Morgunblaðið - 31.03.1962, Síða 3
Laugarclagur 31. marz 1962
MORGZnvniAÐIÐ
3
anMHHHMW
Alþ j óðakj arnorkustof nun in
hefur sem kunnugt er veitt
íslendii.gum styrk til kaupa
á geislamselingatækjum, er
kosta 11—12 þúsund dollara
og verSa þau notuð í rann-
sóknardeild Landsspítalans.
Er megnið af þessum dýrmætu
tækjum nú komið hingað og
þau þegar tekin í notkun. 1
haust kom hingað á vegum
kjarnorkustofnunarinnar eðl-
isfræðingurinn dr. M. M.
Bluhm og hefur hann síðan
starfað við uppsetningu tækj-
anna og þjálfað starfsfólkið
í notkun þeirra. — Hann og
próf. Davíð Davíðsson, sem
veitir forstöðu rannsóknar-
deild Landsspítalans, sýndu
okkur þessi tæki í gær og
leyfðu okkur góðfúslega að
mynda þau.
Tækjum þessum er komið
fyrir í fjórum herbergjum í
kjallara nýbyggingar Lands-
Próf. Davíð Davíðsson og dr. Bluhm fneð geislamælingatækin, sem notuð eru til að mæ>»
ýmis efni i blóði, þvagi og saur.
Dýrmæt geislamælingatæki
tekin í notkun á Landspítalanum
spítalans. >au geta mælt
geislun geislaefna í líkaman-
um og í sýnishornum, svo
sem blóði, þvagi, saur, vefja-
bitum o. s. frv. Geislaefni
(radioactive isotope), þ. e.
geislandi afbrigði frumefnis,
hefur sömu efnafræðilega
eiginleika og frumefnið, sem
það er afbrigði af. Frumur
líkamans greina ekki á milli
þeirra. Þessvegna má nota
geislaefni til að komast að
leiðum einstakra efna í líkam
anum. Á síðasta áratug hafa
geislaefni verið notuð m. a.
mikið við rannsóknir á sjúk-
lingum við sjúkdómsgrein-
ingar, ennfremur til lækn-
inga. Auk þess má rekja
mikið af þekkingaraukningu
manna á sjúkdómum til rann
sókna sem byggjast á notkun
geislaefna.
Joðefnarík fæða minnkar
skjaldkirtil Islendinga
Tæki það, sem notað er til
að mæla geislandi efni í
líkama, er ennþá staðsett í
litlu herbergi í gamla spítal-
anum, þar sem hægt er að
taka sjúklinga inn. Hefur
það tæki verið notað að und-
anförnu og veitti dr. Bluhm
okkur upplýsingar um það
atriði. Hefur fólk komið til
greiningar utan úr bae og
eins sjúklingar í spítalanum.
Mest hefur það verið not-
að til skjaldkirtlarannsókna,
þ. e. a. s. til greiningar á því
hvort skjaldkirtillinn er eðli-
legur, ofvirkur eða of lítið
virkur. Hafa um 110 manns
verið rannsakaðir í því
skyni. Sjúklingunum er gef-
inn lítill skammtur af geisla-
virku joði. Sólarhring síðar
er mælt hve mikið af
skammtinum skjaldkirtillinn
hefur tekjð í sig og degi síð-
ar hve mikið hann hefur selt
út í blóðið af geislandi skjald
kirtilshormóni. — Ofvirkur
skjaldkirtill er algengur sjúk
dómur. Annars sagði dr.
Bluhm, að 80 af þeim sem
greindir hefðu verið með til-
liti til virkni skjaldkirtilsins,
væri fólk sem ekki væri vit-
að að væri afbrigðilegt að
þessu leyti. Væri það gert í
þeim tilgangi að komast að
hver væri meðalvirkni skjald
kirtilsins í íslendingum. Vit-
að væri að íslendingar borð-
uðu mjög joðefnaríka fæðu
og skjaldkirtillinn í þeim
væri þar af leiðandi helm-
ingi minni en almennt væri
á meginlandinu. Kvaðst dr.
Bluhm í tilraunaskyni hafa
fengið til rannsókna 10 her-
menn af Keflavikurflugvelli,
sem lifðu á bandarískri fæðu
og íslenzkri mjólk, og hefði
virkni skjaldkirtilsins í þeim
verið svipuð og í íslending-
um. Léki sér því hugur á að
fá til rannsóknar íslenzka
kúamjólk, til að fá vitneskju
um joðinnihald hennar, en
búast má við að það sé mjög
mikið. Og einnig langaði sig
til að fá til athugunar út-
lendinga, sem koma hingað,
áður en þeir fara að lifa á
íslenzkri fæðu. Það mætti þó
ekki misskiljast, að skjald-
kirtillinn ynni alveg eðlilega
þó hann sé þetta öðruvísi,
en nauðsynlegt væri að kom-
ast að raun um hvað væri
eðlilegt fyrir íslenzkan skjald
kirtil.
