Morgunblaðið - 21.11.1962, Page 6

Morgunblaðið - 21.11.1962, Page 6
6 MORCVTSTtLÁÐlÐ Miðvikuctagur 21. nóv. 1962 í Morgunblaðinu 15. þ.m. birt ist viðtal við forstjóra Sements- verksmiðju Ríkisins. Allt frá þvi að undirbúningur að bygg- ingu verk&miðjunnar hófst ag fram á þennan dag, hefur for- stjórinn verið óspar á tölulegar upplýsingar, bæði á almennum fundum og í blöðum, en þessar upplýsingar hafa oft verið furðu- lega ónáikvœ'mar. Mér dettur ekiki í hug að ef- ast um þjóðhagslega nytsemi verksmiðju, né vefengja haefi- leika og dugnað forstjóra henn- ar en vaentanlega hefur verk- smiðjan sannað svo ágaeti sitt að óþarft ætti að vera að gylla hag hennar og tilverurétt með ó- nákvæmum og ýktum tölum. í ofangreindu viðtali telur for stjóri Sementsverksmiðjunnar að hún hafi sparað notendum um 20 milljónir króna í lægra verði en innflutt semefit. Tollstöðvargjald 1.06 Söluskattur í tolli 139.75 Uppskipun (samikv. taxta Eimskips) . 92.75 Heimkeyrsla 46.38 Vörugjald 9.00 Bankaikostnaður 10.26 Vextir 11.45 Kostnaðarverð 1.156.57 Álagning 5,5% 63.61 dio. kr. 56.00 pr. tonn 56.00 Söiusk'attur 38.29 Útsöluverð n. tonn 1.314.47 Eins og ofangreindur útreikn- ingur ber með sér, þá er inn- lenda sementið kr. 55.53 hærra pr. tonn, en innflutt sement, eru þó innifaldar í verði innflutta sementsins tolltekjur rikisisjóðs kr. 193.56 á tonn og full leyfileg álagning seljanda hér, kr. 109.61 á tonn. Nancy Kwan, sú sem lék Suzie Wong, er um þessar mundir að leika í kvikmynd í Lundúnum. Þarna er hún ásamt eiginmanni sínum, Peter Pock, og hundi þeirra hjóna fyrir utan húsið, sem þau búa í. Sinfóníuhljómsveit íslands: Kristinn Hollsson einsöngvnri li hljomlcikum ó limmtudnginn SINFÓNÍUHLJÓMSVErnN heldur fjórðu tónleika vefcrarins næstkomandi fimmtudagskvöid í Háskólabíói. Stjórnandinn er William Strickland og einsöngv- ari verður Kristinn Hallsson. Forráðamenn hljómsveitarinnar boðuðu blaðamenn á sinn fund í gær og skýrðu frá efnisskránni. Aðalverkefni hljómleikanna verður að þessu sinni Fjöigur and leg ljóð eftir Jo- hannes Brahms. Einsöngvari verð ur Kristinn Hallsson en 2 ár eru nú síðan hann söng síðast með hljómsveit- inni. — Dr. Hallgnímur Helgason gat þess í viðfcailinú, að Brahms hefði verið mjög mikill „Bi'blíu- maður“ og eru þessi „ljóð“ hans tekin beint upp úr Biblíunni, úr Prédikaranum, Sýraksbók og úr fyrra bréfi Páls postula til Korintumanna. Textanum hefur verið snúið á íslenzku, þ.e.a.s. kaflarnir eru teknir beint upp úr Biblíunni, — aðeins nokkrum orðum breytt til þess að samræma við tón- listina. Er textinn prentaður í efnisskránni og tók Kristinn fram að rétt væri fyrir fólk að kynna sér textann til þess að njóta betur verksins. í þessu til- felli sé textinn og hljómlistin óaðskiljanleg. — Hefur þetta verk ekki verið flutt hér áður með hljómsveitarundirleiJk, held- ur með píanóundirleik hjá Kamm ermúsíkklúbbnum, þar sem Kristinn söng. Er þetta 20 mín- útna verk, eins konar sinfónísk kantata, sagði dr. Hallgrímur. önnur verk á efnisskránni eru Tokkata eftir Girolamo Fresco- baldi, samin í byrjun 17. aldar þá fyrir orgel eða zemfoaló, en