Morgunblaðið - 11.11.1962, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 11.11.1962, Qupperneq 3
\! o f* rr v r» r n f f> 3 Sunnudagur 11. nóvember 1962 mm* ■Ma VIÐ vorum orðnn nokkrum mínútum of seinir, þegar við gengum inn í Tjarnarbæ á föstu- dagskvoldi", . þess að vera við- staddir fyrsta Tónakvöldið þar. Úti var rok og rigning, en þeg- ar við opnuðum dyrnar strymdi á móti okkur hlýja og ánægja. Sviðið var upplýst með lit- fögrum ljósum, og í þeim stóðu nokkrir ungir piltar og léku rokik lög af mikilli innlifun. >að var Sævar Helgason í gervi „músikprófessors“, átti að leika tunglskinssónötuna, én það varð lítið úr því, því prófessor- inn var raálgefinn ....... Tdnakvöld í Tjarnarbæ hla'ómsveit undir stj>órn Karls Möller og með henni sungu þrir ungir söngvarar, Þorsteinn Egg- ertsson, Anna Hersteinsdóttir og Guðrún Frederiksen, sem vakti mikla hrifningu. Næst komu fram tveir ungir söngvarar, Guðrún Hulda Guð- mundsdóttir. nemandi hjá Maríu Markan, og Eiður Ágúst Gunn- arsson, sem nemur hjá Demetz, og sungu nokkur sígild lög. Svo kom það, sem vakti mesta hrifningu hinna ungu áhorfenda. Sævar Helgason og Guðjón Ingi Sigurðsson komu þarna fram með bráðskemmtilega gaman- þætti úr tónlistarlífinu. Þá var komið að fróðlegu við- tali við Atla Heimi Sveinsson, sem hafði margt að segja um tónlist og að lokum lók hljóm- sveitin nokkur jazzlög. Þrótt fyrir nökkur smá óihöpp, sem vafalaust hafa stafað af reynsluleysi, - var skemmtunin ekki byggð upp sem neitt smá- ..... og loks endaði með því, að það varð að bera hann út I af sviðinu. 1 barnagaman, heldur fyllilega J sniðin við hæfi stálpaðra ungl- f inga. í Tjarnarbæ fara nú fram < margs kyns skemmtanir fyrir æskuna, Leikhús æskunnar hef- < ur þarna aðsetur sitt, þar er Filmía, bæði fyrir yngri og eldri og kvikmyndasýningar eru að staðaldri á vegum Æskulýðs- ráðs. Guðjon Ingi Sigurðsson var þarna ennþá yngii söngvari er Robertino. Ný búð í Neskaupstað NESKAUPSTAÐ, 7. nóv. — 1 fyrradag opnaði kaupfélagið Fram nýja búð á annarri hæð verzlunarhússins. Þar er á boð- •tólum allskonar vefnaðarvörur, íatnaður, leðurvörur, skófatnað- ur, snyrtivörur, skrautvörur og fieira. Er þar öllum innrétting- I um komið fyrir eftir nýjustu tízku. Flatarmál búðarinnar er 140 fermetrar. Teikningar allar eru gerðar af teiknistofu SÍS og smíðaðar á verkstæði Kaupfélags Arnesinga á Selfossi. Yfirsmiður framkvæmdanna er Erlingur Ólafsson. Málningu annaðist Jón Ingólfsson, málarameistari, og raflögn Xristján Lundberg, raf- virkjameistari. Þar sem vefnaðarvara og skó- fatnaður var áður, á fyrstu hæð, er nú verzlað með járnvörur, búsáhöld, glervörur og málningu. I Á fyrstu hæð er einnig hin nýja kjörbúð kaupfélagsins, sem opn- uð var í maí í vor, eins og áður hefur verið lýst. Frekari fram- kvæmdir eru áætlaðar á næst- unni, þar sem byggja á aðra hæð ofan á vörugeymsluna, sem byggð var í fyrra norðan við og áfast við húsið. Er þar ráðgerð byggingarvöruverzlun og vöru- geymsla. A framangreindu sézt, að kaup félagið hefur gert mikið til að bæta aðstöðu sína, og færa alla þjónustu í nýtízku horf. — Jakob. - $r. Jónas Gíslason: onur þinn lifir „Hann