario, sem var úti í pollinum, ekki nema tvö fet frá höfðinu á henni. Ert þú héma ennþá, Mario? sagði Gina. Það er orðið áliðið! Ég veit það, ég var.að bíða eftir þér. Hann fór nú upp úr og settist við hliðina á henni, svo að bakið á honum snerti síðuna á henni. Ég vissi, að þú mundir koma, sagði hann blátt áfram. Ég bað þess, að þú kæmir, því að á morgun fer ég héðan. Hversvegna það Mario? Frú Lolyta sendir mig á bú- garðinn. Frúin, skyldi hún hafa frétt um þetta nætursund þeirra? 1 dag barði hann mig aftur, sagði Mario, og frú Lolyta vill koma mér frá honum, þó að ég vilji sjálfur ekki fara. Hann særði mig með beltinu sinu, og það er ekkert, en hitt er meira, ef ég verð að fara burt. Hún fann hann hreyfast er hann læddist burt út í myrkrið, og nú tók Mario á sig í huga hennar, því að hún mundi eftir vikadrengnum, sem hún hafði séð koma út úr herbergi Vicentes einn morguninn, —• drenginn með fleiðrið á kinninni, og dreng inn, sem gremja og skömmusta skein út úr augunum á. Hann var kominn aftur til hennar jafn hljóðlega og hann hafði farið. Frú Lolyta gaf mér smyrsl, en ég næ ekki til þess, sagði hann og stakk lítilli dós í höndina á henni. Fingur hennar snertu ljóta ör- ið, sem náði yfir þveran mjó- hrygginn, en hún varð þó varla vör við það, því að hendur henn- ar höfðu um leið snert sterklegu herðarnar og vöðvana á bakinu og snögglega varð hún þess vör, að hann var ekki drengur heldur karlmaður. í sama bili kom elding þjót- andi eftir himninum og í birtunni sá Gina, ekki dreng heldur karl- mann, sem laut niður að henni um leið og hún féll aftur á bak. Þrekna brjóstið á bonum snerti hana nú og flatur, sinasterkur kviðurinn titraði af ástríðu. En um leið hvarf birtan aftur og hún fann tíðan andardrátt hans í eyr- um sér er Mario fann það, sem frú Lolyta hafði óttazt, án þess að skilja það eða vita.. og í fjarska heyrði Gina skellina í gluggahleranum. Ekki þetta, Mario, sagði hún, en löngu handleggirnir tóku utan um hana klaufalegu taki og drógu hana að sér. Varir hans voru á hennar vörum og hún hafði engan vilja til að reka hann burt, því 'að hann var hreinn og eðlilegur og nóttin svört með þrumum og ofsaroki, sem þau voru í skjóli fyrir. Gina seildist loks eftir sloppn- um sínum og flýði án þess að hugsa úm, að hún sá ekki út úr Xr Xr * GEISLI GEIMFARI augunum. Kalt regnið í andlit hennar svalaði henni. Hún gat ekkert sagt eða gert til að hjálpa mann-krakkanum, sem M á vind sænginni í rigningunni, skelfdur, óttasleginn og grátandi. XI Gina kom til frú Lolytu við „seinni morgunverðinn" morgun- inn eftir. Frúin sagði ekki neitt fyrr en hún hafði lokið úr te- bollanum, en þá leit hún á stúlk- una, eins og hún væri að hugsa sig um, hvernig hún gæti bezt sagt það, sem hún vildi sagt hafa. Við verðum víst að tala um þetta í gærkvöldi, sagði hún loksins. Ég hef hugsað mikið um það, og ég skal játa, að ég á nokkra sök á þessu. Og Don Diego er á sama máli. Þú ert amerísk og því gleymdi ég, þegar ég ætlaði að fara með þig eins og þú værir spænsk. Nei, reyndu ekki að taka fram í fyrir mér, þaggaði hún niður í Ginu, — ég er ekki búin að tala út enn. Lík- lega verður að vera sinn siður í landi hverju, og ég hef verið heimsk að ætla mér að fara að móta þig að hérlendum