síðar sett út fyrir hljómsveit af Hans Kindler. Þá Tvær Noktúrn ur, Skýjafar og Hátíð_isdaigur eft ir Claude Debussy, samið um aldamótin, er tónskáldið var fuil þroska. Og síðan Soherzo á la Russe og Svíta nr. 1, fovoru- tveggja eftir Igor Stravinsky. Fyrra verkið er samið í kring- um 1040, upphaflega skrifað fyr- ir jazzhljómsveit. Svítan var samin um 1917. Frá því var skýrt á fundinum að á tónleikunum, sem verða 6. desember næstk. verður Vict- or Shiöler einleibari. Leikur hann píanókonsert nr. 1, í b moll op. 23, eftir Tsjaíkovský. Verða það síðustu tónleikarnir á árinu sem verða í Háskóla- bíói, en jólatónleikarnir verða 30. desember í Kristkirkju. Þar komast líklega ekki aðrir að en fastir áskrifendur, enda er nú tala þeirra komin á 6. hundrað. Núverandi verð á sementi frá geymslu Sementsverksmiðjunnar í Reykjavík, er kr. 1370.00 tonn- ið. Til samanburðar er hér verð útreikningur á sementi eins og hann yrði ef sement væri flutt inn t.d. frá Rússlandi, en þaðan var það flutt um nokkurt árabil áður en Sementsverksmiðjan tók til starfa. Fragtin er áætluð, en mun frekar of hátt reiknuð en of lágt. Útreikningurinn er mið aður við hvað tonnið kostar. Innkaup £ 4-5-0 gengi 120/57 ísl. kr.: 512.42 Flutningsgjald £ 2-5-0 do. 271.28 Vátryging 9.48 Cif. verð Vörumagnstoilur Verðtollur Kr. 793.18 24.20 28.55 Sé miðað við 320.000 tonna sölu Sementsverksmiðjunnar og nú- verandi verðlag, eins og for- stjórinn gerir í viðtali sínu, hef- ur hagnaður sementsnotenda ekki numið um 20 milljónum króna heldur hafa þeir skaðazt um 17.7 milljónir króna á við- skiptum sínum við verksmiðjuna og ríkissjóður hefur orðið af 61.9 milljónum króna í tolltekj- um. Við tilikomu hinnar íslenzku sementsverksmiðju hefði mátt búast við að, sementsnotendur hér fengju samentið á lægra verði en áður var, sérstaklega þegar þess er gætt að útlent sem ent komið hingað um lanigan veg kostar ekki nema kr. 793.18 komið að bryggju í Reykjavík. Hjörtur Hjartarson. # Ljós í kirkjugarðana Okkur hefur borizt svofellt bréf: „Kæri Velvakandi. Ég hef ekki skrifað þér fyrr en vona að þú fyrirgefir mér tiltækið. Ég vil þá segja þér hvað mér liggur á hjarta. Nú er vetur- inn kominn, tími skugga og myrkurs. Það læðist hljótt yfir lífvana jörðina og hvíslar við glugga og dyragáttir, þefcta myrkur sem fáir munu kunna vel við. Ég bý í vesturbænum og leið mín liggur oft fram hjá kirkjugarðinum. Ljóshaf borgarinnar mætir hvarvetna augum mínum. Skrautstafir og auglýsingar í öllum regnbogans litum bregða töfrablæ á götur og byggingar. Varla er sú búð arhola að hún geti ek.ú státað af uppljómuðum glugga. Og við undrumst og fögnum því að eiga svona bjarta og fagra borg En hér hjá kirkjugarðinum er svo dapurlegt að ganga. Eða svo finnst mér. Þegar ég hvarfla augum yfir hann spyr ég sjálfa mig, hvers vegna loga hér eng in Ijós? Bak við há og nakin tré, grillir í þokugráa legsteina eins og umkomulaus einmana olnbogabörn, sem stara hljóð á mynd hvers annars. Á meðan sól og vor eiga garð inn og gera hann frægan, með- an ljóð og söngur lítils fugls, verður til skilur maður tilgang inn er liggur á bak