Morgunblaðið - 16.06.1962, Blaðsíða 6
6
MORGVNBLAÐ1Ð
Laugardagur 16. júní 1962
Menntaskólanum
vík slitið í gær
Stúdentar í fyrsta sinn fleiri ur stærð-
fræðideild en máladeild
Þrír 50 ára stúdentar á tröppum Menntaskólans. Steinn
Steinsen, verkfræðingur, fyrrum bæjarstjóri á Akureyri,
lengst t. v., forseti íslands, hr. Ásgeir Ásgeirsson, lengst t. h.
og að haki þeirra sést sr. Jósep Jónsson, fyrrv. prófastur að
Setbergi á Snæfellsnesi.
MENNTASKÓLANUM í Reykja
vík var slitið við hátíðlega at-
höfn kl. 2 e.h. í gær að viðstöddu
f jölmenni. Brautskráðir voru 125
stúdentar, 61 í máladeild og 64
í stærðfræðideild og er það í
fyrsta sinn að fleiri stúdentar
Þorkell Helgason, 6. Y, er
hlaut hæstu einkunn við stúd
entspróf í ár, ágætiseinkunn,
9,31. (Ljósm.: Mbl. Ól. K. M.)
erU brautskráðir úr stærðfræði-
deild en máladeild. Við skólaupp
sögn voru fulltrúar ýmissa eldri
árganga stúdenta, þar á meðal
forseti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, sem hafði orði fyrir 50
ára stúdentum og herra Sigur-
björn Einarsson, biskup.
í upphafi flutti Kristinn Ár-
mannsson, rektor, yfirlit yfir
starfsemi skólans á skólaárinu.
Kvað hann árið hafa yfirleitt ver
ið gott. Kennsla hefði aðeins fall
ið niður í þrjá daga í inflúenzu
faraldrinum í vetur nema í 6.
bekk, en þar var alltaf kennt.
Einn kennara skólans, Skúli Þórð
arson magister, varð fyrir um-
ferðarslysi í Kaupmannahöfn á
sl. sumri og lá rúmfastur mdkinn
hluta vetrar, en er nú á bata-
vegi.
Rektor sagði að í upphafi skóla
órs hefðu nemendur verið 745
eða 60 fleiri en árið áður. Skipt
ust þeir í 32 bekkjardeildir. —
Stúlkur voru 291 eða rúmur
þriðjungur, en piltar 454. í þriðja
bekk voru 238 nemendur, er skipt
ust í 10 bekkjardeildir. Langflest
ir nemienda skólans voru úr
Reykjavík eða um 90 af hundr-
aði.
Húsnæðismálið.
Um húsnæðismál skólans komst
rektor svo að orði:
„Um húsnæðisvandamálið mun
ég að þessu sinni vera fáorður.
Vonir stóðu til, að málið leystist
svo fljótt, að viðbyggingar við
skólann væru tilbúnar í haust. En
af ófyrirsjáanlegum og óviðráð
anlegum ástæðum hefur miálið
enn tafizt, svo að þetta getur
ekki orðið. En mér skilst, að
bæði hjá ríki og bæ sé fullur
vilji á því að leysa málið á við-
unandi hátt næsta vetur og sum
ar með nauðsynlegum viðbyigg-
ingum, svo að skólinn hér verði
starfhæfur í framtíðinni. Jafn-
framt verði hafizt handa um
byggingu annars menntaskóla
hér í borginni. Eg þykist geta
örugglega fullyrt að ríkisvaldið
muni hafa tekið ákvörðun um að
láta ekki fjárhagsörðugleika
standa framkvæmd málsins fyrir
þrifum.
Þrátt fyrir marga og mikla
örðugleika verður öllum þeim
nemendum veitt viðtaka næsta
haust, sem rétt hafa til skóla-
vistar“.
53 kennarar kenndu við skól-
ann á árinu, eða sem svarar tveim
ur fjölmennum bekkjum. Þar af
var tæpur helmingur fastir
kennarar og taldi rektor það var-
hugavert að fastir kennarar væru
• Lömbin litlu
Óhugnanleg frétt birtist í
blöðunum fyrir fáum dögum
þar sem sagt var frá háttar-
lagi ungs ökuþórs, sem varð
fyrir því óláni að aka á lít-
ið lamb og stórslasa. Sú saga
öll er of hryggileg, til þess
að hún verði rifjuð upp hér.
En hún felur í sér margvís-
legan lærdóm, ekki aðeins
fyrir þann, sem undir stýri
sat í fyrrgreindu tilfelli —
í Reykja-
færri en bekkjardeildirnar. Þá
gat rektor þess að Einar
Magnússon, yfirkennari, hefði í
ár starfað 40 ár við skólann, og
þakkaði honum í nafni skólans
vel unnin störf.
Rektor kvað félagslíf nem-
enda hafa verið með fjölbreytt-
ara móti og þakkaði forstöðu-
mönnum nemenda starf þeirra
í þeim efnum.
Árspróf.
Árspróf voru haldin dagana 2.
til 30. maí, en vegna húsnæðis-
skorts verður með hverju ári æ
erfiðara að koma þeim fyrir.
Undir prófið gengu 590 nemend-
ur, 586 skólanemar og 4 utan
skóla. Prófinu luku 567 og stóð-
ust 514. Fengu 4 ágætiseinkunn,
84 I. einkunn, 270 II. eink. og 147
III. eink. 53 nemendur stóðust
ekki, flestir úr 3. og 4. bekk. —
Allmargir nemendur, sem höfðu
mjög háa einkunn, voru af ýms
um ástæðum fluttir milli bekkja
án þess að ljúka prófi, en allmarg
ir fengu að taka hluta af próf-
inu í haust, flestir vegna veik-
inda.
