Morgunblaðið - 12.09.1962, Síða 20

Morgunblaðið - 12.09.1962, Síða 20
20 M O R G V N P, T. 4 Ð I h Miðvikndíigur 12. sept. 1962 ^HOWARD SPRING: 28 RAKEL RðSING rykk, sem hafði næstum hálsbrot ið hana. Bíllinn skrönglaðist yfir mölina og rann i stórum sveig fram hjá fordyrunum, og þaut svo út á heimreiðina, þar sem hrossakastaníur uxu til beggja handa. En hún hafði engan tíma núna til að dást að landslaginu þarna, svo mjög sem hún elskaði bað, heldur knúði hún bílskrjóð- inn áfram það sem hann þoldi. Þorpið var lítið meira en ein löng gata. Um leið Og Mina þaut fram hjá, tók hún eftir auglýs- ingunum í gluggunum hjá kjöt- salanum og bakaranum og kaup- mannsbúðinni, sem var jafn- framt pósthús. Það var meira að segja auglýsing á spjaldinu við kirkjuna. „Verið frískar en ekki feitar um fertugt". Síðan kom tilkynning þess efnis. að ungfrú Wilhelmina Heath ætlaði að stjórna námsskeiði í líkamsfegr- un á hverjum miðvikudegi í leik- fimihúsi þorpsins, fyrir alla, sem sækja vildu. en einkum var kon- um, fertugum og þar yfir boðin þátttaka. Mina hafði ekki ein- ungis sett upp þessar auglýsing- ar, heldur hafði hún einnig talað fyrir þessu uppátæki sínu. Feg- urðin var hennar átrúnaður. — Hennar eigin granni og léttvaxni líkami var hennar helzta hrós- unarefni. Hún ól upp afghanska hunda og gaf þá siðan. af því að þeir vöru fallegri. Og hún elsk- aði Markhams vegna þess. hvað bað var fallegt og vegna þess, hve lífinu var lifað þar hægt og rólega. Konurnar í þorpinu, sem drögnuðust áfram, digrar eins og beljur, voru henni viður- styggð. Á þessu sviði var hún ofsa fengin og ósveigjanleg. Hún þræl aði þeim í þessar kennslustundir sínar og útvegaði þeim jafnvel fatnaðinn til þess — hvítar stutt- buxur og skyrtur — ef þær þótt ust ekki geta verið með fyrir fátæktar sakir. Hún hafði ekkert auga fyrir því, sem skoplegt var, annars hefði hún ekki þurft annað en líta snöggvast inn í leikfimishús- ið — gjöf frá föður hennar — til þess að hrökkva aftur á bak, öskrandi af hlátri. Einar tólf alvarlegar húsmæður biðu henn- ar þarna — ennþá hræðilegri út- lits í fimleikafötunum en þær höfðu nokkurntíma getað orðið í sparifötunum um helgar. Þarna stóðu þær, vandræðalegar og feimnar, vel vitandi um hræði- legt vaxtarlag hver annarrar. En í Wilhelminu augum voru þær ekkert hlátursefni. Þetta voru þær, sem hún hafði snúið til réttrar trúar og áttu síðar að verða gimsteinarnir í hennar eigin heiðurskórónu. Hún skellti aftur hurðinni á eftir sér og læsti, æpti glaðklakkalega góðan daginn, og án allrar feimni losaði hún af sér beltið. sté upp úr víðu buxunum og var nú í stuttbux- um einum saman, sem skyldu vera eins og þær. sem nemend- urnir báru. En það voru þær ekki. Þær voru sem sé mátuleg- ar og fóru henni vel. Svo fór hún úr jakkanum og var þá í bol eins og hinar. Og nú var allt tilbúið. Þetta var fyrsta kennslustund- in hennar. Hún hafði tekið sam- an ofurlítinn ræðustúf og flutti hann nú á áhrifamikinn hátt. Mina var hvergi hrædd við að ljúka munni sundur. Hún var