Morgunblaðið - 19.09.1962, Page 10

Morgunblaðið - 19.09.1962, Page 10
10 MORGlNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. sept. 1962 Landið okkar ■Ma Nýtt slátur- og frystihús Við hittum Sigurð Pálmason kaupmann að máli og spurðum hann um slátur- O" f ihús- ið, sem hann er að láta i^ggja. Húsið verður á tveimur hæð- um og var búið að steypa þær báðar Og verið að ganga frá þakinu. Sigurður sagði, að haf izt hefði verið handa um bygg ingu hússins fyrir tveimur mánuðum, og hann gerði ráð fyrir, að það yrði komið svo vel á veg að hægt yrði að slátra í því, þegar slátrun hæfist um 20. september. Sem frystihúsi yrði því ekki lokið fyrr en síðar. Frystihúsið verður í öðrum enda hússins og sláturhúsið í hinum. Verzlun Sigurðar Pálmason- ar hefur lengi rekið sláturhús á Hvammstanga, en ekki frysti hús. Kaupfélagið rekur bæði slátur- og frystihús og samtals var slátrað um 30 þús. fjár á Hvammstanga s.l. haust. en gert er ráð fyrir að fleira verði slátrað í haust. Mjólkurframleiðsla jókst um 20%. Við heimsóttum mjólkur- stöðina á Hvammstanga og í fjarveru mólkurstöðvarstjór- ans, Brynjólfs Sveinbergsson- ar, ræddum við við Sigurð Sigurðsson, afgreiðslumann. Sagði hann okkur, að stöðin framleiddi smjör, osta, skyr og þurr-kasein. Ostinn og smjörið keypti Osta og smjör- salan að frátöldu því, sem bændur á samlagssvæðinu keyptu. Skyr ög rjómi hefði verið seldur til Reykjavíkur þau haust, sem stöðin hefði starfað. Kaseinið, sagði Sig- urður, að væri flutt til Þýzka- lands. Mjólkurstöðin á Hvamms- tanga tekur á móti allt að 7 þús. lítrum mjólkur á dag frá 120 bæjum í V.-Húnavatns- sýslu og Strandasýslu. Mjólk- urframleiðsla á samlagssvæð- inu jókst um 20% á árinu 1961, en þá bárust mjólkur- stöðinni 1.910.791,5 1 mjólkur. Framleiðsla stöðvarinnar á því ári var: 63.649,5 kg af smjöri, 13.757.5 kg af skyri, 16.632 kg af 45% osti, 1.781 kg af 30% osti og 32.694 kg. af þurrka- seini. S. J. Fréttamaffur blaðsins Sólrún Jensdóttir ferffaffist fyrir skömmu um Húnavatns- sýslur. Birtist hér fyrsta grein hennar þaðan. ÞEGAR ferffamaffur leggur leið sína um Hvammstanga INIý mjulkurstöð, næg atvlnna, ný'ar bygt,!ngar Mesta atvinnu hefðu þorps- búar af verzlun, byggingum, vegagerð og landbúnaði. Einn- ig væru ýmis viðgerðarverk- stæði og trésmíðaverkstæði í þorpinu. Verzlanir eru fimm. urðar Pálmasonar á Hvamrns- tanga. Helgi Benediktsson sagði okkur ennfremur, að tveir hreppar, Hvammstangahrepp- ur Og Kirkjuhvammshreppur, ráðgerðu byggingu félagsheim ilis á Hvammstanga. Stæðu vonir til að hafizt yrði handa um byggingu þess að vori. Við spurðum oddvitann hvernig atvinna hefði verið á Hvammstanga að undanförnu. Hann kvað atvinnu hafa verið ágæta á síðustu árum, þó að ekki hefði fengizt bein úr sjó. Þrjár trillur reru að vísu af og til og veiddu stundum fisk í soðið handa þorpsbúum. — Mjólkurstöffin k Ilvammstanga, sem tekin var í notkun 1959. — (Ljósm., Björn Bergmann). Oddvitinn