Morgunblaðið - 03.04.1962, Side 12
12
MORGVNBLAÐiÐ
Þriðjudagur 3. apríl 1962
Ctgefandi: H.f Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áPm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: íVðalstræti 6.
Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 3.00 eintakið.
HITA VEITA í ÖLL HÚS
k llir Reykvíkingar munu
•**• sammála um það, að
Hitaveitan sé eitt glæsileg-
asta og merkasta fyrirtæki
borgar þeirrar. Hún hefur á
liðnum tíma skapað stórum
hluta borgarbúa margvísleg
lífsþægindi og sparað þjóð-
inni í heild hundruð milljóna
króna í erlendum gjaldeyri.
í dag munu um 40 þúsund
af íbúum Reykjavíkur njóta
Hitaveitunnar. Fyrirhuguð
stækkun hennar mun hins-
vegar ná til hverfa, sem hafa
um 30 þúsund íbúa. Sjálf-
stæðismenn í borgarstjórn
hafa ákveðið að beita sér fyr
ir því að hitaveita verði
leidd í öll hús borgarinnar á
næstu fjórum árum. Hefur
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, haft ágæta forystu um
vel undirbúna áætlun um
þessar framkvæmdir. Jafn-
framt hefur verið tryggt
fjármagn til þessarar miklu
aukningar Hitaveitunnar. En
samtals er gert ráð fyrir að
heildarkostnaðurinn muni
nema um 240 milljónum
króna. Alþjóðabankinn hefur
lofað stóru láni til fram-
kvæmdanna.
Þessi lántaka hjá Alþjóða-
bankanum er fyrst og
fremst möguleg vegna þeirr-
ar stefnubreytingar, sem orð-
ið hefur í fjármálum íslend-
inga á yfirstandandi kjör-
tímabili. — Viðreisnarstefna
ríkisstjórnarinnar hefur skap
að landinu aukið lánstraust
út á við. Er það ómetanlega
mikils virði fyrir Reykjavík-
urborg að hafa fengið loforð
fyrir þessu láni.
Borgarstjóri og borgar-
stjórn eiga miklar þakkir
skyldar fyrir ágætan undir-
búning og lánsfjáröflun til
aukningar Hitaveitunni.
Hitaveita í hvert hús í
Reykjavík er svo stórkost-
legt framfaraspor, að menn
gera sér ef til vill varla
ljóst í skjótu bragði, hversu
þýðingarmikið það er. Það
mim skapa 30 þúsund Reyk-
víkingum stóraukin lífsþæg-
indi og spara þjóðinni millj-
ónir króna árlega í innflutn-
ingi erlends eldsneytis.
Það er Sjálfstæðismönnum
um land allt mikið gleðiefni,
að flokkur þeirra hefur frá
upphafi haft forystu um hag-
nýtingu jarðhitans í landinu.
í kjölfar Reykjavíkur hafa
ýmsir kaupstaðir og byggðar
lög úti á landi hafizt handa
run hitaveitur í þágu íbúa
sinna. Meðal þeirra má
nefna Sauðárkrók, Ólafs-
fjörð, Hveragerði, Selfoss cg
Húsavík. Það er einnig at-
hyglisvert, að flestum þess-
um byggðarlögum hefur ver-
ið stjórnað af Sjálfstæðis-
mönnum, sem haft hafa for-
göngu um hagnýtingu heita
vatnsins.
Jarðhitinn á Islandi eru
ein helztu náttúruauðævi
þessa lands. Sjálfstæðismenn
munu halda áfram að beita
sér fyrir hagnýtingu hans.
Þeir munu stuðla að því að
hann verði notaður til þess
að framleiða orku og yl, til
þess að skapa fólkinu aukin
lífsþægindi, bætt atvinnu-
skilyrði og bjartari framtíð.
KEMUR PERON
AFTUR?
k rið 1955 hrundi einveldi
Juans Perons í Argen-
tínu. Hafði hann þá verið
við völd í tæp tíu ár. Stjóm
hans var kaldrifjuð einræðis-
stjóm.
Peron er um þessar mund-
ir í útlegð á Spáni, 6000 míl-
ur frá heimalandi sínu. Engu
að síður er hann áhrifamik-
ill persónuleiki í argentínsk-
um stjómmálum. Af hans
völdum hafa nú skapazt þar
pólitískir erfiðleikar og upp-
lausn, sem ekki er enn séð
fyrir endann á. Forseti lands
ins hefur verið hnepptur í
fangelsi og herinn hefur í
raun og veru tekið stjórn
landsins í sínar hendur. —
Eins og áður hefur verið
skýrt frá eru það fyrst og
fremst sigrar peronista í síð-
ustu kosningum í Argentínu,
sem þessum atburðum valda.
