Morgunblaðið - 03.04.1962, Page 15
Þriðjudagur 3. apríl 1962
MORCVNBLAÐ1Ð
15
Kenyabúar eru á þessari ráð
stefnu að leggja á ráðin um
sjálfstæði lands síns. Bretar
hafa ekkert á móti því að
ganga að sjálfstæðiskröfum
þeirra, en sá er hænigur á, að
fulltrúar tveggja stærstu
stjórnmálafllokkanna í Kenya,
KADU-fllokksins og KANU-
flokiksins, eru hreint ek'ki á
eitt sátíir og hafa rifizt hvor
við annan þingdarlaust svo
vikum skiptir, en brezku full-
trúamir reynt ðS miðla mál-
um.
Við hlið hins pelsklædda á
myndinni gengur kunningi
hans og samherji, klæddur
ljósum fötum með skrautlegu
mynztri, en yfirhöfnin er
venjulegur frafcki upp á vest-
rænan máta. Okkur virðist
þetta óneitanilega mjög sér- |
kennilegt, nánast fáránlegt —
en það er bara hætt við að
Kenyamönnum finnist efcki síð
ur fáránlegur klæðnaður
Lundúnabúans sem þeir
mættu.
ÞAÐ ER hætt við að otokur
brygði í brún, eif hér í Austur-
stræti brygði fyrir öðrum eins
tízkuklæðnaði og apaskinnkáp
unni hér á myndinni. En Lund
únabúar eru nú ýmsu vanir.
Undanfamar vikur hefur
staðið yfir í London ráðstefna
um framtíð Kenya og þá ráð-
stefnu sitja 82 innfæddir Ken-
yabúar af ýmsum ættflokkum.
Skartar hver sínum beztu
klæðum, sem eru hið mesta
augnayndi.
— Gudjón
Framlh. af bls. 14.
En það mun þó hafla verið
mest að hans skapi, að hafa eigin
forráð, en þurfa ei af öðrum að
þiggja.
Því stofnar hann öðru sinni
sitt eigið heimili með ráðskonu.
Það tókst svo vel til, að unun
var að sjá hve vel hún hugsaði
um gamla manninn. — Hafi hún
beztu þafckir fyrir. Hún gerði
honum, síðustu árin björt og
énægjuleg. Enda er mér full-
kunnugt um að hann kunni vel
«ð meta, umhyggju hennar og vel
vilja sér til handa.
Guðjón Símonarson var um
fnargt mjög vel gerður maður.
Félagislyndur var hann að eðlis-
fari og tók mikinn þátt í félags-
málum á sínum yngri árum. —
Bæði í leik og söng, þótti hann
vel liðtækur. Og létt var yfir
félag&skapnum þar sem hann
Var.
Guðjón var orgelleikari í Nes-
kaupsstaðarkirkju í nokkur ár,
eftir aldamótin og frumkvöðull
eð því að þangað kæmi orgel.
Hann var líka áhugasamur með
e'ö endurvekja lúðrasveit staðar-
ins, er legið hafði í dvala. Eftir
eð Guðjón hætti að verzla, gaf
hann sig mest að þeim hugðar
málum, er alltaf áttu svo mikil
ítök í honum. Hann sarndi lög.
Síðustu árin, munu það þó mest
Ihafa verið sálmalög er hann
$amdi. Mun mikill fjöldi þeirra
vera til í handritum. Það væri
vel þess vert og í miklu sam-
ræmi við óskir hins látna, ef
þeir, er láta sig eitthvað varða
tónlistarmál, kynntu sér handrit
Guðjóns, með hliðsjón að útgáfu
úrval þeirra.
Ég vil sem kunningi Guðjóns
þakka honum að lokum góða við-
kynningu, bæði fyrr og síðar, er
leiðir okkar aftur láu saman.
Þakka honum, tryggð hans og
glaðværð og létta lund fram á
síðasta dag.
Þorsteinn Halldórsson.
Bifreiðaviðgerðamaður
getur fengið atvinnu og húsnæðisafnot
Bifreiðaslöð Steindórs
Sími 1-85-85
Dr. SCHOLL’S vörur nýkomnar
Helena Rubinslein
Ný sending — Snyrtivörur —
IJmvötn — Steinkvötn
nýkomin frá
HELENA RUBINSTEIN, London
SIÍ^CÍ. \EÆ;
Austurstræti 16
ÍReykjavíkur apóteki)
Sími 19866
bbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
WESLOCK
kúluhúnar og skápahöldur
Skápasmellur, margar gerðir
í fjölbreyttu úrvali
Qv
ggingavörur h.f.
