Morgunblaðið - 30.06.1962, Blaðsíða 5
Laugardagur 30. júní 1062
MORCVNBLAÐ1Ð
5
FRAMLEILSLUHÆSTA
frysli'hú.sið innan S.H. árið
1061 var ísbjörninn h.f., Rvík.
— í því voru framleidd sam-
tals 4.206 tonn af frystum
fiskafurðum, þar af var bol-
fiskur, annar en síld, flatfisk-
ur o.fl. 2.741 tonn og fryst
síld til útflutnings 1.555 tonn.
— f frystihúsinu starfa 50 til
150 manns. Fer það að sjálf
sögðu eftir því hversu mik-
ið berst að af hráefni. —
Frystihúsið er hluti af stórri
vinnslustöð, sem Ingvar Vil-
hjálmsson, útgerðarmaður á,
en í henni er einnig unnin
skreið, saltfiskur og srld.
Verkstjórar eru: í frystihús-
inu, Guðm. Guðmundsson og
Páll Guðmundsson; við skreið
ar- og saltfiskframleiðsluna:
Pétur Guðruundsson og Ósk-
ar Sigurðsson.
Jörð heitir með möimurn,
en með Ásum fold,
kalla vega Vanir,
ígræn jötnar,
álfar gróandi,
kalla aur uppregin.
(Úr Alvíssmálum).
Læknar íiarveiandi
’ Árni Björnsson 29. 6. í 6—8 vikur.
(Einar Helgason sama stað kl. 10—11).
Eggert Steinþórsson 29. 6., í 2 vikur.
(Þórarinn Guðnason).
Esra l*étursson um óákveðinn tima
(Halldór Arinbjarnar).
Eyþór Gunnarsson 18 júní til 2.
Júlí. (Victor Gestsson).
Guðjón Klemenzson, Njarðvíkqm
til 2. júlí. (Arinbjörn Ólafsson, Kefla-
Vík).
Hannes Finnbogason 15. júní til 1.
Júlí (Guðjón Guðnason).
Jón Hannesson til lj. júlí. (Stefán
Bogason).
Jóhannes Björnsson 29. 6. í 3 vikur.
(Grínhur Magnússon eina viku, Gísli
Ólafsson 2 vikur).
Jónas Sveinsson til júlíloka. —
(Kristján Þorvarðsson í júní og Ófeig
ur Ófeigsson í júlí).
Kristján Jóhannesson um óákveðinn
tíma (Ólafur TSinarsson og^Halldór
Jóhannsson).
Magnús Ólafsson til 3. júlí. (Daniel
Guðnason Klapp. 25 sími 11228).
Ólafur Einarsison í Hafnarfirði 30/6
til 8/7. (Halldór Jónsson).
Ólafur Geirsson til 25. júlí.
Ólafur Helgason 18. júní til 23. júlí.
(Karl S. Jónasson).
Pétur Traustason 17. júní í 4 vikur.
(Bergsveinn Ólafsson til 1. júlí. Skúli
Thoroddsen).
Sveinn Pétursson um óákveðinn
tíma. (Kristýán Sveinsson).
Tryggvi Þorsteinsson frá 15. júni
í tvo mánuði (Ólafur Jónsson Hverfis
götu 106).
Valtýr Albertsson 2/7 til 10/7.
(Jón Hjaltalín Gunnlaugsson).
Þórður Möller frá 12. júní í 4—6
vikur (Gunnar Guðmundsson).
ÞAÐ má meö sanni seigja, aö
nú láta menníngarvitar vorir
skammt stórra högga milli, þó
Helgisœm sé búinn aö vera t
útlandinu og á Akureyrí og
Jobbi sjálfur hafi veriö á
flandri millr bræöraþjóöa okk-
ar í Fœreyjum og Þingeyjarsýslu.
