Morgunblaðið - 16.06.1962, Blaðsíða 2
2
MORGUNRLAO10
i^augaraagur 15. juni iuea
•'> ' ’* .ásSÍíi:. ■ i 4
Þessi mynd var tekin nokkru áður en Fuglabókin kom út. Sjást þeir vinna að bók-
inni (frá vinstri) Eiríkur Hreinn Finnbogason, dr. Finnur Guðmundsson og Baldvin
Tryggvason.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Fuglar Islands og Evrópu
er júníbók AB
Markar tímamót í fuglaskoðun á íslandi
ÚT E R U komaar hjá Al-
menna bókafélaginu bækur
mánaðarins fyrír maí ogjúní.
Er maíbókin myndskreytt
bók um Italíu, í bókafiokkn-
um Lönd og þjóðir, þýdd af
Einari Pálssyni, en júníbókin
er Fuglabók AB, handbók um
fugla Islands og Evrópu, í
umsjá dr. Finns Guðmunds-
sonar.
Fuglar lslands og Evrópu
er eftir 3 heimsfræga fugla-
fræðinga, Ameríkumanninn
Roger Peterson og Englend-
ingana Guy Mountfort og P.
A. D. Hollon, en inngang fyr-
ir bókinni ritar Julian Hux-
ley. Þetta er viðurkennd ein-
hver allra merkilegasta fugla
bók, sem út hefur komið, því
að hún — eins og Julian Hux
ley segir í inngangi sínum —
sameinar aðdáanlega vel alla
meginkosti, sem góð fuglabók
þarf að haía: er handhæg
að stærð, svo að auðvelt er
að hafa hana uppi við í ferða
lögum, er búin miklum og
góðum myndakosti, sem mið-
ar fyrst og fremst að því að
gera mönnum kleift að
greina hinar nýju fuglateg-
undir, sem á vegi þeirra
verða. Er fróðleg um út-
breiðslu fuglanna, tekur til
allra fugla, sem sézt hafa á
íslandi og annars staðar í
Evrópu, og er síðast en ekki
sízt nákvæm o^ skilmerkileg
að framsetningu, byggð á nýj
ustu vísindalegri þekkingu.
Bókin fjallar um 573 fugla
tegundir, en í henni eru yfir
1200 myndir, svo að fleiri en
ein mynd er af hverri teg-
und — bæði sumar- og vetr-
arbúningi þeirra, ef þær
skipta litum, karlfugli og
kvenfugli, ef kynin eru ólík
o. s. frv.
Allar eru myndirnar gerð-
ar eftir hinu alkunna kerfi
Roger Petersons, sem miðar
fyrst og fremst að tegunda-
greiningu og einkennist m. a.
af því, að strik gefa til kynna,
á hvaða einkennum er auð-
veldast að greina eina teg-
und frá öðrum skyldum teg-
undum.
Þá eru í bókinni 380 út-
breiðslukort, er gefa til kynna
sumar- og vetrarheimkynni
langflestra fuglategunda.
Dr. Finnur Guðmundsson
hefur þýtt og staðfært fugla
bókina og hefur raunar átt
þátt í henni frá upphafi, að
því er ísland varðar, eins og
fram kemur í formála höf-
undanna.
Bókin er 384 bls. að stærð
auk 64 myndasíðna. Hún er
prentuð með smóu letri, í
vasabroti og því mjög hand-
hæg í meðförum. Utan um
hana er hlífðarumslag úr
þunnu plasti.
Bókin er prentuð í prent-
smiðjunni Odda, nema mynda
síður, sem prentaðar eru af
Collins Clear-type Press í
Lundúnum.
Á fundi með blaðamönn-
um í gær sagði Baldvin
Tryggvason, framkvstj. AB
að Fuglabókin hefði verið
lengi í smíðum. Ákveðið
hefði verið að gefa hana út
fyrir fjórum árum, og dr.
