Morgunblaðið - 16.06.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.06.1962, Blaðsíða 20
20 MORGUFBLAÐIÐ Laugardagur 16. júnx 1962 Alexander Fullerton 7 Guli Fordinn í sama bili kallaði Penny, áber andi hátt: Ted! Hún stóð við ar- ininn ásamt konu Steves og nokkrum fleirum. Ted virtist ekki heyra til hennar og þá kall- aði hún aftur og nú var rómur- inn hvass. Hann leit þá kring um sig eins og ráðþrota, og rétt sem snöggvast datt mér í hug, að hann vissj ekki, hver vseri að kalla. En andartaki seinna varð breyting á svip hans, hann kink- aði kolli brosti og gekk síðan með hlýðnisvip yfir þvert gólfið og að kvennahópnum. Mér datt í hug: Ef ég vaeri ekki svona einráðinn í því að pipra.... og það var eins og einhver gleði- kennd flæddi yfir mig, og ég leit aftur til stúlkunnar með ljósa hárið. Ég var að horfa á hana og hún var enn að tala við Henn- ing — þegar Steve greip í hand- legginn á mér og hló þurrlega eins og hann gerði stundum. Komdu og heilsaðu upp á hana, drengur min*.... Ég sagði þér, að þú mundir ekki sjá eftir að koma. Það má næstum segja, að ég einokaði hana það sem eftir var samkvæmisins. Eg fékk að vita, að hún hét Jane Fairley, að hún hefðl komið til Höfðaborgar frá Dui'ban fyrir mánuði, að hún væri tuttugu og fjögurra ára og fráskilin. Hún hafði leigt sér ibúð á Sjótanga bg var nú að svipast um eftir einhverri at- vinnu við sitt hæfi. Hún hafði ekkert unnið þessi tvö ár, sem hún hafði verið gift, svo að það væri viðbúið, áð hraðritunin og vélritunin hjá henni væri nokk- uð farin að ryðga — og hefðu nú reyndar aldrei neitt góðar verið, sagði hún, svo að hún var að hugsa um að fara á námskeið til þess að laga hvorttveggja til. Eg spurði, hvernig hún þekkti Roibertshjónin og hún sagðist hafa þekkt þau endur fyrir löngu í Durban, áður en hún giftist, en þá hefði þau verið vön að koma þangað frá Ród- esíu í sumarleyfinu sínu. Mér skildist hún hafa farið frá Durban af því að hún vildi ek'ki vera þar áfram eftir að hún var skilin við manninn — en það skildist mér hafa vakið tals- verða eftirtekt og kjaftasögur, enda þótt hún segði það ekki beinlínis. Svo spurði hún mig um mína persónu, og ég sagði henni það lítið sem var að segja. Þetta sam tal ásarnt frammítökum og skrafi við aðra hlýtur að hafa tekið klukkustund, enda þótt mér fyndist það ekki nærri svo langur tími. Allt í einu var kom- inn heimferðartími og meira að segja voru ein eða tvenn hjón þegar farin — en við héldum áfram að tala, eða öllu heldur ég. Eg hafði snúið mér við til þess að taka við nýju glasi af bak'ka hjá stúlkunni, sem gekk um beina, og þegar ég hafði bætt í það vatni, sneri ég mér aftur að Jane og var enn að tala. En ég sá, að hún hlustaði ekki, heldur horfði yfir öxlina á mér. Eg stanzaði í miðri setningu og leit við til að sjá, hvað henni þætti svona eftirtektarverðara en ræða min: Það var Ted Car- penter. I>au horfðust í augu yf- ir þvera stofuna, rétt eins og eitthvert band væri milli þeirra, ósýnilegt öllum öðrum en þeim sjálfum. Líklega hefur hún orðið þess vör, að rödd mín suðaði ekki lengur í eyrum hennar, bví að hún flýtti sér að líta til mín og segja brosandi: Fyrirgefið hvað ég er dónaleg. Það var ekki það. Hafið þér ekki hitt Ted? Heitir hann það? Ted, hvað? Carpenter. Konan hans er þessi með hvíta hattinn. Hún leit ekki einu sinni á Penny. Annað hvort hafði