Morgunblaðið - 01.11.1962, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 1. nóvember 1962
MORGUTSBLAÐIÐ
5
Ma
>Ma
MORGUNBLAÐIÐ hefur
snúið sér til fjögurra
manna og leitað álits
þeirra á þessum spurning-
Hvað finnst yður
I
1. Hvað finnst yður um aðgerðir Kennedys í
Kúbumálinu?
2. Finnst yður að Kennedy hefði átt að láta til
skara skríða fyrr?
3. Hvernig finnsf yður viðbrögð Krúsjeffs?
Fara hér á eftir svör þeirra:
Ingvar Benjamínsson,
úrsmiður.
.1. Eins og mál-
I in hafa snúizt,
[finnst mér að-
Igerðir hans hafa
[verið réttar.
12. Ég tel ekki
I að hann hefði
1 átt að láta til
I skarar skríða
[ fyrr en hann
'hafði í höndun-
um óyggjandi sannánir.
3. Framkoma Krúsjeffs er
óvenjuleg, og mér finnst und
arlagt að hann skyidi láta
undan svona fljótt. Annars
virðist mér vera eftir að koma
í ljós hvað Bandarílkin verða
að láta í staðinn, því Rússar
vilja vafalaust fá eitthvað
fyrir snúð sinn.
Þorvarður Örnólfsson,
kennari.
1. Frá sjónar-
hóli manns, sem
er algerlega and
vígur öllum víg-
búnaði og for-
daemir hvers
konar stríðshót-
anir, beinar og
óbeinar, þá er
þetta framferði
pBandaríkja-
manna mesti glsefraleikurinn
í stórveldatafli, sem er á báða
bóga svívirðilegt fná rótum.
Og það er varla Bandaríkja-
mönnum að þakka, að ekilk fór
ver.
3. Kennedy hlýtur að
vissu leyti að bera afar mikið
traust til Krúsjeffs. Virðast
mér viðbrögð hins síðarnefnda
sýna, að Kennedy hafi ekki
með öllu rangt fyrir sér í
því efni. En heldur betur brást
Krúsjeff vinum sínum, Kúbu-
mönnum, að hann skyldi
svipta þá því öryggi, sem hlýt
ur að felast í því að geta
státað af bæði rússneskum og
bandarískum „varnarstöðv-
um.“ Nú verða þeir að láta
sér nægja þá bandarísku —
eins og við.
Bjarni Sveinsson,
verzlunarstjóri.
s 1. Mér finnst
i Kennedy haf a
gert alveg rétt,
I en vissulega er
[það gleðiefni að
[ það skuli háfa
[farið eins og
! raun bar vitni.
Ég tók eftir því,
að fólk, sem kom
hérna í búðina,
var orðið hrætt við ástandið
2. Mér finnst ekki að hann
hefði átt að fara út í þetta
fyrr. Hann beið þar til hann
hafði öll rök m.eð sínu máli.
3. Rússar reyndu að kom-
ast eins langt og þeir gátu,
en þó fyndist mér sanngjarnt
að þeir reyndu að fara ein-
hvern meðalveg. Annars vil ég
helzt losna við öll kjarnorku-
vopn.
Vilhelm Norðfjörð,
stórkaupmaður.
11. Mér lízt prýði
lega á aðgerðirn
Har og vona að
kné verði látið
fylgja kviði.
2. Ég tel, að
hann hefði fyrir
lönigu átt að hef j
ast handa gegn
Kúbu og stöðva
vígbúnað Rússa
þar.
3. Manni virðist að Krús-
jeff og Castro hafi verið ai-
veg óviðbúnir þessu. Ég veit
ekki hvað þeir hafa ætlazt
fyrir með þessu vígbúnaðar-
kapphlaupi á Kúbu, því þeir
hljóta að hafa vitáð að Banda
ríkin mundu ekki leyfa það
til lengdar. Kannske er þetta
eitthvað í sambandi við Ber-
lín.
Vil kaupa píanó
Upplýsingar í síma 33131.
Kona óskast
í frágangsvinnu á prjóna-
stofu. Uppl. í sima 38480
frá kl. 9—17 dagiega.
Síðastliðinn laugardag voru
gefin sam.an í hjónaband Þórdís
Karlsdóttir. og Jón Bergmann
Ingimagnson. Heimili þeirra er
®ð Óðinsgötu 19. (Ljósin. Studio
Guðmundar, Garðastræti 8).
