Morgunblaðið - 13.04.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.04.1962, Blaðsíða 6
6 MORCV1SBLAÐ1Ð Föstudagur 13. apríl 1962 Framhoðslisti Sjálfstæðis- flokksins I Hafnarfirði Á FUNDI sínum hinn 11. apríl sl. samþykkti fulltrúaráð Sjálf- stæðisfélaganna > Hafnarfirði tlUögu kjörnefndar um framboð við bæjarstjómarkosning'amar, Iástinn er þanni’g skipaður: Stefán Jónsson, forstjóri. Eggert ísaksson, fulltrúi. Fáll V. Daníelsson, hagdeild- arstjóri. Elín Jósefsdóttir, húsfrú. Ámi Grétar Finnsson, lögfraeð- ingur. Sigurður Kristinsson, málara- meistari. Jónas Bjamason, læknir. Þorsteinn Auðunsson, útgerð- armaður. Þorgrímur Halldórsson, raf- fræðingur. Matthias Á. Mathiesen, spari- sjóðsstjóri. Einar Þórðarson, stýrimaður. Sigurveig Guömundsson, hús- frú. Þorgeir Ibsen, skólastjóri. Magnús Þórðarson, verkstjóri. EgiU Strange, kennari. Árni Jónsson, verkamaður. Gestur Gamalielsson, kirkju- garðsvörður. Helgi S. Guðmundsson, gjald- keri. Dr. Björn Sigurbjömsson form. Fél. ísl. náttúrufræðinga Á AÐALFUNDI í Félagi is- lenzkra náttúrufræðinga, sem haldinn var 16. febrúar og 15. marz s.l. var dr. Björn Sigur- björnsson, erfðafræðingur, kos- inn formaður. Ritari var endur- kjörinn Stefán Aðalsteinsson, bú. fjárfræðingur og gjaldkeri end- urkjörinn Snorri Sigurðsson, skógfræðingur. í varastjórn voru kosnir Flosi Sigurðsson, veðurfræðingur, Ingvar Hallgrímsson, fiskifræð- ingur og Páll Bergþórsson, veður fræðingur. Á aðalfundinum var skýrt frá Iþví, að s.l. sumar hefði stjórn félagsins farið fram á viðræður við ríkisstjórnina um bætt launa kjör fyrir náttúrufræðinga. Voru félagsmenn vongóðir um árangur þessara viðræðna, eink- því ómissandi, og það er stað- reynd, sem aðrar þjóðip hafa gert sér ljósa, að það er marg- falt dýrara að búa illa að þessum starfskröftum — hvað þá vera án þeirra — en að greiða þeim vel og hagnýta þá vel“. Voru óskir félagsins um kjara- bætur, m.a. miðaðar við, að fé- lagsmenn fengju laun til jafns við þá, sem ynnu hliðstæð störf undir öðru starfsheiti, s.s. verk- fræðingar. Þessar viðræður enduðu 15. janúar með því, að ríkisstjórnin neitaði með öllu óskum um leið- réttingar á kjaramálum náttúru- fræðinga. Á aðalfundinum kom fram megn óánægja félagsmanna yfir neitun ríkisstjórnarinnar á ósk- um náttúrufræðinga um bætt kjör, sérstaklega þar sem óskir þeirra eru bornar fram í sam- ræmi við yfirlýstan vilja ráð- herra hennar og þess skilnings á vandamálum náttúrufræðinga, sem stuðningsblöð ríkisstjórnar- innar hafa oft sýnt. (Fréttatilkynning frá Félagi ísl. náttúrufræðinga). Sigurður Kristinsson Jónas Bjarnason Skortur á bifreiða smiðum í landinu AÐALFNDUR félags bifreiða- smiða var haldinn 25. febr. sl. Þar kom m. a. fram, að unnið hefur verið að því, að nemendur í bifreiðasmíði fái aðstöðu til verknáms við Iðnskólann í Reykjavík, og standa vonir til að það verði m. a. til að örfa fjölgun í stéttinni, en mikill skort ur er á bifreiðasmiðum. Um sl. áramót yoru í gildi 29 náms- samningar í iðninni. Mikill ár- angur hefur náðst með samstarfi félags bifreiðasmiða og félags bif vélavirkja með fulltingi vinnur veitenda í stéttinni í þá átt að uppræta óiögleg verkstæði þ. e. þar sean enginn faglærður mað» ur starfar og verður áfram unn* ið að því. Farnar voru tvær skógræktarferðir í land. félags- ins í Heiðmörk sl. sumar. Stjórn félagsins var 311 end* urkjörin, en hana skipa: Har- aldur Þórðarson, form., Magnúa Gíslason, ritari, Hrafnikell Þórð* arson, gjaldkeri, Eysteinn Jóns- son Og Sigurður ísaksson. þakklæti