Morgunblaðið - 20.05.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.05.1962, Blaðsíða 20
20 MORGVISBL AÐIÐ Sunnudagur 20. maí 1962 GEORGE ALBERT CLAY: INA Saga samvizkulausrar konu ------- 60 ------ hann hafa fengið skipun um að senda hann til Japan og það fylg ir sögunni, að honum hafi verið skipað að senda hann þangað í einu lagi! Hann hló. Hvenær senda þeir hann?- spurði Gina lágt. Undireins og þeir geta, býst ég við, sagði Ishii. En hann verður að fara héðan til Leyte, til flug- vallarins við Tacloben og þar er' það, sem þeir komast í vandræð- in. Hvernig það? J»ú hefur ekki verið í borginni nýlega, og þessvegna skilurðu þetta ekki. Það er skemmst frá IMýtt Model því að segja, að þessi maður er orðinn einskonar hálfguð. Fólkið hnappast kringum fangelsið, dag og nótt. Það er hægt að heyra vælið í því langar leiðir. Þetta er nú bara borgarskrill en alls ekki skæruliðar svo að það er ekkert hægt að gera þeim. Aðmírállinn reyndi einu sinni að taka hópinn fastan, en þá var bara annar hópur kominn í stað- inn. Þeim verður ekki stjakað burt. Ég vissi ekki, að hann væri svona vinsæll. Gina var hreyk- inn af Tim og vildi frétta meira af honum. IMýtt 330 Hann hefði nú kannske ekki orðið það ef venjulega hefði stað ið á, en fólkið var svo lengi búið að bíða eftir einhverjum for- ingja sem það gæti tilbeðið eins og guð, og þá kom hann, einmitt á réttum tíma. Það er sagt, að fimm tilraunir hafi verið gerðar til að brjótast inn í fangelsið Naramashita hamast eins og naut í flagi — og reyndar er hann ekki annað, bætti Ishii við og hló. Hann er þegar bezt lætur ekkert prúðmenni, heldur ein- mitt manntegund, sem öllum er illa við og kemur sér ekki einu sinni vel á hærri stöðum. Hvernig fara þeir að þessu? Hverjir? Hvernig fara þeir að því að koma honum til Leyte? Það verður nú ekki svo erfitt, sagði Ishii hróðugur yfir snið- ugheitum kynstofns síns. Skríll- inn bíður eftir einhverju ofbeldi og meðan hann bíður og allt er tiltölulega kyrrt, verður honum skotið út í fiskibát, svo lítið ber á. Og þá finna þeir einn góðan veðurdag, að foringinn þeirra er kominn vel á leið til Taeloben og Tokyo. Sannast að segja var það einmitt þessvegna sem ég kom hingað í kvöld — ég kom til að kveðja. Þú ert þó ekki að fara, Ishii. Gina vildi ekki, að hann færi. Hann hafði verið góður vinur hennar og hún þjáðist af ein- manaleik. Jú, ég er að fara til Japan, en það má ekki vitnast, enda veit maður ekki slíkt nema með mjög litlum fyrirvara. Eftir að Ishii var farinn gekk Gina tímunum saman fram og aftur í garðinum. Hún vissi vel, að hún réð yfir dýrmætum upp- lýsingum, sem skæruliðarnir gátu haft gagn af, en þó var það ekki nægilegt, nema tímasetning fylgdi. Hann hafði sagt, að hann yrði Samferða skólábróður sínum frá Yale og eftir mikil heilabrot komst hún að þeirri niðurstöðu, að sá gæti varla annar verið en Teki majór. En var það vert fyr- ir hana, að leggja sig í þessa hættu? Var henni ekki ráðlegra að reyna að varðveita þá að- stöðu, sem hún nú hafði og leggja ekki neitt í hættu? Gleyma Tim — en hvernig? Hún svaf betur um nóttina en hún hafðj lengi gert, og daginn eftir bauð hún Teki majór til kvöldverðar, honum til mestu furðu. Kannske mundi hann, að hún hafði einu sinni áður bitið hann af sér, kannske fannst hon- um hann hafa lækkað að virðingu nú, þegar hún var orðin fín frú aftur, kannske hafði hann hana grunaða. Hann var hlédrægur, en kurteis og formlegur, vin- gjarnlegur