Morgunblaðið - 16.06.1962, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.06.1962, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 16. júní 1962 1937 * BOKMENNTAFÉLACIÐ MÁL OC MENNINC - 1962 AFMÆLISÚTGÁFA í haust í viðhafnarbúningi - Tólf bækur eftir Þjóðkunna ísllezka höfunda Að .ví tilefni að bókmenntafélagið Mál og menn- ing verðu 25 ára 17. júní í áx hefur stjórn félags- ins og íélagsráð ákveðið að stofna til afmælisút- gáfu og hefur fengið til samstarfs nokkra helztu rithöfunda og skáld þjóðarinnar sem leggja til í þessa útgáfu ný frumsamin verk. Stjórnin vill að á útgáfu þessari sé myndarbraugur, að það fari sam- an fjölbreytileg verk eftir góða höfunda og vönduð bókagerð, svo að útgáfan verði félaginu til sóma og að allir sem hana fá í hendur hafi ánægju af að eiga hana og varðveita. Allar bækurnar verða eftir íslenzka hófunda og verður leitað aðstoðar fremstu bókagerðar- og listamanna til að gera á þær kápur og sjá um útlit þeirra. Bækurnar sem Mál og menning hefur verið svo heppin að fá í áfmælisútgáfuna eru þessar — (tolfta bókin verður ákveðin síðar): Þórbergur Halldór Einar Kiljan Þórbergur Þórðarson: Minningar úr Unuhúsi. Skrásettar eftir Stefáni frá Hvítadal. Unuhús var annað heimili margra íslenzkra skálda og listamanna áratugum saman. Um þetta merkilega hús hafa margir íslenzkir rithöfundar skrifað, en einkum um þá „akademíu og veizlu“ sem þar stóð á þriðja og fjórða ára- tug aldarinnar. Minningar þær sem Þórbergur Þórðar- son skráði eftir Stefáni frá Hvítadal 1923 má hinsvegar segja að fjalli um forsögu þessa skáldahúss, því þar er greint frá íbúum þess á ár- unum fyrir 1910. Jón Hc-lgason: Tuttugu erlend kvæði, þýdd og stæld. Af uxxdirtektum þeim að dæma sem Jón Helgason hlaut þegar hann las úr þessum ljóðaþýðingum í vor, er ó- hætt að fullyrða að Tuttugu erlend kvæði verði á sína vísu annar eins bókmenntaviðburð- ur og fyrsta útgáfa frumsam- inna ljóða Jóns fyrir tuttugu og þremur árum. Meðal margra dýrgripa þessarar bókar er sérstök ástæða til að benda á f jögur. af fræg- ustu kvæðum Francois Vill- ons, sem verða nú í fyrsta skipti aðgengileg íslenzkum almenningi. Gunnar Rannveig Sverrir Halldór Kiljan Laxness: Prjónastofan Sólin. Nýtt leikrit. Halldór Kiljan hefur nú hvílt sig um stund frá sagna- gerð, en ryður sér kappsfull- ur nýja braut í leikritasmíð, og þar er ekki síður haft á honum vakandi auga. Stromp- leikurinn olli miklu umróti í hugum leikhússgesta. Prjóna- stofan Sólin er flóknara leik- rit, öldin í grímubúningi, heimsviðburðir í hnotskurn, ragnarök gerast og líða hjá. Þessa leikrits er beðið með nýrri eftirvæntingu. Gunnar Benediktsson: Skriftamál uppgjafa- prests. f þessari bók eru elztu fyr- irlestrar og ritgerðir Gunnars Benediktssonar, frá þeim ár- um þegar orðið var of þröngt um hann innan kirkjunnar og hann hóf boðskap sinn um réttlæti í þjóðfélaginu. Margir minnast þess umróts sem þessar ritgerðir ollu á sínum tíma, en þær hafa ekki birzt áður í bókarformi. Bókin er helguð sjötugsafmæli höfund- Jóhannes úr Kötlum: Ný