Morgunblaðið - 19.09.1962, Blaðsíða 12
12
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 19. sept. 1962
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjóm: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
f lausasölu kr. 3.00 eintakið.
SVONA FÓR UM
SJÓFERÐ ÞÁ
A Har líkur benda nú til þess
•** að hin svonefndu „Sam-
tök hemámsandstæðinga" —
eða öðru nafni Brúsastaða-
hreyfingin sé nú að syngja
sitt síðasta vers. Fer hún þá
eins og fyrri „gegn-her-í-
landi“-hreyfingar. Og er það
mál manna, að farið hafi fé
betra.
í þetta skipti, eins og hin
fyrri, hverfa líka af sjónar-
sviðinu nokkrir gegnir menn,
sem svo einfaldir hafa verið
að láta kommúnista nota sig
og nöfn sín, þar til þeir voru
orðnir að athlægi og komm-
únistar töldu nytsemi þeirra
lokið. — Kommúnistar hafa
sjálfir lýst sem einhverjum
allra skemmtilegasta þætti í
baráttu sinni að hagnýta
slíka einfeldninga og láta þá
halda að þeir væru mjög
mikilvægir, en í sinn hóp
tala kommúnistar um þá sem
„skotspæni fyrirlitningarinn-
ar“.
Brúsastaðahreyfingin bar
banameinið í sér frá upp-
hafi. Til hennar var stofnað
að undirlagi erindreka heims
kommúnismans samkvæmt
boðum frá Kreml. Þaðan var
henni líka stjórnað og hinn
geysilegi kostnaður var
greiddur af Rússum. Samt
átti þessi fylking að hafa ís-
lenzkt yfirbragð út á við.
1 sjálfri nafngiftinni var
þó á það reynt hvort hinir
nytsömu sakleysingjar væru
svo þægir viðskiptis, að þeir
væru fúsir til að falsa ís-
lenzk hugtök, að níðast á
sjálfri tungunni, sem þeir þó
þóttust ætla að verja. Þeir
féllu í þá freistni, og komm-
únistar gerðu með þá nýjar
tilraunir unz yfir lauk.
En þegar ein samtök eru
uppbyggð af svikum og
stjómað með undirferli,
stefna að einu marki, en
þykjast þjóna öðru, þá hlýt-
ur illa að fara, því að upp
koma svik um síðir.
Skilningur íslendinga á
nauðsyn vestrænnar sam-
vinnu og trúin á vestræna
menningu og lýðræðishug-
sjónir er líka svo rík að til-
raunir erlendra manna til að
svipta okkur þessum helg-
ustu verðmætum hljóta að
mistakast, jafnvei þótt þær
séu gerðar af fláræði.
KJÖR RÍKIS-
STARFSMANNA
k síðasta Alþingi voru sem
kunnugt er samþykkt
lög um launakjör opinberra
starfsmanna, þar sem ákveð-
ið er að kjaradómur skuli
hafa æðsta úrskurðarvald.
Jafnframt var gert ráð fyrir
því að Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja gæti krafizt
launahækkana ríkisstarfs-
manna, ef almennar og veru-
legar kauphækkanir yrðu,
þar til kjaraákvæðin sam-
kvæmt lögunum tækju gildi.
Nú hefur náðst samkomu-
lag um það að ríkisstarfs-
menn fái 7% launahækkun
auk þeirra 4% hækkunar,
sem þeir fengu 1. júní sl. Er
hér um réttlætismál að ræða,
þar sem flestar stéttir hafa
þegar fengið meiri kaup-
hækkanir en þær, sem sjálf-
krafa komu 1. júní.
Auðvitað er það nauðsyn-
legt að opinberum starfs-
mönnum sé borgað svo hátt
kaup að til hinna mikilvæg-
ustu starfa veljist hæfir
menn, en menn þurfi ekki að
hrekjast frá embættisstörf-
um, vegna þess að þeim séu
ekki boðin nægilega góð
kjör.
