Morgunblaðið - 15.08.1962, Qupperneq 2
2
r
MÖRGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 15. ágúst 1962 '
Ræddu friðarsamn-
inga við Þýzkaland
Myndin sýnir braklð af flug-
vélinni i flugskýli í Reykja-
vík. Skemmdirnar á stélinu
sjást greinilega.
(Ljósm. Mbl. Markús).
anum hinum megin. Sá hann
ekki símavír, sem strengdur
var þvert yfir fljótið, um 350
metra á milli staura. Er sima-
vírinn úr stáli.
Skrúfa flugvélarinnar rakst
beint á vírinn og klippti hann
survdur, en vírinn vafðist þá
upp á skrúfuöxulinn þannig
að mótorinn stöðvaðist. Eftir
áhappið tókst flugmanninum
að lenda á bakkanum en er
dregið hafði úr ferð vélarinn-
ar missti hann annað hjól
hennar út í kvísl úr Tungu-
fljóti. Valt vélin niður í
kvíslina sem er grunn og lenti
upp í loft. Brotnaði annar
vængur hennar af og stélið
laskaðist mikið, en hvorugan
bræðranna sakaði.
Brakið af flugvélinni var
flutt til Reykjavíkur í fyrra-
kvöld.
Lítil flugvél flaug
á símavír
— flugmennirnir sluppu ómeiddir
SL. laugardag varð það óhapp
við Auðsholt í Biskupstung-
um að lítil flugvél flaug þar
á símavír. Tókst flugmannin-
um að lenda en missti annað
hjól flugvélarinnar út af
bakka á kvísl úr Tungufljóti
og valt vélin á bakið niður í
kvíslina. Uvorugan manminn,
sem í vélimni var, sakaði en
vélin stórskemmdist.
Nánari atvik voru þau að
um tvöleytið á laugardaginn
lögðu tveir ungir bræður upp
í flugferð á gamalli Fleet tví-
þekju, en flugvél þessi vax
fyrir nokkru gerð upp úr
tveimur flugvélum sömu gerð
ar.
Bræðumir ætluðu að fljúga
að Gullfossi og Geysi og síð-
an aftur til Reykjavíkur. Á
leiðinni ætlaði flugmaðurinn
að huga að lendingarskilyrð-
um í Auðshölti, en þar hafði
hann verið í sveit. Flaug
hann vélinni lágt yfir Tungu-
fljótið, sem þarna er um 300
metra hreitt, og ætlaði að
huga að lendingarstað á bakk-
Ræddu — Ausk — Dobrynin .. 3
Washington, 14. ágúst.
AP — NTB — Reuter.
I GÆR ræddust þeir við í tutt-
ugu mínútur Dean Rusk, utan-
ríkisráðherra Bandarikjanna og
Anatolij Dobrynin, sendiherra
Sovétríkjanna í Washington. Var
fundurinin haldinn að tilhlutan
hins síðarnefnda, sem sagði, að
honum loknum, að þeir hefðu
tekið upp viðræður um friðar-
samninga við Þýzkaland, þar
sem frá var horfið í viðræðum
Dean Rusk og Andrei Gromyko
i Genf á sínum tíma,
Á þeim fundi hafði Dean
Rustk ítrekað að Vesturveldin
gætu ekki fallizt á að draga her-
lið sín brott frá V-Berlín. Hafði
Gromyko svarað, að þá yrðu
Rússar að gera sérstaka friðar-;
samninga við Austur-Þjóðverja.
Bandaríkjamenn hafa lagt til,
að boðað verði til fjórveldafund-
ar um framtíð Þýzkalands og
Berlínarmálið, en haft er fyrir
satt, að þeirri tillögu hafi verið
fálega tekið í Moskvu.
Að því er talsmaður banda
Sigmundur í
„Gamla barna-
skólanum46
látinn
Á SUNNUDAGSMORGUNINN
lézt hér í borginni í'hárri elli,
Sigmundur Sveinsson, er fyrr á
árum var dyravörður í „Gamla
barnaskólanum".
í vor er leið tók heilsu þessa
mikla trúmanns mjög að hnigna.
Hann sem alltaf var á ferð og
flugi um götur Reykjavíkur, varð
að draga sig í hlé. Fyrir nokkrum
vikum fór hann austur að Sól-
heimum til dóttur sinnar Sesselju
forstöðukonu heimilisins. Þar var
hann fram á þriðjudag sl. Var
hann þá orðinn svo máttfarinn
gamli maðurinn og ljóst ástvin
um hans hvert stefndi, að hann
var fluttur í Borgarsjúkrahúsið.
Er hann lézt á sunnudagsmorg
uninn hafði hann verið rúmfast-
ur í þrjár vikur. Seinustu dagana
var hann meðvitundarlítill.
Hér í Reykjavík eignaðist Sig
mundur slíkan fjölda vina að fá-
títt mun vera. Góðvild hans
streymdi frá honum, og
hann vildi öllum hjálpa, og hann
hjálpaði líka mörgum. Trúmaður
var hann mikill og einlægur.