Auövitaö vœri Jobba sœmst aö biöja heimsmenníng-
una afsökunar á því, hvaö hann hefur veriö óskaplega
hundlatur aö rita nienníngarpistla á þessu flandri sínu, en
hann hefur sér þaö þó kanski til einhverrar afbötunar, aö
hann lá í vor hundflatur í innflúensu og vœnum skammti
af fylgikvillum í þrjár vikur takk.
Jœja, þá hefur hann Rósinkrans og hann Eigill
Bjarna og hann Svavar Gessss margsannaö af stnu ágœti
margprísuöu, aö menníngin er ekkert sérþingeyst eöa
borgfiskt fyrirbœri og þvísíöur bara rímorö. Fœ mér leidí
eöa mce fjer leidt eöa hvaö þeir nú annars kalla þaö í
Mösterinu er nebblega einkvur stórkostlegasta menníngar-
exibíssjón, sem mörlandanum hefur veriö boöiö uppá, og
gleymi ég þá ekki sjómannadagskábbarettinum sællar
minningar.
Þaö má þvi undarlegt teljast, aö aöskiljanlegir kalí-
berar skuli vera að aggnúast útí þýöínguna og soleiöis,
einsog hann Eigill hafi sosúm ekki þýtt óperettu fyrr, og
Jobbi seigir bara fyrir sig, aö ekki vildi hann skipta á
Aggli fyrir nokkra penínga og einkvurju tilgeröarvœli úr
Borgarfiröinum (Þó þeir Borgfiröíngar hafi samt átt
ekáld góö fyrr og síöan, svo sem Eigil Skalla, Bjarna
Brekkmann og fleiri.)
Ekki dugir aö vera of langoröur um Mösteriö. Þaö
mœlir með sér sjálft. Þó mœtti kanhski geta þess , fram-
hjáhlaupi, aö Skruggusveinn var ákaflega vel uppfœröur
og allt hans fólk, bœði Glasagudda og Ævar, og líka
skíöamaöurinn í peysunni (Ég er álvegvitáhreint búinn aö
steingleyma, hvaö hann heitir, enda íþróttir ekki mitt
spesíále, nema aö því leyti sem þær snerta menníngar-
lífiö.)
Kvöldiö áöur en ég hélt til Þórshábbnar var ég viö-
staddur menníngarviðburð, sem gefur viöleitni Rósinn-
kransa kannski ékki so mikiö ettir, en það var pró-
grammiö, sem hann Svavar Gessss arranséraði og presen-
téraöi í Austurbœjarbiói. Aöeins eitt þótti mér slœmt viö
þann listviöburö, og þaö var þaö, aö hann Skruggusveinn
skyldi álltaf vera að strita t Mösterinu og áldrei geta
skroppiö inm Austurbœjarbíó, einsog hann var líka míkiö
fyrir bállettinn og húllummhœiö.
(Ritað í mokkakaffi Þórshábbnar í mæ.)
+ Gengið +
2\ júní.
Kaup Sala
1 Sterlingspund .... 120,62 120,92
1 Bandaríkjadollar 42,95 43.06
1 Kanadadollar 39,66 39,77
100 Norskar kr 601,73 603,27
100 Danskar krónur .... 623,27 624,87
100 Sænskar kr 835,05 837,20
10 Finnsk -nörk 13,37 13,40
100 Franskir fr 876,40 878,64
100 Belgiskir fr 86,28 86,50
100 Svissneskir fr. .... 994,67 997,22
100 V-þýzk mörk .... 1076,90 1079,66
100 Tékkn. <fnur .... 596,40 598,00
100 Gyllini .... 1195,13 1198,19
1000 Lírur 69,20 69,38
100 Austurr. sch ... 166,46 166,88
100 Pesetar .... . .71.60 71,80
Þú skalt ekki fremja löst sakir
þess, að þú teljir hann svo lítilfjör-
legan, né vanrækja neina dyggð, af
því, að þú álítur hana svo smávægi-
lega.
