Morgunblaðið - 13.04.1962, Blaðsíða 23
r FÖstudagur 13. apríl 1962
23
MORGVNBLAÐIÐ
Rússneskir listamenn
N ÆSTK OM ANDI mánudags-
kvuld er væntanlegur hingað til
lands hópur rússneskra lista-
manna, sem mun halda skemmt-
anir í Reykjavík og nágrenni.
Listamennirnir kioma hingað á
vegum Skrifstofu skemmtikrafta
og annast Pétur Pétursson fyrir-
greiðslu jþeirra hér. Hópurinn er
nú í sýningarför í Svíþjóð og eftir
blaðaummælum að dæma hefur
hann fengið mjög góðar viðtökur.
Hér er um að ræða 9 listamenn
í ýmsum greinuon.
Maja Koohanova er kóloratúr-
söngkona sem starfar við Stanis-
lavskileiidiúsið í Moskvu. Hún
hefur leikið í kvikmyndinni
„Dimitri Gorizvit".
Boris Mazun er frá Novosi-
birsk og syngur hjá Fílharmon-
iska félaginu þar. Hann syngur
m. a. aríur og þjóðlög.
Ballettdansmærin Nelly Nasar-
dova er frá Anmeniu, en er nú
primadonna við Stanislavskileik-
húsið í Moskvu.
Murat Konuikov er frá Ord-
sjonikidse í Kákasus. í þjóðdansa
flokki hans eru 60 starfandi fé-
lagar. Hmgað koma 4 að þessu
sinni.
Kadsjimel Varzijev er einnig
í þjóðdansaflok'knum.
Bulat Gasdanov er undirleikari
þjóðdansahópsins.
Albina Bajeva er aðems 20 ára.
Hún hefur tekið þátt í mörgum
danssýningum og sýnt hina fögru
og fjörugu dansa þeirra Káka-
susbúa.
Píanistinn Serge Sikryndhenko
er 21 árs. Hann er nemandi við
tónlistarháskólann í Kiev.
Boris Jegerov er 25 ára og
nemur við Tónlistarkennaraskóla
Gnesis í Moskvu. Áhugi hans
beinist einkum að þjóðlegri tón-
list og hljóðfærum. Hann leikur
á harmoniku balalaika, banjó og
fleiri hljóðfæri. í sýningarför
þessari leikur hann á harmoniku.
Fyrsta skemmtun listamann-
anna verður væntanlega á þriðju
dagsfcvöld.
Sinfóníutónleik-
ar í gærkvöldi
ÞAÐ VAP. gaman að fá að heyra
Passacagliu Páls ísólfssonar á
tónleikum Sinfóníuihljómsveitar
íslands í samkömuhúsi háskólans
í gærfcvöldi. undir stjórn Jindr-
idhs Rohans. Þetta er tilkomu-
mikið verk og frábærlega vel
unnið, byggt yfir eigið stef, sem
út af fyrir sig er hin mesta
völundarsmið. Það leynir sér
ekki, að Páll er í sálufél>— við
þá báða, Bach og Brahms, mestu
passacagliuihöfunda allra tíma, og
hefir tileinkað sér tæfcni þeirra,
— en hver getur kosið sér betri
félagsskap? Etf til vill hefir enn
ekki verið samið íslenzfct hljóm-
sveitarverk, sem taki þessu fram
að öllu samanlögðu.
Það er ójafn leikur milli ein-
leikara í fiðlukonsert og hljóm-
eveitar, sem skipuð er fimmtíu
mönnum eða fleiri. Hver einstafc-
ur getur haldið til jafns við ein-
leikarann um hljómmagn, ef
Ihann vildi það viðhafa, og marg-
ir miklu meira en það. Af þess-
um ástæðum hefir fiðlufconsert-
inn verið hálfgert vandræðabarn
i hópi tónlistarfonma, allt síðan
á dögum Beethovens. Tónsfcáldin
neyðast til að skrifa einleikshlut-
verkið að meginhluta óþægilega
ofarlega á tónsviðinu, svo að það
fljóti ofan á tónahafi hljómsveit-
arinnar. Þetta er ekki sá hluti
tónsviðsins, sem hljómfegurstur
er, og „intönation" er þar líka
erfiðari en neðar. Auk þess hætt-
ir einleikurum til að ofgera hljóð
færinu 1 viðleitni sinni til að
hamLa á móti ofureflimi.