kom þá aftur til Kana í [ Galílou, þar sem hann hafði gjört vatnið að víni. Og þar var kon- ungsmaður nokkur, og lá sonur hans sjúkur 1 Kapernaum. Þegar hann frétti, að Jesús væri kominn frá Júdeu til Galíleu, fór hann | til hans og bað hann að koma og lækna son sinn, því að hann lægi fyrir dauðanum. Jesús sagði þá við hann: í>ér trúið ekki, nema þér sjáið tákn og stórmerki. Kon- ungsmaðurinn segir við hann: Herra, kom þú, áður en barnið • mitt andast. Jesús segir við hann: Far þú, sonur þinn lifir. Maður- inn trúði því, sem Jesús talaði til hans, og fór burt. En á heimleið- inni mættu honum þjónar hans og sögðu, að drengurinn væri lifandi. t>á spurði hann þá að, hvenær hon um hefði farið að létta, og þeir sögðu við hann:/í gær um sjöundu stund fór sótthitinn úr honum. I»á sá faðirinn, að það var á þeirri stundu, er Jesús hafði sagt við hann: Sonur þinn lifir. Og hann tók trú og allt hans heimafólk" Jóh. 4, 46—53. I. Jóhann&s postuli segir okkur tvisvar frá þvi, sem gerist, þegar Jesús dvelur í smábænum Kana í Galíleu. Þar vann hann fyrsta kraftaverkið í starfi sínu í brúð- kaupinu, er hann breytti vatni í vin. Nú er hann kominn aftur til þessa sama bæjar. En mjög er skipt um mynd. Áður var gleði og fögnuður á ferð. Ungur mað- ur og ung kona gengu saman í saman til að gleðjast með þeim. á stofn. Vinir og ættingjar komu sama til að gleðjast þeim. Hér er sorgin komin til sögunn ar. Við sjáum fyrir hugskotssjón um okkar jóreyk á veginum frá Kapernaum til Kana. Þar fer einmana reiðmaður geyst. Á klæð um hans má sjá, að hér er um að ræða einn af fyrirmönnum þjóðarinnar. Það er óvanalegt í hæsta máta að sjá slíkan mann einan á ferð. Og andlit mannsins .ber greinilegan vott þess, að hér er engin skemmtiferð. Sorg og áhyggjur marka rúnir sinar á andlitið. Maðurinn er í kapp- reið við sjálfan dauðann. Héima liggur sonurinn hel- sjúkur. Mynd hans er skýrt mörkuð í huga föðurins. En jafnframt bregður fyrir vonar- neista. Hann hefur heyrt um ferðir spámannsins frá Nazaret. Við hann eru allar vonirnar bundnar. Svo hittast þessir tveir, kon- ungsmaðurinn og Jesús. Erindið er strax borið upp. En Jesús bregzt svo undarlega við bón hins hrygga föður. Honum var það mesta raun, hversu mjög menn þyrptust að honum aðeins til að sjá undur og stórmerki. Hann vildi prófa þennan mann. „Þér trúið ekki, nema þér sjá- ið tákn og stórmerki." Hefur þetta svar ekki hljómað kuldalega í eyrum hins sorgbitna föður, sem hafði lagt svo mikið á sig, til þess að ferð sín mætti takast? Hefði þá dauðinn sigrað? En faðirinn gafst ekki upp. Hann trúir því, að Jesús geti hjálpað, ef hann vill. Því segir hann aðeins: „Herra, kom þú, áður en barnið mitt andast.“ Þá segir Jesús „Far þú, sonur þinn lifir.