Morgunblaðið - 15.08.1962, Page 11
' Miðvikudagur 15. ágúst 1962
MORGVNBLAÐIÐ
11
Menn
til tunglsins
BANDARÍSKIR geimvís-
indamenn eru sagðir allt
annað en bjartsýnir eftir
rússnesku geimskotin tvö,
nú um helgina. Eftir fregn
um að dæma, sem borizt
hafa frá sérfræðingum á
Canaveralhöfða, þá virð-
ast þeir á þeirri skoðun,
að ekkert nema krafta-
verk geti fengið því áork-
að, að þeir verði á undan
Rússum að senda mannað
geimfar til tunglsins.
íjí>
Erlend blöð hafa skýrt
frá því, að þekktur, banda
rískur vísindamaður, sem
starfar að geimrannsókn-
um á Canaveralhöfða, hafi
látið svo um mælt, að líkur
fyrir sigri Bandaríkjanna
í geimkapphlaupinu séu
ákaflega litlar.
<*>
Aður hafði komið fram
af fréttum, að það muni
taka Bandaríkjamenn
a.m.k. tvö ár að ná þeim
áfanga, sem Rússar hafa
nú náð. Er þar fyrst og
fremst átt við, að tvö geim
för hafa verið send á loft
með aðeins 23 Vz tíma milli
bili — þau hafa bæði far-
ið á sömu braut og hitzt,
þannig, að á milli þeirra
sást.
Af þeim yfirlýsingum,
sem fram hafa komið af
hálfu sérfróðra manna,
virðist afrek Rússa fyrst
og fremst byggjast á
tvenns konar tæknifram-
förum, sem orðið hafa síð-
an fyrri geimskot hafa átt
sér stað.
<*>
f fyrsta lagi virðist stærð
fræðilegri þekkingu hafa
fleygt fram, því að ekki
má muna meiru en 14 sek.
er síðara geimfarinu er
skotið á loft, til að það
fari á sömu braut og hið
fyrra. —
f öðru lagi, þá verður að
liggja fyrir nákvæm vissa
um skotkraft og eldsneyt-
isneyzlu, ef áæílun á að
standast.
<★>
Þá er nú Ijóst, að Rúss-
ar eiga a.m.k. tvær stöðv-
ar, þaðan sem hægt er að
skjóta geimförum á loft.
— Bandaríkjamenn eiga
aðeins eina slíka, á Cana-
veralhöfða, og undirbún-
ingur undir hverja geim-
ferð þaðan tekur ekki
skemmri tíma en sjö vik-
ur. —
v£>
Þessar upplýsingar, sem
nú hafa fengizt um aukna
þekkingu Rússa — og þó
munu öll kurl ekki komin
til grafar enn — gera strik
í reikninginn, þegar höfð
er í huga stóráætlun
Bandaríkjamanna um að
senda mannað geimfar til
tunglsins.
Sú áætlun gengur al-
mennt undir nafninu „Pro
ject AppoIlo“ og er runn-
in undan rifjum Kennedys
Bandaríkjaforseta, og sér-
fræðinga Bandaríkja-
stjómar í geimvísindum.
Gerir hún ráð fyrir því, að
mannað geimfar verði
sent til tunglsins ekki síð-
ar en 1970, og jafnvel þeg-
ar á árinu 1967. Kostnað-
urinn er áætlaður milli
20 og 40 þús. millj. dala.
„Project Appollo" hefur
verið gert að umtalsefni í
mörgum stórblöðum vest-
an hafs að undanförnu,
m. a. hafa stórir greina-
flokkar birzt í „New York
Times“.
<*>
Tímaritið U.S. New &
World Report ræðir þetta
mál nokkuð í síðasta hefti
(dags. 20. þ.m.) og birtir
þá m. a. viðtal við nokkra
kunna menn, bæði vísinda
menn og stjómmálamenn,
er lýsa kostum og göllum
við þessa áætlun.
Kemur þar einnig fram,
hvað menn ætla fyrst
og fremst að kynna sér
með því að senda mannað
geimfar til tunglsins. Þar
er einnig vikið að þeirri
skoðun, sem nokkuð hefur
gætt, að um of mikinn
kostnað sé að ræða til þess
að „Project AppolIo“
verði framkvæmt á þessu
stigi málsins. — Fer hér á
eftir stuttur útdráttur úr
viðtölum þessiun:
Þetta eru aðalstöðvar þeirra, sem að þvi starfa í Bandaríkjunum, að senda mannað geimfar til
tunglsins. Aðalstöðvarnar verða fullgcrðar 1964 vg kosta um 90 milljónir dala.
