Morgunblaðið - 15.08.1962, Blaðsíða 4
4
MORCJJTSBLAÐÍÐ
Miðvikudagur 15. ágúst 1962
Sel pússningasand
Einnig uppfyllingarefni. —
Sími 50177.
Gunnar Már.
Rauðamöl
Rauðamöl, fín og gróf. —
Vikurgjall. — Ennfremui
mjög gott uppfyllingarefni.
Sími 50997.
Permanent litanir
geislapermanent, — gufu
permanent og kalt perma-
nent. Hárlitun og hárlýsing
Hárgreiðslustofan Perla
Vitastíg 18 A - Sími 14146
Vel með farin
skellinaðra, Viktoria ’60,
til sölu og sýnis að Barma-
hlíð 33. Sími 15024. Afborg
anir eftir samkomulagi.
Vil kaupa
notaðan miðstöðvarketil
stærð 3Vz—4 ferm. ásamt
sjálfvirkum kynditaeki. —
Uppl. í síma 50006, kl. 7—9
e.h. 3 næstu daga.
Tilboð óskast í
Morris 10 ’47 sem er
skemmdur eftir árekstur.
Uppl. í síma 19125 og eftir
kl. 7 í síma 35234.
Óska að taka á leigu
þriggja til fjögurra herb.
íbúð í Reykjavík eða
Kópavogi. Tilb. merkt
,,Reglusemi 7505“, sendist
Mbl. sem fyrst.
Tapað
Laugardaginn 4. ágúst tap-
aðist á Krísuvíkurvegi —
3 vatteppi og 2 koddar. —
Finnandi vinsaml. hringi
í síma 50686.
Aftaníkerra
til sölu og öxlar undir kerr
ur og heyvagna. Ódýrt. —
Uppl. í síma 36020.
Þvottapottur
Sem nýr kolakynntur
þvottapottur til sölu. —
Einnig barnarúm með
dýnu. Uppl. í síma 1874,
Keflavík, eftir kl. 19.00.
Notað píanó óskast
til kaups, aðeins vel með
farið hljóðfæri kemur til
greina. Tiíboð sendist Mbl.
fyrir föstudagskvöld pnerkt
„Hljóðfæri 7510“.
Garðeigendur ath.
Önnumst upptöku garð-
ávaxta. Kartöflur, rófur og
fleira. Fljót og góð vinna.
Sendið nöfn ykkar til Mtbl.
fyrir 1. sept. merkt „7512“.
3ja herb. íbúð
óskast til leigu fyrir 1.
okt. Þrennt fullorðið í
heimili. Tilboð sendist Mbl.
fyrir laugardag merkt:
„Reglusemi 7511“.
Ráðskona óskast
í sveit. Tveir karlmenn í
heimili. Má hafa með sér
börn. Uppl. í síma 34419.
Iðnaðarhúsnæði
neðarlega við Laugaveginn
til leigu (ca 80 ferm.) —
Uppl. í síma 15379.
f dag er miðvikudagur 15. ágúst.
227. dagur árslns.
Árdegisflæði kl. 5:51.
Síðdegisflæði kl. 18:12.
Slysavarðstofan er opin allan sólar-
hringinn. — L,æknavörður L..R. líyrlr
vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8.
Sími 15030.
NEYÐARLÆKNIR — sími: 11510 —
frá kl. 1—5 e.h. alla vírka daga nema
laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla vlrka
daga kl. 9,15—8, laugardaga frá kl
9:15—4, helgid. frá 1—4 e.h. Síml 23100
Sjúkrahifreið Hafnarfjarðar sími:
51336.
Holtsapótek, Garðsapótek og Apó-
tek Keflavíkur eru opin alla virka
daga kl. 9—7f laugardag frá kl. 9—4
og helgidaga frá kl. 1—4.
Næturvörður vikuna 11.—18. ágúst
er í Ingólfs Apóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði vikuna
11.—18. ágúst er Páll Garðar Ólafsson
sími 50126.
BIFREIÐASKOÐUN í REYKJAVÍK:
í dag eru skoðaðar bifreiðarnar R-
11401 til R-11550.
Frá Styrktarfélagl vangefinna.
Látið hina vangefnu njóta stuðnings
yðar, er þér minist látinna ættingja
og vina. Minningarkort fást á skrif-
stofu félagsins að Skólavörðustíg 18.
Sumardvalarbörn, sem hafa verið í
6 vikna dvöl að Laugarási koma 1 bæ-
inn á fimmtudag kl. 4 e.h. að Sölv-
hólsgötu.
