Morgunblaðið - 23.08.1962, Síða 3
Fimmtudagur 23. ágúst 1962.
fORGVNBLAÐ1Ð
j___u_i"i-»_i-u_i'U-i~i.ii.fLiLni.rtor~iinrinr ir‘111------- — - * ■ * ■*—■
Óvenjuleg skurðaðgerð í London:
Brezkur læknir gefur dauðvona
1 SÍÐUSTU viku gengust tveir
brezkir Iæknar undir óvenju-
legar skurðaðgerSir í Hamm-
ersmith sjúkrahúsinu í Lon-
don. Annar þeirra dr. Ian
Clark, var haldinn nýrnasjúk-
dómi, liafði aðeins annað nýr-
að og það svo skemmt, að
honum var dauðinn vís. Starfs
bróðir hans dr. David Spencer
brá við og lét honum eftir
annað sitt nýra sem var grætt
Dr. Ian Clark og sonur hans
Timothy. Hann átti skammt
eftir ólifað — en dr. Spencer
hefur gert sitt til að lengja
líf hans.
Allt bendir til þess að árang-
urinn hafi orðið eins og bezt
varð á kosið og vegnar báð-
um vel,
Læknarnir tveir þekktust
ekki, áður en þetta kom til,
en nú taiast þeir daglega við
í síma úr rúmum sínum og
fylgjast með líðan hvors ann-
ars. C'lark hefur lengi átt við
nýrnasjúkdóm að stríða. Fyrir
sex árum var annað nýrað
tekið og hitt versnaði ár frá
ári. Var svo komið, að fullvíst
þótti að hann ætti skammt
efir ólifað. Er Spencer frétti
af þessu og heyrði jafnframt,
að dr. Clark væri sérlega góð-
ur læknir og mikils metinn af
sjúklingum sínum í Reading,
þar sem báðir störfuðu. Sagði
dr. Sper.cer að Bretland mætti
vart v?ð því að missa svo góð-
an lækni, það þyrfti heldur
ekki að koma til, því að sjálf
ur hefði hann tvö heil nýru
og gæti Clark fengið annað,
ef hann vildi. Einn af ættingj
um Clarks bauðst einnig til
þess að láta honum eftir ann-
að nýra, en blóðflokkar þeirra
féllu ekki saman svo það varð
starfsbróður
annað nýra sitt
i dr. Clark.
Læknarnir voru skornir upp
samtímis og tóku aðgerðirnar
sex klnkkustundir samfleytt.
Morris er með
vökvafjöðrun
Nýjung á bílamarkaðnum
VöKVAFJöÐRUN er nýjung á
bílum. Morris 1100 hefur þennan
nýja útbúnað og var fréttamönn-
um í Reykjavík gefinn kostur á
að skoða og reyna gripinn í gær.
Ekki eru nema nokkrir dagar
síðan þessi bíll kom á mankaðinn
og hefur hann vakið mikla at-
hygli í Evrópu. Auk þess sem
þetta er rrijög rúmgóður oig þæigi
legur 5 manna vagn, þá virðist
fjaðraútbúnaður engu lakari en
það bezta, sem hingað til hefur
þekikzt: Engir gormar eða gam-
aldags fjaðrir, heldur vökva-
kerfi, samtengt — og á það að
endast jafnlengi og allur bíllinn
verði hann ekki fyrir hnjaski eða
slysum.
Bíllinn er með framihjóladrifi
og eru drifin, gírkassi og vélin í
einni pönnu ef svo mætti segja:
Sameiginleg áfylling. Aðeins
fjórir smurkoppar eru á bílnum
og á að smyrja í þá eftir hverja
fimm þús. km. Bíllinn er þýður
í akstri, hallast hverfandi lítið
í snöi-pum beygjum og fer mjúk-
Frú Spencer (til vinstri) og frú Clark. Myndin var tckin í
Hammersmith sjúkrahúsinu, er þær hittust fyrst.
ónothæft.
Frá því dr. Clark og dr.
