Morgunblaðið - 17.08.1962, Qupperneq 19
FöstuSagur 17. águst 1902
MORGUISBT AÐIÐ
19
FRANCIS GARY POWERS,
flugmaður, sem flaug U-2 flug
vélinni yfir Sovétrikin og var
tekinn til fanga í maímánuði
1960, hefur krafizt skilnaðar
frá Barböru, konu sinni. Skiln
aðarorsökin er andleg grimmd
og drykkjuskapur.
— Heilsa mín er á heljar-
þröm, segir flugmaðurinn. —
Hin hræðilega framkoma konu
minnar hefur gert mig tauga- 1
óstyrkan. Hún hefur ráðizt á Powers-hjónin, — þegar allt lék
í lyndL
Powers flugmaður
krefst skilnaðar
Ásakar eiginkonuna um andlega
grimmd og drykkjuskap
mig og hellt yfir mig óbóta-
skömmum að tilefnislausu. —
Auk þess drekkur hún meira
og minna á hverjum degi.
En heilsa Barböru hefur einn
ig hangið á veikum þræði. Fyr
ir stuttu var hún flutt í sjúkra
hús eftir að hafa tekið inn of
stóran skammt af svefnlyfjum.
Eins og menn rekur minni
til var Powers flugmaður
dæmdur 1 10 ára fangelsi í
Sovétríkjunum fyrir njósna-
flug árið 1960, en sleppt eftir
19 mánuði í skiptum fyrir
rússneska njósnarann Rudolph
Abel, sem þá sat í bandarLsku
fangeisi. Þegar heim kom var
Powers leiddur fyrir sérstakan
rétt og hreinsaður af öllum
grun um að hafa gefið Rússun
um upplýsingar um starf sitt
í leyniþjónustunni. Allur heim
urinn fagnaði þessum mála-
lyktum, ekki sízt konan hans,
sem bjóst ekki við honum fyrr
en að áratug liðnum.
En nú hefur atburðarásin
tekið skyndilegum og óvænt-
um breytingum. í þetta sinn
eru það ekki veggir rúss-
neskra fangelsa, sem aðskilja
hjónin, heldur ósamlyndi og
taugaveiklun.
Powershjónin voru gefin
saman í hjónaband 2. apríl
1955. Þau eru barnlaus.
— Borgarsfjórn
>' Framhald af bls. 20.
ennfremur innan skamms lóðir
fyrir 200—250 íbúðir í Háa-
leiti, sem jafnvel yrðu tilbúnar
á þessu ári, og fyrir um 100
íbúðir við Kleppsveg. Eru þetta
samtals lóðir fyrir um 550 í-
búðir.
Þá skýrði borgarstjóri frá því,
að á næsta ári yrði lokið við
skipulagningu Breiðholtshverfis
og Fossvogs, og mætti gera ráð
fyrir, að einnig yrði hægt að
hefja þegar á næsta ári bygg-
ingu á einhverjum hluta þess-
ara hverfa. Ennfremur hafa þeg
ar verið lagðir fram uppdrættir
að byggingasvæðum í Árbæjar-
blettum og Selási, sem einnig
verður lokið við að skipuleggja
á næsta ári. Verður þannig á
næsta ári lokið við að skipu-
leggja byggingasvæði fyrir 12—
15.000 manns, sem fullnægja
jnun 5 ára byggingaþörf.
1 lok ræðu sinnar vakti borg-
arstjóri athygli á því, að þar
sem svo stór svæði yrðu tekin
til byggingar, ætti að vera
grundvöllur fyrir því, að ein-
stökum byggingaaðilum verði
falið að gera hin einstöku svæði
byggingarhæf, bæði byggingar-
félögum verkamanna, samvinnu
félaga og byggingameistara. —
Mætti vel hugsa sér t. d. að
stofnað yrði almenningshluta-
félag í þessu skyni.
— ★ —
Guðmundur Vigfússon (K)
mælti fyrir tillögu þeirri, er
hann flutti og fyrr er getið. —
Gagnrýndi hann það sleifarlag
og slóðaskap, sem hann taldi
einkenna allar aðgerðir borgar-
yfirvalda í undirbúningi nýrra
hyggingarsvæða í borginni. Sú
hugmynd borgarstjóra að fela
einstökum byggingarfélögum að
gera lóðir byggingarhæfar er
röng og hættuleg, því að með
því móti yrði kostnaðinum við
þessar framkvæmdir öllum kom
ið yfir á þá, sem lóðimar fengju
tíl byggingar.
