Morgunblaðið - 12.09.1962, Blaðsíða 10
10
MORGINBLAÐIB
Miðvikudagtir 12. sept. 1962
i?*ÍRí®llí|:^
'iékm
í SÍÐUSTU viku létust
tvö heimskunn skáld,
danska skáldkonan Karen
Blixen, sem skrifaði und-
ir nafninu Isak Dinesen,
og bandaríska ljóðskáldið
og smásagnahöfundurinn
Edward Estlin Cummings.
Karen Blixen var 77 ára
er hún Ifzt síðdegis á föstu-
daginn, að heimili sínu að
Rungstedlund, en þar hafði
hún leg/ð meðvitundarlaus
frá því snemma á fimmtu-
dag. Heilsu hennar hefur
hrakað mjög hin síðustu ár
— fyrir sjö árum gekkst hún
undir heilaskurð hjá prófess-
or Busch í Kaupmannahöfn
og árið eftif var hún skorin
upp við magasári. Er skáld-
konan var á ferðalagi um
Bandaríkin árið 1959 varð
Tvö skóld
Danska skáldkonan Karen Blixen og
bandariska Ijóbskáldið, smásagna-
böíundurinn og málarinn
E.E. Cummings
E. E. Cummings
hún enn veik og varð að
dveljast um hríð í sjúkrahúsi.
Karen Blixen fæddist að
Rungstedlund og bjó þar 5
þrjá áratugi, eftir að hún
kom til Danmerkur eftir lang
dvöl erlendis. Verður skáld-
konan jarðsett í dag, þriðju-
dag, í einkagrafreit undir
stóru beykitré í garði óðals-
ins. Var það ósk hennar að
hljóta þai- legstað.
Fyrir nokkrum árum var
stofnaður sérstakur Rung-
stedlund-sjóður, að tilhlutan
skáldkonunnar, og árið 1958
opnaði hún hluta af garðin-
um sem skemmtigarð fyrir
almenning og griðastað fyrir
fugla. Er líklegt, að komið
verði upp sérstöku safni í
húseig* skáldkonunnar til
minningar um hana.
★
Karen Blixen fæddist árið
1885, dóttir óðalsbóndans á
Rungstedlund, Wilhelm Dine-
sen, sem skrifaði „Boganis
Jagtbreve". Hann lézt er
Karen var tíu ára, en móðir
hennar lifði til ársins 1939.
Bróðir Karenar Blixen er
rithöfundurinn Thomas Dine-
sen og systir þeirra, Ellen,
gaf árið 1930 út tvær bæk-ur
undir dulnefninu Paracelsus,
og var lengi talið að þær
• væru eftir Blixen.
Árið 1914 giftist Karen
Blixen Bror Blixen-Finecke,
barón, og fluttist með hon-
um til Afríku. Ráku þau
kaffiekru skammt frá Nai-
robi í Kenya um árabil. —
Samvistum slitu þau árið
1925, en Karen bjó áfram á
búgarðinum í Kenya í sjö ár.
Á unga aldri hneigðist hug-
ur Karenar að málaralist.
Hún nam við Listháskólann
í Kaupmannahöfn í nokkur
ár og síðar í París og Róm.
En ekki leið á löngu, áður en
penninn kom í stað pensils-
ins. Þó málaði hún eitthvað
í Afríku.
Karen Blixen fékk sín
fyrstu verk prentuð í tíma-
riti á árunum 1907—09 undir
dulnefninu Osceola en veru-
lega athygli vakti hún fyrst
árið 1934, er út kom í New
York og London bókin „Sev-
en Gothic Tales“. Bókin var
skrifuð í Kenya, á ensku, en
kom ári síðar út í Danmörku
í danskri þýðingu skáldkon-
unnar sjálfrar. í Bandaríkj-
unum var bókin valin „bók
mánaðarins“, en svo hefur
einnig vérið um fjórar aðrar
bækur skáldkonunnar.
Um veru sína í Afríku
skrifaði Karen Blixen bók-
ina „Den afrikanske farm“
og kom hún út árið 1937. —
Þykir sú bók persónulegasta
verk skáldkonunnar og ein-
kennast af næmum skilningi
hennar á landi og þjóð. —
Meðal bóka frá síðari árum
eru „Babettes Gæstebud"
(1952), Spögelseshesten
(1955) og Sidste Fortælling-
er (1957). Karen Blixen kom
nokkrum sinnum til greina
við úthlutun Nobelsverð-
launa, m.a. árið 1957 og 1958.
