Morgunblaðið - 21.11.1962, Síða 12

Morgunblaðið - 21.11.1962, Síða 12
12 MORCVNB14Ð1Ð MiðviKudagur 21. nóv. 1962 títgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthias Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og atgreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480. Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. I lausasölu kr. 4.00 eintakdð. STYRJÖLD í INDLANDI UTAN UR HEIMI A1 Badr (í miðjunni) með hermönnum sínum. „Eg hef olla ina að baki — segir Imaminn í Jemen ¥ engur er ekki hsegt að tala'5 um að átökin í Indlandi séu minniháttar landamæra- stríð. Þar er í rauninni orðið um stórstyrjöld að ræða, þar sem herdeildir Kínverja sækja langt inn á indverskt land. Eins og menn vita var aðdragandi þessara átaka langvarandi. Deilurnar tókst hins vegar ekki að setja nið- ur, meðan ekki var um alvar- Jeg átök að ræða. Er því ekki líklegt að það verði auðvelt, þegar dregið hefur til meiri háttar styrjaldar. Indverjar hafa nú áttað sig á því, að kommúnisminn er yfirgangsstefna, sem ekki verður stöðvuð með fögriun orðum og fyrirheitum um hlutleysi. Hið eina, sem of- beldismenn skilja, er vald, sem nægir til að stöðva fyr- irætlanir þeirra. Indverjar hafa snúizt til varnar, en þeir voru vanbúnir, ekki sízt vegna stefnu Kristhna Men- ons, sem geysimikil áhrif hafði í Indlandi, en hefur nú verið varpað fyrir róða. Indverjar leita nú á náðir vestrænna þjóða, sem útvega þeim hergögn, svo að þeir geti stöðvað innrás yfirgangs manna. Fram að þessu hefur Kínverjum þó veitt betur í styrjöldinni, sem auðvitað byggist á því, hve óviðbúnir Indverjar voru. Þess ber hins vegar að gæta, að þrátt fyrir mann- mergðina hafa Kínverjar enn ekki mjög sterkan her. Þeir þurfa þar að auki að flytja vistir til herja sinna um þús- unda kílómetra veg um fjöll og fimindi. Þegar hliðsjón er höfð af því, má gera sér von- ir um, að þess verði ekki mjög langt að bíða, að Indverjar verði þess megnugir að stöðva innrásina, og vonandi tekst þeim að hrekja árásar- mennina til baka. En innrásin í Indland er lærdómsrík fyrir alla þá, sem svo bamalegir hafa verið að halda, að eitthvert öryggi væri fólgið í hlutleysisyfir- lýsingum og varnarleysi. SIGRAR DE GAULLE? ♦ fyrri umferð þingkosning- anna í Frakklandi hefur de Gaulle unnið mikinn per- sónulegan sigur og meiri en menn höfðu gert ráð fyrir. Er ljóst, að franska þjóðin vill ekki taka áhættuna af þvi að sleppa enn leiðsögn þessa mikilhæfa foringja. E.t.v. hefur de Gaulle imn- ið meiri stórvirki en nokkur stjórnmálamaður annar á öld inni. Honum tókst að forða þjóð sinni frá blóðugum irm- byrðis átökum, og honum tókst að leiða til lykta styrj- öldina í Alsír, sem flestum virtist þó nær óleysanlegt vandamál. Þar að auki hefur efnahag- ur Frakklands styrktst mjög og stjórnarfar allt verið traustara en lengst af áður síðustu áratugi. Mikilvægast er þó, að de Gaulle hefur sýnt og sannað að hann hyggst ekki nota vin- sældir sínar og hið mikla vald til að tryggja sjálfan sig í sessi, þvert á móti efnir hann til hverra þingkosning- anna af annarri og leggur það á vald þjóðarinnar, hvort hún vilji áfram njóta forystu hans eða ekki. GRAMIR AÐ VONUM 17‘ommúnistar eru að vonum “■ gramir Áka Jakobssyni vegna viðtals þess, sem birt- ist við hann hér í blaðinu sl. sunnudag. Þeir vita þó sýni- lega ekki almennilega, hvem ig þeir eiga að bregðast við. í viðtalinu sagði Áki Jakobs- son: „Ég hlakka til að sjá Þjóð- viljann, þegar þetta samtal okkar hefur birzt á prenti. Þá hrópar hann líklega enn einu sinni upp, að ég hafi verið keyptur. Þeir skilja nefnilega ekkert annað en menn hafi orðið kommúnist- ar af eintómri göfug- mennsku, en hætti að vera það af eintómum þorpara- skap.“ Kommúnistablaðið fer hægt í sakirnar méðan það er að sækja í sig veðrið. Þó er látið að því liggja, að gott væri fyrir Áka Jakobsson að gerast lögmaður Verzlunar- ráðs íslands, o.s.frv. Er það Sverrir Kristjánsson, sem stefnt hefur verið fram á rit- völlinn, og reynir hann að skrifa í léttum tón, þótt milli línanna megi lesa, að honum sé órótt eins og þeim fleir- um í þessum herbúðum og finnist í rauninni fullt eins mikil þörf á að afsaka sjálfan sig eins og að ráðast á Áka. í niðurlagsorðum segir Sverr ir t. d.: „En sárast finn ég þó til þess, frændi minn, er þú kennir mér um, að þú lézt tælast til fylgis við komm- únismann. Ég er nú að verða | FYRIR skönunu hittu 16 erlend- ir fréttamenn Mohamad al Badr, Imam af Jemen, sem tókst að sleppa lifandi úr byltingunni og hefst nú við meðal ættflokka í norðaustur Jemen. Imaminn sagði fréttamönnunum, að hann myndi ná höfuöborg landsins Sanaa á sitt vald innan nokkurra vikna. Sagði Imaminn, að nú væru það aðeins Egyptar, sem hann þyrfti að berjast við, þeir væru einu mótstöðumenn hans. ★ — Ef Egyptar hefðu koonið til okkar sem vinir, sagði Imaminn, þá hefðum við opnað hús okkar og hjörtu fyrir þeim, en þeir réðust inn í land okkar og vegna þess opnum við aðeins grafir handa þeim. Imaminn tók á móti frétta- mönnum í tjaldi sínu í fjailahér aði einu í N.