leikkona, þá sjaldan hún fékk eitthvað að gera í þeirri grein. Hún hafði þegar fengið nokkur góð hlutverk og hún skyldi fá fleiri áður en lyki. Hún stóð því hér og talaði til nokkurra gapandi hrognkelsa um fegurð og sæluna, sem góðri heilsu fylgdi. og ljótleik framsetts maga og þar fram eftir götunum. — Frú Harrison eiginkona gestgjax ans í kránm þarna á staðnum, hafði uppburði til að gripa ofur- lítið fram i. Hún sagði: Þetta er nú allt saman gott og vel ung- frú Mina, en þegar maður hef- ur nú átt tvíbura, eins og ég, getur maður varla að því gert þó að maður verði dálítið skvapað- ur. En við skulum sjá, hvað þú ætlar að gera við okkur,^og með- an við klofrifnum ekki .... Og ef þú gerir Venus úr henni frú Mortimer, þá segi ég ekki annað en: Guð hjálpi henni! Kallinn hennar er víst nógu afbrýðis- samur án þess. Mina hafði vit á að fara ekki að stæla við frú Harrison. Kráin hennar var frjálslegur staður. þar sem ekki var hvert orð vegið, og þau Harrisonshjón bitu engin járn. Það var frú Harrison, sem hafði einusinni sagt við prest- inn, að ef guð ætti heima í brauðsnúð, hlyti bakaríið að vera himnaríki þó að það væri annars heitt eins og Víti. Nokkrar heydýnur höfðu verið fluttar í leikfimishúsið, og brátt hafði Mina fengið fegurðardísirn ar sínar tilvonandi til þess að leggjast á bakið á dýnurnar, og lyfta fyrst öðrum digrum gang- lim og síðan hinum. Frú Mortim- er æpti: Skárri er það nú bölv- aður trekkurinn, sem kemur und ir hurðina — ég er viss um að gigtin hleypur í mig í kvöld. Skítt með gigtina þína, sagði frú Harrison hughreystandi. — Hugsaðu heldur um, hvemig þér líður þegar þú ert orðin tvítug aftur. Það er sannarlega eitthvað til þess vinnandi. Bara að ungfrú Mina geti gert kallana okkar unga líka. Ekki tala! Anda djúpt og reglu- iega, skipaði Mina. Upp — nið- ur. Upp — niður. Þakka ykkur fyrir. Nú skuluð þið hvíla ykk- ur ofurlítið. Hópurinn hvíldist á dýnunum, kindarlegur á svipinn, sveittur og úrvinda af þreytu. Allar nema frú Harrison. Hún horfði á lær- in á sér, sem voru digur eins og trjábolir. Mér sýnist þeir ekki mjókka mikið, Mina, sagði hún. Og ég er heldur ekki viss um, að ég kæri mig neitt um það, hélt hún áfram. Maðurinn minn segir alltaf, þegar hann fer í rúmið í kulda: „Guði sé lof fyrir afturhlutann á þér, Ada. Hann er á við tvö teppi. Standið þið nú upp, sagði Mina hressilega. Nú vil ég, að þið standið í röð, með eins skrefs millibili. Nú fer ég á undan. Svo hlaupum við hægt í hring og lyftum hnjánum vel. Tilbúnar? Af stað! Horfið á mig og lyftið hnjánum, eins og ég geri. Passið þið að sparka ekki í augun á sjálfum ykkur, sagði frú Harrison. Þær skokkuðu nú af stað og gamli timburkofinn hristist og nötraði miklu meir en hann hafði nokkurntíma gert á ófrðartím- um. Þær voru ekki komnar nema tvo hringi þegar frú Ames hljóp :zm V. ©PIB ","l,ll /(,, COPENHAGtN 't' U/, COSPER. — Það er einkennilegt, en mér finnst að það hafi kólnað. út úr röðinni og sagði: Eg er að springa. Þetta orkaði eins og stöðvunarmerki á allar hinar og