Morgunblaðið - 20.05.1962, Síða 14
14
MOJtGVMJLAÐIÐ
Sunmidagur 20. maí 1962
— Reykjavíkurbréf
Framhald af bls. 13.
únista við vitneskju almennings
um fyrirætlanir þeirra. Á mesta
blómaskeiði, sem íslenzka þjóð-
in hefur lifað, þegar velmegun
hennar er meiri og sjálfstæði
hennar tryggara en nokkru
sinni fyrr, þá er sagt, að ástand
ið sé verra en þegar drepsóttir
og eld^'os, hafís og hungursneyð
höfðu nærri komið þjóðinni fyr-
ir ka tarnef! Æsingur þeirra
manna, sem slíkt láta út úr
sér, s. nir að þeir eru örvita.
Hi reyndari forystumenn
komn._nista finna, að í bili eru
önnur viðbrögð skynsamlegri.
Ekki er fjarri til getið, að meiri
hófsemi þeirra í kaupgjaldsmál-
um nú en áður, eigi rætur sín-
ar að rekja til þess að þeir
finna, að þeim ríður á að slitna
ekki úr sambandi við þann
hluta verkalýðsins, sem enn hef
ur treyst þeim. Þess vegna þora
þeir ekki að tefla á tæpasta
vað.
Bjargar Framsókn
kommúnistum?
Sú staðreynd, að gögnin hafa
verið látin til birtingar, sýnir
einnig ,að í röðum kommúnista
eru til menn, sem óar við þeim
villigötum ,er þeir hafa verið
teymdir á. Kommúnistar eru nú
hræddir og helzta von þeirra er
sú að Framsókn láti ginnast til
„Þjóðfylkingar" með þeim. —
Horfurnar á slíkri samfylkingu
virtust til skamms tíma vera
Þakka af alíhug öllum þeim, sem á margvíslegan hátt
glöddu mig á 80 ára afmælisdaginn minn 12. maí s.L
Eiríkur Eiríksson, Grenimel 4.
Eiginmaður minn
JÓN GUÐMUNDSSON
yfirlögregluþjónn í Hafnarfirði
lézt að morgm laugardagsins 19. maí.
Steinunn Hafstað
HALLDÓRGUNNLAUGSSON
kaupmaður, Hveragerði,
andaðist í sjúkralhúsinu Selfossi 18. þ.m. — Jarðarförin
auglýst síðar.
Eiginkona og böm
Móðir mín
HELGA JÓNSDÓTTHt
Ásvallagötu 56,
andaðist 11. þ.m. Jarðarförin hefir farið fram. Þakka auð-
sýnda samúð.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Kristín Hannesdóttir.
Bróðir minn
INGI BJÖRGVIN SVEINSSON
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 22.
maí kl. 10,30. — AtJhöininni verður útvarpað.
Fyrir hönd aðstandenda.
Þorvaldur Sveinsson
Útför eiginmanns og föður okkar
VICTOR LOUIS STRÖM
er lézt að heimili sínu Laugarnestanga 65, sunnudaginn 13.
þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. þ.m. kl.
1,30.
Björg Jónsdóttir og börn
Innilegt þakklæti til allra þeirra er sýndu mér samúð
við andlát móður minnar
KRISTÍNAR KRISTJÁNSSON
Sérstaklega vil ég þakka Sigurði Þórðarsyni og frú.
Ósk Kristjánsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda saimúð við andlót og
jarðarför
GUÐLAUGAR ÁGÚSTU LÚÐVÍKSDÓTTUR
Born tengdabörn og barnabörn.
Af allhug þakka ég öilum þeim fjölmörgu, er sýndu mér
og börnum mínutn hlýhug og samúð, í orði og verki vegna
fráfalls eiginmanns roíns
JÓNS H. JÖRUNDSSONAR
skipstjóra
er fórst með v/b Stuðlaibergi hinn 17. fébr. s.l.
Sá vinarhugur sem mér hefur allstaðar mætt verður
aldrei metinn sem vert væri. Þökkum sem í huga mánum
býr verður ekki með orðum tjáð. Megi sá Guð sem allt
sér og allt skilur endurgjalda ykkur með eilífri blessun
sinnL.
Ragnheiður Guðmundsdóttir.
vænlegar. Hinn 1. maí stefndu
forystumenn Framsóknar liði
sínu til fundar með kommún-
istum. Mánuðum saman vék
Tíminn naumast óvinsamlegu
orði að kommúnistum og athæfi
þeirra. Hann hefur amast við
birtingu leyniskýrslnanna og
reynt að létta kommúnistum
áföllin eftir föngum. Vinstri
öflin eru augsjáanlega alls ráð-
andi innan Framsóknar nú eins
og undanfarin ár. En nú virðist
jafnvel hik komið á SfS-herr-
ana. Framsókn stendur augljós-
lega á tímamótum. Ætlar hún
til frambúðar að „þjóðfylkja"
með kommúnistum eða hneygj-
ast til þjóðhollra starfshátta? f
Framsóknarflokknum eru áreið
anlega margir, sem síðari kost-
inn velja. Ef þeir vilja að
mark sé á sér tekið, þurfa þeir
að taka fast í taumana og veita
flokksforystunni alvarlega á-
minningu.
25 verzlunardeildir
— SPARID SPORIN —
Fjölbreytl úrval
Giuggatjaldaefni
Dúkar og handklæði
Gluggatjöld
Kjörgarði
Ath.
I nngangur og bílastæði
H verf isgötumegin.
GÍGI telpukápan
er klæðilegasta telpukápan sem völ er á
bæði hvað snertir efni og sniðið sem er
sérstaklega þokkafullt og klæðir telpu-
vöxtinn. Etfnið er gott tvíofið þýzkt ullar-
efni sem þolir hina oft tillitslitlu meðferð
sem börnum hættir til að viðhaía með
fötin sin í hita leiks og starfs.
GÍGI KLÆÐIK TELPIJMA
Verzl. Sif Laugavegi — Verzl. Eros Hafnarstræti — Verzl Sóley Laugavegi —
Verzl. Fons Keflavík — Verzl. Anna Gunnlaugsson Vestmannaeyjum — Sokkabúðin
Laugavegi. Heildsölubirgðir Ylur h.f. sími 13591.
Orðsending frá brautryðjendum álaveiði og útflutn-
ings á ál í stórum stíl á íslandi um áframhaldandi
ALAVEIÐI
Þar sem okkur hefur tekizt að semja við stærstu álareykinga-
verksmiðju Evrópu um sölu á ótakmörkuðu magnj af frystum
ál á mjög hagstæðu verði kaupum við nú, sem áður, hvaða
magn sem er af lifandi eða frystum ái á hæsta verði.
Seljum gildrur og annað tilheyrandi.
Jón Loftsson
Hringbraut 121 — 10600.