Morgunblaðið - 18.05.1962, Page 13
Föstudagur 18. maí 1962
MORGVTSBLAÐIÐ
13
Er að smíða 93
Ingi Guðmonsaon, skipasmiðui á Akranesi.
sextugur í dag
I TILEFNI þess að kunnur
athafnamaður á Akranesi,
Ingi Guðmonsson, er sextug-
■ur í dag, átti fréttamaður
blaðsins við hann stutt við-
tal.
Ingi er fæddur að Kald-
rananesi í Strandasýslu 18.
maí 1902. Hann er sonur
Guðmons Guðnasonar og
konu hans Guðrúnar Kristj-
ánsdóttur. í Kaldrananesi
bjuggu J»au hjón til ársins
1905, en fluttust þá að Brú-
ará og bjuggu þar í eitt ár.
Síðan fluttust þau að Kol-
beinsvík og bjuggu þar sam-
fleytt í 22 ár. Þar elst Ingi
upp og er hjá foreldrum sín-
um til ársins 1927, að hann
flytur að Drangsnesi og
byggir sér nýbýlið Fiskines.
Þar býr Ingi þar til 1941,
en árið eftir fluttist hann
til Akraness og hefur búið
þar síðan.
Hin. síðari árin hefur Ingi ein
vörðungu stundað báta- og skipa
smíðar og byrjum við því á að
spyrja hann, hvar hann haifi
lært þá iðn.
— Eg lærði fyrst hjá Guð-
brandi Guðbrandssyni í Veiði-
leysu á Strönduim. Hann var nafn
kunnur dugnaðarmaður og sjálf-
menntaður með öllu. há vOru
margir dugmi'klir athafnamenn
á Ströndum og búið var á hverju
koti, en nú eru sem kunnugt er
margar jarðir þar nyðra komn-
ar í eyði. Guðbrandur var kúnst
ugur í háttum sínum og sér í
lagi um val viðar í báta þá, er
hann smiíðaði.
—★—
Faðir minn þótti harðsnúinn
ejósóknari. Eitt sinn bað hann
Guðbrand að byggja bát fyrir
eig og hafði faðir minn sjálfur
valið í hann viðinn, sagað nið-
ur borð, eins og vera átrti, og
notaði til þess hnéfilettu sem
við köllurn svo, en það er lítii
eög til langskurðar. Til þver-
eikurðar notuðum við svonefnda
bútasög, sem var öðruvísi tennt.
í*á voru einnig notaðar svokall-
aðar tvískeftur til að filetta við
og unnu þá tveir menn við sög-
ina.
Nú kemur Guðbrandur og byrj
er á verkinu. En þegar hann var
«ð heflia fyrstu fjölina, sem kö"
uð var stjómlborðsvinda, allt
byrjaði stjórnborðsmegin, öll
verk bafin sólarsinnis, blessað-
ur vertu, þá féklk harun flís í
hendina úr kvisti sem var í borð
inu. Allt var þá byggt eftir aug
anu, engar teikningar eða slíikt.
Þegar Guðbrandur fær í sig flis
ina, biður hann föður minn um
að fá að sjá bakið á kubbnum
eém flett hafði verið af, þegar
byrjað var að saga við niður.
Með því móti gat bann séð
hvernig kvisturinn var vaxinn í
viðnum. Væri kvisturinn vaxinn
upp á við til ljóssins, þá var allt
í lagi að nota viðinn. Væri hann
hinsvegar vaxinn niður til neðri
esnda trésins, var það talinn
manndrápsviður og aidrei notað
ur í báta. Guðbrandur sér að
evo háttar til með þennan kvist
og neitaði hann algjördega að
nota nokikuð af iþessum viði í bát
inn. Mátti því pabbi tafca ti'l og
efna niður á nýjan leik.
— Um nóttina eftir kom
draumamaður til Guðbrands og
eagði að hann hefði verið mikill
lánsmaður að nota ekki þennan
við, þvtí þetta hefði verð mann-
drápsviður. Bátinn smíðaði Guð-
brandur, þegar hann hafði feng-
ÍS í hann við eftir egin vali og
hefur þess bátur verið til fram
undir þennan dag.
—★—
— Eg horfði á Guðbrand með
lotningu, þegar hann var að
smiíða bátinn. Eg mun þá hafa
verið sjö ára gamall. Eg fór nú
að stauta við það sjáifur að
smíða smá'báta fyrir oklkur kratok
ana, fyrst vOru þetta eintrjáning
ar, sem éfe holaði að innan, en
síðan tók ég að byggja bát á
sama hátt og bátasmiðir gerðu.