sið, og það blygðast ég mín fyrir. Gina vorkenndi frú Lolytu, að öllu athuguðu. Ég finn, að það var rangt af mér að fara út í gærkvöldi, sagði hún, og mér þykir fyrir því að hafa hryggt yður. Én ég hugsaði bara ekki út í það. bætti hún við, og það var lygi. Þú ert uhg, .Gina, og þeir sem ungir eru framkvæma oft áður en þeir hugsa. Ég er ekkert að afsaka Vicente, hann veit, að hann gerði rangt, og faðir hans er einmitt að tala við hann núna. Það er gert, sem gert er. Það setti að henni hroll. Kannske hef- ur þetta engar afleiðingar. Eins og ég sagði vil ég ekki vera að neyða upp á þig siðum, sem eru þér framandi. Ég óska ekki eftir, að þú gerir neina breytingu á því, hélt frúin áfram eftir ofurlitla þögn, en ef þú vilt aftur fara út að kvöld- lagi, mætti ég þá ekki fá að vita það fyrirfram? Ég vil ekki, að dyrnar héma séu ólæstar og ef þú ert úti, er ekki hægt að læsa þeim né heldur hliðinu. Gina fann, að þetta var ekki spurning heldur skipun, þótt kurteislega væri orðað, og jafn- framt, að svars var ekki vænzt. Og þá skulum við tala um eitt- hvað skemmtilegra. Frú Lolyta stakk vindlingi í munnstykkið sitt sárfegin, að aðfinnslan var af staðin. í dag er hétíðisdagur hér í húsinu. Það á að opinbera trúlofun Vicentes og Luisu og þau gifta sig eftir tvo mánuði. Orðin komu ósköp blátt á- fram, en engu að síður gat Gina merkt einhvern aukatón í þeim. Það var rétt eins og þau væru að ávíta hana fyrir að hafa farið út með Vicente og nú ætti að fyrirbyggja frekari skaða með því að flýta brúðkaupinu sem mest. Lolyta hafði ekki getað séð, að Gina var áhyggjufull, og hélt áfram: Það verður svo mikið að snúast heima hjá Sffredo, að við ætlum að hafa trúlofunarveizl- una hérna. Kannske getur þú hjálpað mér eitthvað? Jlá, það má segja, að þetta sé hamingju- söm fjölskylda hér, sagði hún glaðlega. Tvö brúðkaup á einu og sama ári! X- X- >f ■— John, þetta er Lára Preston.... Væri þér sama þó þú endurtækir það, sem þú sagðir áðan? Eg varð svo slegin, ég trúði varla mínum eigin eyrum.... — Með ánæg.ju, Lára! Og Vandal tekur orð Johns upp á segulband... — Láttu ekki durabilium-reynslu- flugið fara fram! Það gæti haft hættulegar afleiðingar.... fyrir flug- manninn og fyrir þig! Tvö? sagði Gina, í einhverju hugsunarleysi, því að hún var eingöngu að hugsa um Vicente og eigin horfur, sem voru nú orðnar býsna litlar. Já, fyrst Luisa og Vicente og svo.... augun urðu glettnisleg... þú og Diego. Þú hefur þó vænt- anlega ekki gleymt þínu eigin brúðkaupi, Gina?! sagði hún hlæjandi. Nei Gina tók undir hláturinn, en fann sjálf, að sá hlátur kom ekki frá hjartanu. Nei, ég hef ekki gleymt því. Ég var bara að hugsa um nokkuð annað. Síðdegis í dag ætla ég í búðir, sagði Lolyta. Kannske þú viljir fara með mér. Eftir hádegisverð. í dag er enginn tími til miðdegis- svefns. Ég ætla að hringja í búð- irnar, svo að þær verði opnar. Það verður enginn miðdegissvefn hjá þeim heldur. Ég skal lofa Don Diego að fá svima þegar reikningamir koma! ajlltvarpiö Föstudagur 23. marx. 8.00 Morgunleikfimi (Bæn. — 8.09 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónd. — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregnir. — Tónl, 12 00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12:25 Fréttir og tilkynningair). 