Ummœli 5 þekktra manna
J. Ferguson.
R. L. F. Boyd.
Will. Proxmire.
John W. Paup.
Jolin O’Keefe.
Afstaða
flughersins
JAMES FERGUSON er
hershöíðingi í flughernum
og hefur haft mikil afskipti
af geimrannsóknum þeim,
er farið hafa fram á vegum
flughersins. — Hann telur
það hafa mikla hernaðar-
lega þýðingu, að Banda-
ríkjmenn nái það langt á
Menn eru
óþarfi
Dr. R. L. F. BOYD er einn
kunnasti geimvísindamaður
Breta, og hefur kynnt sér
áætlanir Bandaríkjamanna
um að senda menn til
tunglsins. Hann telur, að
með því að senda aðeins
tæki megi afla 90% þeirra
upplýsinga, sem menn
gætu aflað þar — með 10%
Sóun vísinda-
manna
WALTER PROXMIRE hef-
ur verið þingmaður demo-
krata fyrir Wisconsin síð-
an 1957. Hann hefur kynnt
sér sérstaklega her- og
geimfeiðamál, og er talinn
þingmanna kunnugastur
þeim. — Hann telur, að
skattgreiðendur í Banda-
ríkjunum muni þurfa að
Verkefnið
leysanlegt
JOHN W. PAUP hefur
starfað sem sérfræðingur í
flugmálum og raftækni í
rúmlega 20 ár. — Hann
álítur, að Bandaríkjamenn
ráðist með „Project App-
ollo“ í mun stærraverkefni
en þegar hafizt var handa
um að smíða atómsprengj-
una. Mörg fyrirtæki starfa
Alheimurinn
eilífðarvél?
JOHN A.*-0’KEEFE er upp
hafsmaður þeirrar kenning
ar, að jörðin sé perulaga. —
Hann telur, að með því að
senda menn til tunglsins
megi e. t. v. afla upplýsinga
um það, hvort alheimurinn
sé eilífðarvél — sé svo, virð
ist það brjóta í bága við
sviði geimferða, að geimur
inn verði ekki nýttur af
öðrum aðilum til hernaðar.
— Hann telur tunglið — og
„stöðvar“, sem komið kann
að verða upp í geimnum
mjóg hentugar til athug-
ana, en telur vafasamt,
hvort hentugt yrði að nota
slíkar stöðvar til árása. —
Hann telur það mundi hafa
mikla þýðingu fyrir Banda-
ríkin, sérstaklega vísinda-
lega að ná til tunglsins.
tilkostnaðarins. — Hann
telur kapphlaupið um að
senda mann til tunglsins
pólitískt, fyrst og fremst.
Þegar slíkt sé ákveðið verði
að vega kostnaðinn á móti
þeirri þekkingu, sem búast
má við. Hann telur ekki ó-
líklegt, að Rússar vilji
gjarnan sjá Bandaríkja-
menn eyða miklu fé til und
irbúnings tunglferðar, til
að hætta sjálfir við slíkt
vegna kostnaðar.
greiða mikið fé, áður en
þessi áætlun verður fram-
kvæmd. Hins vegar telur
hann enn alvarlegra, að of
margir vísindamenn hafa
verið teknir í þjónustu
geimvísinda — þeir gætu
gert meira gagn í öðrum
greinum. Hann telur það
ekki munu hafa úrslitaþýð
ingu um valdahlutföllin í
heiminum, hvort Banda-
ríkjamenn verða á undan
Rússum eða ekki.
að lausn verkefnisins, en
samt telur hann það ekki
vera óleysanlegt með þeirri
þekkingu og tækni, sem nú
er fyrir hendi. Þó sé þörf
fyrir stóran hóp manna
með beztu þekkingu, og
enn sé þörf fyrir stóran
hóp sérfræðinga. Hann seg-
ist lítið geta sagt um hve
langt Rússar hafa náð, og
segist meira eða minna líta
fram hjá afrekum þeirra,
við þeim sé ekkert að gera.
þekkt lögmál — sé svo
ekki, þá hljóti alheimurinn
að hafa átt sér upphaf, og
það muni hafa hina mestu
þýðingu fyrir menn að
komast að lausn þessa
máls. — Hann telur ekki,
að upplýsinga um upphaf
lífsins sé að leita á tungl-
inu — jarðfræðirannsóknir
krefjist þess þó, að menn
séu sendir til tunglsins,
ekki sé nóg að senda þang
að tæki.
■
-