Morgunblaðið - 20.06.1962, Blaðsíða 8
8
MORGU'NBLAÐliy
Miðvikudagur 20. júní 1062
Kveðjustund við
m.s. Gullfoss
— ÞAÐ er alveg undir far-
þegunum komið, hvað haegt
er að gera sér til gamans á
þjóðhátíðardaginn hér um
borð.
Við erum staddir um borð í
m/s Gullfossi og það er skip-
stjórinn, Kristj án Aðalsteins
son, sem kemst þannig að orði.
__ Oft hafa verið hér
kunnir og færir ræðumenn,
sem þá hafa haldið þrum-
andi ræður yfir fanþegunum,
minnzt ættjarðarinnar og lát-
ið íslenzka lýðveldið lifa. Ég
er ekki enn búinn að kynna
mér farþegaskrána, svo ég veit
ekki hvað við getum gert á
morgun, en ef að vanda læt-
ur verður einhver orðhagur
maður með í förinni og þá er
ræðuhöldunum borgið. Síðan
verður að líkindum borinn
drykkur og skálað fyrir fóst-
urjörðinni.
Þetta er laugardaginn 16.
maí, klukkan er að byrja að
ganga þrjú og það er búið að
loka umferð fyrir allan al-
menning um borí í m/s Gull-
foss. Við fáum þó góðfúslegt
leyfi útlendingaeftirlitsins til
þess að bregða okkur um
borð og þar hittum við Sigur
laug Þorkelsson, yfirmann far
þegadeildar Eimskipafélags-
ins, og Kristján skipstjóra. í
stuttu rabbi við þá félaga ber
ýmislegt á góma, bæði fróð-
legt og skemmtilegt.
— Gullfoss hefur nú siglt
milli Reykjavíkur, Leith og
Kaupmannahafnar í 12 ár.
Hann hefur flutt nálega 74 þús
und farþega á milli landa á
þessum tíma. Þegar Gullfoss
lét úr höfn á laugardaginn
var var þetta 220 ferð hans
frá Reykjavík til Kaup-
mannahafnar. f þessari fyrstu
raunverulegu sumarferð árs
ins voru 209 farþegar með
vegna óvæntra afcvika. Segja
má að í hverri ferð losni fleiri
og færri rými, enda þótt hvert
einasta rúm í ferðinni hafi
verið upppantað löngu fyrir-
fram. Ég get til dæmis getið
þess, að í næstu ferð Gullfoss
var hvert rúm skipað fyrir
nokkru, en þær breytingar
hafa þó orðið að nú eru
nokkur farþegarúm laus,
bæði á 1. og 2. farrými. Það
hendir einnig oft, að far-
þegarúm eru laus fró Reykja
vík til Leith, enda þótt öll
farþegarúm séu seld til Kaup
mannahafnar. Þetta stafar af j
því, hve geysileg eftirspurn er I
eftir farþegarýmum á leið- l
inni milli Leifch og Kaup- (
mannahafnar og verður jafn-
aðarlega að neita mörgum um
far milli þessara staða, segir
Sigurlaugur.
— Af þessu má sjá, að enn
þá er það stór hópur manna,
sem vill sjóferðina fremur en
flugferðina og bendir allt til
að svo muni verða, a.m.k. í ná-
inni framtíð. Til þessa kunna
að liggja góðar og gildar á-
stæður, þá ekki hvað sízt að
við íslendingar eru sjóelsk
þjóð. Svo vilja menn gjarnan
hverfa frá önn dagsins og
njóta tilbreytingarinnar fró
hversdagslífi borgarinnar með
því að sigla út á haf og njóta
þar langþráðrar hvíldar í
tæru og hollu sjávarloftinu.
Margir njóta þess einmitt
hvað bezt að hvílast á sjóferð-
um, og ekki hvað sízt þegar
fram er borinn bæði góður mat
ur og drykkur og hverskonar
viðleitni sýnd til að gera far-
þegunum lífið sem léttast og
þægilegast. Og þeir munu
margir sem eiga Ijúfar endur-
minningar hér með Gullfossi,
bætir Sigurlaugur við.
— Margur farþeginn hefði
óskað að ferðin hefði ekki
tekið svo skamman tíma sem 1
raun ber vitni. Á meðan svo I
Frá brottför Gullfoss sl. laugardag.
skipinu og mátti því heita að
þar væri hvert rúm skipað.
— Það hafa vissulega orðið
miklar breytingar á-farþega-
flutningum milli íslands og
annarra landa frá því að Gull
foss hóf ferðir sínar. Flug-
ferðir eru nú daglega og gjarn
an oftar en eiriu sinni á dag,
einmitt á sömu flutningaleið
Og Gullfoss heldur uppi. Þetta
hefur þó, þótt undarlegt
megi virðast, ekki haft þau
áhrif að dregið hafi úr að-
sókn að ferðum með Gullfossi,
segir Sigurlaugur Þorkelsson
okkur. Það má heita að full
skipað sé í allar ferðir Gull-
foss í allt sumar.