Finnur Guðmundsson þá
fenginn til þess að þýða hana
og staðfæra. Dr. Finnur hefði
í þessu sambandi unnið mik-
ið verk. Hefði hann gert
nokkrar breytingar á bók-
inni, sem teknar hefðu verið
inn í síðari útgáfur erlendis,
en dr. Finnur hefði haft
hönd í bagga þegar bókin
var fyrst gefin út í Englandi
1954. Var hann þá ráðunaut-
ur höfunda um allt er varð-
aði fugla á íslandi.
Baldvin Tryggvason sagði
að útkoma þessarar bókar
markaði tímamót í fugla-
skoðun á íslandi og ger-
breytti aðstöðu þeirra mörgu
íslendinga, sem áhuga hafa
á fuglum og fuglalífi. Sagði
Baldvin að telja mætti að út
koma þessarar bókar væri
merkasti viðburður á sviði
handbóka um náttúrufræði
síðan Flóra íslands kom út
á sínum tíma.
Loks er þess að geta, að
dr. Finnur Guðmundsson hef
ur þýtt fjölmörg erlend fugla
heiti á íslenzku og hefur far-
izt það mjög vel úr hendi.
ftalía er þriðja bókin í
bókaflokk AB Land og þjóð-
ir. Höfundur hennar er rit-
höfundurinn Herbert Kubly,
maður, sem dvalizt hefur
langdvölum á Italíu. Er þessi
bók lík að útlití og þær tvær
bækur, sem áður hafa komið
út í þessum flokki, lesmál
um landið og þjóðina, sögu
hennar og daglegt líf, og hátt
á annað hundrað myndir,
margar þeirra litmyndir.
Þýðandi segir m. a. í for-
mála fyrir bókinni: „Hér
verður það meginatriði, sem
svo oft vill gleymast í fræði
ritum, að sýna fólkið í land-
inu við líf þess og störf, að
greina fr'á þeirri erfð, sem
það byggir á, og þeim að-
stæðum, er ráða viðbrögðum
þess í dag“.
Myndasíður bókarinnar eru
prentaðar í París, en að
öðru leyti er bókin unnin í
prentsmiðjunni Odda og
Sveinabókbandinu.
Ákveðið hefur verið að
gefa út fjórar bækur til við-
bótar í bókaflokknum Lönd
og þjóðir, og munu þærfjalla
um Bretland, Japan, Mexíkó
og Indland. Munu flestar
bókanna koma út á næsta
ári. Auk ítalíu hafa áður
komið út tvær bækur í þess-
um flokki, um Rússland og
Frakkland.
Farsæll sauðburður
Grundahóli 14. júní.
SAUDBURÐI er því sem næst
lokið hér á Hólsfjöllum og gekk
hann allvel þrátt fyrir kalda tíð
og óhagstæða. Ær voru víða með
minna móti tvílembdar og var
því hægt að sleppa þeim strax.
Melurinn greri snemma og var
hægt að sleppa síðbærum ám og
geldfé strax og leysingavatn var
runnið, en það rennur seint
vegna þess hve landið er flatt og
eru því miklar hættur á meðan.
Þó að tíð væri góð seinni hluta
aprílmánaðar var ekki hægt að
sleppa fé fyxr en í maíbyrjun.
Þótti mönnum þá ekki taka því
að sleppa ánum, sem fyrst áttu
að bera, en gáfu þeim vel og
höfðu þær í aðhaldi.
Athyglisvert var að þrátt fyrir
kuldana í maí voru lömbin und-
an ánum, sem lágu úti, mun
vænni og traustari borin, en
hinna sem heima voru.
Stúdenta-
blað í nýjum
búningi
STÚDENTABLAÐ, sem gefið er
út af Stúdentaráði hefur nýver-
ið íklæðst nýjum búningi og er
nú léttari blær yfir því en áður.