hún þegar hitt hana, eða kærði sig alveg kollóttan um hana. Ted kom nú til okkar rétt eins og segull hefði dregið hann yfir þvert gólfið og ég kynnti þau. Hann byrjaði á að spyrja hana nokkurnveginn sömu spurning- anna og ég hafði áður gert, að- eins nokkru nákvæmar. Eg lét þetta gott heita í svo sem tvær minútur, en þá yfirgaf ég þau og fór yfir til Robertdhjónanna en það hefði ég átt að gera löngu áður ef ég hefði kunnað nokkra mannasiði. Penny var hjá þeim og svo skröfuðum við góða stund, en þá leit hún á klukkuna og greip andann á lofti. Guð minn góður! Við ætt- um að vera farin fyrir æva- löngu! Steve brosti og sagði í hálfum hljóðum: Hvaða vitleysa, góða mín. Verið þið róleg svolitla stund enn. Kona hans sendi hon- um hvasst augnatillit; það var greinilegt, að hún samsinnti Penny, að samkvæminu ætti að fara að verða lokið. Penny reyndi að gefa ! skyn, að hún hefði ekkert vitað, hvar Ted var, og svO renndi hún aug- unum kring um salinn og kom auga á hann. Þá brosti hún — óþarflega glaðlega, að mér fannst, og kallaði til hans: Góði Ted! Farðu að koma! Það er orð- ið svo áliðið. Ted kom svo með Jane og kynnti hana konu sinni. Penny leit á hana brot úr sek- úndu áður en hún heil*aði á móti. En gaman! Eigið þér heima hérna? Jane sagði henni, að svo væri ekki, heldur ætti hún heima niðri á Sjótanga, og mér fannst af augnatilliti Penny, að henni létti við þá fregn. En hún sagði. En hvað það var leiðin- legt! Það er óralangt í burtu, er það ekki? Rétt eins og hún vissi ekki hvar Sjótangi væri! Hún var fædd þar skammt frá og hafði gengið í skóla ennþá nær staðnum! Hún tók nú í hand- legginn á Ted. Jæja, nú verðum við að fara! Þakka ykkur fyrir þetta ágæta kvöld! Ted kinkaði kolli. Já, það var ágætt. Þakka þér fyrir, Steve. Svo kvaddí hann húsmóðurina. Þið komið svo í næstu viku, er það ekki? Hann leit rétt sem snöggvast á Jane, eins og hann hefði langað að bjóða henni Hka. En hann hafði ekkert svigrúm til að finna réttu aðferðina til að koma orðum að því, af því að Penny var farin að toga í handlegginn á honum og draga hann í áttina að dyrunum. Og hann elti hana. Einu sinni leit hann til baka, og á Jane en eng- an annan, og hún veifaði' ofur- lítið hendi til hans..hann brosti .. og svo voru þau farin út í bíl- inn sinn, rétt eins og þau hefðu alveg gleymt að bjóða mér far. Henningshjónin voru þama enn. Þau áttu heima einhvers staðar rétt hjá Sjótanga og höfðu komið með Jane með sér, og ætl- uðu nú að flytja hana heim aftur. Mér datt í hug, að þau þrjú ætl- uðu kannske að borða þarna kvöldverð, svo að ég flýtti mér að þakka fyrir míg. En þá sagði kona Steves: Komstu ekki með Carpenter-hjónunum? Ég jánkaði því. Jú en það ger ir ekkert til. Ég hef ekki nema gott af að ganga þennan spöl. Hún spurði, hvort ég vildi ekki láta Steve skjóta mér í bílnum sínum, en ég endurtók, að ég vildi heldur ganga, og að ég hefði gengið báðar leiðir, ef Carpenterhjónin hefðu ekki endi lega viljað taka mig með sér. Svo kvaddi ég Henningshjónin og sneri mér að Jane. Verið þér sælar. Jú, augun 1 henni voru græn. Verið þér sælir. Ég vona, að við sjáumst aftur. Sem snöggv- ast varð ég hissa, en mundi þá, að hún vissi líklega, að ég bjó rétt hjá Carpenterhjónunum. X- X- * GEISLI GEIMFARI * X- Xr rt Ef þú vilt koma með mér, Gengin prófessor, skal ég sýna þér fundarherbergi nefndarinnar frá