Morgunblaðið - 23.08.1962, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.08.1962, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 23. ágúst 1962, MORGVNBLAÐIÐ 19 Tveir sigla 200 t. skipi frá Noregi til Fœreyja Fóru á nœturþeli til að losna við kyrrsetningu Þðrshöfn, Færeyjum, 22. ág. 1 DAG kom til Koliafjarðar á Straumey nýtt 200 tonna línu skip, Eiríkur jarlur. Var það smíðað í Noregi og varð heim ferð þess með sögulegum liætti, því aðeins tveggja manna áhöfn sigldi skipinu heim, og var farið frá Noregi með mikilli leynd. í>að var aðfaranótt sunnu- dags, sem Eiríki jarli var siglt frá Sagvaag, skaímHt frá Björgvin. Um borð voru skip- stjóri og vélstjóri. Áhöfnin, I sem átti að fara með skipið j heim, átti að koma með ms. ; Heklu frá Færeyjum og halda þaðan á sunnudag, en hálf- I tíma áður en Hekla lét úr | höfn barst skeyti frá skip- j stjóra frá Noregi, þar sem hann sagðist vera á leiðinni, 1 og áhöfnin skyldi bara bíða. I Skipstjóri og vélstjóri, sem | biðu í Noregi eftir að skipið yrði fullbúið, höfðu veður af því á laugardagskvöld, að skipasmíðasböðin myndi ætla að kyrrsetja Eirik jarl og krefjast 150 þús. króna auka- greiðslu ofan á skipsverðið. Skipið átti að vera tilbúið 1. febrúar, en vegna ýmissa galla, sem fram komu, aðal- lega á vélinni, hefur afhend- ingin dregizt úr hömlu. Mikil auikavinna hefur hlaðizt á skipið, síendurteknar reynslu ferðir, og alltaf kom eitthvað nýtt í ljós, sem lagfæra þurfti. Skipstjóri og vélstjóri hafa beðið í Noregi síðan í febrúar og félag það í Kollafirði, sem lét smíða bátinn, hafði ekkert fé handbært til þess að greiða kröfur umfram umsamið smíðaverð, sem hafði verið greitt. Þegar skipstjóra barst njósn af fyrirætlun skipasmíðastöðv arinnar, varð honum ljóst, að Færeyingar myndu ekki 8á skipið, ef haegt yrði að legigja hald á það, og fannst honum óréttláitt, að útgerðin yrði að kosta lagfæringu á hinum margvíslegu smíðagöHum. Þeir félagar létu því í haf í náttmyrkri, kvöddiu hvorki kóng né prest, í hafi stöðvuðu þeir vélina, fengu sér smá- blund og hvíldust um stund, en héldu síðan ferðinni áfram og gekk allt vel. Vélin er frá danslkri verk- smiðju. Slíkar vélar hafa ver- ið settar í tvö ný færeysk skip og hafa reynzit illa í báð um, einkum mun eitthvað vera athugavert við skrúfuna og öxulinn. Annað þessara skipa er Nólsoyar-PáU, sem fór til Grænlands fyrir fimm mánuðum, og leitaði þá m.a. hafnar í Vestmannaeyjum vegna vélabilunar. Veiðin hef ur gengið stirðlega við Græn land, því að mestallan tímann hefur skipið legið með vélar- bilun í Færeyingahöfn. — Bindindismanna- mótið 1962 Framhald af bls. 13. baka, mátulega til að koma á 2. kvöldvöku mótsins sem var á sunnudagskvöldið. Þar voru sem áður fluttir leikþættir og rnörg atriði til fróðleiks og skemmtun- ar. Á eftir var svo varðeldur og dansleikur, sem sagt: eitthvað fyrir alla. Eitt atriði mótsins lang ar mig til að minnast á eg það var getraunakeppni. Höfðu Akur- eyringar með sér glerílát inn- siglað og glært og í það höfðu þeir sett mikinn forða matbauna. Nú áttu mótsgestir að spreyta sig á að geta hversu margar baunir væri í glasinu og verðlaunum heitið. Ekki veit ég hvernig þetta fór eða hvort nokkur gat upp á hinu rétta, því úrslit voru ekki kunn er óg varð að yfingefa mót- ið, en getraunin var þannig að hver þátttakandi skrifaði nafn sitt á miða sem hann fékk og svo töluna sem hann gat upp á fyrir neðan. Síðan var getraunin inn- sigluð þar til mótinu var lokið. Var miikill spenningur í þátttak- endum í þessari keppni. Á mánudag var svo ágætt veð- ur eins og sunnudaginn og um hádegisbilið var mótinu slitið og hver hélt heim til sín eftir vel heppnað mót. Þó æskan væri þarna fjöl- menn, mátti sjá öldunga í hópn- um sem nutu ánægjunnar í rik- um mæli, þarna var Steindór frá Gröf, unglegur sívakandi og fjör- ugur eins og alltaf áður, en hann nálgast að fylla áttunda tuginn. Við hlið hans mátti