Morgunblaðið - 03.04.1962, Side 14

Morgunblaðið - 03.04.1962, Side 14
14 MOflfrUflBlAÐlÐ Hjartkær systír mín og mágkona HALLDÓRA EINARSDÓTTIR lézt í Bæjarsjúkrahúsinu iaugardaginn 31. marz sl. Víiborg Einarsdóttír, Páll Bóasson Eiginmaður minn, og faðir okkar JÓHANN ÞORFINNSSON frá Siglufirði er lézt að heimili sínu 26. marz sl. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 4. þ.m. — Jarðarför- inni verður útvarpað. Aðalbjörg Björnsdóttir, Sigurlaug Jóhannsdóttir, Þorfinnur Jóhannsson, Björn Jóhannsson. Eiginkona mín og móðir GUÐRÚN GL’ÐMUNDSDÓTTIR Tunguvegi 1 verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 5. apríl kl. 2 e.h. Elentínus Jónsson, Guðbjörg Elentínusdóttir. Þökkum hjartanlega samúð og hluttekningu við and- lát og jarðarför föður okkar, STEFÁNS HALLDÓRSSONAR bónda frá Rauðafelli, Austur-Eyjafjöllum Börn, tengdabörn og barnabörn JÓN SAMSONARSON bóndi að Múla í Dýrafirði andaðist að heimiii dóttur sinnar í Reykjavik 31. marz Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn Móðir okkar SVEINBJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR lézt 21. f.m. að heimili sínu, Njálsgötu 12. — Jarðar- förin hefur farið fram. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Móðurbróðir minn JÓN VALGEIR JÚLÍUSSON Skála við Rauðavatn, sem lézt af slysfórum i Landspítalanum 28. marz sl., verður jarðsunginn fimmtudaginn 5. apríl kl. 1,30 frá Fossvogskirkju. Fyrir hönd aðstandenda. Pétur E. Pétursson Hjartkæri maðurinn minn ÞÓRDUR AXEL GUÐMUNDSSON vélsmiður, Hverfisgötu 3, Siglufirði lézt í sjúkrahúsi Siglufjaiðar 1. apríl sl. Fyrir hönd aðstandenda. María Pétursdóttir Faðir okkar ÞORLEIFUR ÞORSTEINSSON andaðist að Elliheimilinu á ísafirði hinn 1. þ.m. Börn hins látna Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jaiðarför móður minnar, BELGU SIGURÐARDÓTTIJR Karl Ingimundarson, Keflavík Þökkum af heilum hug öllum þeim er sýnt hafa konu minni og móður okkar, KRISTÓLÍNU ÞORLEIFSDÓTTUR Bjargarstíg 7, vináttu og tryggð og okkur samúð við andlát og útför hennar. Halldór Sigurðsson Kristín, Auður og Unnur Malldórsdætur Jón og Halldór Halldórssynir Þökkum inniiega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðaríör móður minnar, tengdamóður og ömmu, HÖLLU ÁRNADÓTTUR Halla Gísladóttir, Baldur Skarphéðinsson Halla Björg Baidursdóttir, Gísli Baldursson Guðjón Símonarson kaupmaður — Mlnning HANN lézt 24 f.m. og var kvadd- ur af vandamönnum sínum vin- um og göanlum sveitunguim í Fossvogskapellu í gær. Guðjón var fæddur á Þingvödl- tum við Öxará 10. sept. 1877. For- eldrar hans voru hjónin Svanhild ur Magnúsdóttir og S'mon Jónss. Æskuárin dvaldist hann með for- eldrum sínum, fyrst í Arnarbælis hverfi og síðar á Álftanesi. Hann var bráðþroska og tápmikill og fór snemma að vinna fyrir sér hjá vandalausum. Fyrst í Görðum á Álftanesi og víðar á Suðurnesj um, einkum við sjósókn, sem varð hans aðalævistarf. Um aldamótin réðst Guðjón í þann stóra hóp Sunnlendinga, sem þá sótti austur á Fjörðu til sjóróðra á sumrin. Settist hann fyrst að í Mjófirði og gerðist brátt formaður og síðan útgerðar maður. Sumarið 1006 kvæntist hann Sigurveigu Sigurðardóttur Þor- steinssonar bónda frá