Morgunblaðið - 21.11.1962, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.11.1962, Blaðsíða 17
?,;MÍ .víiít ,?S Miðvikudagur 21. nóv. 1962 1 r,<n t\ J: F $ MORGVTSBL AÐIÐ 17 dlína Þorsteinsdóttir — Mlnningarorð Jónas Árnason og Jón Kristófer Minningor Jóns Krístóíers 10. 6. 1880 — 14. 11. 1962 NORÐANGJÓSTUR gnauðaði á glugga og þaki, og gegnum veð- urdyninn heyrði ég þungan og svarrandi öldugný. En svo varð allt svo undur hljótt, alger þögn og þagnarkyrrð, þar sem ég sat með blað í höndum og. las dánarfregn ólínu Þorsteins- dóttur .... Hún dáin, og þegar við hjónin hittum hana og dæt- ur hennar fyrir um það bil tveimur árum, þá virtist hún svo hress og bjarteyg — og ung. .. . Ég hristi höfuðið: Ung? Hvaða vitleysa var nú þetta. Það voru liðin fjörutíu og fimm ár síðan ég sá hana fyrst, — síðan hún kom til dyra og tók á móti mér í fyrsta sinn sem gesti, hikandi, en fullum eftirvæntingar, og að vori fjörutíu og fjögur ár, síðan ég kom að kveðja hana og dæt- urnar litlu, en þá höfðu þær mæðgur misst svo mikið, að ég kveið fyrir í hvert sinn, sem ég hafði mig upp í að líta inn .... Og samt heilsuðu þau mér alltaf brosandi, þessi skæru, glöðu og þó alvöruþrungnu augu, sem mér höfðu enn virzt ung, þegar þau höfðu í áttatíu ár svipazt um í þessari veröld. Ólína Þorsteinsdóttir var fædd 10. júní árið 1880 í Hvolsseli í Saurbæ í Dalasýslu. Faðir henn- ar var Þorsteinn bóndi og barna- kennari Stefánsson, Jónssonar prests á Svalbarði, en síðast á Hrafnseyri, Benediktssonar Gabríels frá Auðkúlu í Arnar- firði, en móðir hennar var Anna Guðmundsdóttir úr Hegranesi í Skagafirði. Sjö ára gömul flutt- ist Ólína með foreldrum sínum vestur að Djúpi og svo til ísa- fjarðar. Þar var hún síðan bú- sett allt til ársins 1913. Hún varð strax sem barn ó- venjuvinsæl af öllum, sem þekktu hann, eldri sem yngri, og þegar hún þroskaðist, varð hún mjög mikils metin.. Allir, sem hittu hana eða unnu með henni höfðu mætur á henni og þótti mikið til hennar koma. Hún hafði snemma verið bókhneigð og skyldurækin við nám, og fað- ir hennar, sem unni henni mjög, lagði mikla rækt við að kenna henni. Hún var líka jafriverkfús og áhugasöm við allt, sem hún tók að sér, og hún var lagin og smekkvís. Og framkoman: öll- um var hún ljúf, öllum mætti hún með hýru og glöðu brosi — og þá ekki sízt vinum og sam- starfsmönnum og þeim, sem að einhverju leyti áttu við áber- andi erfiðleika að stríða, og þó fundu allir djúpa alvöru í fari hennar og þunga skaps og sjálf- virðingar. Hún var félagslynd og glöð í góðum hóp, en þó öllu í hóf stillt, kunni vel að meta græskulaust gaman og hló hjart- anlega, var listelsk og draum- gjörn og samt vökul og gagn- rýnin — og þá fyrst og fremst gagnvart sjálfri sér. Félagsmála- þörf sinni fullnægði hún innan vébanda Góðtemplarareglunnar, Sem þá var í mikilli sókn og geysisterk a fsafirði, og löngun hennar til listrænnar túlkunar fékk útrás í allumfangsmikilli leikstarfsemi, og var hún einna mest metin allra þeirra, sem léku kvenhlutverk í leikritum þeim, sem i þennan tíma voru sett á svið á ísafírði. Annars heyrði ég síðar til þess tekið, hve vel og þó látlaust hún hefði lesið ljóð í heyranda hljóði, og víst var um það, að hún var Ijóðfróð og ljóðelsk með af- brigðum. Þegar hún var rúmlega hálf- þrítug, fluttist til fsafjarðar Guðmundur skáld Guðmunds- Sþn. Hann var þá kominn yfir þhítugt, hafði strax í skóla orðið þjóðkunnur af ljóðum sínum í blöðum og tímaritum og hafði nú gefið út þrjár