Minningarspjöld Krabbameinsfélags
íslands fást í öllum lyfjabúðum í
Reykjavík Hafnarfirði og Kópavogi.
Auk þess hjá Guðbjörgu Bergmann,
Háteigsvegi 52, Verzluninni Daníel
Laugavegi 66, Afgreiðslu Tímans,
Bankastræti 7f Elliheimilinu Grund,
skrifstofunni, og skrifstofu félaganna
Suðurgötu 22.
Séra Jakob Jónsson verður fjarver-
andi næstu 2 vikur.
Séra Jón Þorvarðsson verður fjar-
verandi næstu tvær vikur.
Á I>ESSU ári hafa Rauða Kross ís-
lands borizt ýmsar gjafir og áheit,
sem RKÍ þakkar kærlega.
Fyrir skömmu færði HaUdór Her-
mannsson frá ísafirði RKÍ kr. 4.600,—
að gjöf, en N.N. færði RKÍ kr. 1.000,—
E.S. kr. 100,— og Biskupsskrifstofunni
baret kr. 100,— 1 Kongósöfnun RKÍ.
Öllum þessum aðiljum vill Rauði
Krossinn færa sínar beztu þakkir. Auk
þessa vill Rauði ICrossinn minna á
Minningarspjöld Rauða Kross íslands.
Hjálpið Rauða Krossinum að hjálpa.
Barnaheimilið Vorboðinn: Bömin,
sem dvalizt hafa á Bamaheimilinu
Rauðhólum 1 sum-ar, koma til borgar
innar sunnudaginn 19. ágúst kl. 10
f.h. Aðstandendur vitji þeirra í port-
ið við Austurbæjarskólann.
Bifreiðaskoðun í Reykjavík: í dag
eru skoðaðar bifreiðarnar R-11551 til
R-11700.
LEIÐRÉTTING:
í GÆR var sagt að Guðrún Bjama-
dóttir tæki þessa dagana þátt í feg-
urðarsamkeppni í Istanbul, en átti að
vera Guðný Bjömsdóttir frá Keflavík.
Eru hlutaðeigendur beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Loftleiðir h.f.: Eiríkur rauði er
væntanlegur frá NY kl. 05.00. Fer til
Osló og Helsingfors kl. 06.30. Kemur
tilbaka frá Helsingfors og Osló kl.
24.00. Fer til NY kl. 01.30. Snorri
Þorfinnsson er væntanlegur frá NY
kl. 06.00. Fer tir Gautaborgar og
Kaupmannahafnar kl. 07.30. Þorfimin-
ur karlsefni er væntanlegur frá Staf-
angri, Kaupmannahöfn og Gautaborg
kl. 23.00. Fer til NY kl. 00.30.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 í dag. Væntan-
leg aftur til Rvíkur kl. 22:40 í kvöld.
Hrímfaxi fer til Oslóar og Kaup-
mannahafnar kl. 08:30 í dag. Vænt-
anleg aftur til Rvíkur kl. 22:15 í
kvöld. Flugvélin fer til Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 08:00 í fyrra-
málið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Vest-
mannaeyja (2 ferðir), Hellu, ísafjarð-
ar, Hornafjarðar og Egilsstaða. Á
morgun er áættað að fljúga tiil Akur-
eyrar (3 ferðir), Vestm.eyja (2 ferð-
ir), ísafjarðar, Kópaskers, Þórshafnar
og Egilsstaða.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
KatLa er í Ábo. Askja hefur væntan-
lega farið frá Vopnafirði 1 gær á-
leiðis til Siglufjarðar.
Hafskip. Laxá fór frá Seyðisfirði 13.
þ.m. til Gautaborgar. Rangá kemur
til Reykjavíkur í dag.
H.f. Jöklar: Drangjökull er í Kefla-
vík, fer í kvöld til Vestmannaeyja, og
þaðan til Austfjarðahafna. Langjökull
er í Vestmannaeyjum, fer í kvöld til
Seyðisfjarðar og Raufarhafnar. Vatna
jökull fór frá Vestmannaeyjum í
gær til Grimsbý, Hamborgar, Rotter-
dam og London.
Skipadeild SÍS: Hvassafell er í Rvík.
Amarfell er væntanlegt til Rvíkur 16
þ.m. frá Gdynia. Jökulfell er í Rvík.