— Ég vil samt geta þess,
að jafnan verða mjög miklar
breytingar á ferðabókunum.
Fólk frestar för sinni, gerir
nýjar ferðaáætlanir eða hætt-
ir jafnvel alveg við förina
er, er hætt við að fleiri vilji
fá far en hægt er að flytja.
Ur því má ætla að rætist,
þegar fólki skilst betur en orð
ið er ennþá, að heppilegasti
tíminn til utanferðarinnar er
alls ekki á þeim tíma sem
sumarsólin er hér hlýjust og
hæst á lofti norður við heims
skautsbaug. Heppilegasti utan
farartíminn er gjarnan
snemma vors eða síðla sum.ars
eða hausts svo ekki séu nefnd
ar hinar ódýru vetrarferðir,
sem boðið er upp á með skip
inu. Þetta er rétt fyrir þá að
hafa í huga sem ætla að
bregða sér til suðlægari
landa.
Það líður óðum að brott-
för Gullfoss. Við verðum að
skunda í land sem fyrst. Því
miður eigum við þess ekki
kost að þessu sinni að sigla
með þeim ágæta farkosti.
STÚDENTARNIR sem braut-
skráðust frá Menntaskólanum á
Akureyri. Stúlkurnar myiiida staf
ina MA í myndinni.
Stúdentamir eru, taldir frá
vinstri, fremsta röð:
Cesil Haraldsson, örn Höskulds-
son, Tómas Sveimsson, Björn
Finnsson, Sigurður Guðmunds-
son, Sveinbjörn Vigfússon, Magn
úr Thorlacius, Egill Egilsson,
Leo Kristjánsson, Kristján Kristj
ánsson (tvíburar), Halldór Gunn
arsson, Brynjólfur Sæmundsson,,
Sveinn Sæmundsson. Atli Bened
iktsson, Ástráður Hreiðarsson,
Hreiðar Magnússon. önnur röð.
Guðmundur Jóhannsson, Jósef-
ína Hansen Guðmundur Sigur-
þórsson, Sæmundur Þóroddssoni,
Anna Gunnarsdóttir, Hreinn
Pálsson, Arnaldur Árnasom, Ólöf
Blöndal, Sveinn Þórarinsson,
Þóra Steinunn Gísladóttir, Þór
hallur Höskuldssoni, Hörður Þor
leifsson, Einar Kristinsson, Þor
björg Haraldsdóttir, Ingólfur Ge
orgsson. Þriðja röð: Karl Ragn-
ars, Ragnheiður Gestsdóttir, Guð
mundur Eiríksson, Edda Sniorra-
dóttir Björn Fr. Björnsson,
Gígja Friðgeirsdóttir, Herbert
Marinósson, Guðmundur Agnars-
son, Magnús Hallgrímssoni, Hrafn
hildur Jónsdóttir, Svanfríður Lar
sen, Helga María Aðalsteinsdótt
ir, Margrét Guðmundsdóttir, Ás
geir Árnason, Fjórða röð. Helgi
Einarsson, Ingi Jón Einarsson,
Helga Möller, María Þorsteins«
dóttir, Páll Inigólfssson, Laufey
Þorbjarnardóttir, Margrét Erl-
endsdóttir, Jóhann Ólafsson,
Steingrimur L. Bragason, HeJgi
Frímann Magnrisson, Ragnheið-
ur Heiðreksdóttir, Björn Teits-
son, Margrét Loftsdóttir, Jóhann
Sigurjónsson, Uni Björmsson.
Fimmta röð: Sigurður Hjartarson
Baldur Árnason. Anna Inger Ey
dal, Magniús Ingólfsson, Haralaur
Finnsson, Ólína Torfadóttir, Loft
ur Ólafsson. Tryggvi Finnsson,
Halldór Friðgeirsson, Gyifi Svav
rasson, Jóna E. Burgess, Stefan
ía Stefánsdóttir, Karl Kristjáns
son, Hermann Ásgeirsson.
Ljósm. St.e. Sig
74 stúdentar braut-
skráðir á Akureyri
AKUREYRI, 19. júní. — Mennta
skólanum á Akureyri var slitið
17. júní og voru brautskráðir
frá skólanum 74 stúdentar, en
það er stærsti hópurinn, sem
komið hefur frá þessum skóla.
Á sl. hausti voru innritaðir í
skólann 455 nemendur, en nokkr
ir þeirra helltust úr lestinni í
vetur vegna veikinda og ann-
arra orsaka og gengu því nokkru
færri undir próf.
19 Akranes-
bátar fara
á síld
i
AKRANESI, 19. júní — Fimm
trillubátar héðan hafa sótt um
leyfi til dragnótaveiða. Fyrsta
róðurinn fóru þeir í fyrradag.