-Jemen. Er þetta í fyrsta skipti, sem hann ræðir við fréttamenn, eftir byltinguna. Virðist hann vera í góðu skapi. Fyrir utan tjaldið voru hundruð stuðningsmanna hans búnir bys'sum og hnífum, syngjandi og dansandi. Xmamdnn sagði fréttamönn- unum, að ekkert væri hæft í hálfsextugur og má bera mín ar æskusyndir eins og hver annar. Nú verð ég einnig að taka þínar pólitísku æsku- syndir á mitt bogna bak. Ef það er rétt, að ég hafi haft úrslitaáhrif á þig, er þú gerð- ist kommúnisti, þá er mín sök stór og lítt réttlætanleg. Ég hefði mátt vita, að þér hæfði betur hin milda mjólk kratismans en hið dökka, högva vín kommúnismans. Mig tekur sárt að hafa leitt svo hreina og hvíta Alþýðu- flokkssál út á refilsstigu kommúnismans, hin eina af- sökun er sú, að ég hef gert þetta óalvitandi, því að sjálf- ur veit ég ekki til þess að hafa snúið nokkurri mann- eskju til kommúnisma.“ því, að meðal hermanna hans væru menn frá Saudi-Arabíu og Jórdaníu. Kvað hann þetta upp- spuna byltingarmann-a. — Ef Saudi-Arabíumenn og Jór danir væru meðal hermanna mdnna, sagði Imaminn, myndi ég leyfa ykkur að tala við þá, en ég hef alls ekki beðið Jórdaníu o.g Saudi-Arabíu um aðstoð. Fréttamenn spurðu Imaminn hve fylgismenn hans væru margir: — Fimm milljónir, svaraði hann, öll þjóðin er í mínu bandi, að undanteknum nokkrum upp- sem berjast gegn mér í landi mánu eru Egyptar. Imaminn ræddi um Nasser, for seta Egyptalands, með biturleik manns, sem finnst vinur hans hafa svikið hann. — Bg leit á Nasser sem vin minn og bróður, sagði al Badr, og ég trúði öllu, sem hann sagði, en af staðreyndum hef ég lært, að hann stendur ekki við orð sín og brýtur þær meginreglur, sem hann hefur sett. A1 Badr sagðist geta sannað, að flugvél.ar þær, sem gert hefðu loftárásir á borgir í Jemen, væru egypzkar og skýrði frá því, að Jemenbúar ættu aðeins 20 flug- vélar, sem hann hefði keypt, en þær hefðu aldrei verið notaðar. — í Jemen voru aðeins þrír lærðir flugmenn og tveir þeirra hafa verið drepnir. Imaminn sagði, að hersveitir konunigissinna hefðu nú á valdi sínu olil norðaustur og norðvest- ur héruð landsins. A1 Hassan, frændi hans stjórnaði norð aust- ur héruðunum, en hann sjálfur norðvestur héruðunum. Imaminn sagðist vilja fara þess á leit við allar þjóðir heims, að þær gerðu það, sem í þeirra vaidi stæði til þess að binda endi á blóðsútihellingarnar í Jemen og björguðu með því lífi margra Jemenbúa og Egypta. Kvað hann útþenslustefnu Nassers eiga alla sökina á blóðsútihellin.gunum. þjóð- mér“ Meðan fréttamennirnir ræddu við Imaminn kom skæru liðahópur, sem barizt hafði í fjóra daga á vígstöðvum í ná- grenni við stöðvar Imamsins. Fyrirliði skæruliðanna sagði, að þeir hefðu tekið átta brynvarðar bifreiðir herfangi, handtekið fjóra Egypta og 80 aðra menru • ét um bakdyrnar. Að lokum skýrði Imaminn fréttamönnum frá því hvernig honum hefði tekizt að flýja, þegar byltingin var gerð í sept- ember s.l. Kvöldið, sem byltingin var gerð, var hann á ráðuneytisfundl fram undir miðnætti, en þegar hann var á leið til íbúðar sinn- ar, var honum veitt eftirför af vopnuðum hermanni, sem reyndi að komast í færi og skjóta hann. Fór Imaminn þá að gruna, að efcki væri aMt með feMdu. Skyndilega slokknuðu öll ljós og skriðdrekar hófu skot hríð á höl.lina. Þetta voru sovézik ir skriðdrekar, sem Imaminn hafði sjálfur keypt. Skotihríðinni var haidiS áfram alla nóttina og morguninn eftir sagðist Imaminn hafa gert sér ljóst, að vonlaust væri fyrir hann að reyna að berjast gegn uppreisnarmönnum og áfcveðið að flýja. Fór hann úti um bak- dyr hallar sinnar í Taiz og kona í nágrenninu lét hann hafa her- mannaföt manns síns. í þessum fötum sagðist Imaminn hafa gengið um Taiz til kvölds, en þá hefði bann yfirgefið borgina ásamt fimrn vinum sínum, sem tilheyrðu ættflokki í norður- fjallahéruðunum. Höfðu þeir svarið honum hollustu og lofað því, að hermenn ættflokksina myndu berjast með honum. reisnarmönnum í Sanaa. Allir, Það eru Egyptar, sem berfast gegn mér

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.