Morgunblaðið - 23.08.1962, Qupperneq 2
V
MOUGUlSfíLAÐlÐ
Fimmtudagur 23, ágúst ,1962.
74 ára stúlka
myrt í Danmörku
ROSKILDE, 22. ágúst — NTB —
Fjórtán ára gömul stúlka var
snemma á miðvikudagsmorgun
Tilræði við
de Gaulle
PARÍS, 22. ágúst — AP —
Charles de Gaulle, forseta
Frakklands, var á miðviku-
dag sýnt banatilræði, er menn
búnir vélbyssu óku í nánd
við bifreið hans og gerðu
þrjár skotatrennur að henni.
Tveir af hjólbörðum bifreið-
arinnar sprungu, en forset-
inn, eiginkona hans og tengda
sonur, sem í bifreiðinni
voru, urðu ekki fyrir skotum.
Bifreið forsetans hélt hraða
sínum í gegnum smáborgina
Clamart, sem stendur á vega-
mótum. Loft lak þó brátt úr
hjólunum og varð þá að
stöðva bifreiðina. — Önnur
stjórnarbifreið, sem var í
fylgd með forsetanum, varð
einnig fyrir byssukúlu, svo
og 2 einkabifreiðir, sem áttu
leið um. — Lögreglan fann
nokkru síðar fólksbifreið,
sem hafði verið yfirgefin eigi
langt frá, og í henni bæði
vélbyssu og handsprengju.
Tilræðismennirnir voru hins
vegar á bak og burt. — De
Gaulle var á leið til eins af
flugvöllum hersins og var bif
reið þaðan send eftir honum.
myrt í stúlknaheimilinu „Niti-
hus“ í Roskilde. Var morðið
framið um hálfsex-leytið, en þá
urðu aðrir íbúar hússins varir
við að skotið var úr byssu. —
Morðinginn hafði komizt inn til
stúlkunnar, sem bjó ein í her-
bergi á fyrstu hæð. Eftir að
skotinu hafði verið hleypt af,
sá fólk hann skríða út um
glugga og hlaupa á brott.
Aðfaranótt þriðjudagsins hafði
maður einnig læðst inn til þess-
arar sömu stúlku, en hafði sig á
brott, þegar hún hrópaði á hjálp.
Danska lögreglan leitar nú
morðingjans um gjörvalt landið.
Leiðrétting
í grein um austur-viðskiptin í
Mbl. sL þriðjudag féll niður eitt
orð í klausunni undir fyrirsögn
inni GÓLFDÚKAR. Rétt er setn
ingin þannig: Úrval og gæði
hvergi nærri sambærileg o.s.frv.
MYND þessi var tekin í al-
þjóðlegri ökukeppni, sem hald
in var í Vestur-Þýzkalandi
fyrir skömimu. Hellirigning
var, meðan keppnin stóð yfir,
en öikumennirnir lótu það
eikkert á sig fá, heldiur settu
regnhlífar yfir opna bíla sína.
Þrátt fyrir rigninguna voru
alls um 350 þúsund áihorfend-
ur að keppninni. Urðu Eng-
lendingar í tveimur efstu sæt
unum, en Þjóðverjar urðu að
láta sér nægja þriðja sætið.
Nýjasfa ráðstöfun Sovétstjárnannnar:
Embætti yfirmanns sovézka hers-
ins í Berlín lagt niður
Moskvu, 22. ágúst — NTB-AP —
SOVÉZKA stjórnin ákvað í
dag að leggja niður embætti
yfirmanns sovézku herjanna
Miklir jarðskjálft-
ar á Suður-Ítalíu
NAPOLI, 22. ágúst (AP) —
Jarðskjálfta varð enn vart á
Suður-Ítalíu í dag, en þeir
hafa þegar orðið 10 manns að
bana og tugir fólks hafa
meiðst.
Versti jarðskjálftakippur-
inn síðastliðna nótt vakti
mikinn ugg og olli tjóni viða
á Suður-Ítalíu, allt frá Napoli
yfir tii Adriahafsstrandarinn
ar. Hundruð þúsunda fólks
yfirgáfu hús sín og héldu sig
utan dyra fram. á dag.
