Morgunblaðið - 30.06.1962, Page 8

Morgunblaðið - 30.06.1962, Page 8
8 MORGÍJISBL ABlÐ Laugnrdagur 30. júrií 19G2i i Dregur til tíðinda á Formósusundi? HONG KONG, 26. júní. — Er Mao Tse Tung, leiðtogi kín- verskra kommúnista í þann veginn að gera alvöru úr hinni margendurteknu hótun sinni að „frelsa“ Formósu? Eða ætl ar Shang Kai-shek, hershöfð- ingi, loks að framkvæma heit sitt að losa meginland Kína undan „oki kommúnistísks ein ræðis“? Enginn utan innstu hringanna kringum þessa fjandsamlegu leiðtoga veit svarið við þessum spurning- um með vissu, en það er greinilegt að kínverskir komm únistar eru áhyggjufuliir og búa sig undir bardaga, þjóðern issinnar eru hinsvegar digur- mæltir og virðast búa sig und ir að gera „gagnárás" þá, sem þeir hafa talað svo lengi um. Yikum saman hafa heil her fylki kinverskra kommúnista haldið til strandhéraða Fuki- en-fylkis, sem liggur andspæn is Formósu, ým.ist gangandi, með herflutningabifreiðum eða járnbrautarlestum. Loft- her kínverskra kommúnista, sem talinn er haifa 3000 flug- Shang Kai-shek vélum á að skipa, þar af allt að 2000 þotum, hefur aukið starfsemf sína í. flugvöllum, sem liggja nokkur hundruð km frá ströndinni. Hins vegar hefur ekki sézt nein hreyfing á hinum sex framlínuflug- völlum í Fukien-fylki. Kín- verski sjófherinn, sem á vest rænan mælikvarða er heldur máttlaus en er búinn hrað- skreiðum tundurskeytabátum sem erfitt er að hafa upp á, hefur ekki staðið í neinum’ mikilvægum flutningum. Eng ar fregnir hafa borizt um að djúnkar hafi safnazt saman (það myndi vera tákn um inn rásarfyrirætlanir) í höfnum' og klettavíkum Fukiens, en strandferðir lítilla djúnka hafa aukizt. >eir hjálpa til við herflutninga, því héraðið er fjöllótt og erfitt að halda vegum þess við. Hernaðarsérfræðingar Vest urlanda hafa árum saman á- ætlað að kínverskir kommún istar hafi her og lögreglulið með 350 þús. til 400 þús. manns í Fukien. Það er miklu meira en þarf til að halda uppi lögum og reglum og nægilegt til að standa af sér innrás. En hvernig stendur þá á þessari skyndilegu athafna semi? f fyrsta lagi er hún ekki eins snögglega til komin og fyrst virtist. Um nokkurt skeið áður en fréttirnar um herflutningana bárust var tek ið eftir því í Hong Kong, að flutningavagnar sem komu á járnbrautarstöð nýlendunnar frá Kína voru í lélégu ástandi. Yfirbreiðslur voru illa farnar og rifnar, legur illa smurðar og vagnatengsli ýmist mjög slitin eða þau vantaði alveg. Af þessu mátti annað hvort álykta að járnbrautarkerfi Kínverja væri að eyðileggjast ennþá hraðar en flestir álitu, eða að hinir betri vagnar væru notaðir annars staðar. Nú virðist einsýnt, að betri vagharnir hafi verið notaðir þar sem þeirra var mest þörf — til að flytja lið og hergögn. í öðru lagi hafa kínversku kommúnistarnir ekki reyut að f Hersveit þjóðernissinna við æfingar á Formósu. dylja liðsflutninga sína að neinu ráði. Að vísu bönnuðu þeir útlendingum að ferðast með lestum um Fukien, en það var ekki nóg til að dylja herflutninganá, það gat að- eins dulið smáatriðin, nefni- lega hverskonar hersveitir og hergögn voru flutt. Hvers vegna voru hersveitir kommúnista fluttar? Rökrétt asta svarið fæst með því að athuga ástandið í Kína og í ríki Shang Kai-shek’ sem ligg ur 160 km í burtu handan við sundið. Nú stendur yfir mesta efnahagskreppa, sem komið hefur, síðan hersveitir