Morgunblaðið - 15.08.1962, Qupperneq 19
Miðvikiulagur 15. ágúst 1962
MOFC T’ 7V BJ AÐIÐ
19
I,
Moskva, London, 14. ágúst.
NTB — Reuter.
I DAG héldu rússnesku geim-
fararnir Andrian Nikolajev
og Pavel Popovitsj áfram
ferð sinni um himingeiminn
og hafði í kvöid ekkert verið
sagt um }>að, hvenær þeir
kæmu til jarðar. Uppi eru
margar getgátur um iending-
artíma þeirra, telja sumir, að
þeir lendi seint í kvöld aðrir
að það verði ekki fyrr en
snemma í fyrramálið.
Á hádegi í dag hafði Nik-
Órakaður.
Les ensku.
Popovitsj les ensku í frístund-
um - og Nikolajev er órakaður
olajev farið fimmtíu sinm*n
umhverfis jörðu, en Popovirtsj
þrjátíu sinnum. Báðum leið
ágætlega og skýrði Tass —
fréttastofan frá því, að
Popovitsj notaði frístundir sín
ar til þess að lesa sér til i
ensku. Nokkrum sinnum voru
sýndar af þeim sjónvarps-
myndir í dag, þar sem þeir
voru að rita í athugnarbækur
sínar, en þær lágu hjá þeim í
loftinu. Mátti greinilega sjá á
sjónvarpinu að Nikolajev
hafði ekki rakað sig í fjóra
daga.
1500 km milli geimfaranna
Að því er Sir Bernard
Loveli, forstöðumaður Jodrell
Bank atihugunarstöðvarinnar í
Bretlandi sagði síðdegis í dag,
var fjarlægðin milli geimfar-
anna Vostok 1:11 og Vostok IV
1500 km. Þau voru á sam-
síða brautum og hann taldi
líklegt, að þau myndu lenda
um hálf-sjö leytið í fyrramál-
ið. Sir Bernard sagði augljóst
af þessari tilraun Rússa, að
mögulegt væri að senda mann
að geimfar til tunglsins, því
að Nikolajev væri nú þegar
búinn að vera lengur úti í
geimnum, en svarði til ferða-
lags til og frá tungli.
Bandarískir vísindamenn
hafa lokið miklu lofsorði á
þetta vísindaafrek Rússa. —
Segja þeir nákvæmni tilraun- .
arinnar frálbæra, því að hinir*
rússnesku vísindamenn hafi
aðeins haft yfir að ráða nokkr
um sekúndum til þess að
koma Vostok IV á sömu
foraut og Vostok III.
Þeir Nikolajev og Popovitsj
Ihafa sent sameiginlega kveðj-
ur til vina og vandamanna —
og í kvöld sendu þeir sam-
eiginlegt skeyti til kommún-
istaflokks ráðstjórnarríkjanna
og Nikita Krúsjeffs, og þökk-
uðu honum föðurlega umsjón.
Tass segir, að Nikolajev hafi
eitt sinn, er hann var yfir
Ameríku, sent kveðju sína
„hinni gáfuðu bandarísku
þjóð“ og óskað henni ham-
ingju og friðar. Ennfremur
hafi hann sent „hinum frið-
elskandi þjóðum Afríku“
kveðjur og árnaðaróskir.
Þriðja geimfarið?
í Sviþjóð og Bretlandi
heyrðust hljóðmerki síðdegis
í dag, sem gáfu byr undir
vængi þeim orðrómi, sem há-
vær var í Moskvu í dag, að
þriðja geimfarinu hefði verið
skotið á loft. Síðar var þó
ályktað, að hljóðmerki þessi
foefðu verið frá ómönnuðu
geimfari, er Rússar sendu á
loft fyrir nokkru.
Niðurjöfnun út-
svara í Kópavogi
LOKBÐ er niðurjöfnun útsvara
í Kópavogi og útsvarsskráin
lögð fra í dag, laugardag 11. ág.
Að þessu sinni var lagt á
1789 gjaldendur, þar af útsvar
og aðstöðugjald á 43 fyrirtæki.
Var notaður útsvarsstigi samkv.
lögum um tekjustofna sveitar-
félaga nr. 69, 1962.
Heimildarákvæði 4. málsgr. 32.
gr. nefndra laga um allt að
800.00 kr. lækkun á hvern gjald-
enda voru að fullu notuð, síðan
voru öll útsvör lækkuð um 12
af hundraði.