Þá hafa 10 sjúklingar ver-
ið rannsakaðir með tilliti til
nýtingar B 12 vítamíns í lík-
amanum og 5 heilbrigðir til
samanburðar. Ef líkaminn
nýtir úr þörmunum lítið af
þessu vítamini, líður hann af
sjúkdómi er nefnist merg-
runi, en það er eitt afbrigði
blóðleysis. Æviskeið rauðra
blóðkorna svarar til þess að
helmingur þeirra deyi á 26
dögum. Og með þvi að
merkja þau með geislakrómi ,
má komast að meðalaldri
þeirra, en hann er oft stytt-
ur í blóðsjúkdómum. Einnig
eru mæld fituefni með því að
merkja þau geislajoði og
mæla hvernig þau nýtast í
þörmunum. Nokkrir aðrir
sjúklingar hafa verið athug-
aðir með tilliti til annarra
sjúkdóma.
Til lækninga hafa geisla-
Framh. á bls. 8.
Þorvaldur Veigar Guðmundsson, læknir, hleður blýklumpum
milli sín og glass með geislavirkum efnum og notar töng til
öryggis. Loft sogast stöðugt út og endurnýjast í skápnum,
sem hann er við.
Guðrún Blöndal við tækið sem notað er til að mæla geisl-
andi efni í lifandi líkama. Mest hefur það verið notað til
.kjaldkirtilsrannsókna.
STAIÍSTEllÁR
sr
Ósæmilegt
Sjaldan helur stjórnmálaflokk-
ur farið jafnmiklar hrakfarir i
umræðum um ákveðin málefni
eins og Framsóknarmenn í sjón-
varpsir.ilinu svonefnda. Þeir
komu þvi máli af stað með mikl-
um gauragangi og töldu stjóm-
arflokkana vera að vega að
tungu og menningu þjóðarinnar.
Brátt sannaðist þó, að utanríkis-
ráðherra þeirra sjálfra, dr. Krist-
inn Guðmundsson, hafði veitt
sjónvarpsleyfið, og vinstri stjóm-
in hafði hvorki hreyft legg né
lið til að breyta þar nokkm um.
Á undanhaldinu i þessu máli hef-
ur gripið um sig með Framsókn-
anr.önnum mikil heift, sem m. a.
birtist í ósæmilegri þlaða-
mennsku. f fyrradag ræðir Tím-
inn um utanríkisráðherra og tal-
ar þar m. a. um „hviku þeirrar
þýmennsku og undirlægjuháttar
.... Svona getur þessi maður
lagzt lágt til að reyna að bjarga
flekkóttu skinni sínu .... Hve
botnlaus andirlægjuhátturinn og
þrælslundin er.“
Talsmáti á borð við þennan er
ósæmandi í dagblaði. Hann hæfir
engum öðmm en kommúnistunv.
En því miður hafa Framsóknar-
menn tilteinkað sér of margt í
fari kommúnista að undanförnu.
Berlín og Sijjluf íörðor
f síðasta Siglfirðingi er að því
vikið, að kommúnistablaðinu á
staðnum finnist fátt um flótta
nr.illjóna frá Austur-Þýzkalandi
til Vestursins, þar eð fólk flýi
einnig frá. Siglufirði! Síðan segir
Siglfirðingur:
„Er svo að skilja, sem orsakir
flóttans séu hliðstæðar. Nær
tveggja áratuga aflabrestur á
síld, sem atvinna þessa byggðar-
Iags var byggð á, ásamt einangr-
un og samgönguleysi, er að dómi
Mjölnis sama og kommúnismi.
Niðurstöður blaðsins em því
væntanlega þær sömu og skoð-
anabræðra þeirra í Austur-
Þýzkalandi. Siglfirzkur múr,
gaddavír, vélbyssur og fleiri tákn
kommúnismans, og átthagafjötr-
ar í stað ferðafrelsis."
Fjarlægt íslendingum
Mönnum. finnst að vonum fjar-
stætt að loka Siglfirðinga inni í
gaddavírsgirðingu, ef þeir óska
að flytja til annarra landshluta.
En í sjálfu sér er lítill munur á
því og athöfnum hins alþjóðlega
kommúnisma í Berlín, þar sem
fangelsismúr er byggður utan
um fólkið til að hindra flótta
þess. Maður með íslenzku nafni,
sem dvelur í erindum heims-
kommúnismans í Austur-Berlín
hefur réttlætt þetta með því, að
:tnnars stæðust ekki áætlanimar
07 vinnuaflsskortur yrði í A-
Þýzkalandi. Þeir menn eru til
hér á landi, sem vegsama slíkar
aðgerðir, og þvi miður verður
að segja þá sögu eins og hún er,
að kommúnistar hér á landi eru
ekkert frábrugðnir skoðana-
, bræðrum sinum annars staðar og
I mundu beita nákvæmlega sömu
aðferðum. og þeir, ef því væri að
1 skipta.
' Annars voru líka broslegar
t þær aðfarir kommúnista á Siglu-
1 firði að óska eftir því við stjórn-
, málaflokkana að þeir byðu sam-
eiginlega fram við bæjarstjóm-
I arkosningarnar, afnæmu kosn-
ingarétt borgaranna og segðu
„almúganum“ hverjir ættu að
fara með stjóm bæjarmálefn-
anna en væru ekki að spyrja
hann að því. Að sjálfsögðu var
þessu frumlega tilboði hafnað og
kommúnistar verða að heyja
[ bæjarstjórnarkosningar á Siglu-
firði og annarsstaðar. Það er
þeim þó ekki tilhlökkunarefni,
því að þeir gera sér orðið ljóst
að þeir eru að verða áhrifalaus-
| ir hér eins og í nágrannalönd-
Iununx