ljóðabækur, sem hlotið höfðu mjög almenn- ar vinsældir — og mörg kvæða hans höfðu þegar flogið á vængj- um tónanna um land allt. ólína þekkti ljóð hans og kunni þau mörg — ekki sízt þau, sem birt- ust í ljóðaflokknum Strengleik- um, en þeim fylgdu slikir per- sónutöfrar, að þorri manna gekk að því vísu, að þær ástir og harmar, sem þar er lýst, væru í nákvæmu samræmi við það, sem örlögin hefðu lagt á hið við- kvæma skáld. Guðmundur skóla- skáld var sannarlega mikið um- talaður maður á þessum árum, maður ljúfrar listar, heitra ásta og sorglegra og rómantískra harma. Svo gekk hann þá allt í einu um götur ísafjarðar, sér- kennilegur, prúðmannlegur og heimsmannslegur — og í raun- inni í meira samræmi við anda ljóða sinna en við sumt það, sem fleygt var manna á milli um hann og líf hans. Það mun hafa verið á vett- vangi leiklistarinnar, sem þau kynntust, Ólína og Guðmundur skáld, og svo leið þá ekki á löngu, unz ástin á fögrum ljóð- um kynnti þau nánar. Hinn 8. nóvember árið 1908 gengu þau í hjónaband, og upp frá því lágu leiðir þeirra saman um öll á- hugamál. Guðmundur skáld tók að starfa í Góðtemplararegl- unni, hugur beggja hneigðist að dulspekilegum efnum, saman nutu þau listrænnar fegurðar í bundnu máli og óbundnu og saman bjuggu þau sér heimili, sem var einstakt að látlausri ytri prýði og yfirlætis- og veilu- lausum ynnileik. Þau fluttust til Reykjavíkur árið 1913, og þar vann hann út á við að áhuga- málum þeirra, en hún helgaði sig heimilinu og fann sér full- nægju í störfum sínum þar og í að fylgjast með honum á þeim vegum fegurðar og. tilbeiðslu, sem veittu honum hvort tveggja í senn, djúpa innri nautn og þann frið, sem hann mun löng- um hafa þráð. Ég hef lýst því í bókinni Hrævareldar og himinljómi, hvernig Guðmundur Guðmunds- son tók mér, þegar ég leitaði til hans og sýndi honum ljóð mín, og ég hygg, að hver sá, er les þá lýsingu, geti gert sér í hugar- lund, hve mikils virði mér voru leiðbeiningar hans og vinátta. En ég lýsi þar ekki heimili hans. Því kynntist ég þó mjög náið, því að í meira en ár kom ég þar aldrei sjaldnar en tvisvar þrisvar í mánuði. Ég sat þá lengstum á tali við skáldið sjálft, en ég kynntist einnig konu hans, dætrunum litlu og heimilis- bragnum. Guðmundur sagði mér ekki margt um það, hvað kona hans væri honum, þó að hann raunar viki að því, en ég sá til- litin, ljómann, sem brá yfir svip hans, þegar hún kom inn í stof- una, birtuna í augum hennar, bjarmann í svipnum, fann ylinn, sem lagði frá henni og svo sem umvafði allt, sem honum var kært og henni varð þá einnig kært. Æg sat með þeim hjónum og dætrunum í stofunni þeirra, fann hve gleðin var hrein og hljóðlát, birtan skær, ástúðin djúp og ljúf, sá þetta ekki sízt speglast í framkomu og yfir- bragði barnanna. Ég var hjá honum snemma kvölds, þegar andlit hennar birtist í dyrunum, sá hana kinka kolli, hann standa á fætur og fara hljóðlega með henni inn. Hún var að láta hann vita það orðlaust, að nú væri hans vænzt. Systurnar litlu biðu þess að hann kæmi, læsi með þeim fallega bæn og byði góða nótt. Hann var kominn aftur eftir stutta stund. Þá sat hann kyrr — hljóður — nokkur augna- blik, og það var sem hann dveldi í einhverri undraveröld friðar og sælu. Svo hvarf hann að um- ræðuefninu, gat jafnvel brugðið á leik í glettinni frásögn frá liðnum árum — eða skotið að kíminni athugasemd um ævin- týrin, lifuð og dreymd, sem ég var að s^gja honum frá......... Það er engin uppgerð, sem fram kemur í hinu fagra kvæði hans