Er ég smíðaði fyrsta bátinn, þá
var nákvæmnin ekki meiri en
það að ég varð að hafa einni
fjöl fleira í annarri síðunni til
þess að báturinn væri jafn borð
hár báðum megin.
— Eg var heldur latur að læra.
Vorið sem ég fermdist setti ég
í fyrsta skipti vél í bát. Þetta at
vikaðist þannig, að umferða-
kennari hafði komið og sett okk-
ur fyrir til lærdóms, en ég hafði
sinnt lestrinum næsta lítið. —
Mamma lofað þá að hún skyldi
gefa mér gamilan, ónýtan vekj-
ara ef ég lyki lestrinum fyrir til
skilinn tíma. Eg getok strax að
þessum kaupum og reif í mig það
sem ég átti að læra til þess að
fá vekjarann sem fyrst. Innmat-
inn úr vekjaranum notaði ég svó
til þess að búa til vól í einn af
lifilu bátunum mínum. Þegar
þessu var lokið hljóp ég niður
að polli niður við sjó og hugðist
setja bátinn fram. Eg setti vél-
ina af stað, en þá vandaðist nú
málið. Báturinn fór aftur á bak.
En þetta tókst mér að leysa með
því að breyta skrúfublöðunum,
sem voru úr blýi. Næst þegar ég
ýtti fram gekk allt eins og í
sögu. Þetta þótti mikið undra-
tæki, þessi litli vélbátur, og
krakkar komu lang.t að til þess
að skoða hann.
—★—
— Þú sagðir Ingi, að faðir
þinn Guðmon hefði verið mik-
ill sjósóknari. Er þér ekki minn
isstæð einhver sjóferð með hön
um?
— Jú, mi'ki'l ósköp. Og þá yar
ég hræddur. Eg hélt við mynd-
um báðir farast. Það var þegar
við fórum í verzlunarferð norð-
ur á Reykjarfjörð. Eg mun hafa
verið 19 eða 20 ára. Við sóttum
verzlun til Carls Jensens og
Jaköbs Thorarensens. Það var
blíðuveður þegar við rerum nOrð
ur en þangað er um 2% tirna
róður í logni norður að Kúvíkum,
þar sem verzlunin var. En á með
an við stóðum við í verzlunar-
erindum brast á með norðaust-
an hvassviðri. Pabbi vildi for-
takslaust halda hekn, þótt sjór
væri orðinn mikilil og hvasst.
Við lögðum frá, undum upp segl
og var nú beitt út á opið haf,
en síðan hléypt undan suður á
bóginn. Mitt hlutverk var að
passa vaðburðinn, sem kallað
var. Það var kaðall, sem lá nið-
ur hlémegin með seglinu og
var notáður til þess að hleypa
úr því vindinum. Með því að
taka í vaðburðinn, kom brot í
seglið og vindurinn hljóp úr því.
Faðir minn sat aftur í skut við
stýrið og hafði aðra höndina á
stýrissveifinni en hina á skaut
inu á seglinu. Stýrði hann og gaf
eftir á skautinu, eftir því sem
honum þótti þurfa. Mér gaf hann
strangar fyrirskipanir um hve-
nær ég ætti að taka í vaðburð-
inn. Eg var svo hræddur að ég
þorði ekki annað en gera ná-
kvæmlega eins og hann lagði
■ fyrir mig. öldurnar voru svo
háar, að ég sá þær ofan við segil
ið bakborðsmegin. En pabbi var
orðlagður siglari og undir ör-
íiggri stjórn hans náðum við
heilu og höldnu heim, í þetta
sinn sem svo oiörg önnur, því
aldrei hletoktist honvm. á alla
sína formannstíð.
. bátinn
— Er nokkuð fleira, sem þér
er sérstaklega minnisstætt frá
þvi þú varst með föður þínum
til sjós?
— Já, það var þcgar við feng-
um stóru sprökuna. Mikið djöf-
U'll var ég þá hræddur. Mér
blátt áfram féllust hendur, þeg
ar ég sá ferlíkið koma upp að
borðstokknum. Pabbi fék'k sprök
una (lúðuna) á línu. Hann var
hræddur um að hún yrði svo
spretthörð, þegar hún kæmi upp
undir yfirborðið, að bann skip-
aði mér að standa við borðstokk
inn og vera fljótur að koma
ífærunni í hana. En þegar sprak
an kom upp undir borðstokkinn,
varð ég svo hræddur að mér féll
ust algjörlega hendur. Faðir
minn hafði nærtæka hneif og
handfæri og gat brugðið hneif-
inni milli kjálfcanna á skepn-
unni, en ég aðeins klóraði lítil
lega á kinnina með ífærunni.