líta jafnaldra hans Runólf Runólfsson, sem er mikill hugsjónamaður og bregst aldrei þegar góð málefni eiga hlut að máli, Sigríður Sæland og Stígur lögregluþjónn fyrrver- andi í Hafnarfirði, Kristjana mín Benediktsdóttir sem naut alls þarna eins og á fermingaraldri. Mikið var gaman að sjá hvemig eeskan og ellin nutu þessara Stunda saman og er mikil freist- ing fyrir mig að telja margt meira upp en það skal ekki gert þó af fjölda mörigu sé að taika. En tilgangiur minn með þessum línum er ekki að þylja nöfnin tóm heldur vekja athygli á þess- um vel heppnuðu og í alla staði prýðilegu mótum. Það skal líka tekið fram að dll stjórn á mótinu var til stór súma þannig að ég hlaikka til að mæta á næsta móti ef guð gefur líf og heilsu. Við bindindismenn fáum ýmis legt að heyra og ýmsa gagnrýni fyrir okar störf sem eru því mið ur oft af of miklum vanefnum. Þeir sem beina skeytum til okk- ar eru þá lítið að hafa fyrir hvort satt er eða logið hvort rök eða rakaleysi er með í förinni. Hafa fyrir því að kynna sér störf okk- ar, nei slíkt er ékki ómiaksins vert. Það er einni-g deilt á okk- ur fyrir að við skulum ekki bera jafnan hönd fyrir höfuð þegar um slíkar árásir er að ræða, en slíkt er ekki mergur málsins. Við vinnum störf okkar að mestu í kyrþei og saga starfs- ins verður aldrei skráð nema í stórum dráttum. Það sem innan skamms er kerour ekki fyrir margra sjónir. En eitt er vfet að þetta er hugsjónarstarf • sem kannske er alltof lítill gaumur gefinn og tómilæti sýnt. Eg held að árásir á bindindis- samtökin í landinu hefni sín allt- af. Og hver í fullri alvöru telur þjóðinni vænlegra að eiga heil- an her dryikkjumanna fremur en bindindismanna. Og yrði ekki rek in upp stór augu að þekn manni sem auglýsti eftir starfsmanni sem maetti vera hvorttveggja í senn óreglusamur og óáreiðan- legur en þetta fylgist oft að. Ég er ebki í vafa um að það sem þjakar þjóðlífið í dag er á- fengisvandamiálið en alls ekki efnahagsmálin. Við höfum nóg að bíta og brenna en meðferð fjár- muna ekki alltaf ákjósanleg, og um það gildir að hægra sé að afla fjárins en gæta þess. Sú kemur því stund að við verðum að gera stór átök til að stemma stigu við áfengisfaraldr inum sem ekkert gerir annað en veikja þjóðlífið. Þá verðum við að finna sameiginlega leið sem er fær. Eitt í því viðleitni bind- indismanna að fá æskuna til að skemmta sér án áfengis. Þessi bindindismannamót sem haldin hafa sýnt svo ekki verður um villst að hér erum við á réttri leið. Næsta mót á því að verða fjöl- mennasta sem haldið hefur ver- ið og þá er víst að þróunin verð ur í blessunarátt landi og lýð. Stykkishólmi 14. ágúst 1962. Á. H. Skólafatnaðurinn mú fara að koma. — Móttaka á mánudögum kl. 6—7. Notað og Nýtt Vesturgötu 16. Akkerið rann að manninum í SMÁFREGN í Mbl. í gær var skýrt frá því, hvernig einn af áhöfn dýpkunarskipsins Leós hefði bjangað sér undan akkeri, sem stefndi á hann. Frásögnin var ekki nákvæm, og voru ti'l- drög atviksins þessi: Skipið lá fyrir utan sandeyri í Hvalfirði. Voru þá tveir menn sendir með abkeri í land á léttum alúminíum bát. Akkerið lá á hvalbaknum. Vildi þá svo til, að vír, sem dróst aftur úr ahkerinu, festist i skipinu, og þegar á honum strekktist, hafði bátnum nærri hvolft, en akkerið tók að renna ofan af hvalbaknum og stefndi á annítn manninn. Sá hann þann kost vænstan að stökkva út- byrðis. Betur fór en á horfðist, því að vírinn losnaði, svo að báturinn rétti sig af. Maðurinn, sem stökk útbyrðis, var vel synd ur og varð hvengi meint af volik- inu. — Vœringjaskáli Framihald af bls. 6. ganga í augu Reykjavíkur- barna, sem varla er hægt að segja, að séu dús við dýrin. Niðri í mýrinni verður kom ið fyrir stórum báti með öll- um útbúnaði og mun liggja landgöngubrú út í hann, en til skipsstjórnar ætlum við að fá einhvern vistmanna af Hrafn istu og síðan mun hann velja sér skipshöfn úr hópi ungu gestanna, eftir því sem hon- um þykir henta. — Hvaða