Aspen. Allt í einu snýr Gengin prófessor sér leiftursnöggt við og grípur byssu sína.... — Augnablik, Geisli höfuðsmaður’ .... Haltu þér frá þessari eldflaug dr. Dracos .... Annars hika ég ekki við að nota byssuna! Já, það vona ég líka. Má ég hringja í yður? Það væri indælt. Það var ekki annað að heyra en hugur fylgdi máH, og ég tók eftir, að Henn- ings leit á mig augum, sem öf- und, ef ekki afbrýðisemi, skein út úr. Steve fylgdi mér út fyrir dyr. Við staðnæmdust þar úti, við hliðina á fína bílnum hans Hennings, og ég sagði: Þakka þér fyrir Steve, þetta var ágætis kvöld. Hvaða vitleysa. Hann var eitt- hvað vandræðalegur. Þú hefur ekki einu sinni fengið símanúm- erið hennar er það? Ég hristi höfuðið. Mér datt I hug, að ég gæti fengið það hjá þér....ef á þyrfti að halda. — Harm starði enn á mig með áhyggjusvip, þegar ég lagði af stað niður brautina í áttina til vegarins. Ég gat ekki skilið þenn an ákafa hans að fleygja mér og stúlkunni hvoru í annars faðm, og einkennilegt var, að hann skyldi þá ekki hafa boðið mér að bíða kvöldverðarins. Þá hefði að minnsta kosti ekki staðið á stöku við borðið. Ef til vill fannst honum og konu hans það bera vott um fullmikið bráðlæti. En hvað um það: það hefði að minnsta kosti verið þýðingar- laust. Ted rakst inn í kofann til min næsta kvöld. Ég sá, að hann var í æsingi, sem hann var að reyna að dylja. Ég heilsaði honum, eins og venjulega og sýndi ekki á mér neina undrun, en setti fram vínflösku og tvö glös. Ég var vanur að fá þetta vín á gallóns-brúsum og svo hellti ég úr hverjum brúsa í sex flöskur, af því að það geymdist ekki eins vel í brúsunum. Vínsalan þarna í nágrenninu hafði margar teg- undir á boðstólum, sem ég kunni vel við, svo að ég átti alltaf birgðir af því og drakk aldrei annað, og þetta vín sem þarna var kallað Chianti, kostaði ekki nema nokkra aura flaskan. Þetta var gott samkvæmi f gærkvöldi. Hann horfði á mig um leið og hann sagði þetta, og ég vissi alveg, að bráðum faeri hann að tala um stúlkuna. Hún tók allan hug hans, það sá ég I VIÐ MÆLUM MEÐ j g DUOingana SHlItvarpiö Laugadagur 16. Júní. 8.00 Morgunleikfimi (Bæn. Tónleik* ar — 8.30 Fréttir — 8.35 Tón« leikar. — 10:10 Veðurfregnir). 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar —• 12.25 Fréttir og tilkynningar), 12.55 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. — (15.00 FrétN ir). 15.20 Skákjþáttur (Guðmundur Arn« laugsson). 16.00 Framhald laugardagslaganna. 16.30 Vfr. — Fjör í kringum fóninnj Úlfar Sveinbjörnsson kynnir nýjustu dans- og dægurlögin. 17.00 Fréttir. — Þetta vil ég heyras Guðmundur Pétursson símritari velur sér hljómplötur. 18.00 Söngvar 1 léttum tón. 18.30 Tómstundaþáttur barna og ung« linga (Jón Pálsson). 18.55 Tilkynningar. — 19.20 Veður« fregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Upplestur: „Póstkortið\<“ srrtá- saga eftir R. K. Narayan, þýdd a£ Drífu Viðar (Róbert Arn« finnsson leikari). 20.20 Sönglög og hljómsveitarverkj a) Beniamino Gigli syngur ítölsk lög og aríur. b) Sinfóníuhljómsveitin í Minna apolis leikur svítuna „Iberia" eftir Albéniz; Antal Dorati stjórnar. 21.15 Leikrit: „Kvöldið, sem ég drap Georg“ eftir M. C. Cohen, í þýðingu Hjartar Halldórssonar. — Leikstjóri: Indriði Waage. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög. — 24.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.