Var þá náð þeirri útsvarsupp-
hæð, sem fjárhagsáætlun gerir
ráð fyrir, kr. 15 millj. auk 7.2%
fyrir vanhöldum, sem er
nokkru lægra en lög heimila. —
Fjölmörg frávik til lækkunar
voru gerð frá útsvarsstiganum
samkvæmt fyrirmælum og heim
ild 33. gr. laganna vegna erfiðra
ástæðna, aidurs, sjúkleika o.þ.h.
Árið 1961 var jafnað niður á
1669 gjaldendúr, þar af 40 fyr-
irtæki.
— Björgunarflug
Framh. af bls. 20.
ingarstaðnum þannig að Björn
eru nú á næstunni hefur stjórnin
inn sitt hvoru meginn við braut-
arendann. Lenti Björn síðan á
tnilli bílanna og gekk allt vel.
Flaug hann síðan með manninn
til Keflavíkur.
Þar sem þess hafði verið óskað
að læknir kæmi með Birni fór
dr. Friðrik Einarsson með hon-
um í þessa för. Hjúkrunarkona,
sem af tilviljun var stödd í
Landmannalaugum bjó um sár
xnannsins til foráðafoirgða.
Brunatjón
AKUREYRI, 14. ágúst. Kl. fjög
ur í gær var slökkvilið Akureyr
ar kvatt að bragga á Gleráreyr-
um. Braggi þessi er frá stríðsár
unum og var einangraður með
eldfimu efni, og höfðu Strætis-
vagnar Akureyrar þar bækistöð.
Voru þarna geymdir varahlutir
og verkfæri, én þó ekki starf-
rækt þar verkstæði.
Mikill eldur var í bragganum
er siökkviliðiff kom á vettvang
og er bragginn talinn ónýtur eft
ir brunann. Litlu varð bjargað úr
eldinum og mun því þarna hafa
eyðilagst talsverður varahlutalag
er. Eldsupptök munu vera þau að
bifreið ók á rafmagnslínu, sem lá
að bragganum og sleit hana með
þeim afleiðingum að skamm-
hlaup varð. — St. E. Sig.
Silungsveiði
minnkar á
Arnarvamsheiði
AKRANESI, 13. ágúst. — Arn-
arvatnsheiði er eins konar útsær
efri hluta Borgarfjarðarhéraðs
með sínum óteljandi vötnum. —
Þangað gera Borgfirðingar út
leiðangra til silungsveiða á
hverju sumri og dveljast þar
nokkra daga. Nýlega er afstað-
inn vikuleiðangur nokkurra
manna að Úlfsvatni. Frétt hefi
ég, að silungsveiði hafi stórlega
minnkað í vötnum þar inni. Ein-
ar minkabani af Blönduósi dvelst
nú á Arnarvatnsheiði í tvær vik
ur til að herja á minkinn og
hefur unnið nokkra. Svo fer og
Sveinn Einarsson veiðistjóri á
heiðina annað slagið, liggur þar
á grenjum og leggur gildrur fyr-
ir minka. —
__, — Oddur
— Bohlen
Framh. af bls. 2
auka styrjaldarhættuna. Á
hinn bóginn verði væntanleg
ur kjarnorkuher Frakka
aldrei nægilega öflugur til
þess að koma að verulegu
gagni fyrir Atlantshafsbanda
lagið, í mögulegri styrjöld
við kjarnorkustórveldi eins
og Sovétríkin.
★
Sem fyrr segir, hefur Bohl-
en starfað í utanríkisþjón-
ustunni hálfan fjórða áratug.
Þegar hann hóf störf, var
hann þegar tilnefndur meðal
tíu efnilegustu manna þar.
Eftir dvölina í Frakklandi
árið 1934, fór hann til Rúss-
lands í fyrsta sinn og aftur
dvaldist hann þar 1937—39. A
styrjaldarárunum var hann
viðstaddur flestar ráðstefnur
þeirra Stalins, Churchills og
Roosevelts, en hann var þá
einn af nánustu aðstoðar-
mönnum bandaríska forset-
ans. Bohlen var túlkur fyrir
Roosevelt í Teheran 1943, í
Yalta 1945 og fyrir Truman
forseta í Potsdam 1945.
Árið 1953 var Bohlen skip-
aður sendiherra í Moskvu, og
tók þar við af George F.
Kennan. í Moskvu var Bohl-
en fjögur ár, en síðan tvö
ár sendiherra á Filippseyjum.
Að John Foster Dulles, utan-
ríkisráðherra, látnum, skip-
aði Christian Herter Bohlen
sérstakan ráðgjafa sinn í
Rússlandsmálum og því starfi
hélt hann, er Rusk tók við
ráðherraembættinu.
HILMAR F055
lögg. skjaiþ. og dómt.
Hafnarstræti 11 — Sími 14824
Lynghaga 4. Sími 19333.