Krossi í Mjófirði. Um sama leyti flyzt hann til Norðfjarðar. Þá var vélbá taútgerðin að hefj- ast og var Guðjón með fyrstu vél bótaformönnum þar eystra. Eign- aðist hann brátt eigin véibát og var útvegsbóndi eftir það rúm 30 ár og lengst af sjálfur formaður. Hann var afburða sjósóknari. í senn áræðinn og forsjálO. Aldrei á sinni löngu formannsævi varð hann fyrir tjóni á mönnum eða báit. Var þó Oft hörð Og hættuleg sjósókn í haustróðrum frá Norðfirði á beim árum þegar sótt var á 6—12 smáilesta vélbátum út í Kistu eða brún landgrunns- ins um 30 sjómílur út frá ystu nesjum, jafnvel fram í desember. Guðjón var mikill starfs- og hagleiksmaður. Hirti vel útgerð sina og bát. í landlegum og öðr- um tómstundum stundaði hann skósmíði. Hann var góður heimilisfaðir, enda var hjónaband hans hið far- sælasta. Þeim Sigurveigu fædd- ust 11 börn sem öll kómust vel til manns. Einn son misstu þau uppkominn. Dætur þeirra eru hús freyjur tvær hér í Reykjavlk og ein í Ameríku. Tveir sona þeirra eru byggingameistarar, tveir skip stjórar, einn vélstjóri, einn sjó- maður vestan hafs og einn flug- maður. Hingað til Reykjavíkur fluttust þau hjónin með börn sín 1939. Var Guðjón þá farinn að lýjast á sjónuim og afhenti sonum sínum útgerðina skömmu síðar. Fékkist hann eftir það við smláverzlun til 1959. Konu sína missti hann 1945. Guðjón var vörpulegur maður á velli og mikilúðlegur svo mönn um vildi verða hann minnisstæð- ur. Einarður var hann í faisi og stundum hrjúfur í svör- um sem ektki er ótítt um sjómenn. En undir stafcknum bjó næmur hugur sem þyrsti eftir hvers kon ar fróðleik og fegurð, einfcum í tónum. I allri sinni önn og stund um örbyrgð lærði hann að spila á orgel. Unni mjög söng og las sér margt um tónfræði. Jarðarför elsku litlu dóttur okkar og systur KRISTÍNAR EDDU sem andaðist 28. þ.m. fer fram frá Dómkirkjunni 4. apríl kl. 1,30 e.h. Geirþrúður Hildur, Sverrir Bernhöft og systkini Jarðarför mannsins míns KRISTJÁNS EINARSSONAR framkvæmdarstjóra, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 5. apríl kl. 10,45 f.h. — Húskveðja hefst kl. 10 að heimili okkar Smáragötu 3/— Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Ingunn Árnadóttir Af heilum hug þökkum við öllum, nær og fjær, sem veittu okkur styrk, hugsvölun og aðstoð við andlát og útför eiginkonu minnar og móður okkar, ÓLAVÍU S. ÁRNADÓTTUR með samúð og vinarhug og heiðruðu minningu liennar á einn eða annan hátt. Þórður Oddgeirsson, Ragnheiður Á. Rogich, Jón Á. Árnason Elín Árnadóttir, Guðni H. Árnason Elísabet Á Möller, tengdabörn og systur * Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför KRISTINAR SIGURÐARDÓTTUR frá Stórólfs-Hvoli. Stefán Jóhannsson. Ólafur G. Einarsson, Gyða Jónsdóttir, Þórunn Einarsdóttir, Runólfur Ó. Þorgeirsson, Margrét G. Einarsdóttir, Ásbjörn Jónsson, Einar Ó. Stefánsson, Friðrik J. Stefánsson, Ingibjörg Stefánsdóttir, Ásta Kristjánsdóttir, Þóra Björgvinsdóttir, Guðni Helgason. Hann hafði og vakandi áhuga á þjóðfélagsmálum. Þar lét hann sér ekki nægja lakari heimildir en alþingistiíðindin sem hann las ofan í kjölinn. Hann vildi kom- ast að kjarnanum, skilja rök og vanda mannfélagsins. Ég sem þetta skrifa var Guð- jóni