Morgunblaðið - 01.11.1962, Qupperneq 24
FRÉTTASÍMAR MBL.
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
K Ú B A
Sjá bls. 10.
Læknar hætta störfum
RXUK'KAN 12 á miðnaetti rann
út uppsagnarfrestur 31 sjúkraihús
læknis í Reykjavík, sem sagt
höfðu upp starfi sínu frá og með
1. nóvember að telja. Samkvæmt
upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér
í gærkvöldi, hafa læknarnir hætt
störfum á sjúkrahúsunum, en
þeir, sem lækningastofur reka
jafnhliða sjúkrahússtörfunum,
munu reka bær áfram. Ríkis-
stjórr.in hefur skotið l>ví til Fél-
agsdóms, hvort uppsagnir lækn-
anna séu löglegar. Var málið
þingfest í Félagsdómi á briðju-
dng, eu dómurinn kemur aftur
saman í dag.
Hér er um að ræða 25 lækna
á L.andsspítalanum og stofnunum
hans, 5 lælkna á bæjarspitalan-
um og 1 lækni á sjúkrahúsi
Hvíta bandsins.
Ríkisstjórnin gaf út í gær til-
kyn-ningu þess efnis, að yfirlækn
um sé heimilt að kveða sér til
aðstoðar sérfróða lækna til ein-
stakra brýnna nauðsynjaverka,
og er sú tilkynning birt á öðrum
stað í blaðinu.
bá gaf Læiknafélag Reykjavík-
ur í gær út greinargerð um mál
þetta, sem einnig birtist á öðrum
stað í blaðinu. Á 3. síðu blaðsins
gefa yfirlæknar viðkomandi
sjúkrahúsdeilda sfcutt yfirlit uim
ástandið, sem skapazt hefur í
sjúkrahúsmálum borgarinnar.
Síðustu
fréttár
BLAÐIÐ hafði samband ,
við Landsspítalann eftir
miðnætti í nótt og spurð- '
ist fyrir um það hvort
læknar þeir, sem sagt •
hafa upp samningum,
myndu fresta brottför
sinni þar til Félagsdóm-
ur hefði fjallað um mál- 1
ið. —
Um miðnætti tóku yf-
irlæknar deildanna við
vöktum og gerðu ekki 1
ráð fyrir að læknar þeir,
sem sagt hafa upp
mættu til vinnu í dag.
Yfirlæknum er heimilt að
kveðja til sérfróða lækna
á sjdkrahúsunum
31 læknir kefur sagt
upp starfi
reglan var að liðsinna krökkunum, sem leituðu út á ótryggan
isinn. Vakir voru þá enn víða á Tjörninni.
— til einstakra brýnna nauðsynjaverka
— Læknum send bréf — Tilkynning frd
ríkisstiórninni
STJÓRNARNEFND ríkisspítal-
anna hefir í dag verið ritað eft-
irfarandi bréf í sambandi við
svonefnda læknadeilu:
Eftir viðtöku bréfs stjórnar-
nefndarinnar, dags. í dag, varð-
andi viðræður stjórnarnefndar-
innar við yfirlækna Landsspítal-
ans og Rannsóknarstofu Háskól-
ans hinn 30. þ. m., um ráðstaf-
anir, sem verða mundi, ef 25
læknar hverfa frá störfum sín-
um hinn 1. nóvember n. k., vill
ráðuneytið, með vísan til frek-
ari viðræðna við formann stjórn
arnefndarinnar, fela stjórnar-
*
Isllenzkt
lambakjöt
til
Ho'lywood
FRÉTTAMAÐUR blaðsins var i
í gær staddur á Hótel Sögu
og ræddi við Þorvald Guð-
mundsson forstjóra. Hringdi
I þá síminn. Var það einn af
stjórnarmeðlimum danska hó-
telsfélagsins. Erindið var að
biðja Þorvald að útvegia 6
lambsskrokka fyrir Scandin-
avian *Restaurant í Holly-
wood. Forstjóri þess veitinga-
húss er danskuí og kunningi
mannsins, sem hringdi til Þor
valdar. Hafði hann heyrt nr.ik
ið af þessu íslenzka kjöti lát-
ið og vildi fá hað til reynzlu
á veitingahúsi sínu. Þar sem*
stjóm danska hótelfélagsins
var kunnugt um að Þorvald-
ur Guðmundsson stóð í at-
hugun á útflutningi íslenzks
lambakjöts fékk hann beiðn-
ina um þessa pöntun. Mun
fyrirtæki hans „Síld og fisk-
ur“ annast sendingu kjötsins
vestur nú næstu daga.
nefndinni að tilkynna yfirlækn-
unum umræddra stofnana eftir-
fárandi:
Yfirlæknunum er heimilt, ef
slíkt óeðlilegt ástand skapast
vegna læknaskorts á stofnunum
þeirra, að kveðja sér til aðstoð-
ar sérfróða lækna til einstakra
brýnna nauðsynjaverka, sem að
mati þeirra mega ekki dragast,
og yrðu slík störf greidd eftir
reikningum.
— Undirskriftir.
Ennfremur þykir rétt að skýra
frá því, að svohljóðandi bréf var
í gær sent hverjum og einum
umræddra 25 lækna:
Svo sem yður mun kunnugt
fjallar Félagsdómur nú um á-
greining varðandi uppsagnir
lækna á störfum við sjúkrahús
og skyldar stofnanir og telur
ríkisstjórnin úrskurð Félagsdóms
nauðsynlega forsendu fyrir fram
haldstilraunum til lausnar á
þessu máli.
