Morgunblaðið - 13.04.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl
— eftir loknn —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Borgin okkar
Sjá bls. 3.
Flutningaskipið Sucrte frá
Líbanon strandaði fyrir
skömmu út af strönd Nova
Scotia skammt frá Halifax.
Skipið skemmdist mikið og
var dregið á haf út þar sem
það sökk. Var þetta gert til
að brennsluolía skipsins
blandaðist ekki sjónum við
ströndina og grandaði fugl
um.
B j ör<íunarafrekið
við Látrabjarg
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur
og Slysavarnafélag íslands
sýndu Björgunarafrekið við
Látrabjarg í Tjarnarbæ sl.
þriðjudag við góða aðsókn, en
vegna óska margra verður sýn-
ingin endurtekin í kvöld. Óvíst
er að myndin verði sýnd oftar
á almennum sýningum að sinni.
A *
Islandskort F.l.
prentað hérlendis
FERÐAFÉLAG Islands hefur
sem kunnugt er gefið út Lit-
prentuð íslandskort síðan árið
1943. Hafa þau verið prentuð
erlendis, enda gerð í 10 mis-
munandi litum. Nú hefur prent-
un kortanna verið hafin hér
heima, í Litho-prent, og er
fyrsta upplagið komið í bóka-
verzlanir. Er prentun slíkra
korta mjög erfið, þar sem hvert
blað þarf að fara 10 sinnum í
gegnum prentvélina í nákvæm-
lega sömu stillingu, svo að hin
hárfínu strik- falli á rétta staði
og hvergi sjáist smuga á miili
Talsverð síld í gær
1 GÆR komu sildarbátarnir með
talsverða síld til Reykjavíkur.
Bergvík kom alveg fullhlaðin,
með 1200—1300 tunnur af góðri
síld, sem fór í íshús. Guðmund-
ur Þórðarson kom með um 800
tunnur, Víðir II 8—900, Skimix
frá Akranesi með 600 og Bjam-
arey með 300 tunnur og rifna
nót. Síldina höfðu þeir fengið
skammt vestur af Vestmannaeyj
um og á Sandvíkunum.
Fanney varð vör við miklar
torfur út af Snæfellsnesi í fyrra-
kvöld og fóru bátar þangað, en
í gær fór að hvessa á þeim slóð-
um.
Afli var tregur hjá netabátun-
um frá Reykjavík í gær. í fyrra-
dag fengu Vestmannaeyjabátar
samtals 900 lestir en í gær var
veiðiveður ekki sem bezt.
Með 2600 tunnur
Fréttaritari blaðsins á Akra-
nesi símaði.
Heildarafli báta hér i gær var
77 lestir og aflahæstux var Fiska
skagi með 10,15 1. Rær hann með
línu og var á annan sólarhring
í róðrinum. Höfrung'ur II fékk
2600 tunnur af síld . í tveimur
köstum austan við Vestmanna-
eyjar í gærkvöldi og í nótt. Var
Höfrungur svo hlaðinn og siginn
að segja má að hann lægi á nef-
inu. 4—800 tunnur af síldinni
verður flakað og súrsað. Hitt fer
í bræðslu. Skírnir fékk þar og
600 tunnur og landaði í Reykja-
vík. Hringnótabáturinn Heima-
skagi fékk 100 tumna kast á Sand
vikinni undan Reykjanesi.
— Oddur.
þeirra flata, sem þau eiga að
ramma inn. Hefur þetta vanda-
sarna verk tékizt mjög vel.
Þeir Sigurður Jóhannsson, for-
seti Fí, Jón Eyþórsson, fyrrv.
forseti, sem kom prentun kort-
anna í þetta horf, og Agúst
Böðvarsson, sem teiknaði þau
og hefur séð um verkið, skýrðu
fréttamönnum frá þessari nýj-
ung í gær.
3—4 þúsund kort á ári
Ferðafélagið hóf kortaútgáfu
árið 1943 og voru tvö fyrstu
upplögin prentuð í Bandaríkj-
unum, en síðan tók Geodedisk
Institut í Kaupmannahöfn verk-
ið að sér. Seljast hér 3000—4000
kort á ári. Voru kortin alltaf
prentuð í Höfn þangað til í
fyrra, að Jón Eyþórsson og
Ágúst Böðvarsson sömdu um
það við Geodedisk Institut að
fá filmurnar keyptar og síðan
við Lithoprent um prentunina.
Kortið er af stærstu gerð, sem
hægt er að prenta hér heima í
hraðpressu og luku forráðamenn
Ferðafélagsins lofsorði á lipurð
og nákvæmni Emils Vilhelms-
sonar prentara, sem prentaði
kortið. íslandskortið er komið í
bókaverzlanir, en Almenna
bókafélagið sér um sölu á því.
Það kostar kr. 56.65.
Færeyingar reiöir
vegna dómsins í máli Red Crusader
Einkaskeyti til Mbl. frá Khöfn,
11. apríl. —
í D AG, miðvikudag, svaraði
Poul Hansen, landvarnaráðherra
Dana, fyrirpurnum í danska
þinginu varðandi fiskveiðilögsög
una við Færeyjar.. Saigði róð-
herrann, að Danir hefðu ekki í
hyggju að breyta uirn í þeim efn-
um á næstunni.