en varfærinn og Gina braut heilann og gat ekki orðið viss um, hvar hún hefði hann. Hún spurði sjálfa sig, hvort hún hefði skrautbúið sig um of. Hún hafði gjarna viljað hrífa hann og hafði því farið í snotr- asta kvöldkjólinn sinn og grafið Bokkra fallegustu skartgripina sína úr jörðu. Hann gat varla haft af henni augun og hún sá, að hann notaði hvert tækifæri til að líta snöggvast á brjóstin og hálsinn á henni. Já, hann girntist hana, bjáninn sá arna, hvers- vegna hafði hann sig þá ekki neitt í frammi? Kannske hefði hún klætt sig of áberandi og dulið tilgang sinn of illa. Þegar hún heilsaði hon- um, hélt hún óþarflega lengi í höndina á honum, hún hafði lát- ið leggja á Mtið borð fyrir þau tvö og hún hafði tautað eitthvað um, að maðurinn sinn væri ekki heima og lét í það skína, að henni væri það ekki sérlega leitt. Snögglega datt henni í hug, að hún væri alls ekki húsmóðir í Klettahúsinu, heldur væri það húsbóndi hennar. Þeir höfðu ekki skilað henni húsinu í þakklætis skyni heldur aðeins til að geta haft stöðugt eftirlit með henni Þeir höfðu grun á henni og lík- lega vissu þeir beinlínis allt um hana. Þessvegna var Teki svona varkár. Hann ^s&tti vandlega emibættis síns, sem hann var svo hreykinn af að hafa öðlazt svona imgur, og ætlaði sér ekki að stofna því £ hættu, en það gat hann einmitt gert með því að vera að heimsækja ha’na. Hann hefði með öðrum orðum alls ekki kom ið, nema því aðeins hún hefði mikið aðdráttarafl fyrir hann, en svo þegar hann var kominn þangað, gleymdi hann allri þrá sinnj eftir henni fyrir áhættunni, sem því var samfara. Jafnvel nú var hann enn að hugsa út eitt- hvert ráð til þess að sleppa burt, án þess þó að móðga hana. Hún vissi, að hún yrði með einhverj- um ráðum að brjóta niður þessa hlédrægni hans. Þegar leið á kvöldið og þau sátu úti í hægri golunni, fór hann að minnast á, að nú væri orðið framorðið og að hann yrði sHUtvarpiö Sunnudagur 20. mai 8:30 Létt morgunlög. — 9:00 Fréttir. 9:10 Morguntónleiikar: a) Tríó í Es-dúr fyrir fiðlu, horn og píanó op. 40. (Josep Szigeti, John Barrows og Mieczlaw Horowski). b) Dietrich Fischer-Dieskau syngur lög eftir Schubert; Geral-d Moore leikur undir. c) Píanókonsert nr. 4 í G-dúr op. 58 eftir Beethoven (Paul Badura-Skoda og hljómsveit Ríkisóperunnar í Vín leika; Hermann Scherchen stjóm- ar). 11:00 Messa í Laugarneskirkju (Presi ur: Séra Gunnar Árnason. Org- anleikari: Jón G. Þórarinsson). 12:15 Hádegisútvarp. 14:00 Miðdegistónleikar: Frá tónlist* arhátíðum í Evrópu s.l. ár: a) Frá Aix-en-Provenoe 1 Frakklandi í júlí: 1. „Nýju fötin keisarans'* (Útvarps- hljómsveitin 1 Nizza leikur; Serge Baudo stj.) — 2. Ter- esa Berganza syngur spænsk lög. b) Frá Búdapest í sept.: Fram- menti musicali eftir Razsö Sugár (Búdapest blásara- kvintettinn og György Kósa pínaóleikari flytja). c) Frá Enescu tónlistarhátíð- inni í Rúmeníu í sept.r Könsert fyrir hljómsveit eft ir Ion Dumitrescu (Sin- fóníuhljómsveit rúmenska útvarpsins leikur, losif Conta stjómar). 15:30 Kaffitíminn: a) Magnús Pétursson og félagar hans leika. b) Tibor Kunstler og sígauna- hljómsveit hans leika. 16:30 Veðurfr. — Endurtekið efni: a) Farið á bæi og rætt við þýzk ar húsfreyjur í sveitum hér- lendis (Útv. í kvöldvöku bændavikunnar 22. marz). b) Kirkjukór Kotstrandarsókn- ar syngur undir stjóm Jóns H. Jónssonar (Áður útv. 1. apríl). c) Björn Bjarnason menntaskóla kennari talar um reiknings list (Útv. 1 þættinum „um töluvísi" 8. marz s.l.). 