Er það meira í stíl við dagblað
en tímarit. Talið var að þunglama
legt form stæði því fyrir þrifum
og hefur fjörkippur færzt í út-
gáfuna eftir breytinguna. Jafn-
framt þessari breytingu var sá
háttur upp tekinn að ráða einn
ritstjóra að blaðinu í stað rit-
nefndar og þá hann nokkra þókn-
un fyrir starf sitt. En verkefni
hans reyndist nokkuð mikið ein
um manni og var þá það ráð upp
tekið að ráða tvo jafnsetta rit-
stjóra, sem skiptu með sér verk-
um. Ritstjórar eru nú Steingrím
ur Gautur Kristjánsson, stud.
jur. og Þoivaldur G. Einarsson,
stud. jur. Næsta hefti blaðsins
kemur út 17. júní og verður selt
þann dag á götum borgarinnar.
Meðal efniis í blaðinu verður
grein eftir Jón E. Ragnarsson,
formann Stúdentaráðs um þátt
stúdenta í þjóðmálum, ræða sem
Þórir Kr. Þórðarson, prófesSor
flutti við stúdentaguðþjónustu á
sl. vetri, grein eftir Bernharð
Guðmundsson, cand. theol, um
viðskilnað kandidata við háskól-
ann. Ólafur Egilsson, stud. jur.
ritar grein um störf utanríkis-
málanefndar stúdentaráðs, Björn
Matthíasson, stud. oecon. ritar
grein um stúdenta og Háskólann.
Kristinn Jóhannsson, listmálari
teiknar forsíðumynd. Fleiri grein
ar og myndir prýða ritið.
Snjór var með mesta móti f
vetur og því mikill vatnagangur
í vor. Óvenjumiklar skemmdir
urðu á vegum af þeim sökum,
t.d. tók veginn sundur á 20 stöð-
um milli Grímstaða og Víðidala
og mest í Víðidalnum aðallega á
10 km. kafla. Eina smábrú tók:
af. Nú hefir þetta allt verið lag-
að og var ýtt jarðvegi í skarðið
þar sem brúin var, en vatn
rennur þar ekki að staðaldri.
— Víkingur.
Verkfall
vélamanna
vestanhafs
í dag?
Washington, 15. júní. — AP
TFIRVOFANDI er verkfall
vélamanna hjá þremur
stærstu flugfélögum Banda-
ríkjanna síðdegis á morgun.
Deilan er risin upp vegna
áætlunar flugfélaganna um
að fækka áhöfnum, þannig
að þriðji flugmaður verði
jafnframt látinn gegna starfi
vélamanns, sem þá yrði ekkl
Iengur áhafnarmeðlimur.
Þau félög, sem hér eiga
hlut að máli, eru Pan Am-
erican, Trans World Airlines
og Eastern Airlines.
Viðræður hafa staðið und-
anfarin 2 ár, um þetta mál,
en nú hefur félag véla-
manna gefið 24 stunda frest
til þess að komast að sam-
komulagi. Ý mis önnur mál
eru einnig til umræðu, og
verða þau leyst með gerð-
ardómi.
Náist ekki samkomulag,
hefst verkfallið síðdegis á
morgun. —
'
tltvarpsskák
Svart: Svein Johannessen, ósló
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Ingi R. Jóhannsson.
26. Rf5—h6f Kg8—f8
27. Hbl—cl .....
15 hnúior
✓ SV 50 hnútar
K Snjókomo 9 Oði V Sktirir K Þrumur 'Ws, KuUoM Hiítt/tif
H Hml
L Lm'!
í GÆR á hádegi var djúp
og kyrrstæð lægð skammt
fyrir suðaustan land. Olli
hún NA-átt hér á landi. Um
norðanvert landið var rign-
ing frá Vestfjörðum til Aust-
fjarða og hiti 4—6 stig á lág-
lendi.
Venjuleg kólnun með hæð
er 1 gráða á 200 metrum. —
Snjóar því í fjöll fyrir norð-
an. Á Suðvesturlandi var
bjart og allt að 13 stiga hiti.
Allar horfur eru á svipaðri
vindátt þann sautjánda.