Bandaríska ljóðskáldið og
smásagnahöfundurinn E. E.
Cummings lézt 3. september
sl. af hjartaslagi, 67 ára að
aldri. Sem ljóðskáld var E.
E. Cummings víðkunnur, m.
a. vegna sérvizkulegs stíls í
ljóðagerð. Fiest ljóð skrif-
aði hann án upphafsstafa,
skrifaði jafnvel nafn sitt oft
með litlum stöfum „e.e.
cummings" — og ritháttur
hans var um fleira frábrugð-
inn venju. Hann varð þó al-
mennt viðurkenndur sem á-
kjósanleg leið til þess að
miðla og styrkja meiningu
hins ritaða orðs.
Edward Estlin Cummings
fæddist í Cambridge í Massa-
chusettes 14. október 1894.
Foreldrar hans voru hjónin
Rebecca Haswell og Edward
Cummings, fríkirkjuprestur,
sem verið hafði fyrirlesari og
aðstoðarprófessor í enskum
bókmenntum við Harvard-
háskólann. Cummings yngri
lauk B.A.-prófi í bókmennt-
um árið 1915 og M.A.-prófi
ári síðar. Áður en Banda-
ríkjamenn hófu þátttöku í
heimsstyrjöldinni fyrri gerð-
ist hann sjálfboðaliði í
franska hernum og ók þar
sjúkrabifreið. Þá var hann
tekinn höndum og fangelsað-
ur um skeið fyrir smávægi-
■ legt brot á reglum hersins.
Á fangelsisvist hans byggist
smásaga hans „The Enor-
mous Room“, sem talin hef-
ur verið meðal fárra veru-
lega góðra ritsmíða banda-
rískra rithöfunda úr þeirri
styrjöld.
Að styrjöldinni lokinni
bjó Cummings í París, en þá
voru daglegir gestir á veit-
ingahúsum í Montparnesse,
margir bandarískir lista-
menn, rithöfundar og málar-
ar, er síðar öfluðu sér viður-
kenningar víða um heim.
Cummings var raunar í París
til þess að nema listmálun og
var hann allt sitt líf jöfnum
höndum málari og rithöfund-
ur. Á hinn bóginn þóttu mál-
verk hans jafn auðskilin og
ljóð hans voru torskilin. f
bandaríska vikuritinu „Time“
segir meðal annars (I júní
1949), að hin sólríku málverk
hans af eplatrjám í blóma
og ljóshærðum, háleggjuðum
nektardísum, séu gerð með
mikilli og hispurslausri gleði.
í þeim sé hvergi að finna
þann ökennileika, sem geri
það að verkum að bækur
hans, sem oftast séu minnis-
stæðar, veki á stundum reiði
manna og leiða. í samanburði
við ljóðagerð Cummings séu
málverk hans þýð og heil-
brigð „eins og nýtt smjör'
I búð
2—3 herbergja, helzt í Austurbænum, óskrst nú
þegar fyrir hjón með eitt barn (á fyrsta aixj. r'yrir-
framgreiðsla eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir
Guðm. Ingvi Sigurðsson, hrl., Klapparstíg 26,
sími: 22681.
GEæsiIegt einbýlishús
7 herbergi með innbyggðum bílskúr og miklu
geymsluplássi til sölu við Alfhólsveg.
Góðir greiðsluskilmálar.
Austurstræti 14. 3. hæð.
Símar 14120 og 20424.
Leiklistarskóli
ÆVARS KVARANS tekur til starfa í þessari viku.
Upplýsingar í síma 34710.
S I) P E R
VATNVERJA
Framleitt á ÍSLANDI úr hráfefni frá:
Ttvgress !s Our Most fmportant Ptorfuct
GENERALÍH EIECTRIC
-U.Í.A.-
Fæst nú einnig hjá
Hafnarfjörður:
Skipasmíðastöðinni Dröfn hf.
Blönduós:
Kristjáni Gunnarssyni, byggingarmeistara.
Hornafjörður:
Guðmundi Jónssyni, byggingarmeistara.
Ólafsfjörður:
Gísla Magnússyni, byggingarmeistara.
Umboðsmenn óskast úti á landi.
Verksm. KISILL Lækjargötu 6b Reykjavík
Sendisveinn
óskast nú þegar.
Magnús Kjaran
umboðs- & heildverzlun
Sími 24140.