til þess sem nú sér um morgunbænir í útvarpinu, hver sem hann er. Eg hefi und anfarið fylgzt vel með þeim og líkar í alla staði vel. Mæli ég hér fyrir munn margra. Gam- an væri að fá að vita um bver það sé, sem flytur þær svona ágætlega. — Á.H. um eftir þá yfirlýsingu mennta- málaráðherra, dr. Gylfa Þ. Gísla- sonar, á raunvísindaráðstefnunni s.l. haust um „að kjör þau, sem raunvísindamönnum, eins og raunar öllum háskólamenntuðum mönnum, bjóðast hér á landi, eru langt fyrir neðan það, sem sóma- samlegt er og nauðsynlegt til þess að tryggja þjóðfélaginu til frambúðar starfskrafta, sem eru INGÖLFS APÓTEK IDON er ódýrasta megrunarmeðalið Dagskammturinn kostar að- eins kr. 18.55. INGÓLFS APÓTEK Sími: 11330. • Búa þarf vel um pakkasendingar Á. H. skrifar: Mér kom í hug að rita þér nokkrar línur út af sérstöku efni. Eins Og þú kannski veizt hefi ég með póstþjónustuna að gera í Stykkishólmi og í því starfi sam er mjög fjölbreytt kemur margt fyrir og því verða vandamál dagsins oft mörg. Eitt af því sem veldur mér svolitlum áhyggjum er það hversu fyrirtækin í Reykjavík, sem senda póstkröf ur út á land í pakkapósti ganga oft hörmulega frá pökk unum, þannig að þegar þeir koma á leiðarenda sést oft hvað í þeim er en það er nú kannski ekki það versta held- ur hitt að hrein heppni ræð- ur ef varan er ekki skemmd svo ekki sé meira sagt. Þegar svo viðskiptavinirnir koma til að meðtaka pakkana blasir þetta við þeim og auð- vitað dettur þeim ekki annað í hug en að við á póstinum getum ekki stillt okkur um að atbuga hverskonar við- skipti hér eigi sér stað. Að þeitn detti í hug að svOna komi pabkarnir upp úr pokanum það er nú síður en svo. Þess- vegna kemur mér til hugar hvort þú vildir ekiki birta þenn an bréfkafla minn ef það gæti verið þeim sem um pakkana eiga að búa 1 póst, til aðvör- unar. Þess skal að sjálfsögðu get- ið að pakkapóstur er fluttur bæði með skipum og bifreið- um. Er hann þá kannski ekki alltaf meðhöndlaður sem fín- ast og oft þarf að strengja poikana upp á þak bifreiðanna þegar margir fanþegar eru með og er það ekki til að gera meðferðina sem bezta. Enda eiga bifreiðastjórar oft í vök að verjast með póstinn og sama gildir um skipin, en það sem skiptir mestu máli er að búið sé sómasamlega um pakkana sem í pokunum eru. Þá er ég viss um að kvartan- irnar hætta því bifreiðastjórar og eins þeir sem fjalla um pok ana á skipunum reyna eftir beztu getu að fara vel með póstinn. • Þakkir fyrir morgunbæn Þá vil ég biðja þig að koma á frarnfæri fyrir mig sérstöku --------------------------» Til kkamms tkna flutti sr. Björn Jónsson í Keflavík bæn ina, það er mér sagt. Því mið- ur er Valvakandi vel soíandi svo snemma morguns og get- ur því ekki fullyrt neitt um þetta af eigin reynslu. • Kokkurinn skrifar^ undir Þá hefur Velvakanda borizt eftirfarandi bréf: Vegna þess að >ú skrifaðir í blaðið sl. laugardag, að for- ingi skátaflobksins Lundar hefði sent bréfið sem birtist þann dag, vil ég geta þess, að sá sem skrifaði bréfið, Órnar Valdimarsson, er ekki flokks- foringi, heldur kokkur. Þökik fyrir birtinguna. Virðingar- fyllst — Ómar Valdimarsson, Lunda-kokkur. Móðuharðindi Loks barst mér vúsa með ákýringu frá cx. Cx. mætti Karli Kristjáns- syni, alþingismanni fyrir skömmu og sýndist honum þingmaðurinn ekki hafa lagt af, þrátt fyrir .ymóðuharðind- in“. Datt þá cx í hug eftirfar-' andi vísa: Þó að bitni alþjóð á otfurveldi dýrtíðar, ístran minnkar ekki hjá eldissauðum Framsóknar. »■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.