bátur verður fyrir valinu? — Það er ekki víst ennþá, en mér þykir björgunarbátur- inn Þorsteinn koma vel til greina. Hann yrði sannarlega velkominn að Árbæ. — Nú, svo verður eimvagn- inn gamli fluttur niður eftir og valtarinn, Bríet. Þegar svæðið hefur verið fullskipulagt, er það fullkominn sannfæring mín, að þar verður nóg af skemmtiefni fyrir æskulýðinn. Frá Brauðskálanum Sendum út í bæ heitan og kaldan veizlumat, smurt brauð og snittur. Brauðskálinn, Langholtsvegi 126. Sími 36066 og 37940. Moskvubúarnir sem hér sjást á myndinni virðast vera að. ræða ágæti skreytingar þeirr ar, einnar af mörgum, sem, kornið var upp i Moskvu fyrir helgina, í tilefni fagnaðar þess sem fram fór vegna geimflugs afreksins. — Kadar Framh. af bls 1 hefur aldrei tekið við þeirri stöðu. Á hann að hafa snúið sér til kínverska sendiráðsins í Búda pest og m.a. borið Kadar þeim sökúm, að hann væri Titoisti. Ennfremur herma fregnir, að einn af leiðtogum samsæris- manna staðið fyrir leynilegum fundum, þar sem rætt hafi verið um breytingar á stjórn landsins og flokksforystunni. Orsök brottrekstrar Af þeim mönnum í Vinarborg, sem framangreindrar upplýsing- ar um samsæris undirbúninginn eru kommar frá, eru atburðir þessir settir í samband við hina opinberu tilkynningu um brott- rekstur Rakosi og 22 annarra flokksmanna úr kommúnista- flokknum. — Meðal þeirra, sem sagðir eru flæktir í málið, eru varautanríkisráðherrann Karoly Dapsi, Lab, ofursti, sem hefur verið ritarri í stjórnmáladeild hersins, allmargir herforingjar og deildarstjórar í ráðuneytum; ennfremur forseti herráðsins, Lajos Toth, hershöfðingi. Karoly Vkiss, fyrrum utanríkisráðherra, sem var rekinn úr stjórnarnefnd flokksins fyrir nokkrum dögum, er sagður hafa verið hlynntur samsærismönnum. Til starfa í verksmiðjum — eða fangelsaðir Sumir þeirra háttsettu embætt ismanná, sem nú hefur verið vik ið úr starfi, eru sagðir hafa verið setir til starfa í verksmiðjum, en nokkrir sitja í fangelsi eða stofufangelsi, þ. á m. Dögei, Dapsi, Lab og fleiri. Samsæri þetta er í Vínar- borg talin vera fyrsta alvar- lega tilraunin meðal hátt- settra manna til að steypa Kadar úr valdasessi. Með því að sniúa sér til kínverskra kommúnista og leita fuliting- is þeirra þykja samsæris- menn einnig hafa gert óbeina uppreisn gegn Krúsjeff og núverandi stefnu hans. Ekki er talið óhugsandi í Vín, | að Kadar sjálfur geri grein fyrir • atburðum þessum á flokksþingi ' kommúnistaflokksins í Búdapest * hinn 18. nóvember næstkomandi. - Sjálfvirkt samband ✓ Frh. af bls. 8. — Fylgir ekki aukning húsu kosts þessari miklu aukningu sjálfvirku stöðvanna? — Jú, það er óhætt að segja. í Vestmannaeyjum er við- bótarbygging við símstöðina langt á veg komin og sömu- leiðis í Kópavogi og nýbyrjað er á viðbótarbyggingu við stöðina á Akureyri. Mikil og stöðug f jölgun símnotenda — Hvað eru símnotendur á landinu margir? — Um síðustu áramót voru iþeir orðnir 35.600 og hafði fjölgað um 2.600 á árinu, en það sem af er þessu ári, hafa um 2.000 nýir símnotendur bætzt við. — Hafa símtöl við útlönd ekki stóraukizt við tilkomu sæsímans til Englands? — Þau hafa þrefaldazt og rúmlega það, en auk þess hef- ur orðið mjög mikil aukning langlínusímtala. Sl. ár voru töluð 3.4 millj. viðtalsbil, en árið þar áður 2.9 milljónir. — Hver er áhugi manna á telex-sambandinu? — Mjög mikill og skipti- borðið fyrir sambandið er nú fullskipað og auk þess er þeg- ar kominn nokkur fjöldi manna á biðlista, en hætt er við, að eitthvað dragist að veita þeim úrlausn. — Hefur orðið nokkur aukn ing í skeytaviðskiptum við út- lönd? — Nei, þeim hefur fækkað um allt að 20% og ástæðan fyrir þeirri fækkun er aðal- lega nýi sæsímastrengurinn og svo telex-sambandið. Seljum í dctg Mercedes Benx 190. '57 Opel Rekord 1957 Báðir nýkomnir til landsins. margar gerðir. BÍLASALINN við Vitatorg Símar 12500 og 24088.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.