— Kínverskt.
Máttur vor sést á því, hvað vér
getum gert fyrir aðra. Kæ^Ieikur
vor á hinu, hverju vér megnum að
fórna fyrir þá.
— E. N. Westcott.
Mikilmenni glatar aldrei einfald-
leik barnsins.
— Mencius.
MENN 06
= MALEFN!=
Viðar Alfreðsson trompet-
leikari fór í byrjun nóvember
sl. til London og dvaldist þar
við náim í 6 rnánuði. Kennari
hans var Mr. B. Brown. Einn
ig lék Viðar með sinfóníu-
hljómsveit BBC. Frá London
fór Viðar til Kaupmannahafn
ar í byrjun maí sl. og leikur
nú í 10 manna hljómsveit á
Ambassadeur í Kaupmanna-
höfn.
Viðar hefur í byggju að
dveljazt áfram erlendis og
hafa honum boðizt margar
stöður, en hann vill helzt
leika með sinfóníuhljómsveit
og bíður nú eftir að sæti losni
í góðri sinfóníuhljómsveit á
Norðurlöndum.
t
Dugleg stúlka vön sveitastörfum óskaist strax. Uppl. í síma 50496. Til sölu nýlegt borðstofusett (mag- hony), 6 stólar, borð og 2 skápar. UppL í síma 20296, Kaplaskjólsvegi 41,
Vil kaupa góða 3ja—4ra herb. íbúð á 1. eða 2. hæð. Uppl. í síma 36643. Bílskúr Óska eftir að taka bflskúr á leigu á góðum stað í bæn uim. Tilb. sendist afgr. Mbl. fyrir 2. júlí, merkt: ,,7128“.
Vil taka barn í fóstur
Trégirðingar með eða án uppsetningar. Upplýsingar í síma 23272. nokikra mánuði, gegn með- gjöf. Svar sendist Mbl. fyr- ir 4. júM, merkit: „Barngóð —7131“.
Gert við og fyllt á kæliskápa, kistur og kæliborð. Lyngholti 1, Garðahreppi. Sími 51126. Permanent litanir geislap>ermanent, — gtufu permanent og kalt perma- nent. Hárlitun og hárlýsing Hárgreiðslustofan Perla Vitastíg 18 A - Sími 14146
Hljó'elnangrunarplötur
Sænskar hljóðeinangrunarplötur
fyrirliggjandi. — Hagstætt verð.
Egill Árnason
Slippfélagshúsinu — Símar: 1-43-10 og 202-76.
Trilla
Til sölu 23 feta nýframbyggð trilla með 25 ha.
Universal mótor. — Upplýsingar í síma 11378.
Elnbýlishús
er til sölu við Miklubraut. Húsið er ný standsett.
Málflutningsskrifstofa
VAGNS E. JÓNSSONAR
Austurstræti .9 — Símar 14400 og 20480.
og 32147.
Frá bænd^skólanum á Hólum
Umsóknir til bændaskólans að Hólum eru nú að berast.
Skólinn getur tekið allt að 35 nemendur. Nauðsynle§t
er að umsóknir um búnaðarnám við skólann næsta
vetur, sendist sem allra fyrst til skólastjóra. Þar sem
fyrirhugað er hafa miðskóladeild við skólann verði
þátttaka í búnaðarnámi ekki nægilega mikil.
Árni G. Pétursson.
Sundnámskeið
Nýtt sundnámskeið fyrir börn og fullorðna í sundlaug
Austurbæjarskólans hefst mánud. 2. júlí.
Leyfið bþrnunum að læra sund
Upplýsingar í sima 15158 aðeins þessi eini sími.
JÓN INGI GUÐMUNDSSON, sundkennari.
Bílar fil sölu
Tilboð óskast í International 1% tonns og Volvo station
árgang 1960. *
Upplýsingar í FJÖWRINNI, Laugavegi 168.