Kristj-án Benediktsson (F) tók
mjög í sama stremg og fulltrúi
hommúnista, enda vitnaði hann
tíðum í hann sem áreiðanleg-
ustu heimild sína um málefni
Reykvíkinga.
Gísli Halldórsson (S) vék
nokkuð að þeirri spurningu, hve
margar í'búðir hér þyrfti að
byggja á næstu árum til þess
að mæta fjölgun borgarbúa og
kröfum um aukið húsrými. Kvað
hann það álit þeirra, sem bezt
þekktu til, að næstu 4 ár væri
nægilegt að byggja hér um 650
íbúðir árlega, en ekki rúmlega
930, eins og Guðmundur Vigfús-
son hefði haldið fram. Benti
hann m. a. á ummæli í þessa átt
í grein, sem Halldór Halldórsson
framkvæmdastjóri húsnæðismála
stjómar hefði nýlega ritað í
„Þjóðviljanum". Eftir 1965 þyrfti
hins vegar að auka byggingarnar
um 2%—3% árlega. í lok ræðu
sinnar vakti Gísli Halldórsson
athygli á því, að hér hefur aldrei
verið gert eins mikið átak í
skipulagsmálum, eins og einmitt
á síðustu árum.
Birgir fsl. Gunnarsson (S) vék
nokkuð að því mikla átaki, sem
hér hefur verið gert í byggingar-
málum á undanförnum árum í til
efni af ummælum borgarfulltrúa
kommúnista og framsóknar-
manna um slóðaskap í þessum
efnum. Benti hann á, að á síð-
asta kjörtímabili hefðu verið full
gerðar fleiri íbúðir í Reykjavík
en nokkru sinni fyrr, eða um
2.600, og frá árinu 1954 hefðu
verið fullgerðar hér tæplega
5.500 íbúðir. Sé gert ráð fyrir
3,5 íbúum á hverja íbúð hafi
þannig verið byggðar á sl. 4 ár-
um ííbúðir fyrir um 9.000 manns,
eða fleira fólk en alla íbúa Ak-
ureyrarkaupstaðar
Kvað BÍG engum eiga að geta
blandazt hugur um hinar gífur-
legu framkvæmdir í byggingar-
málum, sem hér hefðu átt sér
stað undanfarin ár. Þetta viður-
kenndu líka allir óvilhallir menn.
T. d. vakti hann athygli í um-
mælum Urban Hansen yfirborg-
arstjóra Kaupmannahafnar, sem
lét eftirfarandi orð falla eftir 10
daga dvöl hér á landi:
„Það er stórkostleg þróun, sem
átt hefur sér stað í Reykjavík
siðustu 10 árin. T. d. eru báru-
járnshúsin, sem áður settu sterkt
svipmót á borgina, að heita má
horfin í hinum miklu þyrpingum
nýrra og glæsilegra bygginga úr
steini, sem risið hafa um alla
borgina á þessum stutta tíma,
Það, að fólk vill leggja að sér til
að eignast góð híbýli, er glöggt
merki um heilbrigðan hugsimar-
hátt.“
— /f> róttir
Sparisjóðsstofnun
í Hveragerði
Á SfÐASTL. vetri var stofnaður
í Hveragerði Sparisjóður Hvera-
gerðis og nágrennis af 40 ábyrgð
armönnum. Verður hann opnað-
ur föstud. 17. ágúst í vistlegum
húsakynnum að Breiðumörk 19,
Hveragerði.
Ákveðið hefur verið að hann
verði opinn fjórum sinnum í
viku, mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga kl. 5—6% e. h. og
á laugardögum kl. 11—12 f. h.
fyrst um sinn, og fari þar fram
öll venjuleg sparisjóðsviðskipti.
Tilgangur sjóðsins er fyrst og
fremst, að auka sparnað yngri
sem eldri og greiða fyrir al-
mennum peningaviðskiptum á
staðnum og í nágrenninu.
Stjórn sjóðsins skipa:
Stefán J. Guðmundsson, hrepp
stjóri, form.