þær hættu hlaupunum, blásandi og másandi og með öndina í hálsinum. Mina lofaði þeim að blása mæð inni andartak, en sagði síðan: Þá förum við aftur af stað. Ef ein- hver er þreytt, getur hún hætt. Jæja þá! Eina æfingu enn! Ekki handa mér. sagði frú Ames. Eg er alveg sprungin. Jæja. Hinar þá. Horfið á, hvernig ég fer að og gerið æf- inguna eins og ég. Konurnar reyndu að gera æf- inguna eftir Minu, án tillits til þyngdar sinnar. Frú Harrison var sú fyrsta, sem gafst upp. — Hún fleygði sér á dýnuna og hristist öll af hlátri. Guð minn góður, Mina. Svei mér ef við lítum ekki út eins og einhverjir vitfirringar. Ef kallarnir okkar sæju okkur, mundu þeir elta okk ur með kolaskóflur í höndum. Nina svaraði engu. Hún var snögglega orðin áhugalaus og fór næstum hjá sér. Hvern skrattann er hægt að gera fyrir svona manneskjur? spurði hún sjálfa sig, en gætti þess samt vel að láta ekki gremju sína koma í ljós. Gott og vel, nú í fötin! Og hver sem áhuga hefur, kemur hingað á sama tíma í næstu viku. Hún steig fimlega í víðu bux- urnar gyrti sig beltinu, fór I léreftsjakkann og kinkaði kolli til hópsins. Yerið þið bless! Og þakka ykkur fyrir, að þið kom- uð. Marilyn Monroe eflir Maurice Zolotov . 13 arvanari en svona. Ana frænka var spurð ráða og var ekki sein á sér að gefa Marilyn eina þessa handbók fyrir tilvonandi eigin- konur. Marilyn las hana vand-' lega og varð skelfd við allar þær líffræðilegu flækjur og vanda- mál, sem þar voru tekin til með- ferðar. Hún sagði Grace frænku, að hún væri hrædd um, að hún yrði aldrei góð eiginkona. Sagð- ist mundu verða of köld. En Dougherty segir: „Hún hefði ekki þurft að hafa áhyggjur af því — hún var fullkomin brúðir og fuilkomin eiginkona að öllu leyti, nema hvað matargerðina snerti. Þau voru svo gefin saman föstudaginn 19 júní 1942, klukk- an hálf átta að kvöldi, heima hjá hjónunum Chester Howell, en þau voru vinafólk Dougherty- hjónanna. Ana frænka var svara- maður brúðarinnar. Á boðskort- unum er Norma Jean kölluð ,,systurdóttir“ hennar, en vitan- lega er það ekki nema skáldskap ur. Meðan á athöfninni stóð, titraði Norma Jean af hræðslu, en til að sjá leit hún út eins og draumsýn, í hvítum útsaumuð- um kjól, sem Ana frænka hafði saumað sjálf og Norma Jean átti síðan í mörg ár eftir þetta. — Einn sjónarvottur að athöfninni segir, að hún hafi ekki fleygt brúðar-blómvendinum, af því að henni þótti svo vænt um hann, heldur nafi hún tekið hann með sér heim, til að „eiga hann að eilífu“. Eftir athöfnina fór Dougherty- foiKio og iieii'i njon 1 næiur- kiubb 1 ríollywood, til að horfa þar á danssymngu. Meðan á syn- ingunni stoð, var skorað a gest- ina að koma upp á pailinn nja hljomsveitinm og taka pátt i conga-dansi Frú Dougherty, sem var ofurutiö ör ai kampavinmu, Vinnuflokkur frá útvarpsverksmiðjunni. Norma Jean í miðju. stökk þangað og vaggaði mjöðm- unum með hinu dansfólkinu. Þeg ar hún kom aftur að borðinu, var nýi eiginmaðurinn fokvond- ur. „Þú varst að leika apa“ sagði hann. „Seinna kom að henni að segja, að það að vera