Morgunblaðið - 30.06.1962, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.06.1962, Blaðsíða 15
Laugardagur 30. júnl 1962 MORGVNBLAÐIÐ 15 í Grenjaleit með Grímstungufeðgum: Læðuyrðlingur MEÐAN Eggert var að sjóða handa okkur súpu og hita kaffivatn morg- uninn eftir, sagði Lárus okkur margt um refa- veiðar. Hann hefur legið á grenjum á meira en 130 stöðum og oft á mörgum þeirra. Skothús hefur ver ið í Grímstungu milli 30 og 40 ár og hefur Lárus grandað margri tófunni þar. 2. grein Skotihúsinu er komið fyrir a gilbarmi við Grístungusel liggja þar að tvö gil sem lág fóta ferðast um og kemst hún elcki kringum skotlhúsið. Ef eitthvað hendir hross að vetr- inum og lóga verður því, eða það finnst dautt er það dreg- ið að skothúsinu og látið liggja þar í hæfilegri skotfjar laegð. Tæfa er efcki lengi að renna á lylktina og þá á hún sér voðan vísann. Stundum var hrossum líka slátrað til agns fyrir tófuna. í skothúsi. I skothúsi þessu hafa flest verið skotin 5 dýr á einni nóttu og gerði það Grímur sonur Lárusar. Sjálfur hefir Lárus haft 4 dýr mest á einni nóttu. Vetrarnóttin verður stund- um löng í skothúsinu, en það er til vinnandi að liggja þar og einkum var svo fyrr á ár- um meðan grávara var í háu verði. Vetrarfeldiurinn er verð mætastur. Lárus rekur minni til að veturinn 1923—4 skaut hann 4 dýr og fékk þá 175 kr. fyrir hvíta feldinn en á 3 hundrað fyrir þann mórauða. Þetta mun hafa gefið honum hreppurinn verðlaun fyrir hvert drepið dýr og hefir refa skytturnar í sinni þjónustu og greiðir þeim kaup fyrir, í stað þess að taka ágóðahlut eins og áður var. Vorið sem mest var selt af yrðlingunum í Grknstungu var þar eins- konar uppboð. Var þá kapp mikið um kaupin milli Stef- áns frá Vigur og Norðmanns, sem keypti yrðlingana til út flutnings. Ekki höfðu þeir fé lagar greiðsluna meðferðis en áttu hana á Blönduósi, og var Runólfur á Kornsá látinn fylgja til að tryggja að staðin væru ákil á fénu. Byrjað vár að selja yrðlinga til lífs upp úr síðustu alda- mótum. Þeir voru þá gjarna aldir í eyjum fram á vetur og lógað í janúar-febrúar og seldur af þeim feldurinn, sem var í háu verði. Síðasta ára- tuginn eða svo hefir eqgin yrðlingasála verið og verð lágt á grávörunni, svo ekki hefir verið taiið borga sig að sinna um feldina. Nú er jafn vel ekki tekinn belgur af dýri, jafnvel þótt að vetri sé. Ég bið nú Lárus að segja oðokur hokkrar grenjasögur og aðrar veiðisögur. Grenjasögur. — Það hefir komið fyrir að ég hef legið á tveimur grenj- um sýmu nóttina, segir Lárus. — Einu sinni alvann ég bæði grenin en annað sinn varð ég að skilja eftir eitt dýr á hinu. Eitt sinn var ég að koma innan af skothúsi að morgni til, hafði legið þar frá því síðari hluta dagsins áður. Odýrast og best móti snemmbæri kú Áð við skothúsið á Grímstunguseli. — Ég stundaði um fjölda ára grenjavinnslu á Sauðadal, sem sker sig milli Svínadals- fjalls og Vatnsdalsfjalls. En dalurinn heitir svo, því þar tapaði Ingimundur Gamli sauð um sínum, er hann bjó.á Hofi, og fundust þeir fram gengnir í dal þessum. Með mér var oftast á grenjum á Sauðadal frændi minn, Sigurður Er- lendsson á Stóru-Giljá. Er ég fór til grenja á Svínadal hringdi ég til Sigurðar og sagði honum hvenær ég mundi koma og bað hann hitta mig þar, en fór síðan beint vestan yfir fjall. Eitt sinn kem ég vestan Ejólfs- staðaskörð. Stefni ég beint á svonefnt Langahryggsgren, sem er mikið urðagren. Ég laumast heirri á grenið og er læðan úti við og skýt ég hana samsíundis. Gaggaði yrðlingana inn í tjald til sín. Er ég gái að Sigurði sé ég að hann er í svonefndum Geirhildarhólum og fer ég til móts við hann. Við leggjum síðan á greni, sem er í öxlun- um á móti og vinnum það um nóttina. Næsta dag leggj- umst við á grenið á Langa- brygg og er þá kafaldsfann- koma og settum við tjald yfir skotbyrgið. Það var bleytu- hríð svo að sást varla á gren- ið. Mér tókst að gagga tvo yrðlinga til okkar í tjaldið en refnum náðum við ekki og einn yrðlingur varð einnig eftir. Nú urðum við að fara, því kominn var kviðsnjór. Ég hafði verið með Snæbirni Jóns syni um vorið á grenjum. Bað ég hann, er ofan kem, að fara síðar upp eftir og freista þess að ná rebba og yrðlingunum. Hann gerði það Framhald á bls. 17. tvö kýrverð góð. Fyrrmeir var verð mikið á yrðlingum. Þá var hyllst til að ná þeim lifandi, einkum var verðið hátt á læðuyrðling unum. Það mun hafa verið 1928 eða 9 að seldir voru í Grímstungu yrðlingar fyrir 10 þúsund krónur á einum degi en það svaraði til and- virðis 30 kúa snemmibærra. Þetta var að sönnu félagsbú, því sjaldnast fór grenjaskytt- an ein á greni, hafði þá mann naeð sér upp á hlut af veiði eða kaup. Hreppurinn féklk einnig sinn hluta af yrðlmga- sölunni. Þá var drjúg tekju- lind að stunda refaveiðar. Nú •r þetta breytt, því nú greiðir Ég gekk vestan í hæð nokkuð frá gilinu. Sé ég þá hvar kemur hvítt dýr á móti mér, en finnst það tæplega í nógu góðu færi. Ég fleygi mér nið- ur og er með skot í báðum hlaupum á byssunni. Rétt í því verð ég þess var að annað dýr er norðan í sama hólnum og ég ligg á, er það mórautt. Stefnir það hvíta nú í áttina til þess mórauða, sem ég skýt fyrst og síðan hitt strax á eftir. Hafði því 4 dýr upp úr ferðinni. Við skothúsið hafa verið drepin að meðaltali 10 dýr á ári, en þau munu nú hátt á þriðja hundrað, sem þar hafa verið felld í þessi 30 ár. SéV heim að Grímstungu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.