An efa var það happa-
drjúgt spor, þegar ákveðið
var að kjaradómur skyldi
settur á laggirnar, og hann
mun vafalaust tryggja opin-
berum starfsmönnum sann-
gjörn laun, en á meðan beðið
er eftir því að hann taki til
starfa er eðlilegt að ríkis-
starfsmenn fái sambærilegar
launahækkanir og aðrir.
FRAMSÓKN í
FÝLU
IT'ramsóknarmenn eru skelfi-
*• lega fýldir yfir því að
samkomulag skyldi nást milli
neytenda og framleiðenda
um verðlagningu landbúnað-
arafurða. Þeir höfðu sagt
bandamönnum sínum í
Kommúnistaflokknum að nú
væru skemmtilegir tímar
fram undan. Þeim mundi
takast að efna til sölustöðv-
unar á landbúnaðarafurðum
og samhliða ættu kommún-
istar að efna til allsherjar-
verkfalla.
Arangurinn af þessum að-
gerðum átti að verða herjans
mikil upplausn í þjóðfélag-
inu, sem leiða mundi til þess
að viðreisn efnahagsins færi
út um þúfur og Viðreisnar-
stjórnin yrði að biðjast lausn-
ar.
Þessi síðasta von Fram-
sóknarmanna um það að þeir
fengju kollvarpað Viðreisnar
MENN eru farnir að fljúga
um himingeiminn með ýms-
um hætti. Hér sjáum við
einn kappann fljúga í svo-
kölluðum „Fallhlífasleða“. —
Maðurinn er Milton O. Thomp
son, reynsluflugmaður hjá
bandarísku geimvísindastofn-
uninni. Myndin var tekin
daginn, sem sleðinn var sýnd-
ur opinberlega í Edwards-
flugstöðinni í Kaliforníu í
fyrsta sinn. Hann var dreg-
inn á loft af flugvél en sleppt
í sex þúsund feta hæð. Það
tók Thompson 3 mínútur og
44 sekúndur að renna til
jarðar aftur. — í framtíð-
inni er fyrirhugað, að þessi
tæki verði notuð til þess að
flytja til jarðar hylki geim-
fara eftir geimferðir þeirra,
í stað fallhlífanna, sem nú
eru notaðar.
Borótto gegn kommúnistiiin
liðor í stefnuskró Nixons
Okland, Kaliforniu 13. sept.
(NTB—AP).
RICHARD Nixon fyrrv. varafor-
seti Bandaríkjanna hóf í gær
kosningabaráttu sína fyrir fylk-
isstjórakosningamar í Kaliforniu
stjóminni reyndist líka tál-
von. Þess vegna eru þeir
gramir og sárir eins og
krakki, sem skipað er að láta
af bjánahætti.
nú í haust. Frambjóðandi repú-
blíkana í kosningunum verður nú
verandi fylkisstjóri Kaliforníu
Edmund Brown.
í ræðu, sem Nixon hélt í
Okland í dag, sakaði hann Brown
um, að hafa ekki barizt gegn
undirróðursstarfsemi kommún-
ista í Kaliforníu. Kvað Nixon
Brown skorta hæfileika til
þessa.
Sagði Nixon hinsvegar, að
hann myndi grípa til aðgerða
gegn kommúnistum í fylkinu, ef
hann næði kjörL
f SUMAR hefur fjallaþorpið
Produit í Sviss nær gersam-
lega eyðilagzt af eldi. Hefur
tvisvar orðið þar stórbrunL
í fyrra skiptið 17. júlí sl. —
en þá brann til grunna þriðj-
ungur allra bygginga í þorp-
inu — og hinn síðari 13.
september. Þá var meðfylgj-
andi mynd tekin af nokkrum
þorpsbúum að horfa á, þar
sem verið er að sprauia
vatni á brunarústirnar úr
flugvél, sem annars er notuð
til bjargar hætt komnum
fjallgöngumönnum. f brun-
anum á fimmtudag eyðilagð-
ist helmingur þeirra bygg-
inga, sem eftir voru og hafa
alls 150 manns misst þarna
heimili sín á tæpum tveim
mánuðum. Ekki hefur tekizt
að upplýsa orsakir brunanna.