Bragi Einarsson, garðyrkju-
maður og
Rögnvaldur Guðjónsson, verk
stjóri.
Starfsfólk sjóðsins verður
tvennt fyrst um sinn, Ragnar
G. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri
og frú Brynhildur Baldvins.
Nýtt kjöt
1 mánaðarlok
Framleiðsluráð landibúnaðarins
hefur ákveðið að leyfa sölu á
kjöti af nýslátruðu eftir 29. ág.
— 1. ágúst voru til í landinu um
900 tonna birgðir af kjöti, eða uim
600 tonnum meira en til var á
sarna tíma í fyrra.
Framh. af bls. 18.
ir því fara fram í 5 riðlum, en
6. liðið verður frá því landi,
sem heldur úrslitakeppnina.
íslandi var skipað í riðil með
eftirtöldum þjóðum: Skotland,
England, frland, Wales, Holland
og Belgía, Riðill þessi er okkur
mjög hagstæður, bæði hvað styrk
leika snertir og eins að tiltölul.
stutt væri að sækja slíka keppni.
Vissulega væri ánægjulegt að
geta verið með frá upphafi, en
þar er þröngur fjárhagur þránd-
ur í götu.
Þjálfun og fjármál
Bandaríski körfuknattleiks-
gjálfarinn mr. John Wood, starf-
aði hér á vegum KKÍ, fyrir milli
göngu Upplýsingaþjónustu Banda
ríkjanna, frá 2. maí til 28. júlí.
Mr. Wood veitti allstórum hópi
unglinga tilsögn, en auk þess
þjálfaði hann hóp pilta, sem vænt
anlegt landslið verður síðan val-
ið úr.
Allir þeir sem nutu þjálfunar
Mr. Wood, luku upp einum rómi,
að betri þjálfara og leiðbeinanda
hefðu þeir ekki getað kosið að
fá. Væntir stjórn KKÍ að mikill
og góður árangur eigi eftir að
koma í Ijós af dvöl Mr. Wood
hér.
Þó hefði árangurinn af dvöl
þessa ágæta þjálfara getað orðið
ennþá meiri, ef ekki hefði svo
illa viljað til að margir þeirra
pilta, er beztum árangri hafa náð
í körfuknattleik, þurftu að dvelja
fjarri bænum vegna sumarát-
vinnu og gátu því aðeins sótt
æfingar óreglulega.
Helgi Jóhannsson landsliðs-
þjálfari tók við æfingum, er Mr.
Wood fór.
Húsaleiga og annar kostnaður
við landsliðsæfingar mun nú vera
nálægt 30 þúsund krónur og má
ætla að sá kostnaður hafi náð
50 þús. er æfingum líkur í haust.
KKÍ er févana, eins og önnur
sérsambönd. Til að vinna upp
þennan kostnað og til að afla
farareyris á landsleikina í Skot-
landi og Svíþjóð, hefir KKÍ efnt
til happdrættis.
Vinningur er Volkswagen eða
Landroverbifreið eftir eigin vali.
Miðar eru aðeins 4000 og kosta
100 krónur stykkið, en dregið
verður 15. október n.k. Er því
hér um óvenjulega hagstætt happ
drætti að ræða.
Stjórn KKÍ heitir á alla körfu
knattleiksmenn og velunnara
þessarar ungu, en glæsilegu
íþróttagreinar, að styrkja starf-
semi sambandsins með því að
kaupa miða og hjálpa til við sölu
þeirra.
Takist okkur að selja alla mið
ana, er fjárhagsleg trygging feng
in fyrir ferðinni til Stokkhólms
og Glasgow og jafnframt hillir
þá undir að sá draumur geti
ræst, að unglingarnir okkar fái
tækifæri á að reyna krafta sína
við jafnaldra á Bretlandseyj am.
Norstad
í Bonn
Bonn, 16. ágúst — NTB.
LAURIS NORSTAD, yfirmað-
ur alls herafla NATO í Evr-
ópu, kom í dag í heimsókn til
Bonn. Þar átti hann tveggja
tíma viðræður við Adenauer,
kanzlara, og aðra meðlimi
þýzku stjórnarinnar.
Það var Adenauer, sem
bauð Norstad að koma til
Bonn, og sagði í boði kanzlar-
ans, að hann vildi ræða varn-
armál við Norstad.