Það mátti heldur ekki seinna
vera. Mikið andskoti var pabbi
snöggur þá. Sprakan tók nú að
djöflast, en pabbi gaf eftir á fær
inu eftir því sem þurfti og loks
dasaðist skepnan og var þá eng
inn vandi að innbyrða hana.
— En pabba var fleira til
lista lagt. Hann var til dæmis
ágætur söngmaður. Þær sögðu
kerlingarnar þarna fyrir vestan
Ingi Guðmonsson.
að það hefðu alveg verið sæt
hljóðin í honum Guðmion. Hann
var um langt skeið forsöngvari
í Árneskirkju.
— O svo tókst þú sjálfur til
við sjómennSkuna, Ingvi?
— Já, ég fór í fyrsta skipti að
heiman sautj'án ára gamall og
þá vestur í Hnífsdal. Eg var svo
heppinn að lenda strax hjá Hálf
dáni í Búð, sem var stórútgerð-
•armaður þar, og var ég þar sann
arlega heppinn. Eg hafði 35 kr.
á mánuði, var landmaður, og
þótti það gott kaup fyrir ungl
inga eins og mig. Frá HnífsdaJ
á ég ágætar minningar. Þar leið
mér vel og líkaði vel við fólk-
ið.
— Það láta margir af því Ingi,
að fallegt sé á Ströndum?
— Já, blessaður vertu, það er
meira en fallegt. Eg á margar
góðar minningar þaðan. Hugsaðu
þér fegurðina, þegar sóliri flýt
ur við hafið. Hér syðra sér mað
ur ekki fjöl'l, þessar hundaþúf-
ur, sem menn eru að dáðst að
hérna.
— Lærðirðu ekki meira tiil
smíða en hjá Guðbrandi?
— Árið 1926 var ég hér í
Reykjavík hjá Einari Kristjáns-
syni, trésmíðameistara, og þar
lærði ég að fara með trésmíða-
vélar. Einar sá um yfirbyggingu
á Fordbílum, sem þá voru flutt
ir inn og fóru víða um land. Eg
man eftir að þennan vetur byggð
um við yfir 80 Fordbíla. Þetta
var sannkölluð fjöldaframleiðsla
og mig minnir að húsið kostaði
500 krónur.
— Þú sagðist hafa flutt að
Drangsnesi 1927 og byggt þar ný
býli?
— Já, og 1928 eða árið eftir,
þá giftist ég Guðlaugu Guðlaugs
dóttur frá Geiradal í Barðastrand
Einn af bátum Inga, sem sel dur var til Raufarhafnar.
arsýslu en ég hafði einmitt
kynnzt henni á ferð minni suð-
ur. Við höfum eignazt þrjá syni
Og eina stúlku, sem á lífi eru.
— Og gerðust synirnir ekki
skipasmiðir?
— Nei, það er nú það. Allir
urðu þeir samt iðnaðarmenn.
Einn er flugvélavirki og divelst
nú í Glasgow, ég ætla einmitt
að heimsækja hann þangað í
sumar, annar er matreiðslumað
ur, lærður hér á kokkaskólanum
í Reykjavík og síðan var hann
þrjú ár í Danmörku við fram-
haldsnám. Sá þriðji er svo vél-
smiður heima á Akranesi, en
telpan er nú bara fjórtán ára
énnþá.
— Kannski eignastu þá tengda
son, sem verður skipasmiðuir
eins og þú?
Ingi hlær dátt að þessari at-
hugasemid og segir:
— Já, kannski það verði svo.
— Og þú flyzt til Akraness
1942?
— Já, fyrir norðan bafði ég
stundað svona það sem til féll,
allskonar smíðar, bæði á bátum
og húsum, auk sjósóknar, sem
var raunar aðalatvinnan. Þetta
var basl á þessum árum, bless-
aður vertu. Stundum átti maður
ekki aura undir bréf. En ég
hafði alltaf vinnu, en þá fétok
maður oft eklkert borgað fyrr
en seint og síðar meir og stund
um aldrei. En um þetta var ekk-
ert að fást. Þetta var vani að
vinna svona hver hjá öðrum.
-— Og svo hófstu skipasmíðina
á Akranesi?
— Já, ég hef eingöngu stundað
skipasmíði þar. En ég varð að
taka próf 1947, þá 45 ára gamall.
Annað þótti ekki sæmandi vegna
iðnílöggjafarinnar. Eg varð að
teiikna undirstöðu á bát og
leggja niður kjöl, kjalsíðu og
stefni. Þetta gek-k allt saman
vel. Eg þurfti að vísu að gera
tvær tilraunir, en ég fékk mitt
meistarabréf. Síðan ég korn ti'l
Akraness hef ég lökið við að
smíða 92 báta og var sá sein-
asti afhentur hingað til Reykja-
víkur núna á sunnudaginn var.
