Morgunblaðið - 01.08.1962, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 1. ágúst 1962
Ml. í tugþraut og 10 km.
Valbjörn ógnar þeim beztu
á Noröurlöndum í tugþraut
36. MEISTARAMÓT íslands
í frjálsíþróttum hófst um síð-
ustu helgi á Laugardalsvell-
inum með keppni í tugþraut
og 10 km. hlaupi. Valbjörn
Þorláksson staðfesti nú enn
betur ágæti sitt sem tug-
þrautarmaður á alþjóðamæli
kvarða með því að ná 6775
st. sem er aðeins 114 st. lak-
ara en met Amar Clausen og
svipaður árangur og EM-
meistarinn Heinrich frá 1950
náði bezt á sínum tíma.
Er þó lítill vafi á þvi, að Val-
björn getur enn betur, t. d. á
stórmótum erlendis, því að nú
var hann talsvert fró sínu bezta
í kúlu, kringlu og spjóti. Hins-
vegar var hann mjög jafngóður
í flestum öðrum greinum og náði
þó bezta ísl. afreki ársins í 100
m, setti persónulegt met í lang-
stökki, grind og 1500 m.
Sé tekið tillit til allra að-
stæðna, virðist Valbjörn eiga
fullt eins mikið erindi í tug-
þrautarkeppni EM á þessu
sumri og stangarstökkskeppn
Valur
vann 4-1
VALSMENN, 2. aldursflokkur,
sem eru á keppnisferðalagi um
Danmörku léku annan leik sinn
þar um helgina og meettu nú
Bagsværd. Valmenn unnu stár-
an sigur. skoruðu 4 mörk gegn 1.
í fyrri leiknum unnu Vals-
menn Lyngby, Danmerkurmeist-
arana, með 5—2.
ina, enda þótt æskilegast
væri að hann gæti tekið þátt
í báðum keppnisgreinum. —
Þegar þar við bætist hið
nýja met Jóns ólafssonar i
hástökki og hin alkunna geta
þeirra Kristleifs í hindrunar
hlaupi og Vilhjálms í þrí-
stökki, ætti ísland a.m.k. að
geta sent þá fjóra á Em í
sumar.
Þá bar það til tíðinda, að
drengurinn Kjartan Guðjónsson,
KR, setti glsæilegt drengjamet í
tugþrautarkeppninni (4961) og
bætti það gamla um 512 stig. —
Því miður varð Kristleifur að
hætta keppni í 10 km vegna
stings, þegar aðeins 3 hringir
voru eftir (þá um 300 m á und-
an Agnari Levy), en keppinaut-
Frh. á bls. 19
Ásbjörn afhendir Birgir bikarinn.
FH íslandsmeistari
ÍSLANDSMÓTINU í útihand
knattleik Iauk í fyrrakvöld.
FH vann Víking eftir harða
og jafna keppni með 20 gegn
16. Er ekki ólíklegt að þreytu
hafi kennt hjá FH-mönnum
sem léku harða leiki við Þjóð
verjana á föstudag og sunnu
dag og unnu svo íslandstitll-
inn á mánudag. FH hafði einn
ig bikarinn í fyrra.
IR vann Ármann þetta
sama kvöld með 19—18 og í
3 flokki hlaut Valur sigur í
mótinu þar sem Ármenningar
sem höfðu unnið sér rétt tU
úrslitaleiks mættu ekki.
Þegar
reiðinni
þjóðverjar gleymdu
höfðu þeir yfirburði
en það var of sjaldan og Reykjavlkur-
liðið vann 18:14
REYKJAVÍKURÚRVAL í hand-
knattleik sigraði þýzka úrvalslið-
ið frá Esslingen á Hálogalandi i
gær með 18 mörkum gegn 14.