“ Meira var það ekki. En þetta nægði föðurnum. Hann treysti orðum Jesú og mætti hans. Þess vegna sneri hann glað ur heim á leið. Og allt varð eftir trú hans. il Ég held, að okkur nútíma- mönnum þyki yfirleitt lítið tH trúarinnar koma. Við lifum á öld vísinda og tækni. Aldrei fyrr hefur andi mannsins komizt jafn langt í að leysa ráðgátur lífs- ins. Hvert náttúirulögmélið atf öðru er uppgötvað og sett i for- múlur og kerfi. Og við erum farin að heimta vísindalegar sann anir fyrir öllum hlutum, áður en við viljum- viðurkenna þá sem raunverulega og sanna. Trúin verður aldrei sönnuð á vísindalegan hátt. Hún er ailt annars eðlis. Þetta hafa flestir skilið. Þess vegna skipa margir trúnni á hinn óæðri bekk og telja harla lítils virði. Ef talið berst að Guði, heyrum við oft sagt: Sannaðu mér, að Guð sé til, þá skal ég trúa á hann, fyrr ekki. Og þó er þetta í rauninni harla fávíslegt hjal. Um leið og stað- reyndir trúarinnar væru sannað- ar á þann hátt, hætti trúin að vera trú, þá væri hún orðin þekking, skoðun. Og mundi ekki slik krafa fá svipuð svör hjá Jesú Kristi og bæn föðurins fékk í fyrstu: „Þér trúið ekki, nema þér sjáið tákn og stór- merki." Faríseunum var nefnilega far- ið á sama veg og mörgum nú- tímamanninum. Þeir heimtuðu sannanir. Þeir heimtuðu tákn. En þótt þeir sæju svo undur og stórmerki Jesú Krists, vildu þeir ekki trúa að heldur. Og ég býst við, að eins mundi fara hjá okk- ur í dag. Jafnvel undur og stór- merki mundu ná skammt til að skapa trúna í hjörtum mann- anna. Þekkingin er ekki og hefur aldrei verið einhlit til trúar. III. Guðspjallið í dag sýnir okkur glöggt einkenni sannrar trúar. Trúin er traust, sem kemur til Jesú Krists og á allt sitt konvíð undir náð hans og miskunu. Konungsmaðurinn viseú, «8 Jesús gat hjálpað. Hann visai einnig, að hjá honum var eina vonin fólgin, að sonurinn msettl lifa. Þess vegna kom hann ttl Jesú. Og þess vegna gafst hann ekki upp, er Jesús reyndi trú hans. Og þess vegna lét hann sér nægja svar Jesú, er hann sagði aðeins: „Far þú, sonur þinn lifir." Hann hafði beðið Jesúm að koma með sér og lækna son sinn. Nú segir Jesús honum að fara, því að sonur hans sé heilbrigð- ur. .Og í fullu trausti til vilja og máttar Jesú fór hann. Hann var sannfærður um, að bæn han» var heyrð. Og honum varð að trú sinni. Hin sama er reynsla hvers þess manns, sem þorir að koma til Jesú Krists í fullu trausti. Við fáum að reyna nákvæmlega hið sama og konungsmaðurinn. Je«- ús Kristur hefur aldrei brugðizt neinum manni, sem til hans hef- ur leitað í trausti til náðar hans. Svar hans kann stundum að •koma á óvart í fyrstu, en við megum aldrei gefast upp. Etf við þorum að treysta án skil- yrða, þorum að trúa því, að vilji Guðs sé ætíð hinn bezti, einnig þegar við fáum ekki skilið hann til fulls, eignumst við sömu reynslu og konungsmaðurinn, sem guðspjallið segir frá. Við^ skulum aldrei gera lítið úr trúnni. Hún ein getur fundið Guð, gefið okkur samfélag við hann. Þekking og vísindi geta aldrei leyst hana af hólmd. Leit- um Guðs á réttan hátt, þar sem hann er að finna. k annan hátt getur enginn eignazt samfélag við hann. Jónas Gíslason London, 8. nóvember — NTB Ráðuneytisstjórinn í ráðuneýt inu fyrir skozk málefni, Thom- as Galbraith, hefur sagt af sér, vegna grunar um að hann hatfi átt óeðlileg bréfaskipti við brezka njósnarann William Vas* ell. Vassell var nýlega dæmdur í 8 ára fangelsi fyrir njósnir i þágu Rússa. Galbraith var vara- flotamólanáðherra á árunura 1957-59. er Vassel stundaði njóso ir. r

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.