Fæstir festu blund.
Nýrra jarðhræringa varð
vart í dag, en þær voru með
minna móti. Eftir jarðskjálft
ana í nótt voru heir þó nægi-
lega öflugir til þess að nokk-
ur hús, sem sprungur voru
koinnar í, hrundu. — Alls
hafa um 3000 ibúðarhús hrun
ið eða orðið fynr verulegum
skemmdum í jarðskjálftunum
auk margra opinberra bygg-
inga .
Y NA /5 hnútar
SV 50 hnu/trr
¥ SnjóÁoma
• Oií
V Siiirir
S Þrumur
n-
Oarmhi
KuUaaii!
HihskH
H Hmt |
L-LsdX
í Austur-Berlín. Hefur varna
málaráðuneytið komið þess-
ari breytingu um kring í sam-
ræmi við ákvörðun stjórnar-
innar, segir í frétt frá TASS-
fréttastofunni um málið.
Jafnframt skýrði fréttastofan
frá því, að yfirmenn bandarísku,
brezku og frönsku herjanna í
Berlín yrðu hér eftir fyrst um
sinn að snúa sér til sovézku yf-
irherstjórnarinnar í Austur-
Þýzkalandi með mál, sem snertu
eftirlit með flutningum og til-
færslum á mannafla sínum og
varningi, birgðaflutningi til
herjanna o. s. frv.
Stöðvaðir á borgarmörkum
Tilkynning um þessa ákvörð-
un sovézku stjórnarinnar var
gefin út 2 klukkustundum eftir
að þrjár brynvarðar bifreiðir
sovézka hersins höfðu verið
stöðvaðar í 45 mínútur á borg-
armörkunum. Voru bifreiðarnar
á leið til sovézka minnismerkis-
ins í brezka borgarhlutanum
með hermenn, er standa áttu
vörð þar og leysa með því aðra
af hólmi. Vildu sovézku herfor-
ingjarnir ekki, að bandarískir
hermenn fylgdu þeim til merk-
isins. Sovézkar herbifreiðir, sem
fóru vestur fyrir mörkin sömu
erinda í gær, urðu fyrir grjót-
kasti reiðra Berlínarbúa, vegna
atburða síðustu daga. Eftir áður-
nefnda töf, héldu þó hinar sov-
ézku bifreiðir áfram för sinni
undir eftirliti bandarískra her-
Sætir mótmælum
f Bonn var því lýst yfir síðar
í dag, að ákvörðun Sovétstjórn-
arinnar um að leggja niður em-
bætti yfirmanns herjanna í Ber-
lín, væri ólögleg. Víða annars
staðar hefur ákvörðunin einnig
sætt gagnrýni. í yfirlýsingu í
Washington var m. a. komizt svo
að orði, að Sovétríkin gætu ekki
með ákvörðun sinni vikið sér und
an þeim skuldbindingum, sem á
þeim hvíldu, samkvæmt fjór-
veldasáttmálanum um Berlín.
Meðal stjórnmálafréttaritara er
það útbreidd skoðun, að þessi
breyting sé hugsuð sem einn lið
ur í þá átt að flytja þunga-
miðjuna í stjórn austur-þýzkra
mála á einn stað, til undirbún-
ing því að afhenda stjórnina í
hendur leppstjórn kommúnista í
Austur-Þýzkalandi.
Leiðrétting
f grein Kristjáns Albertssonar
um Sameinuðu þjóðirnar í gær
'hefur orðið sú prentvilla, að íbú
ar Afríku eru taldir 20 milljónir
en áttu auðvitað að vera 200
milljónir.
Sníkjudýr herja á
sýktu síldina við Noreg
UM hádegi í gær var grunn
lægð yfir Austurdjúpi norðan
Færeyja og önur dýpri um
1000 km SV af Reykjanesi,
sem virðist stefna austur eftir
skammt fyrir sunnan ísland.
Lítur út fyrir vaxandi A og
síðan NA-átt hér á landi, þeg
ar lægðin er komin fram hjá.
— Athygli skal vakin á því,
að tölurnar við Vestfirði og
Langanes tákna hitasig á þeim
slóðum (9 stig) og við Suð-
austurströndina (13 stig).