Síðar í dag hélt Norstad
blaðamannafund í Bonn, þar
sem hann lagði áherzlu á, að
þótt hann hætti nú senn störf-
um, þá táknaði það ekki, að
fyrir dyrum stæði nein breyt-
ing í varnarmálum Banda-
ríkjanna.
Þá sagði Norstad, að þeir
Adenauer hefðu verið alger-
lega sammála í þeim efnum,
sem á góma hefðu borið. Heim
sókninni lauk með því, að Ad-
enauer veitti Norstad heiðurs-
merki.
— Katanga
Framh. af bls. 1
ille Adoula hafi komdð fram með
og miði að sameiningu Katanga
og Kongó. Sagði Tshombe, að
hann væri nú reiðubúinn til þess
að láta . fara fram kosningar í
Katanga um þetta miál. Þá vék
Tshombe nokkuð að afstöðu
Bandaríkj anna til Kongómálsins
og kvað hana verða mjög nei-
kvæða.
Nkrumah, forseti Ghana, sendi
Adoula orðsendingu í dag, þar
sem hann leggst gegn tillögum
um að eitt ríki verði stofnað úr
Katanga og Kongó.
Félagslíf
Farfuglar. Ferðafólk,
Hitardalsferð. Gengið verður
að Hítarvatni og á Hólminn. —
Skrifstofan opin í dag frá 3.30—
5.3'0 og 8.30—10. Sími 15937.
Nefndin.
LITLI FERÐAKLÚBBURINN
Ferð í Landmannalaugar um
helgina. Nánari uppl. í síma
36228.
Litli ferðaklúbburinn.
— Malbikun
átt við Kringlumýrina og ná-
grenni.
— Hafa byggingar ekiki taf
izt af trésmíðavertkfallinu?
— Trésmiðaverkfallið hef-
ur ekki ennþá tafið miikið
vegna þess að aðalvandræðin
við hiúsbyggingar nú er skort-
ur á múrurum, sem kemur til
. af þvi hve þeir hafa taikimarik-
að inngöngu í iðnina. Múrar-
amir hafa því að undanförnu
verið að vinna í húsbygging-
um bæjarins og skólabygg-
ingum, sem eru í fullum gangi
en þegar til lengdar lœtur,
þá fer auðvitað að standa á
trésmíðavinnunni og hæft við
að skólabyggingarnar tefjist.
— Hvaða skólum liggur
mes t á ?
— Það er viðbótin við Hlíða
skólann, sem átti að vera bú-
in fyrst í nóvember, en tefst
Einnig er hætt við að við-
bótarbyggingin við Langholts
skólann tefjist, svo þær verða
varla tilbúnar þegar skólar
byrja.
Við sjáum, að ekki er á-
stæðulaust að varla er hægt
að fá stutt samtal við Gústaf,
án þess að símahringingarnar
séu á meðan stöðvaðar, og
veitum aftur símnotendum
aðgang að honum með því
að standa upp og fara.
— Gnúpa-Bárður
aldur Matthíasson, hafði að
vísu geiigið Vonarskarð áður,
en haft mjög knappan tíma.
Og nú í sumar gerði Ferða-
félagið út ferð þangað, og
eyddum við fjórum dögum í
skarðinu, til að geta gengið
sem bezt frá þessum kafla bó<k
arinnar. 6 leiðangursmenn
gengu auk þess suður yfir
Köldukvíslarjökul á Hamar-
inn í Vatnajökli, fyrst og
fremist til að taka ljósmynddr.
En um Hamarinn gildir það
sama og Vonarskarð, að fáir
hafa komið þangað.
— Er skarðið ófært bílum?
— Já, það má heita. Þó hef-
ur verið farið þetta á jeppum
Þarna eru óteljandi lænur,
sem renna ýmist suður eða
norður af.
— Gáfuð þið mörgum stöð-
um nöfn?
— Já, en við tökum aldrei
upp nöfn öðru vísi en fá til
þess samþykki örnefnanefnd-
ar. Við héldum svo áfram
norður af, um Herðubreiðar-
lindir.
En nú er farið að biðja Jón
um að þýða spá yfir á ensku,
sjálfsagt vegna flugþjónust-
unnar yfir Atlantshafi og við
látum talið niður falla