Heima: „Ég uni mér bezt við arin minn, er elskan mín situr með bros á kinn og rauiar á vökunni sönginn sinn við sofandi glókolla mína. Ég sit við borðið og les þar ljóð, er loginn snarkar á aringlóð og brosandi geislar af gömlum óð sem góðvina bráleiftur skína. Og hvar sem ég lít er ljósbrot eitt, í litlu stofunni er bjart og heitt, frá dagstriti hvílist þar höfuð þreytt í heimilisfriðarins ríki. Sem barnsaugun horfi inn í hjarta mér með himneskan unað í för með sér, hvert smávægið ylríki og birtu ber í brjósti mér — í engilslíki....“ Enginn, sem ekki þekkti þetta heimili náið og var gæddur næm leik til að skynja hið ósagða, sem þar var alls staðar og í öllu, getur gert sér fyllilega í hugar- lund, hvert reiðarslag það hefur verið ólínu Þorsteinsdóttur, þeg- ar lát heimilisföðursins bar að höndum hinn 19. marz 1919 — eftir að hún og allir aðrir, sem unnu honum, höfðu séð hann sleppa úr helgreipum spönsku drepsóttarinnar, þrátt fyrir gamla og alvarlega brjóstveilu. En aldrei hef ég séð tárvot augu brosa við mér svo hreint, svo skírð af þjáningu og minning- um eilífrar Sælu sem sjónir Ólínu, þegar hún leit á mig, þá er ég dirfðist að vitja hennar eftir að Guðmundur skáld var liðið lík. En blessuð börnin, hugsaði ég, glókollarnir hans, sem hann getur um í kvæðinu Heima, — mundi ekki söknuður þeirra verða henni örðugur. Ég sá þær, systurnar, og þær brostu við mér líka, hnípni í brosinu, en þó eitthvað sem lýsti. Hafði hún megnað nú þegar að milda á einhvern hátt söknuð þeirra? .... Mér datt í hug kvæði skáldsins Gesturinn .... Hann kemur neðan Djúpdal .... með síðhött, í síðúlpu, á bleikum. Hamrarnir titra við jódyninn, fuglarnir leggja á flótta, lyngið og grasið er sviðið, þar sem leið hans hefur legið, og skáldið veit, hvern hann vill finna.... En svo birtir allt í einu yfir dalnum: „f sama vetfangi sólin brauzt á svifleið úr skýja dróma, — í eldmóði úr ísarndróma. Þá var sem úr álögum allt væri laust í eilífðar dýrðarljóma“. Nú fyrst skildi ég til nokkurr- ar hlítar þetta kvæði, — og um leið hvers virði hún var, trúin á annað líf eftir þetta. Jafnvel fjársjóður minninganna og framtíð barnanna fannst mér I ekki að mundu hafa getað nægt „SYNDIN er lævís og lipur“, (heitir nýútkiomin bók, „stríðs- minningar" Jóns Kristófers, sem Jónas Arnason hefur skráð. Jón Kristófer er þekktur, fyrst og fremst vegna kvæðisins, sem Steinn Steinarr orti um hann um árið. Jón hefur reynt margt á Mfsleiðinni, var í Hjálpræðishern um á yngri árum, fór þaðan í til að þessi kona gæti staðið jafnsterk og hún stóð þarna. Og sterk reyndist hún — í fjörutíu og tvö ár og misseri betur — og svo trú öllu því bezta, sem hún og ástvinur hennaí höfðu átt saman, hlúð að og notið, að mér sýndist hún ennþá ung, þegar ég sá hana áttræða. Það var þó lengi vel ekki ein- ungis við hið innra að stríða. Þarna var el^Jd veraldarauður í garði, þegar hún allt í einu stóð alein uppi með telpurnar sínar þrjár, allar á barnsaldri — og í þann tíð, það herrans ár 1919! En það hvarflaði ekki að ólínu Þorsteinsdóttur að sundra heim- ilinu, ekki einu sinni að fara að vinna utan heimilis. Nóg var að gert, þegar þær voru sviptar föðurnum, dætur hennar Hjör- dís, Steingerður og Droplaug, þó að þær yrðu ekki að sjá á bak þeirri umönnun og ástúð, sem móðir þeirra var fær um að veita þeim. Ég hef áður getið þess, hve hagvirk og smekkvís hún var. Hún hafði lært að baldýra, var allt í senn: hraðhent, kappsöm og velvirk, og ef hún lofaði, að eitthvað