gift Jim væri eins og að vera lokuð inni í dyragarði. Ef til vill hefur henni dottið samlíkingin í hug, vegna þess, nve oft hann líkti henni við apa. Einnig má hugsa sér þá skýringu. að hún hafi hugsað sei sjalfa sig sem dýr, innilokað, eiginmanmnum til skemmtunar. Fru Dougherty var meinilla við matarmaii, gólfþvott og uppþvott. Pað var ekki annað en endur- tekmng á munaðarleysingjahæl- inu. Vinstúlkur hennar höfðu stungið því að henni, að hjóna- bandið gæti spillt öllum róman- tískum möguleikum. Já, það var ekki nema hverju orði sannara. Karlmennirnir misstu áhugann á frú Dougherty. Hún skrifaði sjálf. „Það var eins og ég hefði misst rósina, sem eg hafði milli tannanna“. Það var engin furða þótt svona Lorelei leiddist. En það sem frú Bovary var mörg ár að fram- kvæma, því kom frú Dougherty í kring á fáum mánuðum. En meðan hún beið eftir, að tæxifærin berðu að dyrum, reyndi hún að vera samvizku- söm eiginkona. Dougherty segir, að hún hafi verið „dásamleg hús- móðir og leti átti hún ekki til. Hun stagaði sokka og festi á töl- ur, eins og þaulvön húsmóðir". Einhvernveginn finnst manni það nú einkennileg sjón að hugsa sér Marilyn Monroe sitjandi í litla kofanum, sem var eitt herbergi, raulandi glaðlegt lag og saum- andi hvíta tölu á skyrtuna manns ins síns. Þar á ég við, að það væri einna svipaðast því að hugsa sér Helenu fögru vera að þvo sokkana af Menelausi sínum, eða Kleópötru að þvo þilfarið á skipinu sínu. Hvaða draumar og þrár hafa hreyft sig í brjósti konu hans, mun Dougherty hafa álíka hug- mynd um og dr. Bovary forðum. Jim hélt, að hún væri ekkert nema aðdáunin. Hún útbjó matar pakka handa honum áður en hann fór í vinnuna og ,,stakk ástarbréfum inn á milli brauð- sneiðanna. Þau voru afskaplega innileg og ég hafði mikla ánægju af að lesa þau á nóttunni. Ég man eftir einu, sem svo hljóðaði: „Elsku pabbi — þegar þú lest þetta verð ég sofandi og að dreyma um þig. Þúsund kossar. Lilla“ Enda þótt Marilyn væri engin Elizabeth Barrett Browning hvað það snerti að telja vegi ástarinn- ar, þá hefur þetta samt verið gott ástarbréf til að þóknast hverjum manni, ekki sízt þeim, sem þekkir ekki föður-duldina hjá ungum stúlkum. Jim hefði átt að vera það ljóst, fljótlega eftir giftinguna, að hann hafði tekið að hjarta sér loftanda, þokukennda og róman« tíska veru — vatnadís. En hversu margir okkar þekkja vatnadís, þegar hún er undir sama þaki og við sjálfir? Einu sinni varð hún svo inni« leg við Jim, að hún trúði honum fyrir löngun sinni til að verða Hollywoodstjarna. Hann hélt, að hún væri orðin vitlaus. „Það eru þúsundir stúlkna, sem geta sung- ið, dansað og leikið", sagði hann, „og þær ganga iðjulausar um göturnar í Hollywood. Hefurðu nokkra ástæðu til að halda, að þér mundi anga betur en þeim?“ Hann gat bara hvorki séð þetta né fundið. Skildi það ekki og vildi ekki skilja það. Honum þótti mjög vænt um Normu Jean, og hann vildi eiga börn og konu, sem gerði sér að góðu að staga sokka og gera við skyrtur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.