Spencer, sem eru báðir liðlega
þrítugir, voru lagðir í sjúkra-
húsið í London hafa konur
þeirra kynnzt og orðið góðar
vinkonur Clark hjónin eiga
tvo drengi, fimm og tveggja
ára gamla og hefur frú Spenc-
er aðstoðað frú Clark við að
gæta þeirra í stórborginni síð-
ustu dagana. ,
STAKSTtlWIÍ
Tíminn
og „austurviðskiptin“
Tíminn er við sama heygarð#-
hornið. Ekki er að marka eitt
einasta ovð, sem í þvi blaði stend
ur um stjórnmál. Að vísu er það
engin ný bóla. en hinu ber ekki
að leyna, að blaðinu hrakar með
hverjum degi sem líður hvað
sxiertir réttar frásagnir og upp-
lýsingar. Það mundi æra óstöðug-
an og ætla sér að leiðrétta allar
þær firrur, sem blaðið ber á
borð fyrir lesendur sína. Mbl.
verður því að láta nægja að minn
ast aðeins á örfá dæmi. Og nú
blasa þessi ósannindi við í Tím-
anum í gær: .,Skrif Mbl. og Þjóð-
viljans um „austurviðskiptin“
hafa verið býsna skemmtileg á
köflum, þótt af miklum öfgum
og ofstæki ti? beggja handa sé
þar f jallað um alvarlegt og mikils
fjaílað imii afvíiiicgt og mikii*
vrrt máf þjóðavin.nar. Þjó'ivilj-
inn liclrt-ir jivi fv.im — Jivi
cr maiiní skilsi, avönisk.'ijila-
vcrzliinin við kumiminislarik-
in sr hagkvaimnátu vjðskipti,
scm lutgsart "Ctur. MM. JicWur j
jivi hins vcgar fr.am, að viiV-
skiptin síu svo óhagstii-fS, a'3l
hcini beri aS liiMta þegar i staiV.
i:tlTii, fís'-Vi rrnsíð svo langtj
vert mál þjóðarinnar. Þjóðvilj-
inn heldur því fram — að því er
manni skilst, að vöruskiptaverzl-
unin við kommúnistaríkin sé hag
kvæmustu viðskipti, sem hugsast
geta. Mbl. heldur því hins vegar
fram að viðskiptin séu svo óhag-
stæð, að þeim beri að hætta þeg-
ar í stað“. En hvað er hið sanna
í þessu máli? Morgunblaðið hefur
sýnt fram á með rökum að við-
skiptin við Austur-Evrópulöndin
eru íslendingum mjög óhagstæð
og hafa komið niður á neytenduru
í landinu ckki sízt þeim, sem
hafa reynt að byggja yfir sig
íbúðir. Um það mál þarf ekki
að deila.
lega yfir ójöfnur enda hefur
hann verið nefndur „teppið
fljúgandi.“ Hann eyðir 6 lítrum
á 100 km.
Þ. Þorgrímsson og Co. hefur
nú tekið við Morris-umiboðinu
sem síðast var í höndum Gísla
Jónssonar. Sagði framkvæmda-
stjórinn, Þorgrímur Þorgrímsson,
í gær, að fyrirtækið væri nú að
flytja í nýtt húsnæði, stórhýsi,
sem verið væri að reisa að Suður
landisbraut 6. Þar verður á laug-
ardag og sunnudag bílasýning:
Morris 1100, sporbbíllinn Morris
Midget og Morris Mini-Minor
verða þar til sýnis.
Morris er framleididur hjá
British Motor Corporation, sem
m.a. framleiðir einnig Austin
bílana. Hefur Morris náð mikilli
útbreiðslu í mörgum löndum,
t.d. í Danmönku.
Þ. Þorgrímsson hefur í hyggju
að koma upp góðum varahluta-
lager hið fyrsta og fyrst um
sinn mun Spindill annast við-
gerðir Morrisbíla fyrir umboðið.
Loks má geta þess, að fjög-
urra dyra Morris 1100 kostar
hingað kominn með útvarpi, kr.
