Morgunblaðið - 30.06.1962, Side 10

Morgunblaðið - 30.06.1962, Side 10
10 MORGVWBLAÐIB Laugardagur 30. júní 1362 * * — Jón Snorrí skoðar endurnar á Tjörninni og lcs um leið það sem sagt er um þær í fuglabókinni. Fékk 10 í náttúrufræði - og f uglabok AB ÞEGAR JÓN Snorri Halldórs son, Bergstaðastræti 48A, kom heim til sín í hádeginu sl. mið vikudag, beið hans óvæntur gestur. Það var Guðmundúr Kjartansson, jarðfræðingur, sem afhenti honum verðlaun Hins íslenzka Náttúrufrseðifé lags fyrir bezta úrlausn í nátt úrufræði á landsprófi mið- skóla. Verðlaunin voru bókin „Fuglar fslands og Evrópu“, sem í daglegu tali er nefnd fuglalbók AB. Jón Snorri leit niður á rit stjórnarskrifstofur Morgun- blaðsins eftir vinnutíma í fyrradag. Hann vinnur til hálf átta á hverju kvöldi við íþróttavöllinn í Laugardal. — Hann er 16 ára gamall og lauk landsprófi við Gagnfræða- skóla Vesturbæjar í vor. — Gekk prófið ekki vel? spyrjum við hann. — Jú, jú, það gekk sæmi- lega, samþykkti Jón Snorri hæversklega. En er við höfð- vun rabbáð lengur við hann kom í ljós, að hánn hafði (hlotið 9,07 í aðaleinkunn. Upp áhaldsfag hans er náttúru- fræði og í þeirri námsgrein fékik hann tíu. — Náttúrufræðikennslan í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar er alveg prýðileg, hélt hann áfram, þó segja megi kannski að hún sé ekki nógu lifandi, eins og það er kallað. Við fá- um ekkert tækifæri til að fara í ferðalög með náttúrufræði- kennaranum og skoða til dæm is lifandi blóm o.fl., og verð um að láta okkur nægja mynd ir. — Er einlhver sérstök grein náttúrufræðinnar, sem þú hef ur áhuga á? — Nei, engin sérstök. Það væri þá helzt grasafræðin. Eg safnaði blómum eitt sinn um tíma, en er nú hættur því. Fyrir landspíóf lesum við bæði grasafræði, dýrafræði og lfkams- og heilsufræði og þyk ir mér jafngaman að öllum þessum námsgreinum. — En fúglafræði . . . — Kannski fæ ég brennandl áhuga á fuglum, þegar ég er búinn að lesa hana þessa, sagði Jón Snorri hlæjandi og hampaði verðlaunabókinni, og að öllum líkindum verð ég heilmikið fróðari. En því mið ur hef ég éklki haft tíma til að fletta henni enn, því ég hef verið að vinna frá því mér bárust þessi verðlaun. — Ætlar þú að halda áfram námi í haust? — Já, ætli það ekki. Eg hugsa að ég fari í Menntaskól ann og svo . . . Jón Snorri lauk ekki setn- ingunni. Nú kvaðst hann ekki mega vera að því að spjalla við okkur lengur, því hann væri á leiðinni í bíó með vin- um sínum. Við kvöddum þennan unga pilt og óskuð um honum til hamingju með verðlaunin og landsprófið. I Gestur Guðmundsson í DAG er til moldar borinn Gest- ur Guðmundsson bóndi að Ytri- Rauðamel í Hnappadalssýslu. Sl. sunnudag sótti hann kjörfund í sveitinni. Um kvöldið veiktist hann er heim kom og lézt að morgni mánudagsins 25. júní. Gestur fæddist að Grímsstöðum í Álftaneshreppi, Mýrasýslu 9. sept. 1878 og var því hátt á 84. aldursári. A Grímsstöðum ólst hann upp. Kona Gests er Ólöf Sveinbjarnardóttir. I Álftaneslhrepp áttu þau Rauðamels hjón, Ólöf og Gestur heima til ársins 1913 að þau fluttu vestur til Rauðamels. Þar hafa þau því „gert garðinn fræg- an“ í fjörutíu og níu ár. Börn áttu þau Ólöf og Gestur engin, en áður en þau giftust eignaðist Gestur son, Geir, tré- smíðameistara hér í Reykjavík. Bróðurdóttur Ólafar, Ingibjörgu feonu Friðjóns Jónssonar bónda Hofsstöðum ólu þau hjónin upp og kjörsonur þeírra, Jóhannes, er hafði tekið við búsforráðum, dó fyrir mörgum árum á léttasta áfeeiði. Mikill harmur var þá fcveðinn að þeim Rauðamels hjónum. Sálarþrek þeirra og vits munir dugðu þeim þá bezt, sem fyrr og síðar. Fyrir margra hluta sakir er og ' verður Gestur minnisstæður, og minnisatæðastur þeim er lengsta áttu meó honum samleið. Mér leyfist að geta þess, að ég tel nærfærni hans í umgengni við börn og unglinga alla tíð hafa verið til sérstakrar fyrir- myndar, en á þeim vandförnu leiðum vill verða brestasamt. Vegna þessara einkennandá mannkosta er mér minningin um hann dýrmæt. Og nú minnist ég þess að við nokkrir félagar um árabil nutum leiðsögn hans á sumarferðum ofetoar um Snæfellsnes og víðar. Betri ferðamann og fararstjóra varð ekki á kosið. Hann var hestavinur og hestamaður góður, átti enda löngum gæðinga, er við nutum óspartj eins og vísan béndir til: „Þú léðir mér hann Goða Gestur, greiðvikni þig aldrei brestur . . .“ Ólöf kona Gests kastaði frarn þessari vísu. Er hún hagmælt vel, sem kunnugt er. Við leiðarlok verður mörgum hugsað til skemmtilegra sam- verustunda að Rauðamel, þar sem húsum, réði skemmtinn, glaðvær, alvöru- og drengskapar maður við hlið sinnar góð-u konu. Ólöf átti þá líka til að festa augnablikið í stöku eða ljóð. Við ferðafélagamir sendum henni og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur og þakkir. Helgi Hallgrímsson. Róáir Óvenjuleg verðlækkun á blóm um. Rósir frá fer. 3,50 Nellikkubúnkt kr. 25. Blómstrandi Hawai-rósir. Gróðrastöðin við Miklatorg. Símar 22822 og 19775. Slgnol heldur munni yöar hreinum Þetta sýnir nauðsynina á því, að Signal innihaldi hvort tveggja í senn ríkulegt magn hreinsunar- og rotvarnarefna í hverju rauðu striki Ferskur og hreinn andardráttur er hverjum manni nauðsynlegur. Það er þess vegna, að Signal tannkremið inniheldur hreinsandi munnskol- unarefni—sem gerir munn yðar hreinan. Munnskolunarefnið er í hinum rauðu rákum Signals — rákum, sem innihalda Hexachloro- phene hreinsunarefni. Signal gerir meira en að halda tönnum yðar mjallahvítum, það heldur einnig munni yðar hreinum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.