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 Umræðufundur bændavikunnarf Hvað á að gera cil að auka afköst og arðsemi búanna? — I>átttakendur: Dr. Björn Sigur- björnsson, Gunnar Guðbjartsson bóndi, Ingvi í>orsteinsson magistw er og Jóhannes Eiríksson ráðu- nautur; Agnar Guðnason ráðu« nautur stjórnar umræðum. 14.15 ,,Við vinnuna"; Tónleikar. 15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og til. Tónleikar. 16.00 Veðurfr. — Tónl, — 17.00 Fréttir. — Endurtekið tónlistarefni). 17.40 Framburðarkennsla í esperanto og spænskú. 18:00 „I>á riðu hetjur um héruð“: Guð mundur M. í>orláksson talar uiu í>ormóð Kolbrúnarskáld. 18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þingfrétt- ir. — Tónleikar. 19.00 Tilkyr ingar. — 19.30 Fréttir. 20.00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson cand. mag.). 20.05 Efst á baugi (Björgvin Guðmunds son og Tómas Karlsson). 20.35 Frægir söngvarar; XVIII: Ezio Pinza syngur. 21.00 Ljóðaþáttur: I>orarinn Guðnason læknir les kvæði eftir Matthías J ochumsson. 21.10 Píanótónleikar: György Gziffra leikur fjórar etýður eftir I^iszt. 21.30 Útvarpssagan: „Sagan um Ólai — Árið 1914“ eftir Eyvind John- son; I. Árni Gunnarsson fil. kand þýðir og les). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Passíusálmar (28). 22.20 Glímuþáttur (Helgi Hjörvar rit- höfundur). 22.40 Á síðkvöldi: Létt-klassísk tón- list. a) Joan Hammond og Charlea Craig syngja ástaratriði úr óp- unni „Toscú* og „La Bo héme" eftir Puccini. b) Hljómsveitin Sinfónía í Lund únum leikur vinsæl hljóm- sveitarlög; Robert Irving stj< 23.25 Dagskrárlok. Laugardagur 24. marz 8.00 Morgunleikfimi (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónl. — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar, — 9.10 Veðunfregnir. — Tónl. 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12:25 Fréttir og tilkynningar). 12.55 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigur jónsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. — (15.00 Fréttir). 15.20 Skáþáttur (Guðmundur Arnlaugí> son). 16.00 Veðurfregnir. — Bridgeþáttur (Stefán Guðjohnsen). 16.30 Danskennsla (Hreiðar Ástvalds son). 17.00 Fréttir. — IÞetta vil ég heyras Guðrún Þorsteinsdóttir kennari velur sér hljómplötur. 17.40 Vikan framundan: Kynning á dagskrárefni útvarpsins. 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Leitin að loftsteinum*' eftir Bernhard Stokke; IV. (Sigurður Gunnars- son.) 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Tómstundaþáttur barna og ungl- inga (Jón Pálsson). 18.55 Söngvar í léttum tón. — 19.10 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 „Kvöld í Vínarborg": Filharmon- íusveit borgarinnar leikur undií stjórn Rudolfs Kempe. 20.30 Leikrit: ,.Mýs og menn" effti* John Steinbeck, í þýðingu Ólafa Jóh. Sigurðssonar. — Leikstjóri; Lárus Pálsson. Leikendur: I>or- steinn Ö. Stephensen, Lárus Páls- son, Steindór Hjörleifsson, Gíslf Halldórsson Árni Tryggvason, 'Cristbjörg Kjeld, Rúrik Haralds- son, Erlingur Gíslason, Jón Sig- urbjörnsson og Valdimar Lárus- son. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Passísálmar (29). 22.20 Danslög. — 24.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.