Aflahæstur varð Haflþór með
2800 kg. Hinir fiskuðu frá 1500
til 1600 kg á trillu. I morgun
komu þeir úr öðrum rþðrinum.
Hafþór var hæstur með eina lest.
Ágæt hrognkelsaveiði er hér.
100 stykki og vel það í lögn.
Grásleppuhrognin hafa selzt og
seljast enn.
Ásgeir Guðmundsson, Mána-
braut 6, kaupir bau á 4 kr. kg.
19 bátar' munu fara héðan norð
ur á síldveiðar og eru allir til-
búnir til að fara strax, nema
nýr bíjtur Sigurður Hallbjarnar
son h.f., sem verður tilbúinn um
mám. ðamót.
Hér var Ellen Helleskov,
danskt skip, í gser og lestaði 300
lestir af síldarmjöli, svo og
Dísarfellið, er lestaði 600—700
lestir af sementi/ er það flytur
á Norðurlandshafnir. Lagarfloss
kom hingað í dag og lestar freð
fisk. — Oddur.
Við skólaslitin gat skólameist-
ari, Þórarinn Björnsson, þess að
þrengsli væru orðin mikil í
skólanum og einnig í hinni nýju
heimavist. Væri nú svo komið
að ekki væri unnt að taka við
öllum þeim fjölda sem um skóla
vist sækti.
Margir eldri stúdentar voru
mættir við skólaslitin, en eink-
um fjölmenntu 10 og 25 ára
stúdentar. Af hálfu 25 ára stúd-
enta talaði Erlendur Konráðs-
son, læknir, og afhenti hann
skólanum að gjöf fyrir hönd
þeirra félaga málverk af söng-
kennara skólans á þeirra tíma,
Björgvini Guðmundssyni, tón-
skáldi. Kvað hann 25 ára stúd-
enta hafa verið sérlega söng-
elska á skólaárunum, og mundu
fáar bekkjadeildir hafa sótt
söngkennslu jafn vel og þeir.
Málverkið gerði einn af 25 ára
stúdentunum, Sigurður Sigurðs-
son, listmálari.
AKUREYRI, 18. júní — Að
þessu sinni var 17. júní heldur
kaldranalegur, rigning og þoka
fram eftir degi, en upp úr há-
deginu birti til og um kvöldið
varð sólskin og úrkomulaust. —
Upphaflega hafði verið ákveðið
að hátíðahöld færu fram á Ráð
húsfcorgi og við sundlaugina. Um
hádegi var öllum þessum há-
tíðahöldum aflýst, en þess í stað
ákveðið að öll samkomuhús bæj
arins skyldu verða opin til dans
leikja um kvöldið.
Er veðrið batnaði síðdegis, var
Af hálfu 10 ára stúdenta tal-
aði Stefán Stefánsson, verk-
fræðingur. Afhenti hann skól-
anum frá 10 ára stúdentum
hljómplötusafn og taldi skóla-
meistari það mjög kærkomið,
þar sem fyrir v.æri í setustofu
skólans vandaður plötuspilari en
lítið til af plötum.
Hæstu einkunn í stærðfræði-
deild og jafnframt yfir allan
skólann hlaut Leó Kristjánsson
frá ísafirði, 9.54, en það er
hæsta einkunn sem náðst hefur
við stúdentspróf hér. Áður hafa
tveir stúdentar hlotið þessa
sömu einkunn. — 1 máladeild
hlaut hæstu einkunn Bjarni
Finsen frá Akranesi, 9.15. Að
þessu sinni luku 33 prófi úr
stærðfræðideild, en 41 úr mála-
deild. — Stefán.
New York, 15. júní. — (AP)
TALSVERT verðfall varð á
kuphöllinni í New York í
dag, sérstaklega framan af.
Er líða tók á daginn fór verð
á nokkrum hlutabréfum hins
vegar hækkandi. Dow-Jones
vísitalan stóð mjög neðar-
lega lengst af, var lægst I
um 560 stigum, en hækkaði
undir lokin. Verðhækkun
síðustu tvo tímana var meiri
en dæmi eru til um langt
skeið.
þó ákveðið að hafa nokkur há-
tíðahöld á Ráðhústorgi og var
flutt þar það helzta úr dagskrán
um, sem áttu að vera við sund-
laugina og á Ráðhúsfcorgi. M.a.
söng Karlakór Akureyrar, Lúðra
sveit Akureyrar lék, ávarp Fjall
konunnar flutti frk. Ingibjórg
Magnúsdóttir yfirhjúkrunarkona
og var ávarpið frumsamið. Auk
þess voru skemmtiþættir úr bæj
arlífinu o.fl. Ekki var dansað á
Ráðhústorgi að þessu sinni, þó
að veður leyfði það og hefur það
mælzt illa fyrir. — Stefán.
Hátíðahöldum á Akur-
eyri frestað til kvöids