NBSBYEN, 22. ág.
„SJÚKDÓMUR sá, sem vart hef-
ur orðið við í síld undan Noregs-
ströndum, stafar af snókjudýrinu
ektopas caligus“, sagði Skjelbrei
deildarstjóri við hafrannsóknar-
stofnunina mér í símtali í dag.
„Heilsufarslega séð er þessi síld
ókaðleg, en vegna útlitsins er
ekki hægt að selja hana, nema til
dýrafóðurs og á bræðslu. Við höf-
um bannað sölu á þessari síld,
eins og hún kemur úr sjóntum,
en hins vegar höfum við leyft að
láta ósýkta smásíld fara í niður-
lagningu". — Hefur ekiki orðið
vart við þessi sníkjudýr fyrr?
„Jú, vissulega". svarar Skjelbrei,
„en aldrei á svo miklum mæli,
að visindaleg rannsókn hafi far-
ið fram á fyrirbærinu". — Er
nokkuð hægt að gera til þess að
koma i veg fyrir slíkan farald-
ur? „Það er mjög óliklegt“ svar-
ar Skjelbrei að lokum.
Sk. Sk.
— Síldin
Framhald af bls. 24.
Raufarhöfn, 22. ág. — Hér
hafa landað síld til bræðslu (töl-
ur í málum): Sigurður, Siglu-
firði, 476, Guðbjartur Kristján
800, Rifsnes 884, Ver 500, Höfr-
ungur II 630, Hrafn Sveinbjarn-
arson II 690, Jón Oddsson 728,
Guðbjörg 556, Vörður 404, Sig-
urður, Akranesi, 626, Gunnólfur
748 og Fiskaskagi 742.
Góð veiði er í dag norður af
Raufarhöfn, og síldin er stór og
falleg söltunarsíld. Lítið er salt-
að hér nema smávegis í sérverk-
un. — í gærdag hlóð Tungufoss
saltsíld, og í dag er Una hlaðin
síldarmjöli. — Einar.
Síðari fréttir: Hér á Raufar-
höfn hafa nú landað til viðbót-
ar: Björn Jónsson 838; Áskell
266, Leifur Eiríksson 1004, Sig-
rún 578, Pétur Sigurðsson 556„
Fagriklettur 638 og Faxaborg
382 málum.
Framhald er á góðri veiði
norður af Langanesi og Mel-
rakkasléttu. Lítils háttar söltun
er nú á þremur söltunarstöðv-
um. — Einar.
— Savannah
Framhald af bls. 1.
hafnarinnar og hærri launa en
almennt tíðkast, verða u.þ.b.
tvöfalt dýrari en flutninga
skipa af venjulegri gerð, þyk-
ir sýnt, að fleiri kjarnorku-
kauptör verði ekki byggð í
bráð. Rannsóknir eru hins veg
ar hafnar til undirbúnings
því, að smíða kjarnorku-
knúin skip, sem siglt geta um
höfin áihafnalauk. Er von
manna um að rekstur skipa
af þessu tagi geti borgað sig
einkum við það bundinn að
þessu takmarki verði náð. Þó
er talið nægja, ef hægt væri
að koma áhöfn skipanna nið-
ur í 15, en á „Savannah“ em
vélstjórarnir einir svo marg-
ir.
Enn má hafa það til marks
um, hve óarðbær rekstur
kjarnorkukaupfara ennþá er,
að haft er eftir útgerðarmanni
vestra, að hann mundi fremiur
vinda upp segl á ný en hætta
á að kaupa kjarnorkuknúið
skip. — Einn höfuðkostur
kjarnorkuknúinna kaupfara
er sá, að hægt er að nota sem
farmrými það rúm, sem í
venjulegum skipum þarf að
hafa fyrir eldsneytisbirgðir,
þ.e. í flestum tilfellum olíu.
í þeim tilraunum, sem fram
hafa farið með „Savanna<h“
hefur fengist mjög mikilvæg
reynsla varðandi kjarnorku-
kauptör, sem koma mun að
góðu gagni við framtíðará-
törm á því sviði.