Þetta er ekki vandamál í upp-
tökum á hljómplötur eða á út-
varpstónlei'kum. Þar er hægit að
styrkja rödd fiðlunnar, svo að
hún yfirgnæfi allt annað, ef svo
vill verkast, og einleikarinn get-
ur lagt fulla rækt við hljóm-
blæ og tónhæfni. Þetta er líka
notað óspart. En afleiðingin er
sú, að hver sá, sem kunnugur
er fiðlukonsertum af plötum og
útvarpi, hlýtur óhjákvæmilega
að verða fyrir vonbrigðum, þeg-
ar hann heyrir slíkt verk í tón-
leikasal í fyrsta sinn. Þetta var
ég að reyna að segja kunningja
mínum, sem lét í ljós slík von-
brigði í gærkvöldi, og því eru
þessar hugleiðingar eettar á
blað.
Það var engin ástæða til von-
brigða yfir einleik Björns Ól-
afssonar í fiðlukonsert Brahms
í gærkvöldi. Hann spilaði eins
og sá, sem valdið hefir, af feetu,
öryggi og myndugleik. Hamfarir
fyrsta kaflans, sem er stórum
rismestur og mikilúðlegastur,
nutu sín jafnt og ljóðræn mýkt
miðþáttarins og glaðværð og
glæsileiki lokakaflans.
Sinfónían nr. 9 eftir Dvorák,
„Frá nýja heiminum“, var síð-
asta verkið á efnisskránni að
þessu sinni. Það leyndi sér ekki,
að hér var hljómsveitarstjórinn
heima hjá sér, og að haim flutti
þetta verk hins fræga landa síns
með miklum kærleika. Sinfóní-
an var fagurlega roótuð frá upp-
hafi til enda, og sumir kaflar
hennar fluttir af geislandi sann-
færingarkrafti og innlifun.
Staðgenglar mínir, sem hafa
skrifað hér í blaðið í forföllum
mínum um tvenna síðustu sin-
fóniutónleika, töldu hvor sína
tónleika hina beztu, sem hljóm-
sveitin hefir haldið í vetur und-
ir stjórn Jindriehs Rohans. Leyf-
ist mér að segja það sama fyrir
mitt leyti um þessa tónleika?
Jón Þórarinsson.
MOT4KJAVINSltíStOFA
OC VlOTÆKJASAtA
Trúlofunarhringar
afgreiddir samdægurg
HALLDOR
Skólavörðusti % 2
Til hátíðarinnar
Til fermingagjafa
Undirfatnaður
í úrvali frá Carabella,
Artemis, Asani og Coral.
Austurstræti 7.
SPARISKÖR
FVRIR
Hverfisgötu 82
Sími 11-7-88.
GRIMA
Biedermann og
brennuvarganir
eftir Max Frksch
Sýning laugardagBkvöld
kl. 8.-30 í Tjainarbæ.
Aðgöngumiðasalan opin frá
frá kl. 2—7 í dag og á morgun
eftir M. 4.
Sími 1-51-71
Bannað börnum innan 14 ára.
SANITAS-ÁVAXTAS U LTA og SAFT
.Tarðaberja
Hindberja
Bláberja
Bl. ávextir
A n a n a s
Aprikósu
S v e s k j u
Marmelaði
Orange-safi
Bl. ávextasaft
Hindberjasaft
Kirsuberjasaft
— Biðjið ávallt um SANITAS gæðavörur —
SÍIWI 3 53 50 H.F. SANITAS SÍIWl 3 53 50
Málning
Fjölbreyft úrval
HÖRPU SILKI
SPRED SATIN
JAPANL.AKK
SÍGLJAI
GÓLFLAKK
OLÍUMÁLNING
TITANHVÍTA
ZINKHVÍTA
FERNISOLÍA
TERPENTÍNA
ÞURKEFNI
KVISTALAKK
MÁLINGAREYÐIR
•
Teak - olla
dönsk.
ALABASTIN-fyllir
GIBS - KRÍT
SPARTL - KÍTTI
TERMOPANÉ-kítti
UNDIRL AGS -kítti
PLAST-kitti, fyrir leka
mSERPOFIX“ flisalím
„SERPOFUG" fúu sement
PLAST-STÁL
BÍLASPARTL
BÍLAGRUNNUR
BÍLALAKK
HJÓLHESTALAKK
SMERGEL-léreft.
VATNSSLÍPI-pappír.
STÁLBURSTAR
ómissandi ryðvöm
í 174, 1/2, 1/1, 15 W*.
plastbrúsum
FFRRO - REISE/VLER
Hindrar ryðmyndun
og ver króm og aðra
málma fyrir veðrun.
•
ZINKRÓMAT
BLÝMENJA
GRÁMENJA
RYÐVARNARBRONS
ALMUNÍUM-málning
•
SADÓPOL, svart nvatt-
lakk fyrir járuhúsgögu.
Málningar -
Penslar og kústar
Rúllur og bakkai
Spartl- og kittisspaðar
„Skartsens“ sköfur
Glersköfur
Sandpappir
Gúmmíslípiklossar.
Málaratröppur
2 stærðir
Málaraábreiður
Verzlun
0. [Ilingsen