Morgunblaðið - 31.03.1962, Page 12

Morgunblaðið - 31.03.1962, Page 12
12 MORGVJSBL AT>*Ð Laugardagur 31. marz 1962 JtttftggtutMðfrife Otgefandi: H.l Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (át>m.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson Auglýsingar: A.rni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Augiýsingar og afgreiðsla: A.ðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. ALMANNA VARNIR TJíkisstjómin hefur nýlega lagt fram á Alþingi frum varp til laga um almanna- varnir. Er þar um hiðmerk- asta mál að ræða, semfyllsta ástæða er til að skýrt séfyr- ir þjóðinni. í greinargerð frumvarpsins er m. a. komizt að orði á þessa leið: „íslendingum er vissulega mjög framandi allt það, sem að hemaði lýtur eða afleið- ingum hemaðar. Því hafa menn spurt: Hvað em al- mannavamir? En þær em einfaldlega sérhverjar ráð- stafanir, sem að því lúta að forða frá manntjóni og eigna, sem af hernaði eða árás kynni að leiða, að bæta tjón af sömu sökum, líkna og hjúkra þeim, sem eiga um sárt að binda — almanna- varnir stefna að því að bjarga mannslífum." Af 1. gr. frumvarpsins er einnig auðsætt, að almanna- vamimar eiga ekki aðeins að veita aðstoð vegna tjóns, sem verður af hemaðarað- gerðum, heldur er þeim skylt að koma til hjálpar, ef tjón vofir yfir, eða hefur orðið af náttúruhamförum eða ann- arri vá. Vitanlega er það einlæg von og ósk allra íslendinga, að aldrei komi til hernaðar- aðgerða í landi þeirra. En því miður eru veður öll vá- lynd í heiminum í dag. Víða em ófriðarblikur á lofti, og hefur svo verið einnig und- anfarin ár. f>ess vegna er það að allar nágrannaþjóðir okkar hafa gert víðtækar ráðstafanir til almannavarna, sem miða að því að draga úr því böli og óhamingju, sem ný hernaðarátök hlytu óhjákvæmilega að hafa í för með sér. Það er hygginna manna háttur að byrgja bmnninn áður en barnið er dottið í hann. Eins verður það að teljast sjálfsagt og eðlilegt, þótt það sé allra von og ósk, að til styrjaldarátaka komi ekki, að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að draga úr óheillavænlegum afleið- ingum þeirra. Er það ekki sízt nauðsynlegt nú þegar svo er komið, að allur al- menningur, konur og börn, ekki síður en hermenn á víg- völlum, eiga á hættu að verða fyrir barði tortíming- arvopna nútímahernaðar. — Það væri til dæmis glapræði að láta undan fallast að gera ráðstafanir til þess að kenna fólki að verjast aukinni geislavirkni í andrúmsloft- inu af völdum kjarnorku- sprenginga í nálægum eða fjarlægum löndum. Almennt er tahð, að hægt sé að gera margvíslegar ráðstafanir til þess að vemda almenning fyrir geislavirkni, ef unnið er að þeim af forsjálni og hyggindum. Vera má að ýmislegt komi fólki nýstárlega fyrir sjónir í hinum nýju tillögum um almannavamir. En við nán- ari athugun munu þó flestir gera sér ljóst, að hér er um eðlilegar og sjálfsagðar ráð- stafanir að ræða, ef þeir vilja ekki viðhafa aðferð strútsins og verjast hættunni með því að stinga höfðinu í sandinn, en horfast heldur hreinskiln- islega í augu við þann vanda, sem við blasir. Á ófriðarárunum síðustu var hafizt handa um marg- víslegan undirbúning al- mannavama hér í Reykjavík. Vom þær ráðstafanir þá tald ar sjálfsagðar og óhjákvæmi- legar. Þær tillögur, sem nú hafa verið gerðar um al- mannavamir, og eru miklu víðtækari, byggjast á nýjum viðhorfum og breyttum að- stæðum að fjölmörgu leyti. En þær eru jafn sjálfsagðar og eðlilegar og hinar fyrri, sem aðallega voru fólgn- ar x loftvömum og öðr- um skyldum ráðstöfunum. Takmark þeirra er fyrst og