Það var færeyski þingmaður-
inn og presturinn, Johan Nielsen,
sem lagði fram spumingar fyrir
róðherrann í tilefni af dómnum
sem kveðinn hefur ve.ið upp í
málinu Red Crusader — Niels
Ebbesen. Á grundvelli skýrslu
frá lögfræðingum þeim, sem
fjölluðu um málið, spurði Johan
Nielsen hverjar afleiðingar það
myndi hafa fyrir landhelgis-
gæzlu við Færeyjar ef varðskip
gætu ekki skotið föstum skotum
að togurum er ekki sinntu stöðv
unarmerki. — Varðskipið Niels
Ebbesen hafði skotið föstum skot
um á Red Crusader en það var
mjög gagnrýnt í skýrslu lög-
fræðinganna.
Ráðherrann sagði, að skýrsl-
an hefði verið lögð fyrir sak-
sóknara danska ríkisins til frek-
ari athugunar.
Johan Nielsen sagði í ræðu
sinni, að dómurinn í þessu máli
hefði valdið almennri óánægju í
Færeyjum. Viðureignin við Red
Crusader 29. maí 1961 hefði vak
ið óhemju athygli í Færeyjum.
Færeyingar hafa um langt ára-
bil verið bitrir yfir því að brezk
ir togarar gátu stundum legið
alveg uppi í landsteinum og veitt
án þess nokkuð yrði við gert, þvl
ekki var alltaf svo auðvelt að
komast í samband við varðskip-
in. Sagði Johan Nielsen ekki
megna að tjá með eigin orðum
tilfinningar Færeyinga, þegar
tal þeirra bærisit að framkomu
brezkra togara við landið.
Gamla bíó
fær „Tvær
konur“
í MIÐVIKUDAGSBLABINU
var frá því skýrt að italska
Ieikkonan Sophia Loren hefði
fengið Oscarverílauinm fyrir
leik sinn í kvikmyndinni
„Tvær konur“, sem Vittorio
DeSica stjórnaði, en sú mynd
þykir í heild mjög góð.
Nú höfum við fengið stað-
festar fregnir af þvi að þessi
mynd verður sýnd í Reykja-
vík á þessu ári. Hefur Gamla
bíó tryggt sér réttindi á henni
og á von á henni á árinu.
Skeyfi ITF tafðist
á leið til Cuxhaven
UMBOÐSMAÐUR íslenzku tog-
aranna í Cuxhaven sagði Mbl. í
gær í símtali, að ekki hefði þótt
neinum tíðindum sæta þar, er
Karlsefni kom með fisk. Hefðu
engin andmæli gegn löndun bor-
izt. Þjóðverja hefði vantað fisk
og íslenzkir togarar væru ekki
vanir að sýna útflutningsleyfi
er þeir kæmu. Togarinn væri
nú í slipp og ekki vitað hvort
hann héldi heim á laugardag
eða eftir helgi.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannasambandsins, talaði við
fulltrúa verkalýðssamtakanna í
Cuxhaven í gær. Hafði þeim
ekki borizt skeyti fra ITF fyrr
en í gærmorgun eftir að Karls-
efni hafði selt. Skeytið hafði
farið á sínum tíma frá London,
en verið sent gegnum höfuð-
stöðvar flutningaverkainanna-
samtakanna í Þýzkalandi í Stutt
gart og síðan - gegnum skrifstof-
una í Hamborg og tafizt á öðr-
um hvorum staðnum. ,
Karlsefni hefur fengið oliu og
kost til heimferðarinnar, en var
ekki búinn að fá nýju björgun-
arbátana í gær.
Þá sagði Jón, að sjómanna-
samtökin hér mundu ekkert að-
hafast í málinu fyrr en skjps-
menn kæmu heim.
200 erlendir skátar hafa
tilkynnt komu sína
UNDIRBÚNIN GUR að skáta-
mótinu á Leirunum á Þingvöll-
um í júlímánuði í sumar, í til-
efni af 50 ára afmæli skáta-
hreyfingarinnar, er nú í fullum
undirbúningi. — Það stendur
aðeins á ákveðnum tölum um
þátttakendur og að snjóinn leysi
þar innfrá, sagði Guðmundur
Ástráðsson við fréttamann Mbl.
Um 200 skátar hafa þegar til-
Moskvu, 12. apríl — (NTB) —
í DAG var ár liðið frá geimferð
Yuri Gagarins og var afmælið
haldið hátíðlegt í Moskvu. Þar
kóm m. a. Krúsjeff forsætisráð-
herra fram í fyrsta skipti eftir
að fregnir bárust um að hann
hefði sýkzt af inflúenzu.
kynnt ákveðið um komu sína.
Þeir eru frá Kanada, Banda-
rikjunum, írlandi, Englandi (um
80), Hollandi og Sviss. Vitað er
að á annað hundrað skátar vilja
koma frá Noregi, en það er erf-
iðleikum bundið, þar eð flugvél-
in, sem leigð hefur verið í sam-
vinnu við Lönd og leiðir, tekur
aðeins 86 mánns. Einnig er vit-
að að stórir hópar búa sig und-
ir að koma fra hinum Norður-
löndunum. Var í upphafi gert
ráð fyrir að 400—500 erlendir
skátar mundu koma.
Reiknað er með að um tvö
þúsund skátar, erlendir og inn-
lendir, taki þátt í mótinu og
verður þá mikil tjaidborg á
Leirunum.
Þannig leit fólksbíllinn út eftir áreksturinn við oliubíl skanunt frá Hafnará f Melasveit s.L
þriðjudag. Köstuðust báðir bilarnir út af veginum. Þó merkilegt megi virðast, slösuóust bíl-
stjórinn, Guðmundur Sveinsson, og tvær konur, sem voru farþegar i bílnum, aðeins lítilshátt-
ar. Olíubíllinn var farinn, þegar ljósmyndarinn kom á staðinn og tók þessa mynd af iólksbílnum -
á slysstað. _