Sími 35697
Laugaveg 178
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
.b
Sinfóníu-
tónleikar
SINFONÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands hélt 11. tónleika sina á
þessu strafsári í samkomuhúsi
háskólans, fimmtudaginn 29.
marz. Tékkneski hljómsveitar-
stjórinn, Jindrieh Rohan stjórn-
aði en Guðrún Kristinsdóttir lék
með bljómsveitinni píanókonsert
í d-moll eftir Baah. Tónleikarnir
hófust á Rosamunde forleiknum,
sem Schulbert samdi árið 1820, þá
23 ára gamall. Þetta hugljúfa og
skemmtilega verk lék hljómsveit
in mjög vel og fjörlega.
Guðrún Kristinsdóttir er ávált
aufúsugestur hér í hljómleikasal
— það sannaði hún enn einu sinni
með píanóleik sínum í konsext
fyrir píanó og strengjasveit í d-
moll eftir Bach. Var leikur henn-
ar afburðagóður — hnitmiðaður
og rytmiskur — svo að vart skeik
aði. Samleikur einleikara og
bljómsveitar var samfelldur og
áferðarfallegur og jafnvægi yfir-
leitt gott. Væri óskandi að okkur
gæfisit oftar tækifæri að heyra
Guðrúnu leika með hljómsveit-
inni — ekki sízt 'kammermúsik —
en þar er hún virkilega í essinu
sínu. —
Manfred forleikurinn op. 115
efltir Sohumann var fluttur af
miklum myndarskap — festu og
alvöru — svo sem sæmir þessu
dramatiska verki. sem telja má
meðal beztu verka tónskáldsins.
Þó þótti mér á stundum nokkuð
skorta á jafnvægi milli strengja
og blásara. —
Mjög fallega var leikin og á
köflum heillandi — síðasta verk-
ið á efnisskrármi — hin undur-
fagra g-moll sinfónía Mozarts —
svo að undirritaður minnist ekki
jafngóðs flutnings á tónleifcum
hljómsveitarinnar í vetur. Mundi
hann telja' þessa tónleika meðal
þeirra beztu, sem hljómsveitin
hefur haldið á þessu starfsári.
VIKAR.
.
Hljómleikar Svavars Gests
SÍÐASTLIÐIÐ sunnudagskvöld
efndi hljómsveit Svavars Gests
til hljómleika (eða öllu heldur
hljómrevíu) í Austurbæjarbíói.
Eins og vænta mátti lék hljóm-
sveitin vinsælustu lögin, gömul
Og ný, af sinni alkunnu snilld Og
fjöri. Viðtal við fegurðardröttn-
ingu, eftirhermur, hugsanir hljóm
sveitarmeðlimanna, tilkynning á
meðlimum hljómsveitarinnar og
fjöldinn allur af skoplegum atrið
um var flettað saman við leik
hljómsveitarinnar. Kom mönn-
um skemmtilega á óvart fram-
koma þeirra félaga, klæðnaður
og lýsing á sviðinu ættu aðrir
að taka til fyrirmyndar.
Vinsældir hljómsveitarinnar
eru með ólíkindum eins og sjá
má á þvi aS fólk á öllum aldri
fyllti bekki hússins og hvort sá
ungi eða garnli klappaði meira
treysti ég mér ekki að dæma
um. Eins og flestum er kunnugt
efndu þeir félagar til hljómleika
í Austurbæiarbíói í fyrra, sem
voru endurteknir fyrir fullu
húsi 10 sinnum Og það mætti
segja mér að sagan endurtæki sig
nú og það jafnvel helmingi oftar.
Ó. Jenss.
Sjúkrahús Akra-
ness stækkað
AKRANESI, 30. marz. — Spari-
sjóður Akraness hefur boðizt til
að lána Sjúkrahúsi Akraness
hálfa milljón króna til væntan-
legrar nýbyggingar og stækkun-
ar sjúkrahússins, sem nú er orð-
ið fjórðungssjúkrahús fyrir Suð-
ur- og Miðvesturland. Þetta er
staðfest með bréfi 10. feþr. þessa
árs til stjórnar sjúkrahússins.
— Oddur.
Kápur með kuldafóðri,
skinnkrögum og
skinnhúfum.
ENSKAR
DANNIMAC
tveed gúmmíkápur
Þ Ý Z K A R
VALMALINE
! poplínkápur í vorlitum
og vorsniðum.
• *
Urval frá þrem stærstu og þekktustu
regnkápuframleiðendum heims
MARKAÐURINN
Laugavegi 89