ljóðabók. Síðasta ljóðabók Jóhannes- ar úr Kötlum, Sjödægra, flutti með sér algera endurnýjungu á ljóðastíl hans. Með þessari bók brýtur skáldið enn nýtt land, og er þó skeleggur og óhlífinn sem jafnan fyx-r. Halldór Stefánsson: Blakkar rúnir. Smásögur. Eftir að hafa gefið út 2 skáld sögur á undanförnum árum kemur Halldór Stefánsson nú aftur að sérgrein sinni, smá- sagnagerðinni. í bókinni eru tíu sögur. Stefán Jónsson: Vegurinn að brúnni. Skáldsaga. Þessi nýja skáldsaga Stef- áns Jónssonar er mikið verk, sem höfundur hefur unnið að síðustu árin. í sögu tveggja bræðra sem vaxa upp eftir fyrri heimsstyrjöldina, eru ofnir þættir úr örlögum þeirr- ar kynslóðar sem lifði þroska- ár sín á krepputímunum. Einar Olgeirsson: Vort land er í dögun. Útdrættir úr ritgerðum. Björn Þorsteinsson annast út- gáfuna. Inngangur eftir SveiTÍ Kristjánsson. Enginn á frjórri hugmyndir en Einar Olgeirsson um fram- tíðarþjóðfélag fslendinga. í þessari bók birtist kjarninn úr ritgerðum hans um fram- kvæmd sósíalisma og lýðræð- is, nýsköpun íslenzks þjóðfé- lags og um þjóðfrelsisbaráttu fslendinga. Bókin er gefin út Jón að tilefni sextugs afmælis höfundar. Sverrir Kristjánsson: Ræður og riss. Fáir íslenzkir ritgerðahöf- undar hafa kunnað betur en Sverrir Kristjánsson að ydda orð sín og senda skeyti sín beint í mark; og fáir standa jafn föstum fótum í jarðvegi húmanískrir arfleifðar sem hann. Það er því ekki von- um fyrr að gefið er út úr- val greina hans um menn og málefni, pólitík og bókmennt- ir síðustu tuttugu ára. Rannveig Tómasdóttir: Andlit Asíu. Ferðasaga. í þessari bók bregður hinn víðförli höfundur upp mynd- um frá Indlandi, Nepal, Ceyl- on, Kambodia, Taílandi, Uzbek istan og Kazakstan, hefur lagt leið sína um frumskóga, eyði- merkur og upp að rótum Himalaya. Barbara Á. Árna- son skreytir bókina í austur- lenzkum stíl. Elztu hetjukvæði Eddu. MeS inngangi og skýringum eftir JÓN HELGASON. Færra en skyldi hefur verið ritað um eddukvæði handa ís- lenzkunx almenningi. Jón próf essor Helgason er kunnur að djúpstæðri þekkingu á forn- um skáldskap og engu síður að sérstökUm hæfileikum til að miðla lesendum af henni. ÍSsfes Jóhannes Ákveðið hefur verið að afmælisútgáf- an verði í aðeins 500 eintökum og seljast allar tólf bækurnar í einu lagi. Af þessum 500 eintökum afmælisútgáf- unnar verða 100 eintök í sérstaklea vönduðum búningi, tölusett og árituð af höfundum, og ætluð vandfýsmxm bóka- mönnum og bókasöfnurum. Hin 400 eintök afmælisútgáfúnnar verða seld ínnbundin í góðan shirting, allar tólf bækumar á kr. 2.400.— eða 200 kr. bókin að meðaltali. Þær fást líka heftar á kr. 2.000.— og ib. í skinn á kr. 2.720.— Safnað verður kaupendum fram til 1. sept. n.k. Hér verður um að ræða einstaka sögu- lega utgáfu á bókum eftir þjóðkunna höf- unda. Tekið á móti áskrifendum að afmælis- útgáfunni í skrifstofu og bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18, 3. hæð, símar 22973 og 15055. Skrifstofan verður opin kl. 2—10 e.h., laugardag og sunnudag. Stefán

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.