17:30 Barnatími (Helga og Hulda Val- týsdætur): a) Framhaldssagan „Doktor Dýragoð", endir (Flosi Ól- afsson). b) Leikritið „Rasmus, Pontus og Jóker" eftir Astrid Lind- gren; IV. þáttur. Leikstjóri: Jón Sigurbjörnsson. 18:30 „Eg minnist þín um daga og dimmar nætur": Gömlu lögin. 19:00 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr. 19:30 Fréttir. 20:00 Kvöldmúsík í léttum dúr: a) Anneliese Rothenberger syng ur með kór og hljómsveit. b) Hljómsveitin Philharmonia leikur ballettsvítuna „Skauta fólkið" eftir Meyerbeer-Lam bert; Charles Maokerras stj. 20:30 „Margt smátt gerir eitt stórt": Skemmfldagskrá Lionsklúbbsins Þórs haldin í Háskólabíói 6. þ.m. til ágóða fyrir starfsemi Bláa bandsins. — Ræður, söngur, vísnaþáttur og leikþáttur. Flytj endur: Haraldur Á. Sigurðsson. Friðfinnur Ólafsson, Tómas Guð mundsson, Sigurður Benedikts- son Helgi Sæmundsson, Jóhann Fr. Guðmundsson, Þórarian Þór arinsson, Jakob Hafstein, Þor- steinn Hannesson, Jón Þórarina son, Sveinn Zoéga o*g Brynjólí ur Jóhannesson. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. — 22:10 Danslög — 23:30 Dagskrárlok. Mánudagur 21. maf. 8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jón Guðnason. — 8:05 Morgunleik- fimi: Valdimar Ömólfsson stj. og Magnús Pétursson leikur und ir. — 8:15 Tónleikar — 8:30 Fréttir — 8:35 Tónleiikar — 10:10 Veðurfregnir). 12:00 Hádegisútvarp (TónJeikar —• 12:25 Fréttir og tilkynningar). 13:15 Búnaðarþáttur: Gísli Kristjáns- son ritstjóri talar um vorannir, 13:30 „Við vinnuna": Tónleikar. 15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tiJSc. — Tónleikar — 16:30 Veðurfr, — Tónleikar — 17:00 Fréttir —• Tónleikar). 18:30 Lög úr kvikmyndum — 18:50 Tilkynningar — 19:20 Veðurfr. 19:30 Fréttir. 20:00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson cand. mag). 20:05 Um daginn og veginn (Axel Thorsteinsson rithöf undur). 20:25 Einsöngur: Sigurður Björnsson syngur lög eftir Skúla Halldóra son, sem leikur undir á píanó. 20:45 Erindi: Byltingarmaðurinn Thom as Jefferson, síðari hluti (Hann* es Jónsson félagsfræðingur). 21:15 Stutt hljómsveitarverk. eftir Chabrier: Gáskafullur mars og rapsódían Spánn (Fílharmoníu- sveitin í Los Angeles leikur; /Alfred Wallenstein stjómar). 21:25 Útvarpssagan: „Þeir'* €sftir Thor Vilhjálmsson; III. — sögulok, (Þorsteinn Ö. Stephensen). 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Hljómplötusafnið (Gunnar Guð mundsson). 23:00 Dagskrárlok. Síði brjóstabaldarinn MODEL 330 er nýr á markaðn- um. Hann er framleiddur úr beztu fáanlegum efnum. Amerískt svampgúmmí í skálunumm. Spangir undir brjóstaskálunum. Léreft að framan, »n V sniðin taft- teygja að aítan. Kræktur að framan. Laus hlíra'bönd, sem krækja má af. Litur: Hvítt Stærðir: B skál 32-34—36—38—40 S skál 34—36—38—40—42—44 Fæst í flestum vefnaðarvöruverzlunum um land allt. Heildsölubirgðir: Davið S. Jónsson & Co., h.f., Reykjavík. LADY H.F. lífstykkjaverksmiðja, Laugavegx 26 — Simi: 10-1-15. Saumastúlkur Nokkrar stúlkur, helzt vanar verksmiðju- saumi, geta fengið atvinnu nú þegar. Verksmiðjan Herkúles hf. Bræðraborgarstíg 7, 2. hæð >f GEISLI GEIMFARI >f >f >f * — Titringurinn er að aukast, — Eg er að reyna, Jolin. Ef við — Eg er hræddur um að það geti Geisli. Hann er að nálgast hættu- erum heppnir getum við losað okk- reynzt of seint, Geisli. merkið. ur innan 15 mínútna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.