Morgunblaðið - 15.08.1962, Side 1

Morgunblaðið - 15.08.1962, Side 1
t Biskupar og blaöakona útlæg ger frá Ghana Accra, Ghana, 14. ágúst f — NTB — Reuter. 1 gær fóru tveir leiðtogar ensku biskupakirkjunnar í Ghana flug leiðis til Lagos í Nigeriu, eftir að etjórn Ghana hafði vísað þeim úr landi. Voru það dr. Richard ftosevaere biskup í Accra og erki biskupinn í Vestur Afríku, Cecil Patterson. í Lagos stendur nú yf »r prestastefna, sem biskuparnir munu sitja. Á prestastefnu í Nigeríu. Dr. Rosevaere biskup sagði í viðtali við fréttamenn, áður en |>eir héldu af stað, að hann teldi Big eftir sem áður biskup í Accra, en ekki vildi hann segja neitt um, hvað hann hyggðist fyrir er prestastefnunni væri lokið, en J>að verður um 24. ágúst. Sagt er, að þess hafi verið kraf Izt af stjórn Ghana, að hún vís- aði biskupunum úr landi, sakir þess að þeir hefðu gagnrýnt seskulýðsfylkingu landsins fyrir trúleysi. Saka Breta — um aðild að morðtilrœði Accra Ghana, 14. ágúst. — (NTB-Reuter) — DAGBLÖÐ í Ghana hafa látið eð því liggja að Bretar séu að uokkru leyti ábyrgir fyrir hinu snisheppnaða tilræði við forseta landsins, Kwame Nkrumah. — hefur aðalfulltrúi brezku stjórn- erinnar i Accra, Sir Geoffrey de Freitas, afhent utanríkisráð- herra Ghana, Ako Adje, mót- mæli vegna þessara skrifa, sem hann segir uppspuna frá rót- um og til þess eins ætluð að grafa undan hinum vinsamlegu fengslum Bretlands og Ghana. Stjórnin hefur einnig visað úr landi skozkri blaðakonu, þriggja barna móður, er skrifað hafði greinar um efnahagsástandið í Ghana. Var henni aðeins veittur örskammur frestur til þess að hverfa úr landi og varð hún að skilja börnin sin þrjú eftir í Ghana. Blaðakonan hélt til Skot lands. Dæmd fyrir föstureyðingar STOKKHÓLMUR, 14. ágúst NTB í dag féll í Stokkhólmi dómur í máli hjóna, er sökuð voru um að hafa framkvæmt fjölda fóstur- eyðinga. Maðurinn, 41 árs póst- maður, var dæmdur í 3% árs nauðungarvinnu, en kona hans í 21 mánaða fangelsi. Hjónin voru sek fundin um að framkvæma 30 fóstureyðingar á síðustu 14 árum. Þar sem örin bendir eru landamæri Frakklands og Ítalíu. Skáluðu í kampavíni Jarðgöngin gegnum Mont Blanc stytta akveginn til ítaliu um 200 km í GÆR var lokið við að sprengja fyrir göngunum miklu, sem verið er að gera gegnum stærsta fjall Evrópu, Mont Blanc. Var þá rofin síð Eista uindrunin milli Frakk- anna og ítalanna, sem við- stöðulaust hafa unnið að því að bora gengum fjallið og gátu þeir nú skálað í kampavíni fyrir vel unnu starfi. Væri komið í eitt fjall það, sem bor að hefur verið úr Mont Blanc, væri það um það bil ein millj. rúmmetrar að stærð. Þótt þetta langt sé komið með göng in, er enn talið, að taki ár — til hálft annað ár — að full gera þau til notkunar. Göngin eru 11,6 km að lengd og stytta leiðina milli Parísar og Rómaborgar um 200 km. Mesta hæð ganganna verður 1397 km. yfir sjó. Akbrautin verður sjö m breið og 70 cm gangstéttir beggja vegna, en I Ekið inn göngin. talið er, að þegar göngin verða tekin í notkun muni 352.000 farartæki geta farið þar um árlega og flytja 1,5 biljónir far þega. Sé miðað við 50 km hraða á klst., tekur ca. tuttugu mínútur að fara gegnum göng- in. Með 300 m billibili er kom ið fyrir viðgerðarstöð fyrir ökutæki. Kostnaður við verkið full- unnið mun sennilega nema 2400 millj. kr. (ísl.) en upp haflega kostnaðaráætlunin var 960 millj. kr. Þann tíma, sem að þessum göngum heufr verið unnið hafa tíu manns látið lífið, fjór ir Frakkar og sex ítalir, og mörg hundruð manns slasazt, meira eða minna. Churchill andvígur aðild Breta Efnahagsbandalaginu — sc&ir Mohfgomery marskálkur sftir viðtal við hann f O Æ R helmsótti Mont- gomery marskálkur Sir Winston Churchill I Middi- esex sjúkrahúsið í London. Er marskálkurinn kom frá Sir Winston sátu fyrir honum fréttamenn og