Morgunblaðið - 30.06.1962, Síða 22

Morgunblaðið - 30.06.1962, Síða 22
22 MORGVISBLAÐIÐ Laugardagur 30. júní 1962 Beztn fimleikaflokkar Svia sýna í Háskólabídi Einstæb íþróttaheimsókn til íslands i næstu viku SÉRSTÆÐ heimsókn erlendra .íþróttamanna verður í næstu viku. Þá koma hingað 43 íþróttamenn og konur, fim- leikaflokkar karla og kvenna og þjóðdansaflokkur. Það er sérstætt við þessa heimsókn, að flokkarnir greiða allan sinn ferðakostnað og uppihald sjálf- ir. Koma þeir hingað af áhuga einum saman og kynna hér íþrótt sína. Þetta er allt sænskt fólk og í fimleikaflokkunum piltar og stúlkur úr fremstu röð fimleikafólks í Svíþjóð. — Flokkarnir koma hingað 4. júlí (nk. miðvikudag) og sýna á fimmtudags- og föstudagskvöld í Háskólabiói, kl. 11.15 bæði k,völdin. Er ekki að efa að þar verður fjölmenni. Þar verða sýndir fimleikar af beztu teg- und og íþróttaunnendur ættu að sýna þessum flokkum það í verki að þeir kunna að meta slíka heimsókn, sem þessir flokkar gera hingað. Flokkarnir, sem koma eru, 13 manna fimleikaflokkur frá KFUM í Stokkhólmi, flokkur 12 kvenna frá Viking og loks 18 manna þjóðdansaflokkur. Hugsanlegt er að flokkarnir sýni úti á landi, en húsnæði er ekki tryggt ennþá. Vilja flokk- arnir gjarna kynnast landinu umfram Reykjavík. Fimleikaflokkur karla frá KFUM Flokkur þessi er mjög víð- förull — hefur sýnt í Banda- ríkjunum og flestum löndum Evrópu — samtals um 800 sýningar, þar af 150 á erlendri grund. Hann hefur farið 34 ut- anlandsferðir og komið tvisvar áður til íslands, þ.e.s. 1936 og 1956. Hann var lengi mjög þjóð legur í sinni leikfimi, en er nú orðinn alþjóðlegur og í tölu þeirra beztu í Svíþjóð. Flokkurinn sýnir æfingar á svifrá, tvíslá, í hringjum og á hesti og að sjálfsögðu æfingar á gólfi. tækifæri að ræða, sem áhuga- menn um fimleika mega ekki láta sér úr greypum ganga. Fimleikaflokkur kvenna frá „Viking“ Flokkurinn samanstendur af 12 kornungum blómarósum. — Þær sýna fjölbreytilega leik- fimi og stökk og hafa fengið hina beztu dóma blaðamanna. í Svíþjóð. Það fer bráðum að teljast til Nokkrar af stúlkunum í Viking. Reykvíkingar fá sjaldan Þjóðdansar af beztu tegund í Svíþjóð. xveyK.viR.ingar ici öjctiucui tækifæri til að sjá úrvalsmenn sýna á þessum áhöldum — því miður. Hér er því um sérstakt Kinn al piltunum í KFUM. stærri viðburða að sjá úrvals- flokk kvenna sýna fimleika hér í borginni. Vonandi vaknar áhuginn á ný á fimleikum og eru ungar stúlkur hvattar til að koma og sjá Víkings-stúlkurnar í Há- skólabíói. Þær sýna á hvern hátt þær túlka fönguð sinn og starfsþrá í fögrum fimleikum. Þjóðdansaflokkur frá SFV í Stokkhólmi SFV er elzta og þekktasta þjóðdansafélag Svía. Félagið hefur ferðazt mjög víða, bæði um Bandaríkin ög Evrópu, til að kynna sænska þjóðdansa. — Hér er um að ræða kærkomið tækifæri fyrir alla þjóðdansa- unnendur að kynnast sænskum þjóðdönsum. Einu sinni þótti það gott að slá þrjár flugur í einu höggi. Hér gefst tækifæri til að sjá þrjá úrvalsflokka, sem hver fyrir sig væri þó raunar nægj- anlegur til sjálfstæðrar sýning- I ar. — Framkvæmdanefndin, en for- maður hennar er Benedikt Jak- obsson, hefur verið svo heppipn að fá Háskólabíó fyrir 2—3 sýningar fyrrnefndra flokka. —• Fer hér saman glæsilegt hús og glæsileg dagskrá. Flokkarnir koma frá Bergen, en þar sýndu þeir á landsmóti Norðmanna í „Turn“. Það er ómetanlegt að fá góða flokka til að sýna og kynna hinar listrænu íþróttir — fim- leika og þjóðdansa. ‘Engin íþrótt hefur meira Tist- rænt gildi en fimleikar. Þjóðdansarnir eru á órjúfan- legan hátt tengdir sögu, lagi og ljóði. Þeir, sem kunna að meta þjóðleg fræði og listrænar íþróttir