Ný kenning
um mánann
BlacTcburg, lJf. ágúst. »
— (NTB-AP) -
Bandaríski vísindamaður
inn og Nóbelsverðlaunahaf
inn Harold Urey, kom í
gær fram með nýja kenn-
ingu um tilvist mánans.
Telur hann, að máninn
hafi orðið til algerlega ó-
háður jörðinni.
Urey foar fram þessa kerm
ingu á þingi stjörnufræðinga
sem haldið er í Blackfourg, að
tilhlutan NASA, stjórnax
bandarískra geimrannsókna,
Polytechnic Institute í Virg-
iníu og National Science Fo-
undation. Brýtur kenningin
gersamlega í bága við það,
sem áður hefur verið hallazt
Erfið hey-
skapartíð
VALDASTÖÐUM Kjós, 12. ágúst.
Sláttur hófst hér með seinna móti
að þessu sinni eins og víðar. —
Grasspretta var með minna móti
þegar byrjað var að slá, en eftir
að sláttur hófst fór sprettu vel
fram svo að telja má að gras-
vöxtur sé vel' meðallagi og sums
staðar vel það. Hinsvegar hefur
gengið erfiðlega að þurrka hey,
einkum vegna þrálátra fjalla-
skúra. Á sumum býlum hafa vart
komið meira en 3—4 dagar þurr
ir síðan sláttur hófst, og þá oft
stórrignt. Oft hafa þessar fjalla
skúrir komið mjög misjafnt nið
ur og er heyfengur því að vonum
mjög misjafn. Eitthvað munu
sumir bændur hafa sett í vothey,
en þeir, æm komið hafa upp
súgþurrkun 1 hlöðum sínum
munu hafa sloppið bezt. Þeir
fyrstu eru um það bil að ljúka við
að hirða tún en aðrir munu
skemmra á veg komnir. Vera má
að hitna muni í heyjum og að
sumir hafi hirt heldur djarft. —
Spretta á útengi mun vera allgóð.
— St. G.
að og byggist á tveim megin
hugmyndum — Annarsvegiar
að máninn hafi upphaflega
verið hluti jarðarinnar, hins
vegar að jörðin og máninn
hafi orðið til í einu.
Urey telur hinsvegar, aff
tunglið hafi upphaflega ver-
ið sjálfstætt í sólkerfinu en
snemma í sögu sólkerfisins
hafi jörðin „veitt til sín tungl
ið“ — og bæði jörð og tungl
hafi upphaflega haft, að mestu
leyti, sömu lögun og nú.
Varðandi innri gerð mán-
ans segir Urey, að hann hafi
sennilega meira sameiginlegt
með sólinni en jörðinni.
Harold Urey segir ennfrem
ur, að skömmu eftir að mán-
inn komst á braut jarðar hafi
hann orðið fyrir ákafri árás
loftsteina, sem til þess tíma
höfðu verið fylginautar jarð-
arinnar. Telur hann árekstra
þessa hafa orsakað jarðhrær
ingar á mánanum, sem enn
sjáist merkin um.
— Monte Umbe
Framfo. af bls. 3
— Maria Teresa Benitez, 17
ára, frá Barcelona.
— Og fovernig kunnið þér við
yður á íslandi?
Fyrst kom dynjandi runa af
lýsingarorðum, sem áttu að tákna
hvað fölkið væri gott, en svo
'toom önnur, sem lýsti foví, hve
veðrið væri ógurlega leiðinlegt.
Blaðaljósmyndarar og skátar
eiga að hafa eina sameiginlega
lifsreglu. Skáti segir: Skáti er
folýðinn, ljósmyndarinn á að
segja: Ljósmyndari er hlýðinn.
Þarna var hann samt kominn,
þóttist vera búinn að skoða skip
ið og sagði að sér leiddist. Það
var því ekki um annað að ræða
en fara með gripinn í land.
— Hasta la vista, heyrði blaða
maðurinn inn á milli skamm-
anna, sem hann lét dynja á ljós-
myndaranum. — adios.
Saumastúlkur
Vanar saumastúlkur óskast strax eða
seinna. Einnig vantar stúlku við frágang.
SAUMASTOFAN Austurstræti 17 uppi.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir er verða sýndar í Rauðar-
árporti fimmtud. 16. ágúst kl. 1—3. Tilboðin verða
opnuð i skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
heldur féiagsfund í Breiðfirðingabúð í kvöld kl. 20,30.
Fumlarefni: Kjaramál.
STJÓRNIN.
Til sölu er 5 tonna trillubátur með 16 h.a. Lister-vél,
dýptamiæli, linuspili og veiðaifærum.
Upplýsingai 1 síma 20016.