Sigurinai var verðskuldaður, en
aU sögulegur varð leikurinn
vegna vonzku, ljóts orðabragðs og
annara skringiiegra tilburða, einik
um af gestanna hálfu. Er synd að
segja að leikmenn hafi hjálpað
dómaranum Axel Sigurðssyni tii
við dómstörfin með því að forð-
ast ólögleg brögð og an.nað sem
ekiki á við. Nei, heldur þvert á
móti. En Axel skilaði sínu hlut-
verki vel og af mikilli ákveðni,
rak þrjá Þjóðverja af velli um
stundarsakir og einn Islending,
og gaf fararstjóranum þýzka
ákveðin svör er hann að leiks-
lokum þaut inn á völlinnu
Leikurinn var annars hörku
spennandi. Hraði var mikill í
leiknum næstum óslitið, stund
um ótrúlega mikill, barátta
frá upphafi til enda. Reykja-
víkurliðið missti aldrei foryst-
una. Hafði frá 1—6 marka for
skot allan tímani, og hafði
örugg tök á Ieiknum í lokin,
skoraði 3 síðustu mörkin við
geysifögnuð yfirspenntra
áhorfenda.
Liðin voru oftast afar jöfn.
Þýzka liðið sýndi betri leik
en hið íslenzka, ÞEGAR það
lét af þeim leiða „sið“ að
ætla að taka völdin af dómar-
anum og ætlast til að mega
fótum troða allar leikreglur.
Eftir hverja áminningu dóm
arans eða brottvísun leik-
manns, hlýddu Þjóðverjamir
vel. Og þá náðu þeir sínum
bezta leik, fallegum og árang-
ursrikum og með sUkum leik
allan leikinn hefðu þeir án
efa sigrað. En þeir kusu
vonzkuna og það að hrista höf
uðið, hlæja og sýnidu öU önn-
ur merki þess að þola ekki
að vera undir.
Reykjavíkurliðið náði þriggja
marka forskoti, (Karl Ben., Sig.
Óskarsson og Sig. Hauksson) en
næstu tvö skoruðu Þjóðverjar.
Var síðan barizt af hörku og skor
að til skiptis. Leikurinn var hrað-
ur og skemmtilegur. í hálfleik
stóð 7—6 fyrir Reykjavík.
SÍÐARI HÁLFLEIKUR
Bezti kafli leiks Reykvíkinga
I var í byrjun síðari hálfleiks. Þá
gerðu þeir út um leikinn. Skor-
uðu 4 fyr3tu mörkin og kom-
ust þannig í 11—6, áður en Þjóð-
verjar fengu rönd við reist. Var
Guðjón driffjöður í góðu spili og
sendingum inn á línu, en liðið
var allt einnig vel með.
Forskotið jókst upp f 8 mðrlc
(14—8) áður en Þjóðverjar tóku
sig saman og létu af leiðindaleik
en tóku upp handknattleik.
Sýndu þeir þá oft mjög fallegan
leik og góðan. Minnkaði nú for«
skotið smám saman en harkan
jókst um leið aftur. Landsliðs-
maðurinn Knecht var rekinn út
af fyrir ljótt orðbragð og litln
síðar einnig Sig. Einarsson. Þjóð-
verjarnir sóttu enn á og breyttu
stöðunni úr 15—10 í 15—14 og
2% mín. voru til leiksloka. Þjóð-
verjarnir léku mjög góðan sókn-
arleik, „maður á mann“ hvenær
sem þeir misstu boltann og knúðu
Franthald á bls. 19.
ÍR mótið
í kvöld
í KVÖLD verður frjálsíjþrótta
mót ÍR á Melavellinum og |
hefst kl. 7.16 í ?. greinumj
en aðalíhluti kl. 8.1o. Þar verð
ur keppt í 12 greinum. 13.
greinin fer fram á Laugardals |
vellinum kl. 5.30. Það er þrí- /
stökkskeippnin og gerir Vil-,
Ihjálmur tiiraun til að ná lóg-
■narkinu til Evrópumótsins
16.50 m.
Kl. 7.16 hefst svo stangar- ,
stökk Og sleggjukastskeppni á1
Melavellinum og kl. 8.161
keppni í öðrum greinum sem j
eru kúluvarp, spjótkast, há-.
stökk, langstökk, 200 m. 1500]
m, 4x100 m hlaup karla, 60 m (
hlaup telpna með 16 keppend- I
um, 100 m hlaup unglinga og]
80 m grindajhlaup sveina.
Allir okkar beztu menn (
verða með í keppninni og þar j
sem veður verður, að veður-'
spá, gott, má búast við góðum (
afrekum. Einkum er búist við j
miklu af Vaibirni sem nú hef- ,
ur náð góðu lagi á tref jagelr-'
stönginni.