Morgunblaðið - 01.11.1962, Blaðsíða 15
Firiimtudagur 1. nóvember 1962
MORGVNBLAÐIÐ
15
Yfirmaður ritstjórnarskrifstofu „Der Spiegei“ í Bonn, Dieter
Jaehne, sem er hér til hægri á myndinni, var vakinn upp
aðfaranótt laugardagsins og þegar stefnt til yfirheyrslu. Tók
Xögreglan í Bonn í sínar hendur mikið af efni, sem fannst í
húsakynnum blaðsins.
Útgefandi og aðal-
ritstjóri „Der
Spiegel“
sakaðir um
landráð
Leggja aðförina
að ritinu fyrir
stjómarskrdr-
dómstól
SfÐASTLIÐINN föstudag var
gerð húsleit í húsakynnum
þýzka vikuritsins „Der Spieg-
el“ í Hamborg og Bonn og
útgefandinn Rudolf Augstein
handtekinn ásamt nokkrum
starfsmönnum ritstjórnarinn-
ar.» Eru Augstein, Claus
I Jacobi, aðalritstjóri ritsins og
1 fréttaritarinn Conard Ahier,
sakaðir um landráð, svik og
J mútur. Eftir helgina var aft-
ur gerð húsleit í húsakynn-
um ritsins og ritstjórnarskrif-
stofunum lokað. Ríkissaksókn
ari Vestur-Þýzkalands skýrði
frá því, að vikuritið hefði
fengið leyniskjöl frá varnar-
málanefnd þingsins og birt
upplýsingar, sem hættulegt
væri, að kæmi fram, vegna
öryggis landsins.
Lögfræðingar vikuritsins
hafa lagt fyrir stjórnarskrár-
dómstól mótmæli gegn aðför-
um saksóknarans gegn ritinu,
sem þeir telja brot á stjórn-
arskrá landsins. Er dómstóll-
inn beðinn að úrskurða hvort
svo sé eða ekki.
Allmörg blöð í Vestur-
Þýzkalandi hafa vítt aðgerðir
ríkisstjórnarinnar gegn „Der
Spiegel." Líkja sum blaðanna
þeim við aðgerðir nazista og
kommúnista og segja að hér
sé um að ræða algert brot á
ákvæðum stjórnarskrárinnar
um prentfrelsi.
Áður en lögfræðingar rits-
ins vísuðu málinu til stjórn-
arskrárdómstóls höfðu þeir
lagt það fyrir rétt í Karls-
ruhe og þá m. a. vakiö at-
hygli á því, að aðeins fáir
menn ynnu að rannsókninni
í húsakynnum blaðsins og
drægju hana svo mjög á lang
inn, að svo virtist, sem vís-
vitandi væri verið að reyna
að valda tímaritinu milljóna-
tjóni.
Ástæðan fyrir þessum að-
gerðum gegn „Der Spiegel"
er sprottin af grein, er þar
birtist fyrir skömmu um vest-
ur-þýzka herinn og hlutverk
hans í sameiginlegum vörn-
um Atlantshafsbandalagsins.
Er því haldið fram í grein-
inni að herinn sé ekki vígfær,
ef til heimsstyrjaldar kæmi
og landvarnaráðherrann,
Franz Josef Strauss, sagður
ábyrgur fyrir því að svo sé.
Greinin ’akti gífurlega at-
hygli og eru fyrrgreindir
menn sakaðir um að hafa
mútað herforingjum og em-
bættismönnum til þess að
gefa leynilegar upplýsingar.
A mánudag var haldinn
í Bonn sérstakur ráðu-
neytisfundur og var þá
landvarnaraðherranum
veitt umboð til þess að
gera ýmsar ráðstafanir til
styrktar vörnum landsins.
Fzam'eiðum:
Auglýsingar á bíla
Utanhúss
auglýsingar
og allskonar skilti
SKILTAGERÐIN S.f.
Bergþórugötu 19. Sími 23442.
...J
Austurstræti 14 Sími 11687
Sendum hvert á land sem er
Góðir greiðsluskilmálar
V efnaðarvöruverzl un
Til sölu er svo til nýtt húsnæði fyrir vefnaðarvöru-
verzlun í einu úthverfi borgarinnar. í sama húsi eru
verzlanir með allar aðrar tegundir nauðsynjavöru
(verzlanasamstæða). Verzlunin er í fullum gangi.
Góður verzlunarstaður.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu í Miðbænum 160 ferm. húsnæði, hentugt
fyrir skrifstofur eða hreinlegan iðnað. — Tilboð
sendist afgr. Mbl., merkt: „3712“.
Nuddkona óskast
nú þegár. — Uppl. á skrifstofunni.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
VIKAM
^Lesið í Vikunni:
MAKLEG HVÍLD. Grein um þjóðfræga íslenzka at-
orkumenn, sem hafa orðið að hætta störfum fyrir
aldurs sakir.
ALLT UM GLUGGATJÖLD. Lýsing á mörgum teg-
undum gluggatjalda, uppsetningu þeirra o. fl.
Úrslit verðlaunagetraunarinnar um fjallanöfn.
Getraunin um PRINZINN heldur áfram. —
Hver fær Prinz í jólagjöf?
VIK4I
Sendisveinn
Oss vantar nú þegar röskan sendisvein til starfa
fyrir hádegi,
Verzlun O. Ellingsen hf.