Mao- Tse Tungs tóku völdin fyrir nærri 13 árum. Víða er mat- vælaskortur, verksmiðjum og skólum er lokað og óánægðir verkamenn og stúdentar send ir til að vinna á ökrum sveita þorpanna, enda þótt bændur, er hafa verið óánægðir lengi, eigi meira en nógu erfitt með að hafa í sig og á. Skýrslur um spillingu í stjórnarháttum og jafnvel meðal embættismanna kommúnistaflokksins berast æ oftar. Einnig er talað um minnkandi opinberan - aga. Flóttamenn sem þyrpast til Hong Kong, segja að fleisi og fleiri hlusti á „Voice of Ame rica“ og Formó'su-útvarpið. Og í Fukien-fyl/ki tína bænd ur upp og geyma matarböggla fulla af andkommúnistískum áróðri, sem flugvélar þjóðern issinna hafa kastað niður. Handan sundsins, sem þotur fljúga yfir á tíu mínútum, hef ur-Shang Kai-shek greinilega verið að búa sig undir að gera innrás á meginlandið. Mán- úðum saman hefur hann ver- ið að safna hergagnabirgðum, sem eru * orðnar miklu meiri en nauðsynlegt er í varnar- skyni, og amerískir róðgjafar. hafa kvartað yfir að hergögn frá Bandaríkjunum hverfi í- skyggilega mikið. Mánuðum saman hafa hersveitir Shang Kai-sheks verið við stórfelld ar heræfingar. Stutt er síðan sérstakar hersveitir manna ættaðra frá sama héraði voru við æfingar í faUhlífarstök'k- um. Æfingarnap voru skipu- lagðar eins og innrás fallhlífa hermanna í umræddu fyliki. Kínversku kommúnistarnir vita að heima fyrir er óá- nægja og jafnvel svolítið um opinbera mótspyrnu. Þeir vita líka, hváð þjóðernissinnar eru að gera. Ætla kommúnistarn ir að verða á undan og koma í veg fyrir að fyrirætlanir Shang Kai-sheks heppnist? — Eða reynir Shang að hamra meðan hann heldur að járn ið sé heitt? Þegar litið er á hinar styrku varnir beggja að ila, hin miklu herfræðilegu vandamál og heimspólitísku afleiðingar, verður að álykta að árás anaars hvors aðilans væri fífldirfska. Yfirstandandi herflutningar hljóta því að vera gerðir í varnar- og áróð ! Mao Tse Tung ursskyni. Fáir sérfræðingar vilja þó útiloka þann mögu- leika að eitthvað verði gert, því fáir Vesturlandamenn hafa nokkru sinni getað skilið hugsanagang Kínverja til fullnustu. (Observer — öll réttindi áskilin). Sextugur í dag: Gunnar Rockén ÁRIÐ 1936 kom hingað til lands ungur Austurgauti til starfs við sænsku ræðismanns- skrifstofuna í Reykjavík. Það gengur á ýmsu um starfsmenn utanríkisþjónustunnar, þá sem úr landi eru sendir, hve lengi þeir eru á sama stað; oftast eru þeir látnir skipta heldur þétt, sendir heimsendanna á milli; sami maður kann að vera aðra stundina norður við heim- skautsbaug, hina suður í blá- mannalöndum. Ekki veit ég hvaða fyrirætlanir hinn ungi Austurgauti hafði, en það togn- aði heldur en ekki úr veru hans hér, hann hefur dvalizt á fslandi síðan, meira en hálfa ævi sína, og er hann sextugur í dag. Carl-Gunnar Rocksén heitir maðurinn. Svo segir í Heljarslóðaror- ustu, að Metternich hafði lifað allar umbyltingar í Norður- álfu frá Cæsar. Gunnar Rocksén hélt áfram því starfi, sem hann var sendur til að gegna hér í upphafi. Hann hefur séð ræðis- mannsskrifstofuna breytast í sendiráð, sem í fyrstu var veitt forstaða af sendifulltrúa, síðan sendiherra og loks af ambassa- dor. Sendiherrarnir hafa komið og farið, einn komið í annars stað, stöðug umskipti. Gunnar Rocksén hefur haldið áfram sinni iðju, sem skrifstofumað- ur, sendiráðsritari, varakonsúll, og