27, október voru gefin saman
í hjónaband Gylfi Ásmundsson
og Erla Líndal. Heimili þeirra er
að Digranesvegi 49. (Ljósm. Jón
K. Sæmundsson, Tjarnargötu
10).
25. október voru gefin saman
í hjónaband af séra Jóni Þorvarðs
syni ungfrú Sigurlína Gunnfríð-
ur Stefánsdóttir, Ásgarði 77, og
Jón Arinbjörn Ólafsson, sjómað-
ur Réttarholtsvegi 39.
27. október voru gefin saman
í hjónaband af séra Jóni Þor-
varðssyni ungfrú Bergljót Krist-
ín Þráinsdóttir og Stefán Frí-
mann Jónsson, iðnnemi. Heimili
þeirra er í Skaftahlíð 6.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína Klara Guðmundsdóttir,
V armahlíð 30, Hveragerði og
Jóhann Sigurður Páls, Hvammi,
Hjaltadal.
Nýlega hafa oþinberað trúlof-
un sína ungfrú Arndís Jónsdótt-
ir, Meðalholti 5 og Valdimar
Jöngensson, nemi, Seljalandi við
Selj alandsveg.
Nýsláíraðar hænur
eru beztu .natarkaupin. —
Sendar heim. Uppl. í síma
17872 kl. 2—6.
Trésmíðavél
Lítil trésmiðavél óskast.
Tilboð ásamt uppl. sendist
Mbl. fyrir nk. þriðjudags-
kvöld, merkt: „Staðgreiðsla
— 3ö99“.
Amerísk
setustofuhúsgögn til sölu,
vegna brottflutnings, að
Skúlagötu 56, 1. hæð til
vinstri milli kl. 1 og 6 í dag
og á morgun.
fbúð til leigu
fyrir eldri hjón. Tilboð
merkt: „Eldri hjón v- 3596“
sendist afgr. Mbl.
Herbergi óskast
Má vera í Kópavogi eða
Hafnarfirði. Uppl. í síma
22150 frá kl. 9—5 e. h.
Ráðskona óskast
á sveitaheimili á Suður-
landi. Fátt í heimili. Má
hafa barn. Uppl. að Hring-
braut 28, 1. hæð. (enginn
sími).
Leðurvörur
Lagtækan- mann og stúlkur
vantar mig í Leðuriðjuna,
Ægisgötu 7.
Atli Ólafsson,
Magicair supereme
RAIMAGNSOFNIIillil
.mSé
KAUPENDUlt Morgunblaðsins
þér í Reykjavík sem ekki fá blað
sitt með skilum, eru vinsamleg-
ast beðnir að gera afgreiðslu Morg
unblaðsins viðvart. Hún er opin
til klukkan 5 síðdegis til afgreiðslu
á kvörtunum, nema laugardaga
til klukkan 1 e.h. Á sunnudög-
um eru kaupendur vinsamlegast
beðnir að koma umkvörtunum á
framfæri við afgreiðsluna fyrir
klukkan%ll,30 árdegis.
Hvernig stendur á því, sagði
hótelstjórinn við gestinn, að á
hverjum morgni fer þjónninn
með morgunverð handa tveimur
inn í herbergið ti'l yðar?
— Það skal ég segja yður,
svaraði gesturinn. Þegar ég er
búinn að borða þennan gómsæta
morgunverð, sem ég fæ hérna,
verð ég allt annar maður. Og
þá finnst mér sanngjarnt, að
þessi annar maður fái sér líka
bita.
XXX
Pétur: Ekki veit ég hvað hann
Jói gerir við peningana sína,
hann var blarukur í gær og líka
í dag.
Guðmundur: Var hann að biðja
þig um peninga?
Pétur: Nei, ég var að biðja
hann.
Veitir yður yl og ánægju á hrollköld-
um vetrarkvöldum.
Blæs fersku lofti þegar yður verður
of heitt.
Hann hefur 3 hitastillingar og 2 still-
ingar fyrir ferskt loft.
Yður líður vel ef þér notið
MAGICAIR „SUPEREME“.
rafmagnsofn, hann veitur yður
ánægju allt árið um kring.
Verð kr. 1002,25.
Hafnarstræti 1.
Sími 20455.
,Congo'eum-Narin4
PLAST GÓLFFLÍSAR
Amerísku „Vinyl“ og Vinylbest“ gólfflísarnar í
nýjum litum og munstrum, nýkomnar.
J. ÞoJiksson & IVor^msnn hf.
Bankastræti 11.
Ég held, að það vanti svolítið
meiri steinoliu.