Morgunblaðið - 18.05.1962, Blaðsíða 15
Föstudagur 18. maí 1962
MORGVNBL AÐl'ó i
15
**>
t
Sjöfug í dag:
Ása Grímsson, ísafirði
F R Ú Ása Grímsson á fsafirði á
í dag sjötugsafmæli. Hún er
fædd á Þingeyri 18. maí árið
1892, dóttir Steimmnar og Finns
Thordarson bakarameistara. Ólst
hún upp á ísafirði og giftist 29.
sept. 1914 Jóni Grímssyni, mál-
flutningsmanni. Hafa þau átt
sjö mannvænleg börn, tvær
dætur, Steinunni, sem gift er í
Bandaríkjunum og Ingu, sem
gift er í Hnífsdal, og fimm
syni, Hjört loftskeytamann í
Reykjavík, Finn skrifstofumann
í Bolungarvík, Árna skipstjóra
á ísafirði, Grím loftskeytamann
í Reykjavík og Ragnar Áka
skipstjóra á ísafirði.
I 1 Þau frú Ása og Jón Gríms-
son áttu heimili á Suðureyri
við Súgandafjörð fram til ársins
1922, þar sem Jón var verzlun-
arstjóri, en þaðan fluttu þau til
ísafjarðar og hafa átt þarheima
síðan, lengstum í Aðalstræti 20.
Þar hafa þau átt hlýtt og vist-
legt heimili.
’ Frú Ása er eins og hún á kyn
til ágætlega greind kona. Hún
er skemmtileg og hrein og bein
í allri framkomu. Yfir heimili
hennar og manns hennar er allt
af hressandi blær. Þangað er
gaman að koma og dveljast við
ánægjulegar viðræður við þetta
greinda og góða fólk.
Ég minnist heimilis frú Ásu
og fjölskyldu hennar með þakk
læti frá þeim árum, er ég átti
heima á ísafirði. Þar var ævin-
lega vinum að mæta, gestrisni
og alúð. Hinir mörgu vinir og
kunningjar frú Ásu Grímsson
og heimilis hennar flytja henni
innilegar hamingjuóskir með sjö
tugsafmælið og árna henni gæfu
og farsældar á hinum efri ár-
um. S. Bj.
— Flokksskóli
Framhald af bls. 24.
hinir austur-þýzku ,fyrirgreiðslu
menn“ þeirra misstu alla stjórn
á liðinu þegar á reyndi, svo að
allan tímann logaði þar allt
drykkjuskap og annarri óreglu.
Ferðalagið „gæfi tilefni til
margra athugasemda“
Þó virðist fyrst hafa keyrt um
þverbak í ferðalagi því, sem
Austur-Þjóðverjar buðu „úrvals
liðinu“ í að „flokksskólanum“
loknum, og það svo, að kommún-
istastúdentarnir í Austur-Þýzka-
landi veigra sér við að lýsa því,
en segja „Ferðalag það, sem far-
ið var að námskeiðinu loknu
gæfi tilefni til margra athuga-
semda, en ekki verður það tekið
fyrir hér“. Eftir lýsingu SÍA-
deildarinnar virðist þessi tilraun
kommúnista til að halda „flokks-
skóla“ sinn austan járnitjalds
hafa farið út um þúfur, enda
mun eftir það hafa þótt vænlegra
til árangurs að láta heimamenn
hafa þessa ,,fræðslustarfsemi“
með höndum.
Pólitískt vanþroska
Skýrsla sú, sem hér um ræðir,
Iþer yfirskriftina: „Nokkrar at-
hugasemdir frá DDR-deild SÍA“,
og er í upphafi 'hennar lýst undir
Ibúningi og vali þátttakenda á
þann veg, að svo virðist sem
„skólinn" hafi farið úr skorðum
þegar í upphafi. Þar segir m. a.:
„Hitt fór injog miður, að á síð-
ustu stundu var tekið fólk (úr
Reykjavík og nágrenni), sem
næsta lítið erindi átti á námskeið
sem þetta. Afleiðingin varð sú,
að mismunurinn á þekkingar-
stigi svó Og pólitískum þroska
þátttakenda reyndist alltof mik-
ill. Heildartala þátttakenda varð
jafnframt of há fyrir námskeið
með þessu sniði. Þýzkum félög-
um og fyrirgreiðslumönnum
hafði áður verið gefin > upp há-
markstalan 30, en endanlegur
fjöldi varð 67. Köm það fyrst upp
úr dúrnum á síðustu stundu »g
kostaði mikið stímabrak og
cþanft ergelsi fyrir báða aðila“.