samtíða í sex vetrarvertiðir. Það var á kreppuárunum þegar allt var í basli og bágindum. Þá var gott að eiga Guðjón að þegar gæftaleysi bannaði alla björg. Tafca með honum lagið eða skeggræða við hann um aMa heima og geyma. Hlusta á hanis rammíslenzfcu lifsspefci, þar sem grunntónninn var að „glaður og reifur skyldi gumna hver unz sinn bíður bana“. Ólafur H. Sveinsson. Hann var fæddur 10. septem- ber 1877. Andaðist að kveldi laug ardags 24. marz í Landafcotsspíit- ala, 84 ára að aldri. Erfið voru uppvaxtarár fllesitra þeirrn er nú eru að hverfa af sjónarsviðinu, efth langan dag. Hefur sú kynslóð haft frá mörgu að segja, en okfcur er ho>lt að hafa hugfast, svo ótrúlega var lífsbaráttan hörð. Fátæfctki, vos- búðinog erfiðleifcarnir það mifclir að vart getum við hugsað okkur það, að ekki skuli vera lengra síðan, er róið var ó opnum bátum út á djúp mið. Beitt í köldum skúrum og barizt við brim og boða 1 hafnlausum höfnum. Sem betur fer, hefur þetta gjör breytztog stórfeldar framfarir átt sér sitað. Ég veit að Guðjón fagn- aði því af heilum hug, að sjá bátana stærri og fullkomnari, útbúna öllum hugsaniegum nauð- synja og þæginda tækjum. Fyrstu kynni mín af Guðjóni Simonarsyni voru austur á Norð- firði, sumarið 1937. Þar fannst mér hann gnæfa yfir sem höfð- ingi sjósóknara. talinn fráibær- lega veðurglöggur og athugull. Þar stundaði hann sjóinn með sonum sínum af mikiu kappi og dugnaði. Farfcosturinn var eigið skip, er hann og synir hans höfðu að lang mestu leyti smíðað úr timbri er Guðjón sótti sjálfur til Noregs. Mér finnst slí'kt framtak og dugnaður á þeim erfiðleika- tímum vera svo einstakt að vert sé að minnast þess. Guðjón Sím- onarson lærði skósmíðar og hafði sveinspróf í iðn sinni, þótt hann stundaði hana aldrei að neiniu ráði. Guðjón var elztur systkina sinna og nutu þau þess 1 ríkum mæli. Er faðir þeirra félil frá og móðirin stóð með þarnahópinn sinn í ómegð, nema elzta dreng- inn, sem reyndizt henni sannur sonur og gerði henni fært að halda búinu næstu þrjú árin. Þegar móðir Guðjóns andaðist hér fyrir sunnan, var hann flutt- ur austur á Norðfjörð og búsett- ur 'þar. Gat hann því ekki sökum samgönguerfiðleika, um hávetur verið viðstaddur útför hennar. — Hélt hann þá mininingarathöfn heima í Neskaupsstað, sama dag. Orti sjálfur sálmana og samdl lögin er sungin voru. Þannig var Guðjón. Guðjón Símonarson kvæntist 1906 Sigurveigu Sigurðardóttur frá Krossi í Mjóafirði. Eignuðus* þau 11 börn. 8 drengi og 3 stúlk. ur. Öll börnin komust upp og urðu mesta myndar- og dugnaðar fólk. Einn son sinn, Ágúst að nafni, misStu þau, mesta efnis pilt er fórst af afleiðingum við björgunarstörf á sjó. Árið 1940 fluttust þau hjónin til Reykjavíkur, var Guðjón þá hættur sjómennsku, eftir happa sæla tíð — verið svo lánsamur oftar en ei*u sinni, að getað bjargað mönnum úr sjávarháska. En nú var hann orðinn aldraður maður. Synir hans tóku þá við bátn- um er þeir forðum daga smíðuðu og hafa gert hann út til þessa. f Reykjavífc setti Guðjón á stofn smáverzilun er hann rak um nokkurt skeið. Árið 1945 aaidaðist kona Guð. jóns, og var hann þá um tíma hjá börnum sínum. Framh. á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.