sagði, að fólki færi fjölgandi á Hvamms- tanga. Helzta vandamálið varð andi atvinnulíf þorpsins væri, hve lítil vinna væri þar fyrir unglinga og þeir yrðu því að fara að heiman í atvinnuleit. hlýtur þaff aff vekja athygli hans hve mörg ný hús eru risin, effa í smiðum í þessu 340 manma þorpi viff Mið- fjörffinn. Fréttamaður blaffsins var þar á ferff í byrjun september og hafði tal af Helga Bene- diktssyni oddvita. ★ Við spurðum Helga um ný- byggingarnar. Sagði hann okk ur, að nýtt sjúkrahús, sem jafnframt væri elliheimili, hefði verið tekið notkun á Hvammstanga fyrir nokkrum árum, kaupfélagið hefði flutt í nýtt verzlunar og skrifstofu- hús fyrir tveimur Og hálfu ári og væri verzlunin að nokkru leyti með kjörbúðarsniði. Nýr barnaskóli var tekinn í notkun á Hvammstanga s.l. áramót og stunda 50 börn nám við hann, en enginn unglinga skóli er enn á stanum. í júlí 1959 var lokið við byggingu og uppsetningu mjólkurstöðvar á Hvamms- tanga og er hún rekin af Mjólkursamlagi Kaupfélags V.-Húnvetnina og Kaupfélagi Hrútfirðinga á Borðeyri. Þrjú íbúðarhús eru nú í byggingu á Hvammstanga og í vor var tekið í notkun nýtt póst- og símstöðvarhús. Nýtt slátur- og frystihús er í smíð- um á vegum Verzlunar Sig- Gott laxveiðisumar en oðe/ns e/nn hnúdlax hefur veibst Alþjóðamöt um Norðurlandabókmennt!r „SUMARIÐ í fyrra var eitt bezta íaxveiðiár, sem viff höfum fengiff og sumarið niú virffist sannarlega ekki ætla aff gefa því eftir,“ sagði Þór Guðjónsson, veiffimálastjóri, er Mbl. átti tal viff hann í gær um laxveiffina í sumar. Niffur- stöðutölur út veiffiánum eru pú sem óffast aff berast til Veiffi- málaskrifstofunnar og virðist allsstaffar hafa veiffzt jafn vel og betur en í fyrra. í Elliðaánum veiddust nú 850 laxar en 744 í fyrra. í Laxá í Kjós veiddust nú 1000 laxar en 1047 í fyrra í Laxá í Leirársveit 700 laxar nú og álíka margir í fyrra, í Norðurá 1013 laxar en 978 í fyrra, í Miðfjarðará veidd- ust nú 1826 laxar sem er nálega 100 löxum meira en í fyrra. Rúmlega 1200 laxar veiddust í Víðidalsá nú en í fyrra 1227, í Vatnsdalsá veiddust nú rúmlega 1000 laxar en í fyrra aðeins 390. Varðandi Vatnsdalsá er rétt að taka það fram að undanfarin ár hefur verið veitt lítið i ánni. Veiðibækur eru ókomnar frá svæði Laxárféiagsins i Laxá í Þingeyjarsýslu en væntanlegar innan skamms. Laxá er nú sem kunnugt er tvískipt, en hinn leigj andinn hefur hvorki skilað veiði- bókum fyrir sumarið í fyrra né í ár sem honum ber þó lögum samkvæmt. Er því ekki vitað hver veiðin hefur verið á því svæði þau tvö sumur, sem um- ræddur leigjandi hefur haft þenn an hluta árinnar sem er mið- svæðis. Þá er þess aS geta að neta- veiði var góð í sumar bæði í Ar- nessýslu og Borgarfirði, en botn- inn mun þó að einhverju leyti hafa dottið úr vertíðinni undir lokin. Aðeins einn hnúðlax hefur veiðzt til þessa. Fékkst hann í net í mynni ársprænu einnar í Aðalvík á Vestfjörðum 6. ágúst sl. Mörgum kemur á óvart hve lít- ið hefur orðið vart við hnúðlax- inn í ár en þar sem allmargir veiddust hér síðla sumars 1960 var búizt við því að talsvert mundi veiðast í ár. Svo hefur ekki orðið en ekki er vitað um ástæður til þessa. Sumarið 1960 veiddust einnig aiunaigir bnuöiaxar í Noregi en fiskarmr munu hafa komið frá tilraunastóðvum Rússa á Kólar- skaga í Síberíu. 