93. báturinn er í smíðum og þarf
ég að flýta mér að ljúfca honum,
því ég ætla að fara að byggja
mér nýtt verkstæði. Það á að
ske í sumar. Og næsta bát hef
ég svo hugsað mér að byggja
þar, en einar 3 eða 4 pantanir
liggja nú fyrir.
— Af hvaða stœrð hafa þess-
ir bátar verið?
— Þeir hafa verið þetta frá
tveimur tonnum upp í tólf tonn,
allur fjöldinn þetta svona 5—7
tonn.
— Og þú segist eingöngu hafa
stundað skipasmíði?
— Já, ég tel það ekki, ég
setti upp þvottahús í félagi við
annan, síðan fékk ég mér stór
viðarsög og sagaði mikið af
rekaviði á stríðsárunum. Það
var ágætt starf og með því kom
ég fjárhagslega undir mig- fót-
unum. Eg þurfti þá ekkert að
afmarka mér vinnutímann og
vinnudagurinn varð oft langur,
en ég hafði gott upp úr þessu.
— Og þú hefur orðið að skipta
við marga útgerðarmennina um
ævina, hefur það ekki gengið
sæmilega?
— Jú, blessaður vertu. Það
hefur allt saman farið vel og ég
minnist ekki að hafa tapað á
nOklkrum manni, s‘«n viís mig
hefur skipt.
Sumum hefur verið einkar gam
an að gera greiða, það hafa ver
ið harðduglegir menn Og maður
hefur reynt að draga í lengstu
lög að krefja þá um greiðslu,
ef þeir hafa sýnt dugnað og
vilja til að bjarga sér. Aðrir hafa
náttúrlega eins og gengur verið
hálfgerðir drullusokkar.
— En skipin þín, hafa þau
reynzt happasæl?
— Já, það held ég megi segja.
Eg held að engum af þeim bát-
um, sem ég hef smíðað hafi
hlekkzt á, utan að einn mun
hafa brotnað við landtöku fyrir
Austurlandi, en slys hafa etoki
orðið á mönnurn.
— Hefur þú eittbvað sérstakt
lag á bátunum þínum eða hef-
urðu eitthvað á þeim, sem frá-
brugðið er á venjulegum bátum?
— Já, ég hef bátana sérstak-
lega þunna að framan það sem
niðri í sjónum er, og eins hef
ég þá ákaflega þunna aftur til
hælsins, þannig að skrúfan nái
sem mstum sjó. Síðan snar-
beygi ég þá út, eins Og þú getur
séð hérna á myndum af henni
Guðrúnu, sem ég byggði og
seldi til Raufarhafnar. Þá er
stýri á bátum mínurn öðruvíBi
en gengur og gerist. Hugmynd-
ina fétok ék frá Kanada. Stýrið
er tvöfalt og sjórinn leikur í
gegnum það, en það er stýri-
stamminn sjálfur, sem ákveður
hvað bilið er breitt mi'lli plat-
anna. Þetta stýri þykir gera
mun betur að heldur en stýri
sem gerð eru með gamla iaginu.
— Og síðasta spurningin, Ingi:
Hvað ætlarðu að gera á afmæiis
daginn þinn?
— Eg veit það ekki ennþá, en
ég ætla ekki að vera heima.
vig.
Listi
Sjálfstæðismanna
á Stokkseyri
Helgi fvarsson, bóndi
Steingrímur Jónsson, múrari
Jósep Zóphóníasson, skipstj.
Ásgeir Eiríksson, skrifstofum.
Bjarnþór Bjarnason, bóndi
Víglundur Guðmundsson, tré-
smiður
Sigurjón Jónsson, trésmiður
Tómas Karlsson, sjómaður
Bjarni Þorgeirsson, verkam.
Þórarinn Guðmundsson, bóndí
Guðmann Geirsson, verkam.
Viktoría Ketilsdóttir, húsfrú
Símon Sigmundsson, bóndi
Bjarni Júníusson, bóndi
Til sýslunefndar:
Ásgeir Eiríksson, skrifstofum.
og til vara
Þorgeir Bjarnason, bóndi.
Lestar sement
AKRANESI, 16. maí: — Síldar-
flutningaskipið Vimi kom hingað
austan frá Eskifirði kl. 3:30 í
dag. — Þríx línubátar, allir frá
Heimskaga h.f. eru á sjó í dag,
flutningaskipið Laxá lestar í dag
950 tonn af sementi Og flytur tiJ
Skotlands. — Haraldur og Stoím
ir fengu í gærtovöldi um 300
tunnur af síld, en toomu etoki
inn. " — Oddur.