Þrátt fyrir þetta verður
það að» teljast ólíklegt, að
Peron komist á ný til valda
í Argentínu. Einræðisstjóm
hans og ýmiss konar spilling
eru stórum hluta Argentínu-
manna ennþá í fersku minni.
En lýðræðið stendur völtum
fótum þar, eins og í fleiri
löndum Suður-Ameríku. —
Þess vegna getur það gerzt,
að herinn setji forseta lands-
ins frá völdum og hneppi
hann í fangelsi.
Bandaríkjamenn leggja nú
vaxandi áherzlu á að veita
Suður-Ameríku-ríkj unum
efnahagslega aðstoð til þess
að bæta kjör almennings
þar. Sumir gera sér von um
að í kjölfar batnandi efna-
hags muni lýðræðisskipulag-
ið eflast í þessum hluta
heimsins. En um það þarf
ekki að fara í neinar graf-
götur að traust og rótföst
*
mmmmj
. f< CARÖLINUIYIAR / -//
WARSHALL !
[5 ^ UNDlR STJÓRN | JAPANA 1937
° 1 ■ UNDIRSTJPRN B;;] UNDIR5ÖVET' STJDRN NU ,
ÓVÍÐA hSfa orðið meiri
breytingar á landabréfinu á
síðari árum en í Austurlönd-
um. Lönd, sem voru frelsuð
undan oki japanska heims-
veldisins í lok síðustu heims-
styrjaldar, eru nú sum
hlekk j t.ð í þrældómsfjötra
hinna tveggja heimsvelda
kommúnismans. Japan varð
fyrst austurlenzkra ríkja til
þess að tileinka sér vestræna
tæknimenningu. Ör fjölgun
íbúanna olli landþrerigslum
heima fyrir þegar á síðustu
öld, en slíkt er oft upphaf
heimsveldisstefnu í utanrík-
ispólitík. Útþenslustefna Jap-
ana er talin hefjast árið
1895, þegar þeir náðu For-
mósu úr höndum Kínverja.
Það eyland hefur verið undir
stjóm margra. Kinverjar
munu fyrst hafa náð þar fót-
festu tun árið 600, en síðan
hafa Japanir, Hollendingar,
Spánverjar og Portúgalar
reynt að ná varanlegum völd
um þar. Hinum innfæddu hef
ur sjaldnast tekizt að ná nein
um yfirráðum á eynni, síðan
Kínverjar komu þangað
fyrst, nema þá í afskekktum
fjallahéruðum. Á japönsku og
kínversku nefnist Taiwan, en
Portúgaiar gáfu henni nafnið
Formósa, sem þýðir hin
fagra, svo að nafn hennar á
íslenzku er eiginlega Skrúð-
ur. Á hún sér því nöfnu í
mynni Fáskrúðsfjarðar. Sama
ár og Japanir toguðu For-
mósu úr höndum Kínverja,
1895, gerðu þeir Kóreu að
verndarríki gínu. Ibúar
Kóreuskaga og Formósueyjar
hafa ætíð búið við það ólán,
að voldugir nágrannar hafa
girnzt lönd þeirra, lagt þau
undir sig til skiptis og sent
landnema í fótspor herflokka.
Tíu árum síðar, 1905, sigr-
uðu Japanir Rússa í styrj-
öld og lögðu undir sig suð-
urhluta Sakalíneyjar og kín-
versku flotastöðina Port Art-
hur ásamt nokkru landssvæði
þar um kring. Port Arthur
(Kwangtung) er hafnarbær á
suðurenda Liaotung-skaga í
Kína. Höfnin er íslaus á vetr-
um, og þaðan má ráða yfir
innsiglingunni í Gula hafið.
Umhverfis höfnina eru
hamrar og í þeim rammgerð
vígi með stórskotafallstykkj-
um. Kínverjar hófu að bora
virki sín í bergið árið 1880,
og þess vegna hernámu Jap-
anir skagann. Við gerð frið-
arsamninga vildu sigurveg-
aramir fá hann allan, en
stórveldi Vesturlanda komu í
veg fyrir það, og árið 1898
settust Rússar að í bænum.