Við árspróf hlutu þessir hæstar
einkunnir:
Reynir Axelsson, 5 Z, ág. 9.10.
Borghildur Einarsdóttir, 3. L,
ág. 9.04.
Sven Þórarinn Sigurðsson 4. Z,
ág. 9.02.
Jakob Yngvason, 4. Y, ág. 9.01.
Jón ögmundur Þormóðsson,
5. B, I. 8.94.
Þorkell Guðbrandsson, 3. F,
I. 8.85.
Stúdentspróf var haldið dag-
ana 26. maí til 13. júní. Undir
prófið gengu 125 nemendur, 121
innan skóla og 4 utan skóla, 61
í máladeild, 64 í stærðfræðideild.
Er það í fyrsta skipti í sögu skól
ans, að stærðfræðistúdentar eru
fleiri en máladeildar, og er það
sjálfsagt tímanna tákn. Þeir luku
allar prófi og stóðust.
í dag verða því brautskráðir
125 stúdentar, en það er hæsta
stúdentatala að undanskildu ár-
inu 1953, en þá brautskráðust
132. Næsta vor er útlit fyrir, að
a.m.k. 150—160 útskrifist. Eink
unnir skiptust þannig, að 3
hlutu ágætiseinkunn, 51 I. eink-
unn, 61 II. einkunn og 10 III.
einkunn.
Hæstu einkunnir hlutu þessir:
heldur alla, sem bílum aka.
Velvakandi átti leið ofan
úr Borgarfirði um Hvalfjörð
inn sl. miðvikudag. Mestan
hluta þeirrar leiðar voru
fleiri eða færri lömb að leik
Alla gát varð því að hafa á,
að þau hlypu ekki fyrir bíl-
inn og færu sér að voða.
Slíkt getur gerzt á auga-
bragði — ef það gerist, og þá
má hraðinn ekki vera mikill,
til þess að unnt sé að forða
slysi.
f máladeild:
Einar Már Jónsson, 6. B, I. 8.85.
Ólafur Davíðsson, 6. B, I. 8.84.
Auður Þórðardóttir, 6. A,
I. 8.62.
f stærðfræðideild:
Þorkell Helgason, 6. Y, ág.
9.31, sem er hæsta einkunn
við stúdentspróf í ár.
Baldur Símonarson, 6. X, ág.
9.10.
Gunnar Sigurðsson, 6. X, ág.
9.09.
Magnús Þór Magnússon, 6. Z,
I. 8.92.
Að loknu yfirliti um starfsemi
skólans ávarpaði rektor hina nýju
stúdenta. Komst hann svo að
orði í lok ræðu sinnar:
„Við erum stödd í salarfcynn-
• Vernd lítilmagnans
í byrjun sumars er það
fátt, sem vekur meiri gleði
en að sjá nýborin lömbin
hoppa um grænan haga. En
það er eins með þau og bless
uð börnin, að þau vita ekki
alltaf, hvar hætturnar leyn-
ast eða hvernig þær má var-
ast. Þar hefur hinn fullþrosk
aði maður hins vegar oft í
hendi sér að afstýra því, að
um okkar fornunfóstru, okkar
almaematris, sem staðið hefur í
116 ár. Hún hefur hlustað hér á
margar ræður, líka á mörg
kveðjuorð fóstursona sinna, flest
ljúf og lofsamleg. Stundum er
líka köldum kveðjum til hennar
kastað, kvartað yfir of ströng-
um aga á heimili hennar, léleg-
um þjónum, kennurunum, úreltu
fyrirkomulagi o.s.frv. Þetta erf
ir hún ekki né reiðist, en veit,
sem er, að æskumenn eru óþol-
inmóðir og hugsa ekki slík mál
alltaf til þrautar. Jafnframt get
ur hún hreykin minnzt þess, að
í þessi 116 ár hefur hún fóstrað
fjöldann af forustumönnum þjóð
arinnar á flestum sviðum. Hún
Framh. á 17
ógæfan skelli yfir. Og þeim
þroska, sem honum er gefinn
að vernda lítilmagnann og
veita honum skjól. Það ber að
hafa hugfast.
• Vorið seinbúið
Flestir eru að verða lang-
eygir eftir vorhlýjunni, sem
ætlar að láta á sér standa.
Á hvítasunnunni átti ég tal
við ráðsmanninn á Korpúlfs-
stöðum, sem hafði byrjað að
slá um tilsvarandi 'helgi í fyrra
sumar, en nú kvaðst hann
heppinn ef hann gæti byrj-
að að þrem vikum liðnum. í
fyrra var hann búinn að gera
við allar girðingar fyrir slátt.
Nú er frost svo nýfarið úr
jörðu, og hefur reyndar ver.
ið svo mikið í vetur, að það
hefur ýtt upp öllum staurum
svo að ekki hefur unnizt
tími til að gera við.
Um hvítasunnuna fór Guð
mundur Jónasson .fjallabíl-
stjóri, með tvo ferðamanna.
bíla upp á miðhálendið, i
Kerlingarfjöll og á Hvera-
velli. Hann segir mér að svo
mikil bleyta sé þar enn, að
varla sé fært á fjallabílum,
enda klaki varla farinn úr
jörðu.
Og nú fréttum við að snjðl
í fjöll víða á Norðurlandi og
heiðarvegir að lokast aftur.