við það að gefa hinum dánu tré, blóm og legstein á leiðið sitt. En á dimm um og þungbúnum skammdeg iskvöldum í hríðarverðum og svarta myrkri, finnst mér þess ar sömu skapandi, fegrandi hendur hafi gleymt ljósinu sem þær gátu líka gefið. Mér finnst ekki að kirkjugarðar eigi að vera einfover dimmur svartur blefctur sem skapar ótta í huga barnsins, sem gengur framlhjá foonum og að þeir séu ekki and stæða gagnvart umíhyggju og fegurð. Mér finnst að kirkju- garðar eigi að vera upplýstir Fölblá ljós myndu kannske falleg. Á meðan leiði og minnisvarð ar eru í tizku, getum við ekiki sniðgengið þá hugsun, að fyrst við viljum eiga þessa reiti, þá verðum við að búa virðulega um þá. Það er ekki nægilegt að bera ljós á leiði vinar okkar á jól .num, til þess eins að dekra við hugsanir okkar og sýna að við höfum ekki gleymt honum. Það er að rnínu viti fremur gjört fyrir okkur sjálf. Þeir dánu gáfu okkur minn ingar, yfir þeim á ljós okkar að vaka á dimmum vetrarnófct um á öllum tímum, sem þess er þörf á ljós að skína yfir leiðum þeirra. Hér er einnig verkefni fyrir þá, sem vilja fegra borg og bæ. Með beztu óskum. S.S“ # Re*ð húsmóðir Hún var sannarlega ekki í skáldlegum hugleiðingum, ræddi hvorki um ljóð né söng láfcils fugls, konan sem hringdi til Velvakanda nú fyrir skemmstu. Hún var foláfct áfram afar reið, enda sagði hún það í símann. Hún sagðist hafa hlust (SJPIB COPEIiHAGEN að á útvarpið sl. laugardags- Ikvöld. þegar fluttur var IL kafli leikritsins, Menn og ofur menni eftir Bernbard Shaw. Frúin átti engin orð til að lýsa hneykslun sinni yfir því að taka leikrit sem þetta til flutn ings. Bölv og ragn og þvílík meðferð á helvíti og himnaríki. Þetta hefði ekki gebað átt sér stað á heimili því sem hún var alin upp á, og sagðist hún hafa verið alin upp á góðu heimili. Hún sagði líka að Shaw væri enginn gáfumaður. Þetta hefði verið bulluskjóða og ekkert ann að. Hún hefði svo sem lesið eftir hann. Við fórum að spyrja þessa frómu og siðprúðu konu um hvort hún hefði hlustað á leik inn til enda. Nei, hún hafði ekki gerfc það, svo hneyksluð var hún á þessu tali, að hún gat blátfc áfram ekki hlýtfc á það lengur og lokaði fyrir út- varpstækið sifct. Við bentum henni á að það hefði verið yfirsjón og e.t.v. hefði hún fengið aðra skoðun ef hún hefði hlýtt á leikþáfctinn út. Nei 'hún hélt nú ekki. Þetta hefði verið óþverri og væri ó- þverri og myndi allfcaf verða óþverri, sem Shaw hefði skrif að. Auk þess mætti Ríkisúfcvarp ið ekki láta það viðgangast að fluttur væri annar eins munn- söfnuður fyrir eyru hlustenda eins og þarna hefði verið. Eða hugsa sér að böm hlýddu á annað eins og þetfca. Við lofuðum að komia þessari skoðun frúarinnar á framfæri hér í dálkunum, eftir að foún hafði bent ökkur á að við lifðum í lýðfrjálsu landi, þar sem hverjum væri heimilt að hafa sína skoðun. Gerum við það 'hér með í þeirri von að Ríkisútvarpið meti það eins og vera ber. Hins vegar hörmum við það að Georg Bernhard Shaw, Skuli vera dauður því að iauðvibað hefði honum verið hollaistur lestur frúarinnar. Erlent sement ódýrara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.