Dísarfell fór 1 gær frá Haugesundi á-
leiðis til íeslands. Litlafell losar á Norð
urlandshöfnum. Helgafell er í Aarhus.
Hamrafell fór 12 þ.m. frá Batumi áleið-
is til íslands.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla kom til
Reykjavíkur kl. 7.30 í morgun frá
Norðurlöndum. Esja fer frá Rvík. síð-
degis í dag vestur um land í hring-
ferð. Herjólfur fer frá Rvík. kl. 21.00
í kvöld til Vestmannaeyja og Horna-
fjarðar. í>yrill fór frá Rvík í gærkvöldi
áleiðis til Austfjarða. Skjaldbreið er á
Vestfjörðum á norðurleið. Herðubreið
fór frá Rvík í gærkvöld austur um
land í hringferð.
H.f. Eimskipafélag íslands: Bniar-
foss fer frá NY 17 þm, til Rvíkur.
Dettifoss er í Hamborg. Fjalifoss fer
væntanlega frá Gautaborg 14 þm. til
firði 10 þm. til Rotterdam og Ham-
borgar. Gullfoss fer frá Leith 14 þm
til Kaupmannahafnar. Lagarfoss fer
frá Norðfirði á morgun 15 þm. til
Kahnar, Rússlands, Ábo, Jakobstad og
Vasa. Reykjafoss fór frá Flateyri 14
þm. til Patreksfjarðar, Grundarfjarð-
ar og Rvíkur. SJelfoss fer frá Hull 16
þm. til Rotterdam og Hamborgar.
Tungufoss kom til Rvíkur 13 þm. frá
HuM.
Úr safni Einars Þórðarsonar frá
Skeljabrekku.
Heill þér forna fjallamörk
frægðar bornu slóðir.
Ljúfa morgna laufgi bjöil:
ljóssins orna glóðir.
(Steinn Sigurðsson: Frá
Þórsmörk).
Læknar fiarveiandi
Árni Guðmundsson til 10/9. (Björg-
vin Finnsson.
Alfreð Gíslason 16/7 til 7/9.
Staðgengill: Bjarni Bjarnason.
Arinbjörn Kolbeinsson til 24/9
(Bjarni Konráðsson).
Arnbjörn Ólafsson, Keflavík. tll 18/8.
(Jón Kr. Jóhannsson).
Árni Björnsson 29. 6. í 6—8 vikur.
(Einar Helgason sama stað kl. 10—11).
Björn L. Jónsson 1/8 til 20/8.
(Kristján Jónasson, sími 17595).
Bergsveinn Ólafsson um óákveðinn
tíma (Pétur Traustason augnlæknir,
Þórður Þórðarson heimilislæknir).
Bergþór Smári til 3/9. (Karl Sig.
Jónasson)
Friðrik^ Einarsson í ágústmánuði.
Gísli Ólafsson til 25/8 (Björn Þ.
Þórðarson, á sama stað).
Grímur Magnússon ttl 23/8. (Einar
Helgason).
Guðmunúur Björnsson tU 19/8.
Staðgengill: Pétur Traustason
Guðmundur Eyjólfsson ttl 10/9.
(Erlingur Þorsteinsson).
Gunnar Guðmundsson tU 30/8.
(Kjartan R. Guðmundsson).
Halldór Hansen tU ágústloka. (Karl
S. Jónasson).
Jón Þorsteinsson, ágústmánuð.
Jónas Bjarnason til 27/8.
Karl Jónsson 15/7 tU 31/8. (Jón
Hj. Gunnlaugsson).
Kristjana Helgadóttir til 15. okt.
(Einar Helgason, Klapparstíg 26. við-
talstími. 10—11, sími 11228).
Kristján Sveinsson til mánaðamóta.
(Pétur Traustason augnlæknir, Jónas
Sveinsson heimilislæknir.)
Kristinn Björnsson til ágústloka. —
(Andrés Ásmundsson).
Heimasími 12993.
Páll Sigurðsson, yngri til 31/8 (Stef-
án Guðnason, sími 19500).
Richard Thors frá 1. júlí í 5 vikur.
Ragnar Sigurðsson tU 3/9. (Andrés
Ásmundsson).
Stefán Björnsson 1. júlí til 1. sept.
(Víkingur Arnórsson, Hverfisgötu 50.
Viðtalstími 2—3.30 e.h. alla daga,
nema miðvikudaga 5—6. e.h.
Sveinn Pétursson um óákveðinn
tíma (Skúli Thoroddsen).