í janúar 1905 gáfust Rússar
upp fyrir Japönum eftir
hrikalegar orustur, þar sem
Austurlandamenn báru sigur-
orð af Evrópumönnum í
fyrsta skipti um langan ald-
ur. Rússar höfðu sent mik-
inn herskipaflota austur með
ærnum tilkostnaði, en neydd
ust til þess að sökkva hon-
um í hafnarkjaftinum í Port
Arthur. — Sakalín er eyja
austur undan Síberíu, vest-
an Kamtsjakaskaga í Okh-
otska hafinu. Rússar eru
mesta nýlenduveldisþjóð, sem
mannkynssagan kann frá að
greina. Hafa engir bælt und-
ir sig víðlendari svæði eða
fleiri þjóðir en þeir. Komust
þeir alla leið að Kyrrahafi,
1858, þegar þeir svældu undir
sig lönd og þjóðir um norðan
yerða Asíu með grimmd og
harðýðgi. Sakalín, sem Jap-
anir nefna Karafuto, gerðu
Rússar að nýlendu 1875.
— Frumbyggjar þar
eru Aínóar, einstæður þjóð-
flokkur, sem flokkast senni-
lega undir hvíta kynstofninn.
Sérkenni þeirra er geysilegur
skegg- og hárvöxtur. Hafa
Japanir og Rússar kúgað þá
síðustu aldir og sent land-
nema á bezta jarðlendið.
Mikilvægasta borg Rússa á
þessum lóðum er Vladivo-
stok, útrásarborg þeirra til
Kyrrahafsins. Vladivostok
þýðir „herra austursins", og
fer sú nafngift vitaskuld
mjög í taugarnar á Austur-
landabúum. í borginni er
endastöð Siberíujárnbrautar
Rússa. Tékkó-Slóvakar náðu
borginni á sitt vald í júní-
mánuði árið 1918, þótt und-
arlegt megi virðast, og náði
sovézka byltingarstjórnin
henni ekki fyrr en í október
1922.
Árið 1919 voru nokkrir
eyjaklasar í Kyrrahafi tekn-
ir undan þýzku keisara-
krúnunni og lagðir undir þá
japönsku. Það voru Maríaneyj
ar, (Ladrone-eyjar eða Sjóræn
ingj aeyjar), Karólínu-eyjar og
Marshall-eyjar. — Árið 1931
hreppti japanska keisaraveld-
ið þann hluta Mansjúríu
(Mansjúkó), sem sýndur er á
landabréfinu, og næstu tíu ár
hernámu Japanir mikinn
hluta Kínaveldis. Höfðu þeir
þann háttinii. á að hertaka
mikilvægustu hafnir og járn-
brautarstöðvar. Þegar bændur
sendu frá sér uppskeru sína,
sendu Japanir hermenn á
birgðastöðvar og rændu af-
rakstri ársins. — í siðari
heimsstyrjöld, aðallega á ár-
unum frá 1940 til 1942, brutu
Japanir undir sig eða náðu
áhrifaaðstöðu í Suðaustur-
Asíu, hollenzku Austur-Indí-
um (Indónesíu), Filippseyj-
um og víða á Kyrrahafseyj-
um. Þegar Bandaríkjamenn
unnu sigur á Japönum árið
1945, voru voldugir kommún-
istaherir tilbúnir að ráðast á
hræið, sem aðrir höfðu lagt
að velli. Þeir hernámu þegar
í stað Suður-Sakalín, Kúril-
eyjar, Norður-Kóreu og Man-
sjúríu. Bandaríkjaher hertók
Japanseyjar, Rjúkjú-eyjar
Framh. á bls. 17.
lýðræðisstjórn á enn langt í
land í Argentínu og öðrum
löndum Suður-Ameríku.
„ALÞYÐUBANDA-
LAG" Á NÁSTRÁI
ITið svokallaða „Alþýðu-
** bandalag“ kommúnista
hefur undanfarið haldiðnokk
urs konar landsfund. Öllum
fregnum af þeirri samkomu
ber saman um, að hún hafi
mótazt af vonleysi og upp-
dráttarsýki. En kommúnistar
leggja samt mikla áherzlu á
að nota þessa sauðargæru
sína áfram. Hugmynd þeirra
er að nota hana framvegis
sem hingað til til þess að
breiða hana yfir „Sameining-
arflokk alþýðu, Sósíalista-
flokkinn,“ deild hins alþjóð-
lega kommúnistaflokks hér á
landi. í þessu skyni eru þeir
Hannibal og Alfreð læknir
dubbaðir upp sem miklir
ráðamenn innan hins svo-
kallaða „Alþýðubandalags“.
En innan Sósíalistaflokksin3
ráða þeir engu og eru hafðir
þar að háði og spotti.
En fleira og fleira fólk
gerir sér ljóst, að hlutverk
þessa „Alþýðubandalags“ er
eingöngu að vera sauðargæra
til þess að fela úlfshár hins
alþjóðlega kommúnista-
flokks. Þess vegna sætir það
engri furðu, þótt vegurþessa
bandalags verði minni með
hverju árinu sem líður.