og • þeir sem unna í- þróttum í einni eða annarri mynd — já og ekki sízt þeir, sem telja íþpóttir hafa lítið gildi í nútímaþjóðfélagi, ættu að nota þetta einstæða tækifæri til að koma, sjá og njóta hollr- ar skemmtunar í Háskólabíói. Danir sigruðu KR. 4:0 HÁTT Á SJÖUNDA þúsund á- horfenda fóru vonsviknir heim af Laugardalsvellinum I gær- kvöldi eftir að hafa horft á KR fá slæma útreið hjá Sjálenzka úr valinu. Danir unnu yfirburðasig ur 4:0, sem að vísu er nokkuð stórt, en KR var langt frá því að vera jafnoki gestanna, og sigur þeirra þess vegna sanngjarn. Eftir fyrsta leikinn, gegn Fram, voru menn aknennt þeirr ar skoðunnar, að KR mundi ganga með sigur af hólmi og ekki sízt vegna þess, að nú lék Þórólf ur Beck aftur með sínum gömlu félögum. Þetta fór á annan veg: við, sem fylgzt höfum með Þór- ólfi gegnum árin sáum lítið til hans alkunnu snilli og ekki er hægt að segja að hann hafi feng ið mikla aðstoð félaga sinna. Framlína KR var ebki fremur hvöss í þessum leik en í fyrri leikjum sínum á sumrinu og hinn leikandi létti samleikur, sem í fyrra og hitteðfyrra færðu svo marga sigra, sézt nú ebki lengur, en í þess stað er allur sóknarleik ur hikandi og fálmkenndur. Fólk kom á völlinn, fyrst og fremst til að sjá snillinginn Þór- ólf Beck. Það sá hann ebki. Það er ekki vegna þess, að hann sé ebki eins góður og af er látið. Hér kemur annað til. Fyrst og fremst hygg ég, að gjörsamlega útilokað sé fyrir einn mann eins og Þórólf að sýna sitt bezta hér heima undir þeim kringumstæð- um, sem fyrir hendi eru. Dæmi sem þessi eru svo algeng, bæði hér heima og annars staðar, að ebki þarf að fjölyrða um það. Auk þess er Þórólfur í algeru fríi frá knattspyrnu frá því í maí og þar til í haust og hefur eikki heim ild félags síns til að æfa, en sér stakt leyfi þarf hann til að fá að keppa hér heima. Með allt þetta í huga er ekki að undra þótt Þóiólfur hafi verið kvíðinn að koma fram fyrir augu obkar hér, sem ætlumst til að sjá áberandi stjörnu. Leikurinn í gær var, þrátt fyr ir vonbrigði mun betri en fyrsti leikur SBU og nú voru þeir sem allt annað lið: mun liflegri og hreyfanlegri í leik sínum, enda er sagt að þeir hafi lagt mest upp úr að vinna þennan leik. Fyrri hálfleik máttu þeir hafa sig alla við og voru heldur meira í vörn en sókn, og skiluðu varnarhlut- verki sínu með prýði. KR-ingum tókst nokkrum sinnum að skapa allverulega hættu við mark þeirra, en voru ýmist of svifa- seinir, eða Danir voru vel við- búnir og fengu bjargað. Sókn KR var langt frá því að vera nógu afgerandi og hröð til að ná þeim árangri, sem sótzt er eftir; að skora mark. Hættulegasta tækifæri hálf- leiksins-kom á 37. mínútu, þegar Þórólfur fébk knöttinn á víta- teig, vatt sér fimlega framhjá miðverðinum og inn í teiginn og virtist markið þarna blasa við. En markvörðurinn, Mogens Jo- hansen, var mjög vel staðsettur og renndi sér fyrir fætur Þór- ólfs á réttu augnabliki. Fyrsta mark Dananna kom nobkrum mínútum síðar og upp úr rólegu upphlaupi, sem eng an grunaði, að leiða myndi til marks. Alesen miðherji fébk send ingu skammt utan vítateigs og skaut fremur lausu skoti að marki, en Gísli markvörður var lagður af stað út í gagnstætt horn, skrikaði fótur á hálum vell inum og knötturinn rann fram hjá honuSn í markið. — Sann- kallað óheppnismark og ekkl verðskuldað eftir gangi leiksins, Þannig var staðan í leibhléi 1:0 fyrir SBU, en hefði alveg eins getað verið öfugt. í upphafi síðari hálfleiks voru KR-ingar kappsamir, en náðu ekki saman og brátt fór að draga af þeim. Danirnir sóttu sig hins vegar og nú var sýnt hvernig Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.