154,000. Tveggja dyra kostar
hann kr. 143,000.00.
Morris Mini-Minor De Luxe Tra
veller kostar kr 128,00.00 De Luxe
Saloon kr. 112,000,00 og Morris
Mini-Minor sendiferðabíll kostar
kr. 96,000,00. Hins vegar kostar
það ekki nema fáein þúsund að
breyta sendiferðabílnum í fólks
bíl, setja í hann glugga o.fl. —
og er slíkt algengt.
Koma heim
af síldinni
Akranesi 21. ágúst.
Ms. Hvassafell lestaði hér í
gær 900 tonn af sementi er það
flytur til Norðurlandshafna.
Svanur landaði í gær 3 tonnum
af humar og Ásmundur landaði
einu tonni aftur nóttina. Þrjár
línutrillur reru háðan í dag. —
Bensi fékk á sex bjóð 680 kg. af
vænni, spikfeitri ýsu.
Vélbátarnir Keilir Og Reynir
koma heim af síldinni á morgun.
— Oddur.
• •
Olvaðir unglingar
í árekstri
AKUREYRI, 20. ágúst. — Sl.
laugardag á 4 tímanum varð harð
ur árekstur á Akureyri milli
vörubifreiðai frá Akureyri og
fólksbifreiðar frá Reykjavík.
Báðar bifreiðarnar skemmdust
mikið, en þó Reykjavíkurbifreið-
in meira. Bifreiðarstjóri ásamt 6
ára telpu var í Reykjavíkur-
bifreiðinni og hlaut telpan ein-
hver meiðsli. Á Akureyrarvöru-
bifreiðinni voru tveir 18 ára pilt
ar frá Akureyri. Höfðu þeir rænt
bifreiðinni og voru ölvaðir og
próflausir. Málið er enn í rann-
sókn. — it e. sig.
Hvað sagði Morgunblaðið
En hvei’ er sannlcikurinn í full
yrðingum Tímans í gær? Mbl.
hefur m. a. sagt: „Auðvitað eru
það hagsmunir útgerðarinnar að
geta selt sem mest og víðast, og
þeir hagsmunir eru vissulega
þungir á metunum, en takmörk
eru þó fyrir því hvaða byrðar er
hægt að lcggja á herðar neytenda
til að gæta hags útgerðarmanna“.
Það er óvefengjanleg staðreynd,
að íslenzkir neytendur hafa stór-
skaðazt á viðskiptunum við járn
tjaldslöndin, þar sem þeir hafa
verið nevddir til að kaupa verri
og dýrari vömr til neyzlu en eUa.
Mbl. hcfur ennfremur sagt: „Út
af fyrir sig er það eðlilegt að út-
vegsmenn vilji að við haldið sé
þvinguðum viðskiptum við aust-
ur Evrópu og vera má að
það reynist nauðsynlcgt að
einhverju leyti, en hitt er liklega
affarasælast, bæði fyrir útveginn
og þjóðarheildina, að viðskipti
þessi væru frjáls, þannig að
þangað mætti flytja hverja þá
vörutegund, sem útflytjendur
óskuðu og kaupa þar hvaða vöru
sem innHytjendur vildu þar
kaupa. Á þann hátt einan fengist
líka rétt mat á hagkvæmni þess-
ara viðskipta“.
Morgunblaðið vill að viðskipt-
in séu frjáls, enda hefur frjáls
verzlun ætíð reynzt happasæUI
en haftastefnurnar. En vegna
þess að Morgunblaðið vill frjálsa
verzlun við kommúnistaríkiu
eins og önnur ríki fullyrðir Tím-
inn að blaðið hafi haldið því
fram, „að viðskiptin séu svo óhag
stæð (við járntjaldslöndin) að
þeim beri að hætta þegar í stað“.
Þannig eru öll skrif Tímans
einn endalaus blekkingarvefur.
Þess verður ekki langt að bíða að
aðalfréttirnar af Tímanum verði
þær, að þar finnist sannorð setn-
ing.