spurðu spjör- unum úr, m. a. um hvað þeir hefðu talað. í gær gat að heyra I brezka útvarpinu eftirfarandi glefsu úr viðtálinu við marskálkinn: —- Við töluðum urn hitt og þetta, víndrykkju meðal ann- ars. Sir Winston var rétt í þann veginn að biðja um meira konjak, þegar ég kom. — Og fleira? — Um reykingar — hann var að reykja stóran vindil og spurði hvernig ég gæti hugsað til þess að reykja pípu. Síðan barst talið að efnahagsbandalaginu — hann kvaðst vera alveg andvígur því. — — Hvernig líkaði yður að heyra það? — Víst vel, ég er sjálfur á móti því. — Ræddur þið ekki fleira? Við ræddum eitt og annað, um bækur meðal annars. — Virtist yðuir Sir Winst- on hress? — Já, afar hress. Hann reykti og drakk e'.rs og venj- ulega. Sir Winston verður orðinn mifcið veikur þegar ha.in hæitir að reykja vindta og drekka konjats. Ég hafði orð á því við hann að nann ætti að fara að iosna úr sjúkrahúsinu og var hann því alveg sammála. Það væri nú verið að innrétta tvö herbergi á fyrstu hæð- inni í hús! hans og þegar því væri lokið vildi hann endi- lega fara þangað — það yrði eftir nokkrar vikur. Fréttamenn spurðu Mcnt- gomery marskálk frekar um afstöðu hans til efnahags- bandalagsins. Hann kvaðst andvígur aðild Bretlands — þó væri mikið undir því kom ið 'hverj'um ski'lmálum að- ild þyrfti að fylgja. Sagði Ihann það sjálfsagða ráðstöf- un hjá brezku stjórninni að sækja um aðild og sjá hvern- ig málinu reiddi af. Soblen fær nokk- urra daga frest London, lJf. ágúst. — (NTB-Reuter) — ÖRLÖG bandaríska njósnarans, dr. Robert Soblen, eru enn óráð- in. 1 dag var máli hans vísað til hæstaréttar og eftir nokkrar umræður var réttarfundum frest að til miðvikudags í næstu viku. Veitir sú frestun Soblen ennþá átta daga dvöl í Bretlandi. Á næsta fundd réttarins munu öll gögn verða lögð fram í máli Soblens, bæði það, sem lögfræð- ingar hans hafa fram að færa og brezka ríkisstjórnin. Er mögu legt að vikur kunni að líða, áð- ur en greitt verði að fullu úr því efni. Einn af lögfræðingum Sobl- ens, Elwyn Jones, hefur sagt í viðtali við fréttamenn, að hann ætli að gera allt, sem hann geti til þess að draga málið á lang- inn. Annar lögfræðingur sagði, að færi svo, að hæstiréttur léti Soblen ekki lausan, yrði mál- inu vísað tafarlaust til lávarða- deildar brezka þingsins, sem er æðsti dómstóll Bretlands. Hafði sami lögfræðingur eftir Soblen, að mál hans hefði aldrei verið tekið fyrir af æðsta dóm- stól Bandaríkjanna — og hann óskaði eftir því að fá málið tek- ið upp, sér væri sama hvar það væri í heiminum. Sagði lögfræð- ingurinn Soblen trúa því stað- fastlega, að fengist málið tekið upp að nýju, yrði hann sýkn- aður. Þriðji lögfræðingur Soblens sagði, að skjólstæðingur þeirra, sem ennþá dvelzt í Brixton- fangelsinu, væri illa haldinn á heilsu, og hefði létzt um fjögur kíló síðustu þrjár vikurnar. Soblen er, sem kunnugt er, haldinn hvítblæði og talinn eiga skammt eftir ólifað. Hann var ekki viðstaddur rétt arfundinn í dag og segja lög- fræðingarnir ólíklegt, að hann geti mætt I réttarsalnum í næstu viku, nema hann verði borinn þangað. —★★— f gær tilkynnti stjórn ísraels, að hún gæti ekki veitt flugfélag- inu EL AL heimild til þess að flytja Robert Soblen til Banda- ríkjanna. Var tekið fram í til- kynningunni, að stjórnin teldi sínum afskiptum af máli Sobl- ens í ratm og veru hafa verið lokið, er hann fór frá fsrael. 72 flskimanna saknað Seoul, Suður-Kóreu, 14. ágúSt. — (NTB-Reuter) — Ó T T A Z T er að 72 fiskimenn hafi farizt í síðustu viku, þegar fellibylurinn Opal fór um Kóreu og nærliggjandi svæði. Fiski- menn þessir voru í tólf fiskiskip um, sem voru að veiðum í ná- grenni Pængnyum eyjar í Gula liafinu, þegar fellibylurinn fúr yfir. Þeirra hefur síðan verið leitað, án árangurs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.