1 Noregi var emnig búizt við hnúðlaxaveiði í haust en síðast er til var vitað hafði aðeins einn hnúðlax veiðzt þar og töldu fiskifræðingar að ekki myndu veiðast þar fleiri, en ekki gátu þeir greint frá ástæð- unum. FJÓRÐA alþjóðamót um Norð- urlandabókmenntir (Den fjerde internationale studiekonference i nordisk litteratur) var haldið við Árósarháskóla 14.—18. ágúst sl. Til slíkra móta hefur verið stofnað á tveggja ára fresti síð- an 1959, og eru þau til skiptis í einhverju Norðurlandanna og utan þeirra. Til þessa hafa þau verið í Englardi, Noregi og Hol- landi og svo nú í Danmörku. — Næst eru þau fyrirhuguð í Sviss, Svíþjóð og Frakklandi. Mótið í Árósum er hið fjöl- mennasta sinnar tegundar, sem haldið hefur verið. Þátttakend- ur voru á annað hundrað fra fjórtán löndum, allt frá Banda- ríkjum Norður-Ameríku til ítalíu, aðallega háskólakennar- ar í Norðurlandabókmenntum, enda eru mót þessi einkum hald in í því skyni að gefa þeim kost á að kynnast og ræða um fræði sín og kennsluefni. Frá íslandi sótti mótið á vegum mennta- málaráðuneytisins dr. Steingrím ur J. Þorsteinsson prófessor. — Fluttir voru fyrirlestrar um breytileg viðhorf til bókmennta og nýstárlegt mat á þeim, eða um það, sem féll undir heitið „nyvurderinger“. Einnig var rætt um aðferðir við bókmennta kennslu og um úrræði til að auka kynni af norrænum bókmennt- um utan Norðurlanda. Jafnframt var haldinn rit- stjórnarfundur nýstofnaðs al-» þjóðatímarits um norræn fræði, er heitir „Scandinavics, an Inter- national Journal of Scandinavian Studies". Það birtir ritgerðir og ritdóma á ensku um rannsóknir norrænna bókmennta og einnig alþýðlegri kynningargreinar um þær, auk skráa yfir rit og ritgerðir um Norðurlandafræði hvaðanæva úr heimi. Tímaritið kemur út tvisvar á ári, gefið út af Academic Press í London og New York. Dr. Steingrímur er frá fslands hálfu í ritstjórnar- nefnd þess, en aðalritstjóri er prófessor Elias Bredsdorff í Cambridge í Englandi. Prófessor Steingrímur kveður bókmenntafræðingamótið í Árós um hafa verið mjög vel undir- búið af Dana hálfu og það farið fram af mikilli prýði og rausn undir forustu próefssors Gustavs Albecks við frábæran aðbúnað Árósaháskóla, og allt hafi mótið verið hið lærdómsríkasta og á- nægjulegasta. Þarna tókust margvísleg kynni og gagnleg samskipti, öllum varð mótið til örvunar, en einkum stuðlaði það að eflingu og útbreiðslu nor- rænna fræða og bóókmennta ut- an Norðurlanda. Bifvélavirki eða maður vanur bifreiðaviðgerðum óskast. Einnig maður vanur rafsuðu. Bifreiðastd) SteLsd jrs Sími 18585.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.