Morgunblaðið - 16.06.1962, Blaðsíða 15
Laugardagur 16. júnx 1962
nHJKlrlJC'lttLAVIO
15
Marilyn Monroe rekin
Dean Martin neitar að leika móti
annarri leikkonu
KVIKMYNDAFÉLAGIÐ 20th
Century-Fox sagði Marilyn
Monroe upp starfi sl. föstu-
dag. Ástæðan fyrir brott-
rekstrinum er sú, að leikkon-
an hefur ekki mætt til vinnu
nema endrum og eins og bor-
ið við veikindum. Hinsvegar
hefur hún oft sézt á skemmti-
stöðum að kvöldlagi og ekki
borið nein sjúkdómseinkenni.
Marilyn Monroe hefur haft
samning við kvikmyndafélag-
ið í rúmlega tíu ár ög lék nú
í sinni síðustu kvikmynd fyr-
ir það félag, „Somethings g<A
to give“. Upptaka myndarinn
ar hefur staðið yfir í 32 daga
en leikkonan ekki látið sjá
sig nema 12 sinnum. Það er
haft eftir kvikmyndastjóran-
um að engin önnur leið hafi
verið möguleg, Marilyn hafi
með fjarveru sinni stöðvað
vinnu 104 annarra starfs-
manna í kvikmyndaverinu, og
þetta væri í fyrsta skipti í
mörg ár sem þeir hafi neyðzt
til að reka leikkonu.
Búizt er við að Kim Novak
taki við hlutverki Marilyn,
en daginn eftir brottrekstur-
inn var leikkonan Lee Remick
skipuð í hennar stað. Þá skap-
aðist nýtt vandamál, því að-
alleikarinn Dean Martin neit-
aði að leika á móti annarri
leikkonu en Marilyn; hann
hafi í sjálfu sér ekkert á móti
Lee Remick né neinni ann-
arri leikkonu, þær séu allar
dásamlegar, en hann hafi nú
einu sinni verið ráðinn sem
mótleikari Marilyn og engrar
annarrar.
Ekki er gott að spá, hverj-
ar málalyktir verða. Dean
Martin og Marilyn eru mjög
góðir vinir og sagt er að með
þessu móti hyggist hann
hjálpa henni. Leikkonan sjálf
er ákaflega sorgmædd yfir
öllu þessu umstangi, segir það
ósannindi illgjarnra manna að
hún sé að skemmta sér um
nætur, hún hafi verið alltof
veik til þess. Marilyn kveðst
vera á batavegi ög hún sé til- •
búin að taka til starfa á ný
eftir fáa daga.
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Rangæinga var haldinn að fé-
lagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli,
laugardaginn 26 maí.
Mættir voru 35 kjörnir full-
trúar ásamt stjórn, endurskoð-
endum og all mörgum öðrum fé-
lagsmönnutm.
Formaður félagsins, Björn Fr
Björnsson, sýslumaður setti fund
inn og stjórnaði honum.
Framkvæmdarstjóri, Magnús
Kristjánsson, las upp úr reikn-
ingum félagsins og skýrði þá ýt-
arlega.
Sala erlendrar vöru á árinu
nam kr. 37.458.079.43 og hafði
aukist um kr. 7.022.872,80 frá ár-
inu áður.
Rangœinga
Heildarvelta félagsins var kr.
44.938.683,63 og hafði aukist um
kr. 7.790.301,40 frá árinu áður.
Tekjuafgangur varð kr.
668.945,62 og var samþykkt að
endurgreiða félagsmönnum, í
stofnsjóð þeirra, kr. 460.000.00
eða 1,7% af viðskiptum þeirra
við félagið. Jafnframt var sam-
þyklkt að leggja kr. 160.000.00 í
varasjóð og kr. 40.000,00 í menn
ingarsjóð félagsins.
Félagið starfrækti 2 bílaverk-
stæði, trésmiðaverkstæði, raf-
magnsverksæði og 2 þvottahús
og hafði rekstur þessara fyrir-
tækja gengið vel á árinu.
Framkvæmdastjóri skýrði frá
því að framkvæmdir á vegum
félagsins hefðu verið litlar á
árinu, en nú væri ákveðið að
hefja byggingu á kjötfrystihúsi
á Hvolsvelli í félagi með slátur
félagi Suðurlands og stæðu von
ir til að húsið gæti komizt und-
ir þak á þessu ári.
Jafnframt kvað framkvæmdar
stjóri mikla nauðsyn á að reisa
stóra kartöflugeymslu undir hina
ört vaxandi kartöflurækt héraðs
ins;
Úr stjórn áttu að ganga Björn
Fr. Björnsson ag Oddgeir Guð-
jónsson og voru þeir báðir end-
urkjörnir.
Endurskoðandi var endurkjör-
inn Benedikt Guðjónsson Nefs-
holti.
í stjórn Menningarsjóðs félags
ins var kjörinn Benedikt Guð-
jónsson.
Styrkir íir
mimiingarsjóði
Elínar R. Briem
NÝLEGA var úthlutað úr Minn-
ingarsjóði Elínar Rannveigar
Briem tveimur námsstyrkjum að
upphæð kr. 20 þúsund samtals.
Hlaut hvor styrkþegi 10 þúsund.
Styrkirnir éru veittir fimmta
hvert ár einum handavinnu-
kennara, er lokið hefur námi
í handavinnudeild Kennaraskól-
ans, og einum húsmæðrakennara,
útskrifuðum úr Húsmæðrakenn-
araskóla íslands.
Frændur og vinir frú Elínar
Briem stofnuðu sjóðinn og hafa
eflt hann svo, að nú er útihlutað
námsstyrkjum úr honum í ann-
að sinn. Styrkþegar sjóðsins að
þessu sinni eru Auður Halldórs-
dóttir, handavinnukennari við
kvennaskólann í Reykjavík og
Benny Sigurðardóttir kennari
við Húsmæðrakennaraskóla fs-
lands. Frú Ingibjörg Eyfells af-
henti styrkina á heimiii sínu
Skólavörðustíg 4 í viðurvist
sjóðsstjórnarirmar og skóla-
stjóra viðkomandi skóla.
Embættismanna-
kjör í Stvkkis-
hólmi
STYKKISHÓLMI, 13. júní. —
SL. FÖSTUDAG náðist sam-
komulag milli Alþýðuflokksins
og Sjálfstæðisflokksins í Stykk
ishólmi um kosningu sveitar-
stjóra og oddvita.
Kjörinn var sem oddviti Ás-
geir Ágústsson, en Ólafur Guð-
mundsson kjörinn áfram sveitar
stjóri, en hann hefur verið sveit
arstjóri undanfarin 8 ár.
xpm ..1
Ifsmorð
pp bóm
Á8 komn í veg fyr
Ættu konur að b
ÉfBfinHndi likaBÍ
■pnEið höfuð\«
Úndai'leg.nr staðrl
wmXu. hillingar vii
Að ganga í búðir og stela .
Þeir fá heyrnina aftur ....
Góðvinur mannsins í hafinu
American Sources 61
... Today's Health 64
Audubon Magazine 68
Óglevmanle
Rétt viðhorf til kynferðismála .. Everywoman 109
Kraftaverk á Sikiley ............... Coronet 112
Leyndardómur falda nunnuklaustursins Cath. D. 113
Váraðu þig á matai^ÉMM^^..
Banki sprongdur upp.........Reader's DUjest 123
yíkinwur 129
íapnt/iHHnS
re DigSBBm
'ur nott
boleon £
Rgestir
Hör Ma
’bóki
Hvað