Útför Sigmundar verður gerð
undir næstu helgi. Hér í Reykja-
vík verður kveðjuathöfn í Dóm-
kirkjunni, en útförin fer fram
að Voðmúlastöðum eftir há-
degi á laugaidaginn. Þar hvílir
kona hans. sem látin er fyrir
mörgum árurr, og þar reisti Sig
mundur litla kirkju í minningu
hennar.
ríska utanríkisráðuneytisins seg-
ir hafði Rusk ítrekað þessa til-
lögu á fundinum með Doibrynin,
en Dobrynin sagt litla von um,
að fallizt yrði á hana. Kvaðst
talsmaðurinn ekki sjá annað en
Berlínarmálið væri óbreytt, að
minnsta kosti hefði ekkert nýtt
komið fram á fundinum í gær.
Samkomu-
lag á mið-
vikudag ?
New York, 14. ágúst.
— NTB — Reuter.
í GÆR skýrði talsmaður U
Thants framkvæmdastóra
Sameinuðu þjóðanna frá
því, að á morgun hefjist
í aðalstöðvum Sameinuðu
þjóðanna opinberar samninga
viðræður um deilu Hoilend-
inga og Indónesa um hol-
lenzku Nýju Guineu.
Þykir yfirlýsing þessi staðfesta
þá frétt, sem í gær hafði ver-
ið sögð eftir áreiðanlegum heim
ildum, að á miðvikudag yrði
undirritað samkomulagið, sem
gerir ráð fyrir þvi, að stjórn
eyjunnar verði fengin í hendur
Indónesíu fyrst um sinn. Aðilar
áttu leynilegar viðræður í skrif
stofu U Thant í New York í gær
og er talið, að þá hafi náðst sam
komulag um öll meginatriði en
fastlega vænzt, að endanlega
verði gengið frá ágreiningsatrxð
um í dag.
Formaður samninganefndar
Indónesíu hefur verið Suibandrio
utanríkisráðherra.
Net gert upptækt í Norðurá
I /* NA /5 hnutar ] / SVS0hnútor - * if 7 Skúrir K Þrumur W'tll KuUosM ^ HitookH N Hmt 1 *■*■&J
f SfeUSTU viku gerði Gestur
Kristjánsson, eftirlitsmaður við
Norðurá í Borgarfirði, upptækt
net, sem lagt hafði verið yfir
þvert aðaldýpi árinnar í Staf-
holtstungunum. Engar ftár eða
korkur voru á neti þessu þannig
að það sást illa og mun svo um
það hafa verið búið til þess að
minna bæri á því.
Norðurá er nú fremiur lftil
vegna stöðugra þurrka að und-
anförxvu. Náði net þetta þvert
yfir aðaldýpið, þar sem laxinn
gengur, en ekkert var í því enda
mun fiskurinn lítið hreyfa sig í
ánni þegar hún er lítil. Ekkert
hélt netinu uppi annað en píp-
ur, sem reknar höfðu verið nið-
ur. Vatnaði því yfir það og sást
það illa.
Mál þetta er enn í atbugun
en sýlsumanni mun verða send
kæra innan skamms.
Þess má geta að nokkur neta-
veiði er í Norðurá á svæðinu
frá Munaðarnesi og niður að
ósum.
Fannst látin
Gautaborg, 14. ágúst. — (NTB)
HIN kuniva bandaríska jazz-
söngkona, June Richmond,
fannst látin í gistihúsherbergi í
Gautaborg í dag.
Bohlen sendiherra
USA í Frakklandi
Lægðin suðvestur af landinu
þokaðist nær 1 gær og hæðin
yfir Norðursjónum færðist lítið
úr stað. Eru því líkur á suð-
austan átt í dag og vætu á Suð-
urlandi.
Norðanlands var víða 14-16
stig í gær. Hefur því hlýnað frá
því, sem var nóttina áður. Hit-
inn komst þá sums staðar ná-
lægt frostmarki í innsveitum
og á E' ðarhóli í Aðaldal mæld
ist melru að segja eins stigs
frost.
Washington, llf. ágúst.
U M síðustu helgi var
skipaður nýr sendiherra
Bandaríkjanna í Frakk-
landi í stað James M.
Gavin, sem sagði af sér því
starfi fyrir þrem vikum.
Hinn nýi sendiherra verð-
ur Charles E. Bohlen, sem
verið hefur sérstakur ráðu
nautur Dean Rusk, utan-
ríkisráðherra, um Rúss-
landsmáL
Bohlen hefur starfað hfá
utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna í 35 ár. Á árunum
1931—34 starfaði hann í París
og aftur árin 1949—51.
Við starfi Bohlens, sem ráð
gjafi í Rússlandsmálum, tek-
ur Llewelyn Thompson, fyrr-
verandi sendiherra Bandaríkj
anna í Rússlandi.
Starf það, sem Bohlen tek-
ur nú við, þykir með mikil-
vægustu störfum í banda-
rísku utanríkisþjónustunni,
eins og sakir standa. Er or-
sökin sá djúpi ágreiningur,
sem er milli Bandaríkja-
nvanna og Frakka að því er
varðar kjarnorkuvopn. Telur
Bandaríkjastjórn að sú á-
kvörðun Frakka að koma sér
upp eigin kjarnorkuher,
muni aðeins verða til þess að
Framhald & bls. 19.