Tómas Jónasson til 17/8. (Einar
Helgason).
Valtýr Bjarnason 17/7 tU 17/9.
Staðgengill: Hannes Finnbogason
Viðar Pétursson tU 15/8.
Þórarinn Guðnason til 16/8. Eggert
Pennavinir
Norskur lögfræðingur og frímerkja
safnari óskar eftir að skrifast á
við íslenzkan frímerkjasafnara. Heim-
ilisfangið er:
Karl Ulrik Sanne,
Aspenhaugveien 9B,
Smestad, Oslo,
Norge.
15 ára gömul ensk stúlka, sem hef-
ur áhuga á landafræði, sundi, fuglum
og ferðalögum vUl skrifast á við ís-
lenzkan jafnaldra sinn, pilt eða
stúlku. Heimilifangið er:
Sandra Elisabeth Barker,
324, Rocky Lane,
Great Barr_
Birmingham 22A,
Engiand.
Danskar systur langar til að eign-
ast íslenzka pennavini.
Heimilsfangið er:
Kristin Olsen, og
Karna Hansen,
Vester-Hornum,
Jylland,
Danmark.
STRANDAFJÖLL
Stórbrotnu Strandatindar
standa og klökkna eigi
þó næði norðanvindar
naprir af köldum legi.
Kenna ekki kvíða og sorgir
þó klæðist fannahjúpi.
Sem háreistarriddaraborgir
rísa úr Ægisdjúpi.
Sem heiðnar hríðarvættir
horfa þeir klógum móti,
þó Nástrandar gapi gættir
í grenjandi hríðaróti.
Brimið með heljarhrammi
hamast á klettadröngum,
brotnar við björgin framml,
byltist að urðartöngum.
Þeir víkja hvergi af verði,
voðann þeir flýja ekki,
þó fimbulramt frostið herði,
fjötri sæinn í hlekki.
Mót stjörnum þeir stara með
þótta
sem storki alheimsins veldi,
þá himinhvel heiðskír ótta
hríslar bragandi eldi.
Þá vikið er vetrarins hríðum,
vakið er sumarsins yndi,
búast þeir blómskreyttum hlíðum
— blíður er Ægir í lyndi, —
kvöldsólin klettana roðar,
krýnir tindana eldi.
Syngja þeir sikátu boðar
söngva frá hafdjúpsins veldi.
Sindra við árdagslns auga
atalt þær hvössu hrúnir,
geislalindirnar lauga,
letra þar helgirúnir
um háreista hamrastalla,
hlíðar með blómskrúöi,
umvefja urðarhjalla
sem ástvinur fagni brúðl.
Sem helgar hollvættir standa,
Hervöru lík og þrúði,
þá blítt er og bjart tU Stranda
búast þeir fögru skrúði.
Er þoka þjappast um tinda
þyngjast og síga brúnir,
gegn átökum verðra og vlnda
til varnar, sem Hlórriði, búnir.
Pétur Ásmundsson.
Ég skal ekki biðja yður að fara
það, sem ég er ekki sjálfur fú«
til að fara á undan.
— Ummæli ensks herfor-
ingja.
Góður þegn þarfnast engra for-
feðra.
Sumarleyfisgesturinn var að
synda og kallaði í náunga, sem
stóð á ströndinni: Eruð þér al-
veg vissir um, að hér séu engir
krókódílar?
Já, Já, svaraði náuniginn, há-
karlarnir fæla þá alla burtu.
— ★ —
— Þú mátt ekki egna mann-
inn þinn svona til reiði.
— Jú, eimmltt, hann á að fara
að berja teppi, og þá er ágætt,
að hann sé í skapi til þess.
— ★ —
Nú skaltu gizka á, hvað undrun-
arefni litla ljóshærða konan þín
kemur með heim.
JÚMBÖ og SPORI
Húsið var ískalt og þeir söfnuðu
saman heilmiklu greni til þess að
kveikja upp með. í>eir ætluðu sann-
arlega að sofa vært í vel upphit-
uðu herbergi.
Eftir þvi sem tíminn leið, sætti
Júmbó sig betur við að fá steikta
síld í allar máltíðir og nú hlakkaði
hann til þess að horða og fá sér kaffi-
sopa.
Hann hafði næstum lokið við að
hella í bolla Bobbys, þegar kaffi-
kannan fauk út úr höndunum á hon-
um og byssukúla braut rúðuna og,
þaut í gegnum kaffikönnuna.