Eru það eindregin tilmæli rík-
isstjórnarinnar, sem hér með er
beint til yðar, að þér þrátt fyrir
uppsögn á starfi yðar gegnið því
áfram meðan Félagsdómur fjall-
ar um framangreint mál, og
Fékk6 mán. fyrir
að ræna Islending
BREZKA blaðið „Fishing News“
skýrði frá 26. okt. sl., að maður
nokkur í Grimsby, William Mc-
Keown, hafi verið dæmdur í 6
mánaða fangelsi fyrir að stela
armibandsúri af háseta af Hafn-
arfjarðartogaranum Ágúst.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
setið að drykkju með íslendingn-
um, en neitaði að hafa stolið úr-
inu.
Garðahreppur
Félagsvist verður spiluð í kvöld
í samkomuhúsi Garðahrepps kl.
8.30.
Sjálfstæðisfélag Garða- og
Bessastaðahrepps.
mun ríkisstjórnin af sinni hálfu
greiða fyrir því að sá úrskurð-
ur fáist sem fyrst.
— Undirskriftir.
Svör hafa ekki borizt við
þeim bréfum.
(Fréttatilkynning frá
ríkisst j órninni).
Varð fyrir bíl
og marðist ,
í GÆRMORGUN varð eldri mað-
ur fyrir VW-bifreið á.Þvotta-
laugarveginum. Var hann á leið
til vinnu sinnar er bíllinn ók aft-
an á hann. Marðist maðuriinn við
árekstiurinn.
Ritklúbbur
Æskufólks
RITKLÚBBUR Æskufól'ks held-
ur fund í Tómstundaheknilinu.
Lindarigötu 50 föstudaginn 2. nóv
n.ik. kl. 8. e.h. — Nýir félagar
velkomnir.
Nokkrir læknar
ösínkir á deyfilyf
IWálið rætt á Alþiaigi í gær
VIÐ UMRÆÐUR á Alþingi í gær
varðandi fyrirspurn um deyfilyf
kom m.a. fram, að litið sem ekki
hefur orðið vart notkunar hinna
eiginiegu eiturlyfja, svo sem
opiums, morfíns o.s.frv. hér á
landi. Hinis vegar hefði notkun
svonefndra ávanalyfja, sem fram
leidd eru í lyfjaverksmiðjum, svo
sem amfetamins, rítalins o.s.frv.,
farið vaxandi. Hefur landlæknir
af beim sökum skrifað öllum
læknum landsins og brýnt fyrir
Var 8 tíma yflr
Oddsskarð
EINS og frá var skýrt í blað-
inu í gær var björgunarsveit-
in í Neskaupstað köilluð út
vegna þess að óttast var um
mann, sem lagði upp á mánu-
daginn frá Eskifirði til Nes-
kaupstaðar en kom ekki fram
áður en óveðrið skall á.
Fréttaritari blaðsins í Nes-
kaupstað, Jakob Hermanns-
son, átti í gær tal við mann
þennan, Kristján Gissurarson,
og fer frásÖgn hans hér á eft-
ir:
— Ég lagði af stað kl. 10
árdegis frá Esikifirði í heldur
slæmu veðri og var kominn
upp á Oddssikarð kl. 12.15.
Fékk é'g mér þá bita og hóf
síðan niðurleiðina. Fylgdi
ég raflínunni að mestu. Ófærð
var mikil og klofaðist ég víð
ast á leiðinni
snjó.
í mittisdjúpum
Ég hafði hugsað mér að
komast í skíðaskálann neðar-
lega í Oddsdal og koimst þang
að á sjöunda tímanum um
kvöldið. Þá voru þar fyrir
þeir Guðgeir og Steinþór frá
Skuggaihlíð. Höfðu þeir farið
að leita mín. Voru þeir með
heita mjólk á brúsa og var
hún vel þegin, enda var ég
orðinn bæði blautur og þreytt
ur, en þó ekki uppgefinn.
Hafði ég búizt við að simi
væri í skálanum og ætlaði að
láta vita af mér þaðan, en þar
var þá ékiki sími Björgunar-
sveitin var þá líka komin á
stúfana og var á leið upp í
Oddsdai.
þeim fyllstu varkárni í þessum
efimim, en einnig óskað greinar-
gerðar um innflutning lyfjanna
s.l. 5 ár.
Tiltölulega
lítill hópur.
I bréfi frá lögreglustjóra kem-
ur m.a. fram, að lögreglan befur
til jafnaðar oftar en einu sinni í
viku afskipti af fólki undir áhrif
um deyfi- eða örvunarlyfja, en
ofdrykkjumönnum virðist hætt-
ast til að misnota þau. Hafa oft
fundizt í vösum þeirra niotaðir
lyfseðlar eða meðalaglös úr lyfja
búðurn hér í borg og segja varð-
stjórar, að tiltölulaga lítill hóp-
Ur lækna gefi út marga af þeim
lyfseðlum. Hefur nú verið sam-
in skýrsla yfir þá fyrir tilsitilli
dómsmálaráðherra, sem send
verður landlækni til frekari rann
sóknar. En jafnframt er dregin af
þessu sú ályktun, að tiltölulega
litlu af deyfilyfjum sé smyglað
inn i landið. Þá eru lyfseðlár
falsaðir til að svíkja út þessi lyf,
brotizt inn í lyfjabúðir til að
stela þeim og þau hafa jafnvel
fengizt í gegnum kunningsskap
við starfsfólk lyfjabúðar. Loks
finnast þess svo dæmi, að menn
hafi haft þau á boðstólum.
Yfirgripsmikil rannsókn er nú
hafin á þessum málum, og lýsti
dómsmálaráðherra því yfir, að
allt mundi verða gert, er í hans
valdi stæði, til að bægja þessum
ófögnuði frá íslandi.
Nánar er skýrt frá umræðun-
l um á 6. síðu.