„Félagl Schwander"
„heldur slappur"
: Síðan er hverjum uppfræðara
gefin einkunn fyrir frammistöð-
una á ,skólanum“. Flestir fiá þá
einkunn, að þeir hafi „komizt
skammlaust frá“ verkefnum sín-
um, aðrir fá þann vitnisburð, að
flutningur þeirra hafi verið
,grautarlegur“ eða „litlaus“, og
aðeins eitt erindi varð ,skólan-
um“ „lyftistöng", erindi Einars
Olgeirssonar, eins og myndin,
sem fylgir þessari grein ber svo
ljóslega með sér! Og sá, sem af
hálfu hernámsliðs Rússa hafði
verið skipaður til þess að hafa
yfirumsjón með námskeiðinu „fé
lagi Schwander“, fær þann
dóm, að hann hafi reynzt „held-
ur slappur, þótt ekki vantaði
hann viljann"!
„Töluvert bar
á drykkjuskap“
Stórbrotnust er þó lýsingin á
„bæjarbrag" sem minnzt var á
hér í upphafi, en sú lýsing hljóð-
ar svo í neild sinni:
„Bæjarbragur. • Hann var
aldrei sem skyldi og fór versn-
andi eftir því sem á leið. Skipan
félaga á herbergi var algjörlega
af handahófi, og var það misráð-
ið. Töluvert bar á drykkjuskap,
og veittu þar fordæmi ýmsir
þeir, er sízt skyldi, m. a. félagar,
er sætu áttu í sfcólastjórn. Hlutur
SÍA-félaga í heild hefði mátt
vera betri. Fylgdi næturgöltur
og ókyrrð í svefnstöðum, jafnvel
allt fram til rismála. Afleiðingin
varð eðlilega sú, að margir
mættu miður vel fyrirkallaðir í
tima að morgni. Qf mörg dæmi
voru þess, að félagar skrópuðu,
jafnvel allt til hádegis. Óstund-
vísi í tima keyrði og oft úr hófi
fram. Ástæðurnar fyrir þessum
leiðu fýrirbærum voru margvís-
legar. Margt verður að skrifa al-
gjörlega á reikning skólastjórn-
arinnar, svo sem vikið er að hér
á eftir. Samstöðu og samábyrgð
tókst aldrei að skapa innan hóps-
ins, og er slíkt þó skilyrði fyrir
góðum árangri. Námskeiðið var
haldið þegar eftir Eystrasalts-
viku, þar sem gleði og skemmt-
anir sátu í fyrirrúmi. Varð sú
stemming eðlilega ekki kveðin
niður í einu vetfangi, og hefði
þurft að brýna mun betur fyrir
félögum reglusemi og aga, þá á
námskeiðið kom. Ekki bætti
staðsetning námskeiðsins í út-
jaðri Rostockborgar með greiðu
sambandi við miðbæinn úr skák.
Aðstaðan hefði verið allt önnur,
ef tekizt hefði að fá rólegri stað,
fjarri þéttbýli og ölduifcúsum“.
Hafnfirðingar vilja að skyldu-
námi Ijúki í einum og sama skölai
í HAFNARFIRÐI hafa að und
anförnu verið hörð átök milli
Sjálfstæðismanna annarsveg-
ar og kommúnista og Alþýðu-
flokksmanna hinsvegar um
skólamálin. Sjálfstæðismenn
hafa lagt til, að sú stefna sé
tekin upp, sem hefur gefið
góða raun á Norðurlönidum og
hefur verið að þróast í
Reykjavík, en það er að
skyldunáminu ljúki í einum
og sama skóla en sé eklki slitið
í sundur á viðkvæmasta ald-
ursstigi unglinganna eins og
nú er gert.
í samræmi við þetta lögðu
' þeir skólastjórarnir Haukur
k Helgason og Þorgeir Ibsen
fram tilögu í fræðsluráði um
að liefja nú á þessu sumri
áframhaldandi byggingarfram
kfvæmdir við öldutúnsskól-
amn, 8 almennar kennslu-
stofur. Kommúnistar og Al-
þýðuflokksmenn stóðu fast
saman gegn því, en sam-
þykktu hinsvegar að hefja
byggingu á 13 millj. króna við
bótardkóla við Flensborg á
Hamrinum.
í þeim skóla verður hver
kennslustofa um 200 þús. krón
um dýrari en í öldutúnsskól-
anum.
Afleiðingár þessa verða:
1. Skyldunáminu veúður
skipt áfram um ófyrirsjáan-
legan tíma eins og nú er.
2. Miklu meiri þrengsli
verða i skólunum næsta ár
og þrísetning verður óum-
flýjanleg enn um mörg ár.