aftur og aftur hefur hann gegnt starfi sendifulltrúa, stund um skemur, stundum lengur, þegar sendiherrar voru fjar- verandi eða þegar tími leið frá því einn fór og þar til annar kom. Hann hefur verið vakinn og sofinn í starfi sínu, rækt það af mikilli kostgæfni og elju. Eins og að líkum lætur hefúr hann öðlazt mjög náin kynni af íslandi og íslending- um á þessum tíma, og sú reynsla hans hefur verið ómet- anleg fyrir sendiráðið. Gunnar Rocksén á mikinn þátt í að tengja saman starf þess á ýms- um og ólíkum tímum. Þegar á allt er litið, held ég hann kunni býsna vel við sig hér; hann hefur fest hér ræt- ur. Áfið 1938 gekk hann að eiga íslenzka konu, Helgu Jóns- dóttur (ætt hennar er að nokkru úr Mýrdal, en út í þau fræði verður ekki farið nánar hér), ágæta konu. Þau hafa eignazt einn son, Karl-Erik, stúdent, sem nú stundar há- skólanám í Stokkhólmi. Þau 32 ár, sem Gunnar Rock- sén hefur dvalizt á Islandi, hefur gerzt hér mikil saga, fjölþættar og gagngerðar breyt- ingar hafa gerzt á öllu þjóðlífi íslendinga. Hann hefur lifað það allt, kynnzt því öllu. Kynni hans af íslendingum og íslenzkum háttum eru geysi- mikil. Hann þekkir galla vora, en einnig það, seim vel kann að vera um oss. Hann skil- ur það allt innan frá og með samúð. Honum er annt um, að landar hans fái rétta og staðgóða fræðslu um ísland. Hann stenzt ekki reiðari en ef einhver fáfróður blaðamaður er að fleipra eitthvað um ís- lendinga og honum þykir á þá hallað, eða ef honum þykir skorta skilning á málavöxtum í dómum um þá. Getur hann þé orðið allt eins örlyndur og þó að Islendingur væri. Þannig hefur Gunnar Rock- sén verið dyggur sonur föður- lands síns, en um leið traustur vinur íslands. Slíkra manna er þörf i skiptum þessara tveggja frændþjóða. Ef til vill er aldrei ljósara en nú, hve mikilsverð er vinátta Norðurlandaþjóða. Gunnar Rocksén er röskleg- ur maður í framgöngu, hreinn og beinn, prúðmannlegur, en alþýðlegur og með öllu hé- gómalaus. Hann er mjög hjálp- samur og góðviljaður og trygg- ur eins og tröll. Margir landar hans, sem hingað hafa komið, hafa notið góðra ráða hans og fyrirgreiðslu, slíkt hið sama fs- lendingar, sem til Svíþjóðar hafa farið. Hann hefur kynnzt mörgum mönnum í starfi sínu og öðlazt glögga mannþekk- ingu. Hann er sérlega gestris- inn, öðlingur, og glaðsinna í góðum hóp. Öllum gestum, sem koma á hið fallega heimili þeirra hjóna, líður vel hjá þeim. Þarf varla að taka fram, að þar á húsfreyjan sinn fulla hlut að máli. Allir vinir Gunnars Rockséns þakka honum liðnar ánægju- stundir og óska honum langra lífdaga og allra heilla á kom- andi árum. E. Ó. S. ★ Fyrir eitthvað 30 árum fóru Reykvíkingar að veita athygli ungum, beinvöxnum og hýr- leitum Svía, sem þá var ný- orðinn aðstoðarmaður í aðal- ræðismannsskrifstofu Svíþjóð- ar. Slíkir starfsmenn eiga að ó- breyttum aðstæðum fyrir hönd- um að starfa eigi alllengi á hverjum stað og flytjast síðan í annað land. En fyrir þessum manni átti það að liggja, sem hann hefur sjálfan naumast ór- að fyrir, að eiga öll sín beztu ár á þessu landi, tengjast dótt- ur þess órofa böndum, og skjóta hér nýjum rótum, sem héðan af munu eigi slitna. Gunnar Rocksén, ræðismaður Svía, er sextugur í dag, og það kalla ég fréttir, því að svo lítið hefur hann breytzt frá þvi Framh. á bls. 16.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.