skyldi vera búið fyrir ákveðinn tíma, þá var óhætt að treysta því loforði. Og það voru margir klukkutímar í sólar- hringnum, var miklu hægt að ljúka, meðan heilsan gafst og sjónin var góð. Því var það, að henni tókst það ómögulega.... Meira að segja: Hún hafði tíma til að sinna þeim hugsjónum, sem þau Guðmundur skáld höfðu átt sameiginlegar og stuðla að viðgangi þeirra utan heimil- isins. En á heimilinu ríkti slík eindrægni, slíkur trúnaður, slíkt samstarf til þjónustu við fegurð og tilbeiðslu þess, sem gott er og göfgandi, að hinum gáfuðu og glæsilegu dætrum hennar gat ekkert, sem þær kynntust, orðið svo mikils virði, að þær vildu fórna fyrir það því, sem þær áttu heima. Mæðurnar bjuggu saman allt til þess að gestinn bar á ný að garði. Eitt mun hafa orðið Ólínu Þor- steinsdóttur mest þrekraun síð- ustu árin, sem hún lifði. Það var að mega ekki losna, mega ekki flytja, heldur þurfa enn að bíða, þegar sjónin var tekin að dvína, þegar kraftarnir voru teknir að heimta hvíld, teknir að lýsa yfir getuleysi til að verða að gagni — og henni mun hafa fundizt, að nú þyrftu dætur hennar ekki lengur á henni að halda. En þetta fannst henni hún helzt ekki mega láta í ljós. Meðan henni var líf léð, varð hún að Hafnarstræti, eins og segir 1 bókinni, síðan í siglingar —- og loks í brezka herinn. Bókinni er skipt í 23 kafla og lýsir ævi Jóns allt frá æskudögum fram til þessa dags. Ægisútgáfan hefur gefið bók- ina út, en Atli Már hefur gert káputeikningu. Bókin er 236 bls. og sjöunda bók hötfundar. vera sterk og glöð, varð að miðla birtu og yl, Og þetta lánaðist henni. Svo mikillar gerðar var hún. Hún var sárþjáð seinustu vik- urnar, sem hún lifði, og nú vissi hún, að hverju fór. Og sannar- lega var létt að bera þjáning- arnar, þegar hún mátti láta í ljós, að hún heilsaði gestinum með gleði, þegar hún nú gat jafn- vel glatt dætur sínar og vini með því að láta þau öll finna, að hún gengi í glaðri vissu til þeirra samfunda, sem hún hafði þráð í næstum hálfa öld. Þrátt fyrir þrautirnar var henni birta í augum til hinztu stundar, enda missti hún aldrei ráð og rænu. Þegar ég gekk að fundi henn- ar, eftir lát Guðmundar skálds, var ég undrandi og á vissan hátt glaður og gat leyft mér að hafa yfir þetta erindi, sem skáldið orti, þá er hann frétti lát Thors Lange — og njóta þess: „Norræna langspilsins blíð- hreimur blíðasti blundar í grafþöglum kór, — kliðmjúku ljóðanna svanurinn síðasti syngjandi á blávegu fór.“ Og mér datt í hug, þegar ég tók að minnast ólínu Þorsteins- dóttur að henni látinni, að þessi hetja ástarinnar, trúnaðarins, hins eilífa lífs hér á jörðu og í öðrum heimum, hún hefði sann- arlega getað tileinkað sér, þar sem hún hvíldi, laus úr fjötrum vilja og þjáninga, síðasta erindið í ljóðinu Óskasteinninn og sagt: „Og sæg af hvítum steinum ég sótti dýpst í mar, — ég sef með einn við brjóstið í mánaljósi þar, og það er ást mín, óskasteinninn góði.“ Guðmundur Gislason Hagalín. — Bækur Framhald af bls. 8. Bókina hefur Halldór Pétuis- son skreytt með teikningum. Hin barnabókin nefnist „Strák ar og heljarmenni“ eftir Gest Hanson. Gestur Hanson er höf- fundarnafn á ungum íslenzkum rithöfundi, sem þekktur er orð- inn fyrir strákabækur sínar. — Hefur hann gefið út þrjár slíkar áður er nefnast „Strákar á kúskinnsskóm", „Strákar í stríði“ og „Vort strákablóð". Þessa strákabók, sem og fyrri bækur höfundar hefur bróðir Gests Hansonar skreytt með teikning- um. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.