Yngstu börnin verða að
halda áfram að mæta kl. 8 á
morgnana og þau verða að
vera í skóla um matartímann.
4. Kostnaður við skólabygg
ingar verður miklu meiri en
ella.
5. Úthverfin verða enn um
ófyrirsjáanlegan tíma að bíða
eftir skólahúsnæði.
Eina leiðin til bjargar þess-
um málum út úr algeru öng-
þveiti er hreinai meirihluti
Sjálfstæðismanna.
- Sjómannskona
Frh. af bls. 10.
Reykjavíkuifcæjar síðan 1954.
Aðspurð um hið síðastnefnda,
vill hún l«íti ðsegja. „Störfin
eru unnin fyrir luktum dyr-
um, segir hún. Fundir eru
haldnir hálfs mánaðarlega og
þar er reynt að greiða fyrir
fólki, sem til nefndarinnar
leitar, eftir því sem tök eru á“.
Gróa hefur fylgst með fram
gangi Reykjavíkur í nærri 7
áratugi. „Þróunin er svo ó-
trúleg að enginn maður trú-
ir því, segir Gróa. Eg man
vel eftir fátæktinni og alls-
leysinu skömmu eftir aldamót
in. Þá fórum við 10 ára gaml-
ir krakkarnir inn á Kirkju-
sand kl. 6 á morgnana til að
vita hvort við gætum ekki
fengið að þurrka fisfc þann
daginn. En svo fór þettá að
smálagast, með tilkomu skútn
anna óx vinnan, *svo komu
togararnir og þá fór ástandið
að batna fyrir alvöru. Smám
saman hurfu erfiðleikar hins
daglega lífs. Aldrei gleymi
ég því, þegar vatnið kom renn
andi úr krananum í fyrsta
sinn. Svo var grafið fyrir gas-
inu, og loks kom rafmagn og
heitt vatn í húsin. Eg hefi
vissulegar séð Reykjavík vaxa
upp, en alltaf hefur verið þar
sama ágæta fól'kið. og er enn,
fólk sem alltaf er fúst til að
hjálpa, þegar eittihvað er að.
Framfarirnar hafa verið
örar og verða að halda áfram
í jafn ríkum mæli. Þessvegna
verður Sjálfstæðisflofckurinn
að sigra í þessum kosningum.
Stærstu framfarasporin hafa
verið stigin undir hans for-
ystu og framtíðaráætlanir
hans verða að komast í fram-
kvæmd. Þær má ekkí rífa nið-
ur. — E. Fá.
17. maí í
Reykjavík
NORÐMENN í Reykjavík minní
ust þjóðhátíðardags sins 17. maí
með ýmsum hætti. Um morg-
uninn var allfjölmenn athöfn
við minnismerki fallinna Norð-
manna í Fossvogskirkjugarði.
Þar lagði sendiherra Norð-
manna, Bjarne Börde, blóm-
sveig frá samtökunum. Þá
gengu norsk börn, búsett í
Reykjavík, í skrúðgöngu til
heimilis sendiherra, þar sem
þau sátu siðan gestaboð sendi-
herrahjónanna. Kl. 5 var mót-
taka hjá sendilherra og um kvöld
ið fagnaður í Þjóðleikihússkjall-
aranum.
27 ný bifreiða
stæði
Á FUNDI umferðarnefndar
Reykjavíkur 4. maí sl. var lagð-
ur fram uppdráttur að 27 bif-
reiðastæðum á lóðunum nr. 15
og 17 við Lindargötu.
Hópferðabilar
af öllum stærðum — til leigu.
— Sími 11145 —
PALL s. pAlsson
Hæstaréttarlögmaður
Bergstaðastræti 14.
Sími 24-200.
EGGERT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
bæstaréítarlögmen .
Þórsliamri. — Sími 11171
Gamlir og nýir CAIVIPELL
viðskiptavinir á íslandi
Með góðu samkomulagi við Stefán A. Pálsson,
hefir hann hætt störíum sem umboðsmaður
vor á íslandi.
Hinn nýi umboðsmaður vor, hr. Jón Sæmundsson, mun héðan í frá verða tengi-
liðurinn milli vor og yðar.
Með langa reynziu að baki, fullkomnustu vélar og fyrsta flokks fagmenn, erum
vér i aðstöðu til að veita það bezta í framleiðslu nælon-snurpinóta — með og
án hnúta — og þorskanetja, á mjög sanngjörnu verði.
Nú, sern fyrr, munu net vor reynast bæði sterk og veiðin.
(AMÍMll ANDIMÍNHNI®
Umboðsm. Jón Sæmundsson
Lyngholti, Garðahreppi.
Sími; 50866.
V