fremst að vemda íslenzkt fólk fyrir þeim voða, sem því væri búinn, ef til þeirra ótíðinda drægi, sem allir vona að eigi muni gerast. UNDIR SAUÐ- ARGÆRU HLUTLEYSISINS Cukarno, Indónesíuforseti, ^ hefur sveipað sig sauðar- gæm hlutleysisins. Hann þyk ist vera einlægur friðarsinni, sem hvarvetna vilji bera klæði á vopnin og koma fram sem mannasættir. — Sjálfur hefur hann þó í stöð- ugum hótunum um að leggja undir sig með vopnavaldi ná- granna sína á Vestur-Nýju- Guineu. í síðustu viku lét Sukamo gera ítrekaðar til- raunir til landgöngu Indó- nesa á Nýju-Gineu. En öll- um hefur þeim tilraunum þó verið hrundið. Á sama tíma sem Sukarno var að gera til- raunir til innrásar á Nýju- Guineu, sátu fulltrúar hans með fulltrúum frá Hollandi á viðræðufundum í nágrenni Washington, til þess að reyna að komast að samkomulagi um framtíð Nýju-Guineu. — Sýnir þetta framferði Sukar- UTAN UR HEIMI j Nixon svnrnr VI® forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 6. nóv. 1960 voru greidd alls 68.334.742 at- kvæði. Af þeim hlaut John F. Kennedy frambjóðandi demó- krata 34.227.096, en Richard M. Nixon frambjóðandi repu- blikana 34,107.646. Kennedy var þvi kjörinn forseti með aðeins 119.450 atkvæða meiri- hluta — og er það einn naum- asti sigur sem um getur í for- setakosningum í Bandaríkjun- um. Þessi sigur Kennedys og bar áttan fyrir kosningamar era mál, sem mikið hafa verið rædd bæði í Bandarikjunum og annars staðar. Og nú hefur Richard Nixon birt svör sín við ýmsum helztu spurningum manna þessu varðandi í bók- inni „Six Crises“, sem út kom hjá Doubleday útgáfufélaginu bandaríska s.l. fimmtudag. Margir urðu undrandi yfir því þegar Nixon viðurkenndi strax ósigur sinn hinn 8. nóv- emiber 1960 án þess að krefj- ast endurtalningar atkvæða í nokíkruim mikilvægum kjör- dæonum þar sem munur var lítill. Talningu var þá svo til lokið og sýndi hún að Kennedy hafði fengið 303 kjör menn kosna en Nixon 219. Auk þess voru 15 kjörmenn, sem voru ófhéðir frambjóðend- unum. Nixon skýrir svo frá í bók sinni að ef endurtalning í Illinois og Missouri hefði gef ið republikönum nokikur þús und atkrvæði til viðbótar og endurtalning í New Mexico, Nevada og Hawai gefið þeim 11.000 til 13.000 atkvæði hefði það nægt til að fella Kennedy. Ean það var einmitt 1 nokkr- um þessara fylkja, sem stuðn- ingsmenn Nixons sökuðu demókrata um fölsun á úrslit- um. Einnig voru demókratar sakaðir um ranga talningu í Texas, þar sem Kennedy sigr- aði með naumum meirihluta. HEFÐI SKAPAÐ GLUNDROÐA Urn þctta segir NixOn að við rannsókii á ákæruatriðum hafi komið í ljós að grundvöllur væri fyrir þessum ásökunum. En miklir erfiðleikar hefðu verið á því að fá kornið á end- urtalningu. Það hefði til dæm- is tekið að minnsta kosti eitt Og hálft ár í llinois, en í Texas eru engar reglur til um kröfu fallins frambjóðanda um end- urtalningu. Ef hann hefði spurningum irá 1960 Richard Nixoa i þrátt fyrir þetta krafizt endur hafi stafað af þvi að fyrstu k' talningar hefði það skapað vilku kosningabaráttunnar hafi glundroða í öllum stjórnar- störfum og dregið í marga mánuði að hin nýja stjórn gæti tekið við völdum. Þá ótt- aðist Nixon einnig að með því að krefjast endurtalningar kæmi hann af stað nýjum deil um og biturleika, sem gæti haft mjög skaðleg álhrif, ekki aðeins heima fyrir, heldur einnig varðandi áhrif Banda- ríkjanna út á við. ÞJÓÐIN VIEDI UMRÆDUR Ýmsir stjórnmálamenn í Bandarikjunum sögðu að það hefði verið rangt af Nixon að samlþyklkja að koma fjórum sinnum fram með Kennedy í útvarpi og sjónvarpi fyrir