Morgunblaðið - 23.08.1962, Qupperneq 1
20 síður
49 árgangur
191. tbl. — Fimmtudagur 23. ágúst 1962
Prentsmiðja Mr rgunblaðsins
Stöbusviptingar og fangelsanir i Ungverjalandi:
ildu fella
Háttsettir embættis- eg stjórnmálainefin
sakaðir um að hafa undirbúið samsæri
gegn kommunistastjárninni
VÍNARBOKG, 22. ág. (NTB)
-— Fjölda ungverskra stjórn-
málaleiðtoga og háttsettra
Enn sprengjn
Sovétríkin
UPPSÖLUM, 22. ágúst (NTB)
— Laust fyrir hádegi í ilag
mældust í Uppsölum hrær-
ingar frá kjarnorkusprengju í
gufuhvolfinu yfir Novaja
Semlja. Var sprengjan nálægt
10 megalestir. Mun hér vera
I um aS ræSa enn eina kjarn-
orkusprengingu Sovétríkjanna
' í tilraunum þeim, sem staöið
1 hafa yfir um skeið í Norður-
íshafinu.
embættismanna hefur verið
vikið úr stöðum sínum og
margir þeira handteknir —
fyrir að hafa tekið þátt í að
undirbúa samsæri gegn Janos
Kadar, forsætisráðherra, en
hann er einnig aðalritari
kommúnistaflokksins í land-
inu.
Eru fregnir af atfburði þessum
hafðar eftir áreiðanlegum heim-
ildum meðal stjórnmálamanna í
Vínarborg.
Alls eru 30—50 manns, þ.
á m. margir æðstu embættis-
menn og starfsmenn i innan-
ríkis- og landvarnaráðuneyt-
unum, sagðir vera viðriðnir
málið. Leiðtogi samsæris-
manna er talinn hafa verið
varainnanríkisráðherrann An-
tal Bartos.
Meðal annarra háttsettra
manna, sem hlutdeild áttu í
samsærinu, er nefndur Imre
Dögei, fyrrum landbúnaðar-
ráðherra, sem var rekinn úr
miðstjórn kommúnistaflokks-
ins og sagði af sér þing-
mennsku fyrr á þessu ári.
Er hann sagður hafa leitað eft-
ir stuðningi kínverskra- kommún
ista við stjórnbyltingartilraun. —
Hann var útnefndur sendiherra
Ungverja í Peking árið 1960, en
Framh. á bls. 19
—<S>
Douglas DG-3, þ. e. Dakota-flugvél frá Flugfélagi fslands, af
sömu gerð og áformað er að nota til Færeyjaflugsins, sést hér
lent á flugvellinum í Færeyjum, þar sem henni var tekið með
kostum og kynjum af landsbúum. Myndina tók einn af frétta-
mönnum Mbl., sem fór með vélinni til Færeyja í sl. mánuði.
Mænuveikisýkli
e. t. v. útrýmt
— segir dr. Jonas Salk
MONTREAL, 22. ágúst — NTB
— Dr. Jonas Salk, lýsti því yfir
á ráðstefnu í Montreal í dag, að
sá dagur kynni að renna upp,
að sýkli þeim, er veldur mænu-
veiki, verði algjörlega rutt úr
yegi og hann líði undir lok.
Salk sagði, að samkvæmt þeim
gögnum, sem fyrir liggja, bendi
margt til þess, að bólusetning
gegn mænuveiki verndi ekki
einungis þá, sem bólusettir eru,
heldur fækki sýklinum almennt.
Mæunveikitilfellum hafi farið
áberandi fækkandi bæða meðal
bólusettra og þeirra, sem ekki
hafa verið bólusettir.
— Ef bóluefnið hefði í raun-
inni þessi almennu áhrif, gæti
það leitt til þess að sýkillinn
liði algjörlega undir lok og bólu-
setning yrði óþörf, sagði Salk.
Arangurinn af viðræöum FÍ og Færeyinga:
Regiubundnar flugferðir til
Færeyja eftir 1. apríl n.k.?
Ráðgert að nota Dakota-flugvélar
og fljúga áfram til Skotlands
Þórshöfn, Færeyjum, 22. ágúst.
— Einkaskeyti til Mbl. —
HUGO Fjörðoy, annar þeirra
Færeyinga, sem í gær kom
heim að loknum viðræðum
við Flugfélag Islands í
Reykjavík um reglubundnar
flugferðir til Færeyja, skýrði
frá því, að áformað væri að
hefja ferðir
næsta ár.
hinn 1. apríl
MEÐ DAKOTA-FLUGVÉLUM
Fjörðoy sagði, að í athug-
uit væri að nota flugvélar af
gerðinni Douglas DC-3, þ. e.
Dakota til ferðanna, þannig-
að flogið yrði frá Reykjavik
til Færeyja og þaðan áfram
til Glasgow. A þann hátt
gæfist’ferðafólki kostur á að
ná áætlunarferðum Flugfé-
lagsins alla leið til Kaup-
mannahafnar.
VELTUR A OTBÚNAÐI
FLUGVALLARINS
öll eru þessi áform að sjálf-
sögðu undir því komin, að góður
árangur náist af viðræðum við
landsstjórnina í Færeyjum um
tæknilegan búnað flugvallarins
hér. Þær viðræður munu hefj-
ast bráðlega.
Telur Fjörðoy ekki tímabært
að greina nánar frá áformunum,
fyrr en málið hefur verið lagt
fyrir landsstjórnina. — Arge.
Savannah
— fyrsta kjarnorkukaupfar heims
FYRSTA kjarnorkukaupfar
heims, bandaríska 22,000 smá
lesta skipið „Savannah", létti
akikerum og lagði upp í jóm-
frúarferð sína frá Yorktown í
Virginia-ríki s.l. mánudag,
hinn 20. þ.m. Var förinni heit
ið til samnefndrar borgar, Sa-v
annah í Georgia-ríki í Banda-
ríkjunum. Þangað átti skipið
að koma í gær og mun verða
þar fra-m til 26. þ.m.
„Savannah“ hefur fram til
þessa kostað bandarísku stjórn
ina rúmlega 50 milljónir dala;
þar af kostaði smíði skips-
skrokksins og kjarnonkuofn
þess um 40 milljónir, fyrsta
eldsneytishleðslan, sem end-
ast mun í 3 ár, 1, 4 milljónir
og undirbúningur reynslu-
ferðar og ferðarinnar sjálfar
um 6 milljónir dollara. — Áð-
urnefndur heildarkostnaður
mundi nægja til kaupa á 5
venjulegum flutningasikipum.
Vegna hins gífurlega kostn
aðar við smíði kjarnorkuknú-
inna kaupfara og ennfremur
af því að rekstur þeirra mun,
einkum sakir fjölmennis á"
Fram'hald á bls. 2.