kosningar til að ræða baráttu málin. Segja þessi menn að Nixon hafi ekkert haft að vinna en öilu að tapa. Hann hafi sjálfur verið landskunn- ur, en Kennedy hinsvegar lítt þekktur. Um þetta segir Nixon að sér hafi þótt nauðsynlegt að samþykk.ia umræðurnar með fúsum vilja. Ef hann hefði neitað hefði mátt búast við ásökunum um að hann væri hræddur um að verja gjörðir Eisenhowerstjórnarinnar og sjálfs sín sem varaforseta. En auk þess var erfitt að neita að taka þátt í sjónvarpsdag- skrá, sem vitað var að banda- ríska þjóðin beið eftir með mikilli eftirvæntingu. Sagt var að Nixon hafi virzt þreytt ur í sjónvarpsumræðunum. Sjálfur segir Nixon að þetta hann létzt um 10 pund. ÖRYGGH) I HÆTTU í bókinni sakar Nixon Kennedy um að hafa hætt öryggi Bandaríkjanna með því að hivetja til þess í kosninga- ræðu að Bandaríkin veittu andstæðingum Castros á Kúbu stuðning. En þegar Kennedy flutti þessa ræðu sína hafði hann þegar fengið upplýsing- ar hjá bandarísku leyniþjón- ustunni um þjálfun Castro- J andstæðinga með stuðningi 1 Bandarí'kjanna undir innrás á Kúbu, Hvíta húsið og Allen Dull<=s fyrrverandi yfinmaður leyniþjónustunnar hafa neitað því að Kennedy hafi vitað um innrásarundirbúninginn. En Nixon segir að hann hafi aðeins einu sinni reiðst við J Kennedy persónulega í kosn- 1 ingabaráttunni og það hafi I verið varðandi Kúbumálið. I Og ekki dró það úr reiðinni J að Nixon gat ekkert minnst 1 á það máll. Hann kveðst ekki I1 hafa getað barizt fyrir banda 1 rískum afskiptum af Kúbu, Z því það hefði getað komið upp J um fyrirætlanirnar. Og í síð- | asta sjónvarpsþættinum með ( Kennedy varð Nixon að láta sér nægja að mæla með að setja Kúbu í „sóttkví". Ég var í þeirri óþægilegu aðstöðu, segir Nixon, að virðaist vilja taka vægar á Castro en Kennedy vildi, þótt þetta væri alrangt ef Skýra hefði mátt frá staðreyndum. nos furðulega tvöfeldni og óheiðarleilc. Hollendingar eru reiðubún ir til þess að hverfa frá Vestur-Nýju-Guineu, en þeir telja réttilega að Papúamir, sem landið byggja, eigi að hafa sjálfsákvörðunarrétt um framtíð sína og skera sjálfir úr um það, hvort þeir vilji vera sjálfstæð þjóð eða hluti af Indónesíu. En það er þessi sjálfsákvörðunarréttur Papú anna, sem Sukarno hatar eins og pestina. ÓFULLKOMIÐ LÝÐRÆÐI T ýðræðið stendur veikum fótum í flestum löndum Suður-Ameríku. Sú stað- reynd verður m. a. ljós af þeim atburðum, sem nú hafa gerzt í Argentínu, öðru fjöl- mennasta ríki þessa heims- hluta. Herinn hefur neytt Arturo Frondizi, forseta, til þess að segja af sér. Ástæða þessarar ráðabreytni hersins er fýrst og fremst sú, að forsetinn neitaði að ógilda kosningu ýmissa fylgismanna Perons, fyrrverandi forseta, í síðustu kosningum. í síðustu þing- og héraðs- stjórnarkosningum í Argen- tínu buðu fylgismenn Per- ons, fyrrverandi einræðis- herra landsins, fram í mörg- um kjördæmum. Niðurstaða kosninganna varð sú að þeir unnu víða mikla sigra. Al- mennt er talið að þessarkosn ingar hafi farið fram með lýðræðislegum hætti. Það var því ekki með réttu hægt að ásaka Frondizi fyrir hið aukna fylgi Peronista. Arturo Frondizi er ítalskur að ætt og uppruna. Margir telja hann hygginn og ráða- góðan stjómmálamann. En þjóð hans stendur greinilega á lágu lýðræðislegu þroska- stigi. Þess vegna er þar jafn an skammt yfir í einræði, þótt lýðræðisskipulag eigi að heita í landinu. Fangelsun Frondizi og þeir atburðir, sem gerzt hafa í sambandi við síðustu kosningar í Arg- entínu, eru mikið áfall fyrir lýðræðisskipulagið í Suður- Ameríku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.